Mariadomenica skrifaði:
Non riesco a capire il numero di maglie del primo ferro( taglia XXXL)che bisogna fare.gentilmente mi puoi scrivere esattamente come bisogna fare solo il primo mi faccio il conto ma non mi trovo.graxie
31.05.2019 - 21:26DROPS Design svaraði:
Buonasera Mariadomenica, per la taglia XXXL deve avviare 126 maglie e lavorare a maglia legaccio per 4 cm. Poi deve lavorare come segue seguendo il diagramma della sua taglia: 34 maglie a legaccio, diagramma A.1 su 15, diagramma A.2 su 28 maglie, diagramma A.3 su 14 maglie, 35 maglie a legaccio. Buon lavoro!
31.05.2019 - 21:39
Helga Brudevoll Duna skrifaði:
Når dere leverer oppskrifter slik burde dere sørge for at de ble levert i et utskriftvennlig format. Det er ikke denne!
24.05.2019 - 16:00
Vanda skrifaði:
Ce modèle me plait beaucoup, je vais le tricoter en coton blanc
02.05.2019 - 10:54
Sunny Island#sunnyislandtop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað í garðaprjóni og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-51 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram og bakstykki): Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun á umferð þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ÚRTAKA-2 (á við um handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í byrjun á umferð frá réttu þannig (= vinstri handvegur): Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar frá réttu þannig: (= hægri handvegur): Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið síðustu 2 lykkjurnar í umferð. ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í hverri umferð við háls þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið síðustu 2 lykkjurnar á undan hálsmáli. Fækkið lykkjum í hverri umferð frá hálsi þannig: Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum og saumað saman í lokin. Prjónað er garðaprjón og gatamynstur og prjónað er neðan frá og upp. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 84-90-98-106-116-126 lykkjur á hringprjón 4,5 með Paris. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan í 1-3-4-1-2-4 cm. Prjónið nú mynstur – sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð, þannig: Prjónið 15-18-22-24-29-34 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 14-14-14-15-15-15 lykkjur, A.2 yfir næstu 26-26-26-28-28-28 lykkjur, A.3 yfir næstu 13-13-13-14-14-14 lykkjur, 16-19-23-25-30-35 lykkjur garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-9-10-5-6-7 cm byrjar úrtaka í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 4-4-4-5-5-5 cm millibili alls 7 sinnum = 70-76-84-92-102-112 lykkjur. Haldið áfram með mynstur A.1 til A.3 alls 3 sinnum á hæðina JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm fellið af 4-5-6-7-8-9 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg. Fækkið síðan um 1 lykkju innan við 2 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-2 (á við um handveg). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 3-4-6-8-10-12 sinnum = 56-58-60-62-66-70 lykkjur. Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað til loka alls 3 sinnum á hæðina eru prjónaðar fyrstu 20-20-20-22-22-22 umferðir í mynsturteikningu, prjónið síðan 4 umferðir garðaprjón yfir alla lykkjur í umferð. Prjónið nú þannig: Prjónið fyrstu 12-13-13-14-15-17 lykkjur, fellið síðan af næstu 32-32-34-34-36-36 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið þær 12-13-13-14-15-17 lykkjur sem eftir eru. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni, en í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman innan við 2 lykkjur garðaprjón að/frá hálsi – sjá ÚRTAKA-3 = 11-12-12-13-14-16 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir hálsmáli er fellt af. Stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Ftijið upp eins og á framstykki og fylgið útskýringum fyrir framstykki alveg þangað til mynstur A.1 til A.3 hefur verið prjónað til loka. Þ.e.a.s. þar til prjónaðar hafa verið 3 mynstureiningar á hæðina + fyrstu 20-20-20-22-22-22 umferðir í mynsturteikningu (jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir handveg alveg eins og á framstykki = 56-58-60-62-66-70 lykkjur í umferð þegar úrtöku fyrir handveg er lokið). Nú eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur í umferð, síðan er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli þannig: Prjónið fyrstu 17-18-18-19-20-22 lykkjurnar, fellið af næstu 22-22-24-24-26-26 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið þær 17-18-18-19-20-22 lykkjur sem eftir eru. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni, en í hverri umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli innan við 2 lykkjur garðaprjón að/frá hálsi – munið eftir ÚRTAKA-3. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 6 sinnum = 11-12-12-13-14-16 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir hálsmáli – stillið af eftir framstykki, fellið af. Stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunnyislandtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-51
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.