Te-ying skrifaði:
Pour la taille S, il y a beaucoup trop de pelotes. 25g suffit pour les couleurs ; pour le coloris naturel, 75g (3 pelotes et il y aura largement assez). Pour les mailles à relever du col, avec 55 mailles, ma tête ne passait pas du tout. Très joli pull sinon !
24.04.2019 - 12:06
Ørsina Christensen skrifaði:
Er i gang med denne opskrift men har alt for meget garn i overskud. har strikket på pind mindre. Er det meninger at den skal strikkes med 2 tråde. (det står der ikke i opskriften. f.eks. har kun brugt 1 nøgle af lysgrøn nr. 14. men i opskriften står der 50 gr. = 2 ngl.
01.03.2019 - 14:35DROPS Design svaraði:
Hei Ørsina. Denne modellen skal strikke med 1 tråd. Det er nok noen av fargene i noen av størrelsene som ligger helt på grensen mellom 1 og 2 nøster, og da har vi rundet opp slik at man ikke risikerer å få for lite garn. God fornøyelse
06.03.2019 - 08:38
Ørsina Christensen skrifaði:
Jeg vil gerne spøre om hvad jeg har gjort forkert. jeg har købt garn efter opskriften men har mange nøgler i overskud. når der står 50 gr har jeg købt 2 ng.(a25 g) men f.eks. den grågrønne nr. 14 skal jeg kun bruge den ene nøgle. og jeg har strikket det på pind 5 i stedet for 6. tlf. 40334332
01.03.2019 - 11:44
Suzie skrifaði:
Bonjour, pour des rayures larges doit-on faire suivre le fil ?
20.02.2019 - 14:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Suzie, si vous choisissez de le faire suivre, veillez bien à ne pas trop tirer quand vous le reprendrez à la rayure suivante pour éviter de resserrer le bas de la manche. Bon tricot!
20.02.2019 - 16:12
Hanny Smulders skrifaði:
Kunt u voor mij het patroon, wat gebreid moet worden op een rondbreinaald omzetten naar gewone naalden? Met dank Hanny
18.02.2019 - 09:41DROPS Design svaraði:
Dag Hanny,
We hebben hiervoor een les gemaakt waarin uitgelegd wordt hoe je een patroon aanpast, zodat je het kunt breien met rechte naalden. Deze les vind je hier.
26.02.2019 - 09:44
Monique skrifaði:
Bonjours, pourquoi il est impossible de vous envoyer un message, il est indiqué "mot interdit"
14.02.2019 - 21:28DROPS Design svaraði:
Bonjour Monique, pouvez-vous nous indiquer via Facebook le mot qui vous a été refusé pour que nous puissions vérifier? Essayez de reformuler votre question, en utilisant d'autres mots. Merci. Bon tricot!
15.02.2019 - 08:50
Mila skrifaði:
I love it!
20.01.2019 - 21:22
Lucka skrifaði:
Zajímavá kombinace barev, takový bych potřebovala, snad se dostane do výběru.
24.12.2018 - 00:09
Anneli skrifaði:
Ema ja tütre kampsun!
14.12.2018 - 12:19
Natacha skrifaði:
Chouette !
12.12.2018 - 21:27
Mardi Gras#mardigrassweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með blöðruermum og röndum úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð: S-XXXL
DROPS 201-22 |
|
------------------------------------------------------ UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PERLUPRJÓN (prjónað í hring): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. PERLUPRJÓN (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 12-12,5-13-13,5-13,5-14 cm með litnum ljós grágrænn, 12-12,5-13-13-14-14,5 cm með litnum natur, 12-12,5-13-13,5-13,5-14 cm með litnum daufbleikur og prjónið síðan til loka með litnum gallabuxnablár = 12-12,5-13-13-14-14,5 cm. RENDUR ERMI: Prjónið 4,5 cm með litnum natur, 3 cm með litnum karrí, 4,5 cm með litnum natur, 3 cm með litnum karrí og 4,5 cm með litnum natur, 3 cm með litnum karrí. ÚRTAKA-1: Prjónið 3 miðju lykkjur undir ermi slétt saman (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING-1: Prjónið 2 lykkjur í 1 lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju, en sleppið ekki þessari lykkju yfir á vinstri prjón. Prjónið 1 lykkju til viðbótar í sömu lykkju, en hún er prjónuð í aftari lykkjubogann á lykkjunni = 1 lykkja fleiri. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir neðst á ermum): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 2,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir aðra hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Sláið e.t.v. 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Við handveg skiptist stykkið í tvennt og framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka, hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 132-144-156-172-188-208 lykkjur á hringprjón 4 með litnum karrí. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-5-5-5 cm. Skiptið yfir á prjón 6 og litinn grágrænn og prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT því sem prjónaðar eru RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 skiptist stykkið í tvennt og framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 66-72-78-86-94-104 lykkjur. Prjónað er fram og til baka og í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir ermasaum = 2 lykkjur fleiri – sjá ÚTAUKNING-1 = 68-74-80-88-96-106 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm fellið af miðju 22-22-24-24-26-26 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af við háls í annarri hverri umferð: 2 lykkjur alls 1 sinni. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið laust af þær 21-24-26-30-33-38 lykkjur sem eftir eru með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 66-72-78-86-94-104 lykkjur. Prjónið eins og bakstykki, en fellið af fyrir hálsmáli þannig: Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm fellið af miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur alls 2 sinnum og 1 lykkja alls 1 sinni. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm fellið af þær 21-24-26-30-33-38 lykkjur sem eftir eru laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 36-38-40-42-44-46 lykkjur á sokkaprjón 4 með litnum karrí. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-5-5-5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 6 og natur og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er aukið út um 24-22-22-22-20-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 60-60-62-64-64-66 lykkjur. Prjónið síðan PERLUPRJÓN og RENDUR-ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar RENDUR-ERMI hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með litinn natur til loka. Þegar stykkið mælist 25-25-25-25-25-25 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-1, úrtakan er endurtekin með 4-6-5-5-0-0 cm millibili alls 4-3-2-2-0-0 sinnum = 52-54-58-60-64-66 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-52-51-49-47-45 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) og fellið af þær lykkjur sem eftir eru með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur. Takið upp ca 55-55-60-60-65-65 lykkjur í kringum hálsmál með litnum gallabuxnablár á sokkaprjón 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðin) í ca 2,5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mardigrassweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.