DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mardi Gras Jacket

Prjónuð peysa með blöðruermum, V-hálsmáli og röndum úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð: S-XXXL

DROPS 201-21
DROPS Design: Mynstur as-104
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
25-25-25-25-25-25 g litur 19, karrí
75-75-75-100-100-100 g litur 01, natur
25-25-25-25-25-25 g litur 12, daufbleikur
25-25-25-25-25-25 g litur 14, ljós grágrænn
25-25-25-25-25-25 g litur 13, gallabuxnablár

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 4 st í allar stærðir

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með perluprjóni = 10 x 10 cm á prjóna nr 6

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm fyrir perluprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------
Samsetning lita sem sýndar eru:
A) DROPS Brushed Alpaca Silk 08, 01, 09, 12, 04.
B) DROPS Brushed Alpaca Silk 04, 01, 14, 02, 05.
C) DROPS Brushed Alpaca Silk 15, 01, 05, 13, 17.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11704.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PERLUPRJÓN (prjónað í hring):
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

PERLUPRJÓN (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið 12-12,5-13-13,5-13,5-14 cm með litnum ljós grágrænn, 12-12,5-13-13-14-14,5 cm með litnum natur, 12-12,5-13-13,5-13,5-14 cm með litnum daufbleikur og prjónið síðan til loka með litnum gallabuxnablár = 12-12,5-13-13-14-14,5 cm.

RENDUR ERMI:
Prjónið 4,5 cm með litnum natur, 3 cm með litnum karrí, 4,5 cm með litnum natur, 3 cm með litnum karrí og 4,5 cm með litnum natur, 3 cm með litnum karrí.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Þær 6 lykkjur við miðju að framan = kantur að framan. Prjónið þannig:
Þær ystu 5 lykkjur við miðju að framan eru prjónaðar slétt í öllum umferðum og 6. lykkjan er prjónuð í sléttprjóni séð frá réttu.

ÚRTAKA-1:
Lykkjum er einungis fækkað frá réttu, innan við kant við miðju að framan þannig:
Prjónið 5 lykkjur slétt, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2:
Fækkið lykkjum einungis frá réttu, innan við kant við miðju að framan þannig:
Prjónið perluprjón þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni. Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 7. og 6. lykkju slétt saman. Prjónið þær 5 lykkjur sem eftir eru slétt.

ÚRTAKA-3:
Prjónið 3 miðjulykkjur undir ermi slétt saman (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING-1:
Prjónið 2 lykkjur í 1 lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju, en sleppi ekki þessari lykkju yfir á vinstri prjón. Prjónið 1 lykkju til viðbótar í sömu lykkju, en hún er prjónuð í aftari lykkjubogann á lykkjunni = 1 lykkja fleiri.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir neðst á ermum):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 2,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir aðra hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT (neðan frá og upp):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af þriðju og fjórðu lykkju frá kanti. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist ca:
S: 1, 10, 19 og 28 cm
M: 1,5, 10,5, 19,5 og 28,5 cm
L: 1, 10,5, 20 og 29,5 cm
XL: 1, 11, 21 og 31 cm
XXL: 1, 11, 21 og 31 cm
XXXL: 1,5, 11,5, 21,5 og 31,5 cm

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Sláið e.t.v. 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig fram og til baka á hringprjón neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón neðan frá og upp.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 66-72-78-86-94-104 lykkjur á hringprjón 4 með litnum karrí. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-5-5-5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6 og ljós grágrænn og prjónið síðan PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT eru prjónaðar RENDUR- FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir ermasaum – sjá ÚTAUKNING-1= 68-74-80-88-96-106 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, prjónið garðaprjón yfir miðju 38-38-40-40-42-42 lykkjurnar, aðrar lykkjur eru prjónaðar í perluprjóni eins og áður. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm fellið af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 21-24-26-30-33-38 lykkjur á hvorri öxl.
Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir 6 ystu lykkjur við hálsmál og prjónið perluprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm er fellt laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur - sjá AFFELLING að ofan.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Jafnframt því sem hægra framstykki er prjónað, á einnig að prjóna HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Fitjið upp 39-42-45-49-53-58 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan) á hringprjón 4 með litnum karrí. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-5-5-5 cm jafnframt er prjónaður KANTUR AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan. Eftir stroff er skipt yfir á hringprjón 6 og litinn ljós grágrænn og prjónað PERLUPRJÓN, RENDUR-FRAM- OG BAKSTYKKI og KANTUR AÐ FRAMAN.
Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-31-32 cm byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli: Fækkið um 1 lykkju með 1 cm millibili alls 19-19-20-20-21-21 sinnum – sjá ÚRTAKA-1 = 20-23-25-29-32-37 lykkjur í umferð – JAFNFRAMT, þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm aukið út um 1 lykkju fyrir ermasaum yst við handveg – sjá ÚTAUKNING-1 = 21-24-26-30-33-38 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING að ofan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki án hnappagata og með kant að framan í lok umferðar. Við V-hálsmál SJÁ ÚRTAKA-2.

ERMI:
Fitjið upp 36-38-40-42-44-46 lykkjur á sokkaprjón 4 með litnum karrí. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-5-5-5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 6 og litinn natur og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er aukið út um 24-22-22-22-20-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 60-60-62-64-64-66 lykkjur. Prjónið síðan PERLUPRJÓN og RENDUR-ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar RENDUR-ERMI hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með litinn natur til loka.
Þegar stykkið mælist 25-25-25-25-25-25 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-3, úrtakan er endurtekin með 4-6-5-5-0-0 cm millibili alls 4-3-2-2-0-0 sinnum = 52-54-58-60-64-66 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-52-51-49-47-45 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) og fellið af þær lykkjur sem eftir eru með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið stykkin saman í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur – kantlykkjur að framan á hvoru framstykki er saumaður saman með lykkjum í garðaprjóni meðfram kanti í hálsmáli á bakstykki. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 17.11.2021
Leiðrétting: Efnismagn hefur verið leiðrétt í öllum stærðum. Leiðrétting á röndum á fram-og bakstykki í stærð XL.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Pernille wrote:

Hvor meget garn går der til str m i ensfarvet garn?

15.04.2024 - 14:01

DROPS Design answered:

Hei Pernille. Det har vi dessverre ikke oversikten over. Men sammelign jakken med lignende ensfarget akker i Brushed Alpaca Silk, så får du en ca garnmengde. mvh DROPS Design

15.04.2024 - 14:36

country flag Svetla wrote:

Hello! Thank you for this nice pattern! I am using Drops brushed alpaca silk. My gauge swatch with this yarn, 6mm needle, moss stitch 15st x 24rows is 10cm x 9cm (but in case I knit very loosely). If I cast-on 66st (very loosely) for size S (my size), back piece with 4cm needle rib 1x1, the length is 31cm. If I cast-on 66st with 6cm needle, the length is 34cm. If I cast-on 78st with 6cm needle, the length is 42cm. I am confused whether I make a mistake and which size should I knit. Thank you!:)

29.01.2024 - 18:05

DROPS Design answered:

Dear Svetla, don't work too loosely; the correct width is more important than the correct length in the gauge. So work with exactly the same gauge as the one in the swatch and it should be the correct cm for your size. You need to cast on with the 4mm needle, for the rib. This is tighter than the calculated gauge but it will start to stretch once you finish the rib and change needle size so you don't need to worry about it. Then continue with the 6mm needle, with the same gauge as in the swatch and following the instructions for your size (S). Happy knitting!

29.01.2024 - 23:24

country flag Esmée wrote:

Dag, als ik dit vest in één kleur wil breien, hoeveel garen zou ik dan ongeveer nodig hebben?

31.12.2023 - 11:27

country flag Ann wrote:

Pattern says 'cast on ... stitches with circular needle size ... and curry. What does 'curry' mean? Thank you.

05.02.2023 - 03:26

DROPS Design answered:

Dear Ann, "curry" is the color used for casting on (colour 19). Happy knitting!

05.02.2023 - 23:30

country flag Katelijne wrote:

Hoe brei ik de mouwen aan het lijf? Met welke steek? Hebben daar een filmpje van want dit moet met 2 kleuren , blauw aan wit ! Ik probeerde het maar je zag steeds heel goed het kleur in het andere werk . Dank je

08.11.2022 - 19:39

DROPS Design answered:

Dag Katelijne,

In een van de video's die bij het patroon staan wordt uitgelegd hoe je een mouw innaait in een trui met tricotsteek. Deze techniek kun je ook gebruiken voor dit patroon.

10.11.2022 - 17:22

country flag Van Cauwenberghe Katelijne wrote:

Brei ik deze trui met enkele draad ?

19.10.2022 - 16:43

DROPS Design answered:

Dag Katelijne,

Ja, als je Brushed Alpaca Silk gekozen hebt brei je met een enkele draad. (Als je als vervangend garen een garen uit categorie A hebt gekozen, dan brei je met een dubbele draad.)

19.10.2022 - 19:52

country flag Roksana wrote:

Nie rozumiem ostatniego etapu tyłu. Po zamknięciu środkowych 26 oczek, w jakiś sposób mam przerabiać dalej normalnie pozostałe oczka? Powstanie wtedy wielka dziura. Nie mogłam znaleźć żadnego wideo z instrukcjami.

09.03.2022 - 18:39

DROPS Design answered:

Witaj Roksano, jak zamkniesz oczka środkowe, dalej przerabiaj oczka lewego ramienia do podanej wysokości. Zakończ i odetnij nitkę. Dołącz nitkę na prawe ramię na lewej stronie robótki od strony dekoltu i wykonaj prawe ramię tak samo jak lewe. Pozdrawiamy!

10.03.2022 - 09:01

country flag VU wrote:

Je souhaiterais faire ce gilet en une seule couleur. Pourriez-vous m’indiquer combien de pelotes faudra-t-il que j’achète. Merci pour votre aide.

26.11.2021 - 14:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vu, malheureusement, nous avons seulement la quantité indiquée, c'est-à-dire avec les rayures, et nous n'avons plus le gilet pour vérifier. Vous pouvez additionner les couleurs, vous aurez fort probablement besoin de moins, votre magasin DROPS saura vous aider, même par mail ou téléphone, n'hésitez pas à le contacter. Bon tricot!

26.11.2021 - 15:56

country flag Fouillet wrote:

Bonjour, Puis je travailler ce modèle avec des aiguilles droites ? En vous remerciant Bien cdt Aurore Fouillet

15.10.2021 - 15:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fouillet, tout à fait, vous trouverez dans cette leçon quelques astuces pour les manches. Bon tricot!

15.10.2021 - 16:18

country flag Line Souline Elvien wrote:

I str XL står der striberne på kroppen skal være 12 cm, men det giver ikke logisk mening, da det er kortere end størrelse L. Hvor mange cm skal striberne være?

12.05.2021 - 15:02

DROPS Design answered:

Hej Line, så er striberne i XL rettet. Tak for info :)

14.05.2021 - 09:05