Erika skrifaði:
Bellissimo ma per chi lo lavora con i ferri dritti e non circolari il diagramma a3 il primo giro sono 2 dritti e tre rovesci, e il ferro successivo 3 diritti e 2 rovesci giusto?
01.12.2019 - 15:44DROPS Design svaraði:
Buongiorno Erika. Sì, lavorando in ferri di andata e ritorno, il secondo ferro sono 3 m diritto e 2 maglie rovescio. Buon lavoro!
02.12.2019 - 06:36
Suski skrifaði:
Miten tämä ohjeen kohta tehdään: "neulo 2 silmukkaa kiertäen oikein yhteen"? Miten tehdään kiertäen oikein yhteen?
17.10.2019 - 10:01DROPS Design svaraði:
Hei, tämä tehdään neulomalla silmukat niiden takareunoista yhteen.
18.10.2019 - 16:22
Gisèle Delisle skrifaði:
Merci beaucoup. C'est noté. J'ai adoré faire ce projet car le modèle est très joli. Ma petite-fille sera vraiment heureuse de le porter avec son nouveau manteau. Très beau patron.
03.02.2019 - 23:36
Gisèle Delisle skrifaði:
Dans le patron du bonnet, que signifie : tricoter 0-1-0 mailles endroit?
03.02.2019 - 20:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Gisele. Tricoter 0-1-0 mailles endroit signifie que vous devez tricoter 1 maille endroit au debut du tour seulement dans la taille M/L. Dans les tailles restantes vous ne tricotez que 2 par 2 mailles ensemble à l’endroit. Bon tricot!
03.02.2019 - 23:25
Enrica Mazza skrifaði:
Ma lo schema comprende i giri al rovescio del lavoro? o invece descrive solo i giri al diritto?
24.01.2019 - 09:23DROPS Design svaraði:
Buongiorno Enrica. Sia il berretto che lo scaldacollo sono lavorati in tondo, quindi lavora sempre con il diritto del lavoro verso di lei. Nei diagrammi sono descritti tutti i giri del motivo. Buon lavoro!
24.01.2019 - 09:56
Nicole skrifaði:
Ce point tricot est fabuleux !!!! Je suis impatiente de le voir sur mes aiguilles
14.06.2018 - 07:13
Réjeanne skrifaði:
Very pretty but not practical. Won't keep the cold from entering at the neck.
06.06.2018 - 09:19
Dancing Snow#dancingsnowset |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð húfa úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað í hring með áferð. Prjónað hálsskjól úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað í hring með áferð.
DROPS 192-9 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.3 og A.4. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Skipt er yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 48-52-56 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Snúið stykkinu og prjónið síðan í hring þannig: Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Setjið eitt prjónamerki í síðustu umferð sem var prjónuð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú mynstur A.1 (= 12-13-14 mynstureiningar með 4 lykkjum). Eftir útaukningu í fyrstu umferð eru 60-65-70 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið síðustu 6 umferðirnar á hæðina þar til stykkið mælist 15-16-17 cm (nú er eftir ca 6 cm til loka) – stillið af að næsta umferð sem er prjónuð sé síðasta umferð í A.1. Nú er síðasta umferð í A.1 prjónuð og fækkað er um 1 lykkju brugðið í hverri einingu með brugðnum lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman (= 12-13-14 lykkjur færri í umferð) = 48-52-56 lykkjur. Prjónið síðan A.2 (= 4 lykkjur) yfir hverja mynstureiningu A.1, en passið uppá að síðustu 6 umferðirnar í A.1 hafa verið prjónaðar til loka á hæðina áður en byrjað er með A.2. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka eru 36-39-42 lykkjur í umferð. Prjónið 0-1-0 lykkjur slétt, prjónið síðan 2 og 2 lykkjur slétt saman = 18-20-21 lykkjur. Klippið frá, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 31-32-33 cm. Brjótið uppá stroff þannig að það verði uppábrot ca 5 cm. Húfan mælist ca 26-27-28 cm með 5 cm uppábroti neðst niðri. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. HÁLSSKJÓL. Fitjið upp 80-85-90 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan mynsturteikningu A.3 (= 5 lykkjur) alls 16-17-18 sinnum hringinn í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll mynsturteikning A.3 hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru endurteknar síðustu 6 umferðirnar í mynsturteikningu þar til stykkið mælist ca 23-25-27 cm – stillið af að þannig að endað sé eftir síðustu 6 umferðir í mynsturteikningu. Prjónið nú A.4 yfir hverja mynstureiningu A.3. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 64-68-72 lykkjur í umferð. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Hálsskjólið mælist ca 27-29-31 cm á hæð. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dancingsnowset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 192-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.