DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Air yarn
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Product image DROPS Brushed Alpaca Silk yarn
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 631.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6946.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Polar Winter

Prjónaður hálsklútur úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað fram og til baka með áferð.

DROPS 192-20

#polarwinterscarf

DROPS Design: Mynstur ai-172
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

Mál:
Breidd: ca 30 cm.
Lengd: ca 156 cm.

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150 g litur 01, natur
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm. 1 mynstureining A.1 mælist 4 cm á breidd.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: lengd 60 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Product image DROPS Brushed Alpaca Silk yarn
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 631.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6946.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón.

HÁLSKLÚTUR:
Fitjið upp 36 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað mynstur frá réttu þannig: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 (= 5 lykkjur) alls 6 sinnum á breidd, prjónið 2 fyrstu lykkjur í A.1, 2 lykkjur í garðaprjóni. Í fyrstu umferð er fækkað um 6 lykkjur (úrtakan er teiknuð inn í mynsturteikningu) = 30 lykkjur.
Í 3. umferð er aukið út um 7 lykkjur (útaukning er teiknuð inn í mynsturteikningu) = 37 lykkjur. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru endurteknar síðustu 6 umferðir í mynsturteikningu þar til stykkið mælist 151 cm.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú A.2 (= 5 lykkjur) yfir hverja mynstureiningu A.1. Í 5. umferð í A.2 er fækkað um 7 lykkjur í umferð (úrtaka er teiknuð inn í mynsturteikningu) = 30 lykkjur. Í 7. umferð í A.2 er aukið út um 6 lykkjur í umferð (útaukning er teiknuð inn í mynsturteikningu) = 36 lykkjur. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist hálsklúturinn ca 156 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

slétt frá réttu, brugðið frá röngu = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
brugðið frá réttu, slétt frá röngu = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
prjónið 2 lykkjur í eina lykkju, þ.e.a.s. prjónið í fremri og aftari lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri) = prjónið 2 lykkjur í eina lykkju, þ.e.a.s. prjónið í fremri og aftari lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri)
þræðið hægri prjón í gegnum miðju af 3 lykkjum slétt 4 umferðum fyrir neðan, sláið 1 sinni uppá prjóninn og dragið þráðinn til baka að réttu þannig að uppslátturinn verði 4½ cm langur (uppslátturinn má ekki vera of stífur – þá kemur prjónfestan til með að verða of stíf á hæðina), prjónið 3 lykkjur slétt, þræðið hægri prjón í gegnum sömu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og dragið þráðinn til baka að réttu þannig að uppslátturinn verði 4½ cm langur. = þræðið hægri prjón í gegnum miðju af 3 lykkjum slétt 4 umferðum fyrir neðan, sláið 1 sinni uppá prjóninn og dragið þráðinn til baka að réttu þannig að uppslátturinn verði 4½ cm langur (uppslátturinn má ekki vera of stífur – þá kemur prjónfestan til með að verða of stíf á hæðina), prjónið 3 lykkjur slétt, þræðið hægri prjón í gegnum sömu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og dragið þráðinn til baka að réttu þannig að uppslátturinn verði 4½ cm langur.
leggðu þráðinn yfir stykkið þannig að hann snúi að þér, lyftu uppslættinum laust af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 3 lykkjur brugðið, leggðu þráðinn yfir stykkið þannig að hann snúi að þér, steyptu uppslættinum af prjóni eins og prjóna eigi slétt<br />
<br />
= leggðu þráðinn yfir stykkið þannig að hann snúi að þér, lyftu uppslættinum laust af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 3 lykkjur brugðið, leggðu þráðinn yfir stykkið þannig að hann snúi að þér, steyptu uppslættinum af prjóni eins og prjóna eigi slétt

prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman = prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman
prjónið 2 lykkjur slétt saman = prjónið 2 lykkjur slétt saman
þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fella af þessa lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fella af þessa lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
prjónið 2 lykkjur brugðið saman = prjónið 2 lykkjur brugðið saman
Diagram for DROPS 192-20
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #polarwinterscarf eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 192-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Moosi skrifaði:

Vielen Dank für die Antwort. Auf 37 M komme ich in der 3. Reihe nach 7 Zunahmen, genau. Dann stricke ich wie folgt die Rückreihe (4. Reihe Diagramm A1): 2M Krausrechts, 6x A1 (2re 3li), dann nochmal 2re aus A1 und 2 Krausrechts. Damit komme ich auf 36 M und habe eine von 37 M aus der vorherigen Reihe übrig, was mache ich ab der 4. Reihe des Diagramms falsch?

06.12.2024 - 15:58

DROPS Design svaraði:

Liebe Moosi, wenn Sie 37 Maschen nach der 3. Reihe haben, dann sollen Sie auch 37 Maschen bei er 4. Reihe stricken, bei A.1 sind es immer 3 Maschen links (= glattrechte Masche) mit jeweils 2 Maschen rechts (= glattlinke Maschen) dazwischen. Viel Spaß beim Stricken!

09.12.2024 - 07:31

country flag Moosi skrifaði:

Nachtrag: Also ich habe in der 3. Reihe dann 37 M auf der Nadel wie beschrieben. Wenn ich dann 6x A1 stricke (30M) plus 2M A1 und je 2 Randmaschen habe ich doch von den 37 M noch eine übrig?

06.12.2024 - 14:47

DROPS Design svaraði:

Liebe Moosi, bei der 1. reihe wird man 1 M abnehmen, bei der 3. Reihe 1 Masche in jedem A.1 zunehmen; also 6 Rapporter insgesamt + 1 (= in die ersten 2 Maschen in A.1 wird man auch am Ende der Reihe zunehmen), so haben Sie 37 Maschen . Viel Spaß beim Stricken!

06.12.2024 - 15:45

country flag Moosi skrifaði:

Hallo, ich habe ein Verständnisproblem beim Lesen. Nach der Aufnahme stricke ich eine Reihe links. Dann beginne ich mit dem Diagramm A1 - ist die erste Reihe denn eine Rückreihe? Da ich ja immer am Ende noch einmal die zwei ersten Maschen A1 stricken muss, müsste ich in der dritten Reihe des Musters dann ja noch aus einer Masche zwei stricken und hätte dann eine zuviel, daher müsste die erste Reihe des Diagramms eine Rückreihe sein oder habe ich einen Denkfehler?

06.12.2024 - 14:03

DROPS Design svaraði:

Liebe Moosi, nach Anschlag 1 Reihe links = Rückreihe, dann bei der nächsten Reihe = Hinreihe, mit A.1 beginnen :2 M krausrechts, dann die 5 Maschen A.1 wiederholen, die 2 ersten Maschen A.1 stricken (so wird das Muster symmetrisch) und 2 M krausrechts. Bei den Rückreihen lesen Sie das Diagramm links nach rechts. In diesem Video zeigen wir, wie man so ein Muster strickt. Viel Spaß beim Stricken!

06.12.2024 - 15:43

country flag Prakriti Pollack skrifaði:

Can I do this pattern using a straight needle? If yes, is there any adjustment that I should be making in the pattern? Thanks

14.11.2024 - 19:21

DROPS Design svaraði:

Hi Prakriti, yes, you can use a straight needles for this pattern. No special adjustments are needed - the only reason we recommend a circular needle is that it is longer than a regular straight needle and so all stitches fit comfortably. Happy knitting!

14.11.2024 - 20:51

country flag Unni Sand skrifaði:

Tak. Så er jeg med 😁 Vh Unni

17.01.2024 - 18:46

country flag Unni Sand skrifaði:

Undskyld, jeg må være meget tungnem. Du skriver: "2 kantmasker diagram A.1=5m x 6 = 30m + 2 første m i A.1 + 2 kantmasker = 36m: Vil det sige: 2 kantmasker i starten og 2+2 til slut? Og så de 5x6. Det giver 36 m? Hvis det er: 2 kantmasker , 5x6 A1, 2 kantmasker, så giver det 34. Kan du være mere præcis? Vh Unni

16.01.2024 - 18:33

DROPS Design svaraði:

Hej Unni, det kan ikke blive mere præcis... 2 kantmasker, diagram A.1=(5m x 6 = 30m) + 2 første m i A.1 + 2 kantmasker = 36m (2+30+2+2=36)

17.01.2024 - 13:19

country flag Unni Sand skrifaði:

Allerede på p 2 går det galt for mig. Når der er slået 36 masker op og rapporter går hen over 5 masker, er der jo en maske til overs til sidst. 5 m x 6 ganger = 35 m. Ikke 36 m. Hvad forstår jeg ikke?

14.01.2024 - 18:34

DROPS Design svaraði:

Hej Unni, jo 2 kantmasker diagram A.1=5m x 6 = 30m + 2 første m i A.1 + 2 kantmasker = 36m

16.01.2024 - 14:15

country flag Ilona skrifaði:

Kupiłam włóczki tyle ile w opisie (i takiej jak w opisie). Skończyła mi się właśnie cała gruba włóczka i mam może jakiś metr szalika. Natomiast tej cienkiej mam jeszcze 2,5 motka. Chyba coś jest nie tak w opisie. Rozczarowanie.

25.02.2023 - 17:09

DROPS Design svaraði:

Witaj Ilono, niestety sama nie wykonywałam tego szalika, a w pozostawionych do niego komentarzach nie widzę żadnego związanego ze zbyt małą ilością włóczki. Na myśl przychodzi mi tylko pytanie czy przed wykonaniem wykonałaś próbkę i była ona zgodna z tą w opisie?

27.02.2023 - 08:55

country flag Sara skrifaði:

Hej jag skulle vilja att första och sista maskan på halsduken/kantmaskorna alltid blir räta från rätsidan Hur gör jag då? (Hur får jag kanten att inte bli varannan r varannan a utan bara r m från rätsidan/framsidan? )

13.01.2022 - 14:26

DROPS Design svaraði:

Hej Sara. Då får du sticka de räta från rätsidan och aviga från avigsidan, men tänk på att en slätstickad kant ofta rullar sig (det är därför man oftast gör kanter i rätstickning). Mvh DROPS Design

14.01.2022 - 14:12

country flag Lola skrifaði:

Bonjour, je ne comprends pas comment tricoter le premier rang : faut-il tricoter un rang à l'envers ou commencer directement par le motif A1 ? Merci !

24.11.2021 - 11:40

DROPS Design svaraði:

Bonjour Lola, vous tricotez d'abord 1 rang en mailles envers (ce rang est l'envers de l'écharpe) puis tricotez le rang suivant sur l'endroit avec le motif A.1 (=1er rang de A.1 = sur l'endroit). Bon tricot!

24.11.2021 - 15:42