Sue skrifaði:
Hi, I’m fairly new to crochet and this is my first time to follow a pattern diagram, in the instructions for the neckwarmer I don’t understand when I work the stitches for A.4, as there is no reference to work them over how many stitches like the previous A.2 etc. Also why do you work a 2 stitch pattern over 19 stitches? Knitting is so much clearer than crochet :-)
31.12.2019 - 11:58DROPS Design svaraði:
Dear Sue, when you have worked A.4 one time in height (= 4 rows), work first row in A.4 over the remaining stitch in previous A.4 + next 3 sts = 4 stitches. And continue working diagrams as before so that stitches and pattern continue in height. Happy crocheting!
02.01.2020 - 14:00
Alienke skrifaði:
Klopt het, dat je bij de muts alleen de 1e steek met 3 dubbele stokjes meerdere? Voor mijn gevoel moet ik vaker meerderen want mijn werk trekt krom. Of ik krijg.een puntmuts ^^
25.06.2019 - 14:23DROPS Design svaraði:
Dag Alienke,
Voor de muts haak je A.1 10 keer in totaal op de toer in de breedte. Dat betekent dus ook dat je 10 keer die 3 stokjes in 1 stokje haakt. Op die manier zal je werk niet meer krom trekken.
27.06.2019 - 13:03
Laura skrifaði:
Grazie...
11.01.2019 - 15:37
Laura skrifaði:
Salve, nella lavorazione dello scaldacollo... non mi è chiaro quando mettete fra parentesi (=2maglie) oppure (=5 maglie) ecc. che devo fare? Vi copio parte della descrizione a cui faccio riferimento... lavorare A.2 (= 2 maglie) sulle 19 maglie successive, lavorare A.3 sulle 7 maglie successive, A.4 (= 5 maglie), Grazie :)
10.01.2019 - 15:30DROPS Design svaraði:
Buongiorno Laura, il numero tra parentesi è il numero di maglie di una ripetizione del motivo. Buon lavoro!
10.01.2019 - 16:31
Sheila Lebleu skrifaði:
Ondertussen is de baret af. Ik heb nog een toer minderingen gehaakt. Nu past hij perfect.
01.01.2019 - 20:50
Sheila Lebleu skrifaði:
Hallo Bij het begin kom ik in de 80 steken uit ipv 93. Wat doe ik fout? Ik doe de minderingen als volgt: ☆1 steek overslaan, 2 steken haken, 1steek overslaan, 6 steken haken ☆ Groeten
25.12.2018 - 19:52DROPS Design svaraði:
Dag Sheila,
Er lijkt inderdaad iets niet te kloppen met het aantal steken, ik heb het doorgegeven aan de ontwerp afdeling ter controle.
01.01.2019 - 20:26
Rebecca skrifaði:
Raspberry beret
15.07.2018 - 02:48
Roselyn#roselynset |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Hekluð basker / alpahúfa og hálsskjól úr DROPS Puna.
DROPS 192-30 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.2 til A.6. HEKLLEIÐBEININGAR-1 (á við um húfu): Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er byrjað með 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum er byrjað með 4 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í umferð. ÚRTAKA (á við um húfu): Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af næstu 2 lykkjum, en bíðið með að draga þráðinn í gegnum þessa tvíbrugðnu stuðla, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 tvíbrugðinn stuðull færri). HEKLLEIÐBEININGAR-2 (á við um hálsskjól): Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. lykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum, skiptið út fyrsta tvíbrugðna stuðli með 4 loftlykkjum, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. lykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. HÚFA: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4 með Puna og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 1 loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR-1, heklið 10 fastalykkjur um hringinn. Heklið A.1 (= yfir 1 lykkju) alls 10 sinnum hringinn. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 130 lykkjur í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 24 cm alls (þ.e.a.s. 12 cm frá miðju). Heklið síðan * 1 umferð með fastalykkjum, 1 umferð með tvíbrugðnum stuðlum *, heklið frá *-*. Þegar stykkið mælist ca 20 cm frá miðju á húfu er lykkjum fækkað í næstu umferð með tvíbrugðnum stuðlum þannig: Fækkið um 20 tvíbrugðna stuðla jafnt yfir – sjá ÚRTAKA, þ.e.a.s. til skiptis eru heklaðir saman 5. og 6. hver tvíbrugðinn stuðull og 6. og 7 hver tvíbrugðinn stuðull = 110 lykkjur. Heklið 1 umferð með fastalykkjum. Í næstu umferð með tvíbrugðnum stuðulum er fækkað um 20 lykkjur jafnt yfir (þ.e.a.s. til skiptis eru heklaðir saman 4. og 5. hver tvíbrugðinn stuðull og 5. og 6. hver tvíbrugðinn stuðull) = 90 lykkjur. Síðan er húfan hekluð til loka með 2 þráðum Puna. Heklið fastalykkjur hringinn í 4 cm. Klippið frá og festið enda. Húfan mælist ca 28 cm. DÚSKUR: Gerið einn dúsk ca 5-6 cm að þvermáli og festið dúskinn á toppinn á húfunni. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. HÁLSSKJÓL: Heklið 108 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Puna og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið 1 loftlykkju (= kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR-2), hoppið yfir fyrstu loftlykkju í loftlykkjuhring, heklið 1 fastalykkju í hvora af næstu 2 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* = 93 fastalykkjur. Heklið síðan mynstur frá miðju að aftan þannig: Heklið A.2 (= 2 lykkjur) yfir næstu 19 lykkjur, heklið A.3 yfir næstu 7 lykkjur, A.4 (= 5 lykkjur), A.2 yfir næstu 12 lykkjur, A.5 yfir 7 lykkjur (= miðja að framan), A.2 yfir næstu 12 lykkjur, A.6 (= 5 lykkjur), A.3 yfir næstu 7 lykkjur og endið með A.2 yfir næstu 19 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur, þ.e.a.s. aukið út um lykkjur við miðju að framan og fækkið lykkjum í hvorri hlið þannig að lykkjufjöldinn verði sá sami. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 16 cm við miðju að aftan, stillið af að endað sé á 1 umferð með kúlum, klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #roselynset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 192-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.