Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= slétt frá réttu, brugðið frá röngu | |
= brugðið frá réttu, slétt frá röngu | |
= þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga EKKI að koma göt | |
= prjónið 3 lykkjur, lyftið fyrstu lykkju sem var prjónuð yfir 2 síðustu lykkjur þannig að þessi lykkja liggi utan um hinar tvær lykkjurnar (= 1 lykkja færri) | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju laust af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð | |
= setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni | |
= setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni | |
= setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni | |
= setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni | |
= 2 lykkjur brugðið saman |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Meet the Dawn |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð húfa og vettlingar með köðlum og garðaprjóni úr DROPS Sky.
DROPS 192-31 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka) – á við um húfu: Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Húfa: Sjá mynsturteikningu A.1. Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.2 og A.3. Þar sem lykkjum er fækkað og aukið út í mynsturteikningu A.1b, A.2b og A.3b, getur lykkjufjöldinn orðið breytilegur miðað við þetta um 1 lykkju, þar sem lykkjum hefur verið fækkað. ÚRTAKA-1 – á við um húfu: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring) - á við um vettlinga: *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING- á við um vettlinga. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar síðan í garðaprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og er saumað saman í lokin. HÚFA: Fitjið upp 114-120 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 3 með Sky. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið 39-42 lykkjur garðaprjón, A.1 (= 36 lykkjur) og 39-42 lykkjur garðaprjón. Þegar A.1a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 119-125 lykkjur í umferð. A.1b (= 41 lykkja) er þá prjónað yfir A.1a. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 21 cm á hæðina (misjöfnu mynstrin eru prjónuð yfir misjafnar umferðir á hæðina). Setjið 6 prjónamerki í lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við A.1b þannig: Prjónið 3-6 lykkjur garðaprjón, setjið 1 prjónamerki, * 12 lykkjur garðaprjón, setjið 1 prjónamerki *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið 12 lykkjur garðaprjón, prjónið A.1b eins og áður, prjónið 12 lykkjur garðaprjón, * setjið 1 prjónamerki, prjónið 12 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, setjið 1 prjónamerki, prjónið 3-6 lykkjur garðaprjón (= alls 6 prjónamerki). Fækkið síðan um 1 lykkju á eftir fyrstu 3 prjónamerkjum og 1 lykkju á undan síðustu 3 prjónamerkjum – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 4-5 sinnum, síðan er prjónað A.1c yfir A.1b og úrtaka heldur áfram við hvert prjónamerki í annarri hverri umferð alls 6 sinnum til viðbótar = 25 lykkjur. Prjónið síðan allar lykkjur 2 og 2 saman = 13 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 26-27 cm ofan frá og niður. FRÁGANGUR: Saumið húfuna saman innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 44-47 lykkjur á sokkaprjón 3 með Sky. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 lykkju garðaprjón, A.2a (= 24 lykkjur) og 19-22 lykkjur garðaprjón. Þegar A.2a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 49-52 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.2b yfir A.2a. Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir í lykkjur með garðaprjóni = 53-56 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur á hæðina (mismunandi mynstur yfir mismunandi umferðir á hæðina). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-13 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við fyrstu lykkju í umferð fyrir þumal – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út hvoru megin við útauknar lykkjur í annarri hverri umferð, alls 6-7 sinnum = 65-70 lykkjur. Nú eru settar 13-15 þumal lykkjur á þráð. Haldið áfram hringinn eins og áður og fitjið upp 1 nýja lykkju aftan við þumal í næstu umferð = 53-56 lykkjur. Þegar vettlingurinn mælist ca 25-27 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca 3 cm til loka), fækkið lykkjum þannig: Í næstu umferð frá réttu er prjónað A.2c yfir A.2b og fækkað um 3 lykkjur jafnt yfir lykkjur í garðaprjóni í annarri hverri umferð alls 6 sinnum = 12-15 lykkjur. Prjónið allar lykkjur 2 og 2 saman = 6-8 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist alls ca 28-30 cm. ÞUMALL: Setjið 13-15 lykkjur fyrir opi á þumli á sokkaprjóna 3 og takið að auki upp 3 lykkjur í kanti á bakhlið á þumal lykkjum = 16-18 lykkjur. Prjónið garðaprjón hringinn í 6-7 cm, prjónið síðan allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 8-9 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur, nema gagnstætt, þ.e.a.s. prjónið A.3 í stað A.2 og aukið út fyrir þumal hvoru megin við fyrstu lykkju í garðaprjóni á eftir A.3. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6921 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (10)
Benedetta wrote:
Buongiorno, in merito al berretto vorrei sapere se il grafico si lavora sia sul ferro di andata sia al rovescio. Grazie mille!
08.01.2022 - 13:03DROPS Design answered:
Buongiorno Benedetta, il diagramma mostra sia i ferri di andata che quelli di ritorno. Buon lavoro!
08.01.2022 - 13:20Séverine wrote:
Bonjour Je crois qu’il y a une erreur : le diagramme A1c devrait faire 41 mailles mais il en fait 42, ce qui décale tout et implique 24 mailles à la fin et non 25.
03.06.2020 - 20:09DROPS Design answered:
Bonjour Séverine et merci pour votre retour, le diagramme a été corrigé. Bonne continuation!
16.06.2020 - 13:30Anette wrote:
Hei! et veldig fint sett dette her! Jeg begynte å strikke dette settet, jeg er ferdig med å strikke luen, og holder nå på med venstre vott. jeg har to spørsmål, et ang. luen og et ang. votten. Luen: hvordan sy arbeidet/kantmaskene sammen for best mulig og finest resultat? Venstre vott: jeg er nå kommet til der jeg skal øke med en maske spå hver side av første maske til tommelen. men når jeg skal strikke kastene vridd neste runde, blir det bare hull. tips?
08.02.2020 - 10:37DROPS Design answered:
Hei Anette. Lue: Ta en titt på våre hjelpevideo når det gjelder å sy sammen f.eks: OG til votten: (Det vil alltid bli et lite hull). God Fornøyelse!
10.02.2020 - 19:36Madeleine wrote:
Hej! Jag får verkligen inte till mönstret/diagrammet A2a när jag börjar på vantarna. På varv två, räknas då omslagen från varv ett som räta maskor i diagrammet eller blir de liksom utöver räta maskorna i diagrammet? Sen undrar jag också om jag på varv två ska sticka en rät maska först och sen börja gå efter mönsterdiagrammet? Mvh Madeleine
15.11.2019 - 10:55DROPS Design answered:
Hej Madeleine, Ja det stemmer, omslagene strikkes i glatstrik (drejet vrang fra vrangen) God fornøjelse!
03.12.2019 - 14:58Ivana Poláková wrote:
Dobrý den, chtěla bych vědět, proč u vzoru A1b v posledních dvou řadách nejsou zakreslené celé řady? Děkuji za odpověď.
08.10.2019 - 20:29DROPS Design answered:
Dobrý den, Ivano, vzhledem k tomu, že ve vzoru A.1 ujímáme, klesne počet ok, a proto jsou tyto dvě řady kratší. Hodně zdaru! Hana
08.10.2019 - 21:06Heather wrote:
I am making the second size. I see that I am to complete A2b over A2a until piece measures 10cm. My question is; the chart cuts off after row 10 it only shows the first 15 stitches. What happens with the remaining 14 stitches? Work them as they appear then once the last 2 rows are done, start at row 1 again?
28.11.2018 - 18:18DROPS Design answered:
Dear Heather, the patterns are not repeated over the same number of rows, when you have worked the first 10 rows in A.2b, repeat A.2b from first row over these 14 sts and continue the first sts in A.2b as shown in diagram. When you have worked all rows in A.2b over the first sts in diagram, repeat pattern from row 1 over these sts. Make sure small and large cable will have the correct number of rows between each (= 5 rows for the small one and 9 rows for the large one). Happy knitting!
29.11.2018 - 08:47Lene Hasle wrote:
Er der fejl i beskrivelse af aflukning? Hvis man tager 3 masker ind i retstrikmaskerne 6 gange, som der står, så ender man med 6 masker og ikke 12.
19.11.2018 - 19:11DROPS Design answered:
Hei Lene. Det stemmer at du har 6 masker igjen av rillemaskene, men du har også 6 masker igjen av mønsteret = 12 masker totalt på pinnen. Du feller 23 masker i A.2c og 18 masker over rillene. God fornøyelse.
23.11.2018 - 11:33Janice Paschek wrote:
Ich bin gerade dabei die Fäustlinge zu stricken und habe eine Frage dazu. Es heißt in der Anleitung: Dann wie folgt weiterstricken: 1 M kraus rechts, A.2a (= 24) und 19-22 M kraus rechts. Bis hier hin verstehe ich es noch. Dann folgt: Wenn A.2a 1 x in der Höhe gestrickt wurde, sind 49-52 M auf der Nadel. Wie komme ich auf die 49M? In dem Muster sind in der zweiten Reihe nur 29 M angegeben. Wird der Rest mit linken M aufgefüllt? Vielen Dank und viele Grüße Janice
29.10.2018 - 20:20DROPS Design answered:
Liebe Frau Paschek, in der 1. Reihe von A.2a werden Sie 5 Maschen zunehmen (siehe 5. Symbol), so haben Sie 44-47 M + 5 M = 49-52 M. So habe Sie: 1 M kraus rechts, A.2a (= 29 M ) und 19-22 M kraus rechts. Dann stricken Sie A.2b über die 29 M von A.2a und die anderen Maschen stricken Sie wie zuvor. Viel Spaß beim stricken!
30.10.2018 - 08:30Eva Sporrong wrote:
Hej, varför slutar mönstret i A1b mitt i de 2 översta varven? Vad gör jag efter A1b. Börjar med A1a eller fortsätter med A1b till 21cm.Beskrivningen är lite otillräcklig och jag är ändå en van stickare. Vad menas med: ”de olika mönstren stickas på olika varv på höjden? ” hälsningar Eva Sporrong
25.10.2018 - 08:48DROPS Design answered:
Hej, att de olika mönstren stickas på olika varv i höjden betyder att det är färre varv i höjden på rapporten längst till vänster i diagr. Du ska alltså upprepa de 10 varven längst till vänster i diagr A.1b i höjden samtidigt som du upprepar de 12 varven i den längre rapporten längst till höger i diagr. Fortsätt med detta tills arb mäter 21 cm.
25.10.2018 - 17:24Katarzyna wrote:
Czy przy przerobieniu czapki 21 cm wysokosc powtarzac schemat A1a razem z A 1b
24.10.2018 - 17:42DROPS Design answered:
Witaj Katarzyno! Na wys. 21 cm dalej przerabiasz ale tylko schemat A1b. Po zamknięciu oczek w sumie 4-5 razy co 4 rzędy, zaczynasz schemat A1c. Pozdrawiamy!
25.10.2018 - 10:04