Ilse Jane Schrøder skrifaði:
Jeg vil gerne bestille garn hos jer, jeg er bare blivet opmærksom på at de steder hvor jeg skal hente mit garn ligger langt fra min bopæl. så mit spørsmål er hvem har valt de steder som jeg skal bruge og hvordan kan jeg få lavet det om så jeg kan hente min pakke tætter på min bopæl.
28.03.2021 - 11:28DROPS Design svaraði:
Hej Ilse, klikker du på bestil knappen inde på selve opskriften, så kommer du direkte ind på Yarnliving hvor du bestiller garnet. Her kan du vælge hvordan du vil have det sendt :)
06.04.2021 - 16:00
Sini Rajaniemi skrifaði:
Edellä väärin kommentoitu, tarkistuslaskennan jälkeen ei ongelmaa ohjeessa. :D
21.09.2020 - 16:09
Sini Rajaniemi skrifaði:
2. osan, 34. krs:n lopussa, minulla on jäljellä 12 silmukkaa, ei 22 silmukkaa, kuten ohjeen mukaan tulisi olla.
21.09.2020 - 09:11
Ponnie skrifaði:
I would like to ask how do I knit after finishing the leaf sections, I have 1 stitch on the right and 8 on the left. which way do I knit, knit the 8 and continue until 20 stiches or other way. Please advise. e on this section would be very grateful.
17.04.2020 - 23:37DROPS Design svaraði:
Dear Ponnie, this means you are on row 18 (from WS) after the leaf, then knit 20 stitches (from the left needle) and work now a drop, and work 20 stitches, repeat until you have a total of 6 drops and knit 1 stitch (last stitch). Happy knitting!
20.04.2020 - 08:41
Jean skrifaði:
How can I print this pattern?
31.03.2020 - 22:10DROPS Design svaraði:
Dear Jean, you can click on the "Print" button/icon and choose "Pattern" - a new window will open - and launch printing. Happy knitting!
01.04.2020 - 08:33
Hatice skrifaði:
Is there a video to show how to make this shawl?
18.09.2019 - 15:30DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Hatice, there is no video showing how to work this shawl, but you will find some videos showing you how to work the techniques used here = short rows worked for the shawl, the drops and the leaves (you have to increase/cast off stitches for leaves in the short rows, as explained in the written pattern). . Happy knitting!
18.09.2019 - 15:46
Claudia skrifaði:
Schade, dass man an einer langen Seite beginnt. Wäre es umgekehrt, könnte man stricken bis man kein Garn mehr hat. So traue ich mich nicht, mit einer etwas geringeren Garnmenge zu beginnen.
03.10.2018 - 18:09
Mosie skrifaði:
Name suggestion: Stratus (the line pattern reminds me of stratus clouds)
08.08.2018 - 00:39
Elżbieta skrifaði:
Świetne połaczenie kolorystyczne i ciekawy wzór
20.07.2018 - 20:26
Gabi skrifaði:
Oh ich liebe Tücher. Dieses ist schick, ich liebe es
11.07.2018 - 13:01
Winter Tears#wintertearsshawl |
|
![]() |
![]() |
Prjónað sjal úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað frá hlið með röndum, dropum og blöðum.
DROPS 195-13 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. DROPI: ATH: Í hvert skipti sem snúið er við, herðið á þræði þannig ekki myndist gat! Prjónið 10 lykkjur slétt, setjið eitt prjónamerki hér. Snúið og prjónið 9 lykkjur slétt. Snúið og prjónið 8 lykkjur slétt. Snúið og prjónið 7 lykkjur slétt. Snúið og prjónið 6 lykkjur slétt. Snúið og prjónið 5 lykkjur slétt. Snúið og prjónið 4 lykkjur slétt. Snúið og prjónið 3 lykkjur slétt. Snúið og prjónið 2 lykkjur slétt. Snúið og prjónið 6 lykkjur slétt. Snúið og prjónið fram að prjónamerki sem sett var eftir fyrstu 10 lykkjur, (nú er hægt að taka prjónamerkið frá og nota við næsta dropa). BLAÐ: ATH: Blöðin eru prjónuð í lok á umferð séð frá réttu! 1. umferð (= ranga). Prjónið 3 lykkjur. Snúið og prjónið 2 lykkjur, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (þ.e.a.s. prjónið í fremri og aftari lykkjubogann). Snúið og prjónið 6 lykkjur til baka. Snúið og prjónið 5 lykkjur, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju. Snúið og prjónið 9 lykkjur til baka. Snúið og prjónið 8 lykkjur, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju. Snúið og prjónið 12 lykkjur. Snúið og prjónið 11 lykkjur, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju. Snúið og fellið af fyrstu lykkjuna (= 1 lykkja á prjóni), prjónið 9 lykkjur. Snúið og prjónið 10 lykkjur. Snúið, fellið af fyrstu lykkjuna (= 1 lykkja á prjóni), prjónið 6 lykkjur. Snúið og prjónið 7 lykkjur. Snúið, fellið af fyrstu lykkjuna (= 1 lykkja á prjóni), prjónið 3 lykkjur. Snúið og prjónið 4 lykkjur. Snúið, fellið af fyrstu lykkjuna. Nú er 1 lykkja með litnum ljós perlugrár á hægri prjóni og 8 lykkjur í blaði + afgangur af lykkjum af lykkjum á prjóni með litnum ljós perlugrár á vinstri prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá annarri hlið meðfram neðri kanti og á ská yfir að horni á hinni hliðinni. Allar umferðir eru prjónaðar slétt. SJAL: HLUTI 1: Fitjið upp 210 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum silfur refur. Prjónið 2 sléttar umferðir (1. umferð = rétta). Nú er prjónað þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 210 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið allar lykkjur slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UMFERÐ 3: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 2 næstu lykkjurnar slétt saman (aðeins laust), prjónið út umferð (= 2 lykkjur færri) = 208 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur slétt. Endurtakið umferð 1-4 alls 4 sinnum (= 16 umferðir). Í hluta 1 hefur nú verið aukið út um 4 lykkjur í lok umferðar og fækkað um 12 lykkjur í byrjun á umferð séð frá réttu = 202 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki á undan síðustu 6 lykkjum í umferð séð frá réttu (= 196 lykkjur á undan prjónamerki og 6 lykkjur á eftir prjónamerki). Prjónamerkið fylgir með upp úr í stykkinu og á að virka sem hjálp til að stýra að mynstrið/droparnir séu á réttum stað. Í umferð þar sem dropar eru prjónaðir á alltaf að vera annað hvort einn dropi eða 15 lykkjur garðaprjón. Á UNDAN prjónamerki (séð frá réttu). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið eina rönd með stuttum umferðum þannig: UMFERÐ 17 (rétta): Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 18 (ranga): Prjónið BLAÐ – sjá útskýringu að ofan, 20 lykkjur slétt (= 21 lykkja á hægra prjón), * prjónið DROPI – sjá útskýringu að ofan, 20 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 6 sinnum, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 19: Skiptið yfir í litinn silfur refur og prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 20: Prjónið allar lykkjur slétt. HLUTI 2: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 202 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið allar lykkjur slétt, uppsláttur er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UMFERÐ 3: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið út umferð (= 2 lykkjur færri) = 200 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur slétt. Endurtakið umferð 1-4 alls 7 sinnum (= 28 umferðir) = 188 lykkjur. Nú er prjónað þannig: UMFERÐ 29: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið afgang af lykkjum í umferð (= 1 lykkja færri) = 187 lykkjur. UMFERÐ 30: Prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 31: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 1 næstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið út umferðina (= 2 lykkjur færri) = 185 lykkjur. UMFERÐ 32: Prjónið allar lykkjur slétt. Í hluta 2 hefur nú verið aukið út um 7 lykkjur í lok á umferð og fækkað um 24 lykkjur í byrjun á umferð séð frá réttu = 185 lykkjur. Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið eina rönd með stuttum umferðum þannig: UMFERÐ 33: Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 34: Prjónið BLAÐ, 12 lykkjur slétt (= 13 lykkjur á hægra prjóni), * prjónið DROPI, 20 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, prjónið 22 lykkjur slétt. UMFERÐ 35: Skiptið yfir í litinn silfur refur og prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 36: Prjónið allar lykkjur slétt. HLUTI 3: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 185 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið allar lykkjur slétt, uppsláttur er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UMFERÐ 3: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið út umferð (= 2 lykkjur færri) =183 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur slétt. Endurtakið umferð 1-4 alls 8 sinnum (= 32 umferðir). Í hluta 3 hefur nú verið aukið út um 8 lykkjur í lok á umferð og fækkað um 24 lykkjur í byrjun á umferð séð frá réttu = 169 lykkjur. Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið eina rönd með stuttum umferðum þannig: UMFERÐ 33: Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 34: Prjónið BLAÐ, 35 lykkjur slétt (= 36 lykkjur á hægra prjóni), * prjónið DROPI, 20 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum, prjónið 13 lykkjur slétt. UMFERÐ 35: Skiptið yfir í litinn silfur refur og prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 36: Prjónið allar lykkjur slétt. HLUTI 4: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 169 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið allar lykkjur slétt, uppsláttur er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UMFERÐ 3: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið út umferð (= 2 lykkjur færri) =167 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur slétt. Endurtakið umferð 1-4 alls 7 sinnum (= 28 umferðir) = 155 lykkjur. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 29: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið afgang af lykkjum í umferð (= 1 lykkja færri) = 154 lykkjur. UMFERÐ 30: Prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 31: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið út umferðina (= 2 lykkjur færri) = 152 lykkjur. UMFERÐ 32: Prjónið allar lykkjur slétt. Í hluta 4 hefur nú verið aukið út um 7 lykkjur í lok á umferð og fækkað um 24 lykkjur í byrjun á umferð séð frá réttu = 152 lykkjur. Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið eina rönd með stuttum umferðum þannig: UMFERÐ 33: Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 34: Prjónið BLAÐ, 27 lykkjur slétt (= 28 lykkjur á hægra prjóni), * prjónið DROPI, 20 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum, prjónið 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 35: Skiptið yfir í litinn silfur refur og prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 36: Prjónið allar lykkjur slétt. HLUTI 5: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 152 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið allar lykkjur slétt, uppsláttur er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UMFERÐ 3: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 2 næstu lykkjurnar slétt saman (aðeins laust), prjónið út umferð (= 2 lykkjur færri) =150 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur slétt. Endurtakið umferð 1-4 alls 8 sinnum (= 32 umferðir). Í hluta 5 hefur nú verið aukið út um 8 lykkjur í lok á umferð og fækkað um 24 lykkjur í byrjun á umferð séð frá réttu = 136 lykkjur. Færið prjónamerkið á undan síðustu 6 lykkjum í umferð séð frá réttu. Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið eina rönd með stuttum umferðum þannig: UMFERÐ 33: Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 34: Prjónið BLAÐ, 20 lykkjur slétt (= 21 lykkja á hægra prjóni), * prjónið DROPI, 20 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, prjónið 25 lykkjur slétt. UMFERÐ 35: Skiptið yfir í litinn silfur refur og prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 36: Prjónið allar lykkjur slétt. HLUTI 6: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 136 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið allar lykkjur slétt, uppsláttur er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UMFERÐ 3: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 2 næstu lykkjurnar slétt saman (aðeins laust), prjónið út umferð (= 2 lykkjur færri) = 134 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur slétt. Endurtakið umferð 1-4 alls 7 sinnum (= 28 umferðir) = 122 lykkjur. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 29: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið afgang af lykkjum í umferð (= 1 lykkja færri) = 121 lykkjur. UMFERÐ 30: Prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 31: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið út umferðina (= 2 lykkjur færri) = 119 lykkjur. UMFERÐ 32: Prjónið allar lykkjur slétt. Í hluta 6 hefur nú verið aukið út um 7 lykkjur í lok á umferð og fækkað um 24 lykkjur í byrjun á umferð séð frá réttu = 119 lykkjur. Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið eina rönd með stuttum umferðum þannig: UMFERÐ 33: Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 34: Prjónið BLAÐ, 12 lykkjur slétt (= 13 lykkjur á hægra prjóni), * prjónið DROPI, 20 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, prjónið 16 lykkjur slétt. UMFERÐ 35: Skiptið yfir í litinn silfur refur og prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 36: Prjónið allar lykkjur slétt. HLUTI 7: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 119 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið allar lykkjur slétt, uppsláttur er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UMFERÐ 3: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið út umferð (= 2 lykkjur færri) = 117 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur slétt. Endurtakið umferð 1-4 alls 8 sinnum (= 32 umferðir). Í hluta 7 hefur nú verið aukið út um 8 lykkjur í lok á umferð og fækkað um 24 lykkjur í byrjun á umferð séð frá réttu = 103 lykkjur. Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið eina rönd með stuttum umferðum þannig: UMFERÐ 33: Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 34: Prjónið BLAÐ, 35 lykkjur slétt (= 36 lykkjur á hægra prjóni), * prjónið DROPI, 20 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið 7 lykkjur slétt. UMFERÐ 35: Skiptið yfir í litinn silfur refur og prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 36: Prjónið allar lykkjur slétt. HLUTI 8: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 103 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið allar lykkjur slétt, uppsláttur er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UMFERÐ 3: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 2 næstu lykkjurnar slétt saman (aðeins laust), prjónið út umferð (= 2 lykkjur færri) = 101 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur slétt. Endurtakið umferð 1-4 alls 7 sinnum (= 28 umferðir). Prjónið nú þannig: UMFERÐ 29: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið afgang af lykkjum í umferð (= 1 lykkja færri) = 88 lykkjur. UMFERÐ 30: Prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 31: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 2 næstu lykkjurnar slétt saman (aðeins laust), prjónið út umferðina (= 2 lykkjur færri) = 86 lykkjur. UMFERÐ 32: Prjónið allar lykkjur slétt. Í hluta 8 hefur nú verið aukið út um 7 lykkjur í lok á umferð og fækkað um 24 lykkjur í byrjun á umferð séð frá réttu = 86 lykkjur. Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið eina rönd með stuttum umferðum þannig: UMFERÐ 33: Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 34: Prjónið BLAÐ, 27 lykkjur slétt (= 28 lykkjur á hægra prjóni), * prjónið DROPI, 20 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 1 sinni, prjónið 28 lykkjur slétt. UMFERÐ 35: Skiptið yfir í litinn silfur refur og prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 36: Prjónið allar lykkjur slétt. HLUTI 9: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 86 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið allar lykkjur slétt, uppsláttur er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UMFERÐ 3: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið út umferð (= 2 lykkjur færri) = 84 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur slétt. Endurtakið umferð 1-4 alls 8 sinnum (= 32 umferðir). Í hluta 9 hefur nú verið aukið út um 8 lykkjur í lok á umferð og fækkað um 24 lykkjur í byrjun á umferð séð frá réttu = 70 lykkjur. Færið prjónamerkið á undan síðustu 6 lykkjum í umferð séð frá réttu. Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið eina rönd með stuttum umferðum þannig: UMFERÐ 33: Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 34: Prjónið BLAÐ, 20 lykkjur slétt (= 21 lykkja á hægra prjóni), * prjónið DROPI, 20 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 1 sinni, prjónið 19 lykkjur slétt. UMFERÐ 35: Skiptið yfir í litinn silfur refur og prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 36: Prjónið allar lykkjur slétt. HLUTI 10: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 70 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið allar lykkjur slétt, uppsláttur er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UMFERÐ 3: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið út umferð (= 2 lykkjur færri) = 68 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur slétt. Endurtakið umferð 1-4 alls 7 sinnum (= 28 umferðir) = 56 lykkjur. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 29: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið afgang af lykkjum í umferð (= 1 lykkja færri) = 55 lykkjur. UMFERÐ 30: Prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 31: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 2 næstu lykkjurnar slétt saman (aðeins laust), prjónið út umferðina (= 2 lykkjur færri) = 53 lykkjur. UMFERÐ 32: Prjónið allar lykkjur slétt. Í hluta 10 hefur nú verið aukið út um 7 lykkjur í lok á umferð og fækkað um 24 lykkjur í byrjun á umferð séð frá réttu = 53 lykkjur. Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið eina rönd með stuttum umferðum þannig: UMFERÐ 33: Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 34: Prjónið BLAÐ, 12 lykkjur slétt (= 13 lykkjur á hægra prjóni), * prjónið DROPI, 20 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 1 sinni, prjónið 10 lykkjur slétt. UMFERÐ 35: Skiptið yfir í litinn silfur refur og prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 36: Prjónið allar lykkjur slétt. HLUTI 11: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 53 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið allar lykkjur slétt, uppsláttur er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UMFERÐ 3: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið út umferð (= 2 lykkjur færri) = 51 lykkja. UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur slétt. Endurtakið umferð 1-4 alls 8 sinnum (= 32 umferðir). Í hluta11 hefur nú verið aukið út um 8 lykkjur í lok á umferð og fækkað um 24 lykkjur í byrjun á umferð séð frá réttu = 37 lykkjur. Skiptið yfir í litinn ljós perlugrár og prjónið eina rönd með stuttum umferðum þannig: UMFERÐ 33: Prjónið slétt yfir allar lykkjur. UMFERÐ 34 (ranga): Prjónið BLAÐ, prjónið síðan slétt yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. UMFERÐ 35: Skiptið yfir í litinn silfur refur og prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 36: Prjónið allar lykkjur slétt. HLUTI 12: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið þar til eftir er 1 lykkja á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt = 37 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið allar lykkjur slétt, uppsláttur er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UMFERÐ 3: Prjónið 2 fyrstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (aðeins laust), prjónið út umferð (= 2 lykkjur færri) = 35 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur slétt. Endurtakið umferð 1-4 þar til 9 lykkjur eru eftir á prjóni. Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman = 7 lykkjur. Fellið af. Klippið frá og festið enda. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintertearsshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.