Barb - Minnesota, The North Star State skrifaði:
I am ecstatic that I found your site! I can't find the type of slipper I want in any store & cannot find a pattern for felted slippers. In searching, I found your site & several patterns I want to try. And I'm going to make some of your felted mittens. I was also happy to see Amazon carries your yarn. I do have one question - when you felt in the washing machine, is the 40 degree temperature in Celsius or Fahrenheit? Thanks in advance & thank you for all your patterns. Barb S.
10.01.2025 - 20:29
Catarina Nordström skrifaði:
Kan jag byta ut Lima till Sky istället och göra dessa vantar? Det är samma garngrupp (B) och enligt er samma krympning på respektive garn.
12.11.2021 - 13:10DROPS Design svaraði:
Hei Catharina. Du kan bytte med DROPS Sky, mulig det vil få et litt ulikt resulatat enn DROPS Lima ettersom DROPS Sky ikke er et 100%ullgarn, men har noe polyamid i seg. mvh DROPS Design
15.11.2021 - 09:15
Judy skrifaði:
Just a little confused on thumb increases....do you always do increases stitch before marker and stitch after or before the last increases and after....so far (and on 4th increases I have always done like how u explained the initial increase I.e. up to stitc marker inc. Then inc.after stitch marker....would this b right?
09.06.2019 - 13:36DROPS Design svaraði:
Dear Judy, when repeating the increases for thum, you should increase first before previous increase and after previous increase (= there are always 2 more stitches between the increases). Happy knitting!
11.06.2019 - 13:23
Nancy skrifaði:
Great explanation! Now I understand. Thanks
27.12.2018 - 21:34
Nancy skrifaði:
I do not understand the thumb increases. I have done mittens before but have never put a marker on the 22, 24, 26 stitch. Can you explain this differently so that I understand. Thanks, Nancy
25.12.2018 - 07:19DROPS Design svaraði:
Hi Nancy! You put the marker on the 22nd stitch (size S/M), on 24th stitch if you work size M/L or on the 26th stitch in the size L/XL. How to knit a thumb on a mitten you will find in the video HERE. Happy knitting!
27.12.2018 - 19:45
Polar Paws#polarpawsmittens |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir og þæfðir vettlingar með röndum. Stykkið er prjónað úr DROPS Lima.
DROPS 192-43 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: * 6 umferðir með litnum perlugrár, 6 umferðir með litnum hvítur*, prjónið frá *-*. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur í sömu lykkju. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir merki þannig: Prjónið að merki, lyftið 1 lykkju af prjóni , 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, prjónað er frá úlnlið að fingurtoppi. VETTLINGUR: Fitjið upp 56-60-60 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með litnum perlugrár DROPS Lima. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 3 cm, prjónið síðan sléttprjón og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í næstu umferð er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir í umferð (fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman). Endurtakið úrtöku með 1½ cm millibili 2-2-1 sinnum til viðbótar = 44-48-52 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 8-8-7 cm setjið 1 merki í 22.-24.-26. lykkju í umferð (= merking fyrir þumalfingur). Aukið síðan út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki, endurtakið þessa útaukningu utan verðu við útauknar lykkjur í 4. hverri umferð 5-6-7 sinnum til viðbótar – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 56-62-68 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu eru útauknar lykkjur + lykkja með merki + 1 lykkja hvoru megin við þessar lykkjur settar á þráð fyrir þumalfingur = 15-17-19 þumallykkjur. Fitjið upp 3 lykkjur aftan við þumallykkjur = 44-48-52 lykkjur. Stykkið mælist ca 16-17-18 cm. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn yfir þessar lykkjur. Þegar stykkið mælist 12 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp aftan við þumalfingur eru sett 2 merki þannig: Setjið 1. merki í 1. lykkju og 2. merki í 23.-25.-27. lykkju. Í næstu umferð er lykkjum fækkað á undan og á eftir báðum merkjum – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð 3-4-5 sinnum til viðbótar, prjónið síðan með litnum perlugrár og endurtakið úrtöku í hverri umferð 4 sinnum = 12 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. ÞUMALFINGUR: Þumalfingurinn er prjónaður í hring í sléttprjóni. Passið uppá að rendurnar passi við afgang af stykki. Setjið 15-17-19 þumallykkjur á sokkaprjón 4,5 og prjónið upp 3 lykkjur í 3 útauknar lykkjur frá hendi = 18-20-22 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til prjónuð hefur verið 1 rönd í hvorum lit, prjónið nú áfram með litnum perlugrár. Þegar þumalfingurinn mælist ca 6-6½-7 cm er fækkað um 3 lykkjur jafnt yfir (fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman) = 15-17-19 lykkjur. Prjónið 3 umferðir. Í næstu umferð er fækkað um 5-7-7 lykkjur jafnt yfir = 10-10-12 lykkjur. Þegar stykkið mælist 7½-8-8½ cm prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 5-5-6 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið hinn vettlinginn á sama hátt. ÞÆFING: Til þess að koma í veg fyrir að þumallinn þæfist saman, snúið vettlingnum við og setjið lítinn plastpoka í þumalfingurinn. Festið hann með nælu – ATH: Festið næluna lóðrétt niður að topp á þumalfingri þannig að auðvelt sé að taka hana úr eftir þæfingu. Snúið vettlingnum til baka þannig að vettlingurinn þæfist með réttuna út. Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík Í ÞVOTTAVÉL: Þvottavélar þæfa mismunandi. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt GERIÐ ÞANNIG: Settu stykkið í þvottavélina, notaðu þvottakerfi sem tekur um 40 mínútur (ekki ullarþvottakerfi). Þvoðu við 40°C án forþvottar - sápa er valfrjáls. Eftir þvott skaltu móta stykkið á meðan það er enn blautt. Í ÞURRKARA: Að þæfa stykki í þurrkara gefur góða stjórn á því hversu mikið stykkið þæfist. Hægt er að opna þurrkarann á meðan á ferlinu stendur til að athuga stærð verksins. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt. GERIÐ ÞANNIG: Leggið stykkið allt í bleyti í vatn. Setjið stykkið síðan í þurrkara og byrjið að þurrka. Þurrkið þar til stykkið er í þeirri stærð sem óskað er eftir - athugið á meðan á ferlinu stendur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #polarpawsmittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 192-43
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.