Susan Du Toit skrifaði:
How to knit A.2 (11 stiches, 14 rows) DROP 189-34?
29.07.2024 - 13:13DROPS Design svaraði:
Hi Susan, The diagrams are read from bottom right to left and upwards (repeating the first line in the diagram until the round is completed, then start on line 2. The first 2 rounds are knit with off-white, then round 3 is knit with a bobble (aquamarine) in the middle of each repeat and so on upwards. Use the diagram explanations for each symbol as well as the tips provided under Information at the top of the pattern. Hope this helps and happy knitting
30.07.2024 - 06:48
Frances Rothstein skrifaði:
If I use drop snow, what is gauge? How many ounces are needed for this pattern?
06.02.2022 - 18:34DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Rothstein, this pattern requires 100 g main colour + 50 g each of the 4 contrast colours DROPS Snow = 2 balls in the main colour + 1 ball in each of the 4 contrast colour. Happy knitting!
07.02.2022 - 11:12
Rupertkm skrifaði:
Thanks for it. site
22.05.2018 - 14:02
Charlene skrifaði:
These slipper would make the perfect spring birthday gifts !
06.01.2018 - 16:50
Laura Aune skrifaði:
These slippers are the very essence of spring!
27.12.2017 - 21:05
Chloé Thiffault skrifaði:
Beau modèle pour les saisons estivales.
12.12.2017 - 18:14
Véronique skrifaði:
Modèle très féminin et qui monte vite . Merci .
11.12.2017 - 16:07
Spring Buds#springbudsslippers |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð tátilja með lettneskum kaðli og marglitu norrænu mynstri úr DROPS Snow. Stærð 35-43.
DROPS 189-34 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.2). LETTNESKUR KAÐALL: Kaðallinn samanstendur af 3 umferðum – allar umferðirnar eru teiknaðar inn í mynsturteikningu A.1 og eru prjónaðar þannig: UMFERÐ 1: * prjónið 1 lykkju slétt með natur, 1 lykkja slétt með litnum gulur *, endurtakið frá *-* umf hringinn. UMFERÐ 2: Leggið báða þræðina á framhlið á stykki (að þér). Færið þráðinn með litnum natur yfir á bakhlið, prjónið 1 lykkju brugðið og færið þráðinn til baka yfir á framhlið. Dragið þráðinn með litnum gulur undir þráðinn með litnum natur og síðan yfir á bakhlið, prjónið 1 lykkju brugðið og færið þráðinn til baka að framhlið. Haldið svona áfram með brugðnar lykkjur til skiptis í litnum natur og litnum gulur, en færið alltaf þráðinn undir þráð frá síðustu lykkju sem þú prjónaðir. UMFERÐ 3: Prjónið eins og 2. umferð, en nú er þráðurinn alltaf færður yfir þráð frá síðustu lykkju sem þú prjónaðir. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Fyrst er stroffið prjónað og síðan fóturinn. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 42 lykkjur í allar stærðir á sokkaprjón 6 með litnum gulur Byrjun á umferð = miðja að aftan. Prjónið A.1 í hring (= 7 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 10 cm. Skiptið yfir í litinn vatnslitablár og prjónið 6-8-10 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT er fækkað um 6-4-2 lykkjur jafnt yfri í fyrstu umferð = 36-38-40 lykkjur. Klippið frá. Prjónið síðan fót eins og útskýrt er að neðan. FÓTUR: Setjið fyrstu 13-13-14 lykkjur og síðustu 14-14-15 lykkjur í umferð á þráð = 9-11-11 lykkjur eftir á prjóni (mitt ofan á fæti). Prjónið A.2 fram og til baka yfir þessar 9-11-11 lykkjur og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið í fyrstu umferð = 11-13-13 lykkjur á prjóni (nýjar lykkjur eru kantlykkjur og prjónaðar slétt frá réttu og slétt frá röngu). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist miðju stykkið ca 7-8-9 cm. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju slétt í hvorri hlið þar til miðjustykkið mælist 7-8½-10 cm. Í næstu umferð er felld af 1 kantlykkja í hvorri hlið = 9-11-11 lykkjur í umferð. Klippið frá. Næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 13-13-14 lykkjur af þræði, prjónið upp 12-14-16 lykkjur meðfram hlið á miðjustykki (prjónið upp innan við 1 kantlykkju), prjónið sléttar lykkjur yfir 9-11-11 lykkjur frá miðjustykki, prjónið upp 12-14-16 lykkjur meðfram annarri hlið á miðjustykki og prjónið sléttar lykkjur yfir þær 14-14-15 lykkjur sem eftir eru af þræði = 60-66-72 lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja að aftan) og 1 prjónamerki mitt framan á tátilju. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm (stillið af að næsta umferð sé slétt umferð) fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð með sléttum lykkjum) þar til stykkið mælist 5-5-6 cm – fellið síðan af með sléttum lykkjum. Saumið saum undir fæti í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki flatur. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springbudsslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 189-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.