Kyliena#kylienajacket |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa með gatamynstri úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 186-33 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta stuðli í byrjun á umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Endið umferð með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju í byrjun á umferð. Fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju. ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 næstu stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í 2 stykkjum sem saumuð eru saman við miðju að aftan. Heklað er fram og til baka, frá miðju að aftan og út að hliðum. Að lokum eru ermarnar heklaðar, ofan frá og niður. VINSTRA STYKKI: Heklið 105-116-127 loftlykkjur með heklunál 6 með Air. Snúið og heklið 1 stuðlu í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af 5-4-3 næstu loftlykkjum, * hoppið yfir næstu loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 5 næstu loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina = 87-96-105 stuðlar. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið síðan þannig – frá röngu: A.3 (= 3 stuðlar), A.2 (= 9 stuðlar) yfir næstu 81-90-99 stuðla (= 9-10-11 mynstureiningar), endið með A.1 (= 3 stuðlar). Í næstu umferð (= frá réttu) heklið gagnstætt, þ.e.a.s. heklið A.1, A.2 og endið með A.3. Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru umferðir 1-4 (= A.X) endurteknar. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 18-20-22 cm, stillið af eftir heilli mynstureiningu af A.X. Heklið síðan frá réttu – þannig: Til að peysan verði aðeins stífari yfir handveg er hekluð auka umferð með stuðlum einungis yfir fyrstu lykkjur á peysunni (= kragi). Heklið A.1 + 18 stuðlar yfir fyrstu 2 mynstureiningar af A.2 (sjá A.4 hvernig stuðlarnir eru heklaðir yfir A.2) = 21 stuðull. Klippið frá og byrjið aftur frá byrjun á umferð – frá réttu og frá fyrstu umferð í A.X. Heklið A.1, heklið A.5 yfir næstu 18 stuðla (= 2 mynstureiningar með 9 lykkjum), heklið 18-27-27 loftlykkjur og hoppið yfir 2-3-3 næstu mynstureiningar af A.2, heklið út umferðina eins og áður (þ.e.a.s. 5-5-6 mynstureiningar af A.2 og A.3). Í næstu umferð (= umferð 2 í A.X) eru heklaðar 2-3-3 mynstureiningar af A.2 um nýju 18-27-27 loftlykkjur sem voru heklaðar. Þegar A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er heklað A.2 eins og áður yfir þessar lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 61-66-71 cm, stillið af eftir heila mynstureiningu af A.X. Heklið síðan þannig: A.1, stuðlar yfir 9-10-11 mynstureiningarnar af A.2 (sjá A.4), endið með A.3 = 87-96-105 lykkjur. Heklið alls 2 umferðir með stuðlum eins og útskýrt er í A.4, klippið frá og festið enda. HÆGRA STYKKI: Heklið 105-116-127 loftlykkjur með heklunál 6 með Air. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af 5-4-3 næstu loftlykkjum, * hoppið yfir næstu loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 5 næstu loftlykkjum *, endurtakið frá *-* út umferðina = 87-96-105 stuðlar. Heklið síðan þannig – frá röngu: A.3 (= 3 stuðlar), A.2 yfir næstu 81-90-99 stuðla (= 9-10-11 mynstureiningar), endið með A.1 (= 3 stuðlar). Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er umferð 1-4 (= A.X endurteknar). Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 18-20-22 cm, stillið af eftir heila mynstureiningu af A.X. Heklið síðan þannig – frá réttu: Til að peysan verði aðeins stífari yfir handveg er hekluð auka umferð með stuðlum einungis yfir síðustu lykkjur á peysunni (= kragi – þetta er efst á peysunni þegar stykkin eru saumuð saman). Klippið frá. Hoppið yfir A.1 og fyrstu 7-8-9 mynstureiningar af A.2, heklið 18 stuðla yfir 2 síðustu mynstureiningar af A.2 og endið með A.3 (sjá A.4 hvernig stuðlar eru heklaðir yfir A.2) = 21 stuðlar. Klippið frá og byrjið aftur frá byrjun á umferð – frá réttu og frá fyrstu umferð í A.X. Heklið A.1, heklið fyrstu 5-5-6 mynstureiningar af A.2, heklið 18-27-27 loftlykkjur og hoppið yfir 2-3-3 næstu mynstureiningar af A.2, heklið A.5 yfir 18 næstu stuðla, endið með A.3. Í næstu umferð (= umferð 2 í A.X) eru heklaðar 2-3-3 mynstureiningar af A.2 um nýjar 18-27-27 loftlykkjur sem voru heklaðar. Þegar A.5 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.2 heklað eins og áður yfir þessar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er A.2 heklað eins og áður yfir þessar lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 61-66-71 cm, stillið af eftir heila mynstureiningu af A.X. Heklið síðan þannig: A.1, A.4 yfir 9-10-11 mynstureiningar af A.2, endið með A.3 = 87-96-105 stuðlar. Heklið alls 2 umferðir með stuðla eins og útskýrt er í A.4, klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið peysuna saman við miðju að aftan. ERMI: Heklið í kringum handveg þannig – byrjið mitt undir ermi: 1 fastalykkja, * 4 loftlykkjur, hoppið fram ca 2 cm, 1 fastalykkja, * endurtakið frá *-* í kringum allan handveginn, endið með einni keðjulykkju í fyrstu fastalykkju = ca 12-18-18 loftlykkjubogar. Heklið síðan 45-64-64 stuðlar jafnt yfir um loftlykkjubogana (heklið 3 eða 4 stuðla um hvern boga). Heklið síðan þannig – frá miðju undir ermi: A.1 (= 3 stuðlar) yfir 9-14-14 fyrstu stuðla, A.2 yfir næstu 27-36-36 stuðla, A.3 (= stuðlar) yfir síðustu 9-14-14 stuðla. MUNIÐ EFTIR HEKLLEIÐBEININGUM! Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, stykkið er síðan mælt héðan. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 stuðul hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA. Fækkið með 5-3½-3½ cm millibili alls 9-14-14 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 27-36-36 stuðlar eftir í umferð, nú eru heklaðir stuðlar yfir allar lykkjur (sjá A.4). Haldið áfram þar til stykkið mælist 55-55-55 cm, klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #kylienajacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.