Wendy Tarpey skrifaði:
Hi do I turn the work after each round or continue in the same direction?
14.09.2023 - 22:45DROPS Design svaraði:
Hi Wendy, You finish after each round, with a slip stitch in the 3rd/1st chain stitch at the beginning of the round (depending on whether it is a round of treble crochets or double crochets), then continue in the same direction on the next round. Happy crocheting!
15.09.2023 - 06:43
Daniel A skrifaði:
Hallo! Habe bereits Boden und oberen Teil. Bin nun bei A2a und weiß nicht ob ich weiter zunehmen muss? Ich würde verstehen, dass erst ab A3 die Seitenwand ohne Zunahmen wird, aber dann wird der obere Teil ja viel größer im Durchmesser als der Unterteil wenn ich weiter zunehme, wenn ich jedoch ab A2a nicht mehr zunehme wird der Teil schon zum Seitenteil?! Bitte um Hilfe! Danke Daniela
20.11.2019 - 15:37DROPS Design svaraði:
Liebe Daniela, beim Oberteil/Seitenwand häkeln Sie wie beim BODEN, aber jetzt häkeln Sie A.2 anstatt A.1 - bei der letzten Runde von A.2b häkeln Sie Stäbchen anstatt feste Maschen, und dann A.3 häkeln (=Seitenwand). Vile Spaß beim häkeln!
20.11.2019 - 16:10
JAULIN Nadia skrifaði:
Merci beaucoup de votre retour très réactif. Bonne journée.
18.07.2018 - 14:53
JAULIN Nadia skrifaði:
Bonsoir, pourriez-vous m'expliquer le rang N° 6 du diagramme A1a sachant que je dois faire 4 brides et une augmentation dans la 5ème. Le trou manquant du diagramme A1b correspond à quoi. Merci d'avance.
17.07.2018 - 20:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Jaulin, au rang 6 de A.1 crochetez: 1 b en aigue-marine, 3 brides en lilas moyen (= 4 brides), et 2 brides en aigue-marine dans la bride suivante (= 1 augmentation). Au 1er rang de A.1B on augmente 1 bride = cf 4ème symbole de la légende = on a 11 b dans A.1b. Bon crochet!
18.07.2018 - 08:48
Tere skrifaði:
Ma sarebbe possibile lavorarlo in cotone?
29.06.2018 - 15:15DROPS Design svaraði:
Buongiorno Tere, potrebbe lavorare con 2 capi di Paris. Buon lavoro!
30.06.2018 - 15:18
Summer Solstice#summersolsticepillow |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð sessa með marglitu mynstri úr DROPS Snow.
DROPS 189-6 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LITAMYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir liti í mynstri. 1 rúða = 1 stuðull. LITASKIPTI: Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta stuðulinn með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin með nýja litnum, heklið síðan næsta stuðul. Þegar heklað er með tveimur litum, leggið þráðinn í þeim lit sem ekki er heklað með yfir lykkjurnar frá fyrri umferð og heklið utan um þráðinn þannig að þráðurinn sjáist ekki innan í lykkjunum, þráðurinn fylgir þar með áfram hringinn. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsti stuðull í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju í byrjun á umferð. Fyrsta fastalykkjan í umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SESSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring í tveimur stykkjum og saumuð saman í lokin. Botninn er heklaður sér. Síðan er lokið heklað og síðan niður yfir hliðar. Botninn og lokið/hlið er saumað saman í lokin. BOTN: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 7 með litnum millifjólublár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan A.1a hringinn eins og útskýrt er að neðan (= 12 mynstureiningar í umferð) – lesið LITAMYNSTUR og LITASKIPTI. UMFERÐ 1: Heklið 12 stuðla um hringinn – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 24 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið * 1 stuðul í fyrsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 4: Heklið * 1 stuðul í hvorn af fyrstu/næstu 2 stuðla, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar. Haldið áfram með A.1a með útaukningar eins og áður, þ.e.a.s. í hverri umferð er heklaður 1 stuðull fleiri á milli hverra útaukninga. Þegar A.1a er lokið eru 120 stuðlar í umferð. Heklið síðan A.1b yfir A.1a (= 12 mynstureiningar í umferð) þannig: UMFERÐ 1 (= 2 stuðlar fleiri í hverri mynstureiningu): Heklið * 1 stuðul í hvern af fyrstu/næstu 4 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul, 1 stuðul í hvern af næstu 4 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 144 stuðlar. UMFERÐ 2 (= engin útaukning): Heklið 1 stuðul í hvern stuðul = 144 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið * 1 stuðul í hvern af fyrstu/næstu 11 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 156 stuðlar. UMFERÐ 4: ATH: Þessi umferð er hekluð með fastalykkjum. Heklið * 1 fastalykkju í hvern af fyrstu/næstu 12 stuðlum, 2 fastalykkjur í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 168 fastalykkjur. Klippið frá og festið enda þegar A.1b hefur verið heklað til loka. LOK/HLIÐ: Heklið lokið alveg eins og botninn, en án þess að klippa þráðinn frá: Heklið A.2a og A.2b hringinn (= 12 mynstureiningar í umferð). Í síðustu umferð í A.2b eru heklaðir stuðlar (ekki fastalykkjur) = 168 stuðlar. Síðan er hliðin hekluð þannig: Haldið áfram að hekla í hring, en nú er heklað án útaukninga, þ.e.a.s. heklið A.3 hringinn – ATH: Síðasta umferð í A.3 er hekluð með 1 fastalykkju í hvern stuðul (í stað 1 stuðuls í hvern stuðul). Klippið frá og festið enda þegar A.3 hefur verið heklað til loka. FRÁGANGUR: Fyllið sessuna með 2 eða 3 koddum eftir eingin ósk um þéttleika. Saumið botninn við lokið/hlið með litnum natur – saumið kant í kant í ystu lykkjubogana á hverri fastalykkju svo að saumurinn verði flatur. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summersolsticepillow eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 189-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.