Louise skrifaði:
In the section where you K2tog at the beginning of the row, you do not specify if the stitch on your right needle counts as part of the following K10 stitches or are the following K10 separate from the K2tog ?????
12.02.2017 - 20:07DROPS Design svaraði:
Dear Louise, you have to first K2 tog, then K 10 sts, so that you will have 11 sts on needle. Happy knitting!
21.02.2017 - 13:18
Francine Collet skrifaði:
Magnifique modèle, plein de possibiliés de couleurs!!! Vivement les explications!!!! Merciii!!!
05.02.2017 - 12:18
Carol Buchholz skrifaði:
Very, Very Pretty.
03.02.2017 - 15:45
As Lens skrifaði:
Beautiful
29.01.2017 - 14:33
Steffi Möker skrifaði:
Gefällt mir sehr gut !
25.01.2017 - 23:59
Antje skrifaði:
So eine ähnliche hübsche Musterstruktur gab es schon einmal bei "Dragontail". Es würde sich auch eignen für einen Pullover, mit den Spitzen am unteren Ende, vielleicht kann einer Ihrer Designer so etwas entwerfen... würde mich freuen!!!
21.01.2017 - 19:50
Mona Sundqvist skrifaði:
Så vacker. Den måste jag bara sticka.
19.01.2017 - 15:49
Judith skrifaði:
Was für eine schöne Stola, mal etwas anderes
18.01.2017 - 06:52
Ghyslaine skrifaði:
Très joli... Mais toute la collection est belle ; difficile de choisir...
17.01.2017 - 21:28
Jugendhuivi skrifaði:
Ihana.värit ja muoto sopivat nimeen.
14.01.2017 - 16:19
Blue Callas#bluecallasshawl |
|
![]() |
![]() |
Prjónað sjal með blöðum, prjónað frá hlið úr DROPS Fabel.
DROPS 177-15 |
|
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í garðaprjóni. SJAL: Fitjið upp 3 lykkjur á hringprjóna 4 með litnum natur og prjónið 2 umferðir slétt. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= frá röngu): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt = 5 lykkjur. Uppslættirnir eru alltaf prjónaðir slétt í næstu umferð svo að það myndist gat. UMFERÐ (= frá réttu): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 3: Prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 4: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt = 7 lykkjur. UMFERÐ 5: Prjónið allar lykkjur slétt. Endurtakið umferð 2-5 þar til 45 lykkjur eru í umferð. STUTTAR UMFERÐIR: Setjið 1 prjónamerki í 32. lykkju frá réttu. Skiptið yfir í litinn strönd, prjónið síðan stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= séð frá réttu): Prjónið allar lykkjur í umferð slétt. UMFERÐ 2 (= séð frá röngu): Prjónið allar lykkjur í umferð slétt. UMFERÐ 3: Prjónið 32 lykkju. UMFERÐ 4: Snúið og prjónið 31 lykkju til baka, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju. UMFERÐ 5: Prjónið 29 lykkjur. UMFERÐ 6: Snúið og prjónið 28 lykkjur til baka, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju. Haldið áfram með stuttar umferðir og garðaprjón, snúið 4 lykkjum fyrr fyrir hverja umferð frá réttu og aukið út um 1 lykkju í lok hverrar umferðar frá röngu. Haldið áfram þar til prjónaðar hafa verið 11 lykkjur áður en snúið er við og prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju. Prjónið 2 umferðir yfir allar lykkjur. Prjónið síðan frá réttu – þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= það er 1 lykkja á prjóni), prjónið 10 lykkjur. UMFERÐ 2: Snúið og prjónið til baka. UMFERÐ 3: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= það er 1 lykkja á prjóni), prjónið 13 lykkjur. UMFERÐ 4: Snúið og prjónið til baka. UMFERÐ 5: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= það er 1 lykkja á prjóni), prjónið 16 lykkjur. UMFERÐ 6: Snúið og prjónið til baka. Haldið áfram með stuttar umferðir og garðaprjón, snúið 4 lykkjum nær lykkjunni með prjónamerki í hvert skipti sem snúið er og prjónið 2 lykkjur slétt saman í byrjun hverrar umferðar frá réttu. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 32 lykkjur áður en snúið er, snúið og prjónið til baka. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu = 45 lykkjur á prjóni. GARÐAPRJÓN með útaukningum; Skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 3: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt = 47 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 5: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 6: Prjónið þar til 20 lykkjur eru eftir á prjóni, snúið. UMFERÐ 7: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt = 49 lykkjur. UMFERÐ 8: Prjónið allar lykkjur slétt. Endurtakið umferð 1-8 3 sinnum til viðbótar = 61 lykkja. Skiptið yfir í litinn strönd og prjónið stuttar umferðir alveg eins og áður. Prjónið síðan til skiptis í garðaprjóni með útaukninu í litnum natur og stuttar umferðir með litnum strönd. Haldið áfram þar til prjónaðar hafa verið 10 mynstureiningar með stuttum umferðum í litnum strönd = 189 lykkjur á prjóni (eða að óskaðri lengd) og fellið laust af. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluecallasshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.