Phyllis Prince skrifaði:
Great socks for when my university grand daughters are studying...the would be toasty toes
30.12.2016 - 01:03
Ann-Charlott Borg skrifaði:
Ser otroligt varm och skön så det blir nog att ta fram garn och stickor när beskrivningen kommer
21.12.2016 - 18:08
Amyah skrifaði:
Enfin! Un modèle un peu différent des chaussons réguliers. Joli patron adaptable selon la saison. Je le vois en coton pour le printemps et en laine douce et chaude (peut-être avec un peu de "trum" à la semelle) pour l'hiver. Un patron à garder... définitivement!
20.12.2016 - 17:28
Maman Rn skrifaði:
Chaussons mignons que j'aimerais bien réaliser. Merci
17.12.2016 - 15:48
Maman Rn skrifaði:
Chausson douillet
17.12.2016 - 15:33
Gagne skrifaði:
Confort Chalet
15.12.2016 - 15:52
Ursula skrifaði:
Nette Stiefelchen, die sehen so schön kuschelig aus! Toll für meine dauernd kalte Füsse!
14.12.2016 - 21:18
Tiina skrifaði:
I so need them!
14.12.2016 - 19:58
Christina Michelle Anthonsen skrifaði:
De fikk jeg veldig lyst til å strikke:) Så nydelige og søte
14.12.2016 - 04:04
Maria Angelina Carvalhais skrifaði:
Lindos!!!!
13.12.2016 - 19:03
Walk in the Clouds#walkinthecloudsslippers |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónaðar tátiljur með köðlum og garðaprjóni úr DROPS Snow. Stærð 35-42.
DROPS 178-5 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR: NEÐRI HLUTI STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 36-38-40 lykkjur á sokkaprjóna 6 með Snow. Prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan, þar til stykkið mælist ca 4 cm, endið eftir 1 umferð brugðið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! FÓTUR: Nú er haldið eftir fyrstu 9-11-11 lykkjum í umferð, aðrar 27-27-29 lykkjur sem eru eftir eru settar á þráð. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, yfir 9-11-11 lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fitjuð upp 1 ný lykkja í hvorri hlið (kantlykkjur) og aukið er út um 1 lykkju fyrir miðju (aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat) = 12-14-14 lykkjur. Prjónið síðan mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 10-12-12 lykkjur), endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið A.1 alls 4-5-6 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 7-8½-10 cm. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 1 kantlykkju á hvorri hlið og fækkað um 1 lykkju fyrir miðju (fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman) = 9-11-11 lykkjur. Setjið síðan lykkjur af þræði til baka á prjóninn og prjónið upp 12-14-16 lykkjur hvoru megin við efri hluta (innan við 1 kantlykkju) = 60-66-72 lykkjur á prjóni. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju framan á tá og 1 prjónamerki við miðju aftan á hæl. Haldið áfram hringinn í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm eru prjónaðar 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við hvort prjónamerki í annarri hverri umferð (= 4 lykkjur færri í umferð) haldið áfram með úrtöku þar til stykkið mælist 5-5-6 cm – fellið af. Saumið saum undir fæti í ystu lykkjur svo að saumurinn verði ekki of þykkur. EFRI HLUTI STROFF / LEGGUR: Stroffið er prjónað fram og til baka. Prjónið upp lykkjur frá neðri hluta á stroffi (þ.e.a.s. við uppfitjunarkant) og prjónað er í gagnstæða átt. Byrjið við aðra hliðina á stroffi, með byrjun frá réttu þannig: Fitjið upp 3 lykkjur á sokkaprjóna 6 með Snow (= tölukantur), prjónið síðan upp 36-36-39 l jafnt yfir meðfram öllu opinu, endið með að fitja upp 3 lykkjur (= tölukantur) = 42-42-45 lykkjur. Prjónið næstu umferð þannig: 3 kantlykkjur fyrir tölur í garðaprjóni, * 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 3 kantlykkjur fyrir tölur í garðaprjóni = 54-54-58 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu (uppslátturinn er prjónaður snúinn svo ekki myndist gat) og prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig: Prjónið 3 kantlykkjur fyrir tölur í garðaprjóni, A.2 alls 12-12-13 sinnum á breidd, endið með 3 kantlykkur fyrir tölur í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 12 cm, endið eftir síðustu umferð í A.2. Prjónið 4 umferðir garðaprjón – JAFNFRAMT eftir fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju yfir hvern kaðal = 42-42-45 l. Fellið af. FRÁGANGUR: Leggið kanta fyrir tölur yfir hvorn annan, leggið þá þannig að fremri kanturinn fyrir tölur liggi yfir kant fyrir tölur næst hæl. Saumið 4 tölur til skrauts í gegnum bæði stykkin. Prjónið aðra tátilju á sama hátt, passið uppá að opið á stroffi / legg verði í gagnstæðri hlið. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #walkinthecloudsslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.