Darja skrifaði:
Ich bin noch eine Anfängerin und frage mich, ob ich die Ärmel auch mit einer Rundstricknadel stricken könnte. Ist das nur eine Geschmackssache oder gibt es jeweils einen konkreten Grund beim Rundstricken wenn Sie bei manchen Modellen die Rundsticknadel und bei manchen das Nadelspiel empfehlen? Vielen Dank!
07.05.2017 - 19:33DROPS Design svaraði:
Liebe Darja, wenn es zu wenig Maschen für Rundnadel, strickt man mit Nadelspiel, aber gerne können Sie auch "magic Loop" stricken, siehe Video. Viel Spaß beim stricken!
08.05.2017 - 11:02
Paola skrifaði:
Grazie....Ammiro sempre la vostra squisita disponibilità... Complimenti x tutto
02.03.2017 - 16:56
Paola skrifaði:
Scusate se capisco bene la scollatura inizia praticamente a circa 1 cm o due dopo i 27 cm (lavoro una taglia M. Non diventa troppo scollata se la maglia è lunga in tutto 54? Grazie
02.03.2017 - 15:46DROPS Design svaraði:
Buonasera Paola. E’ corretto. Il capo è volutamente molto scollato, come può osservare dalla fotografia. Buon lavoro!
02.03.2017 - 16:05
Brigitte Rieks skrifaði:
Ich stricke das Modell 177-16 Die Maschenanzahl stimmt wohl nicht. Es werden zu viele Maschen angeschlagen. Ich stricke allerdings auch etwas weniger Weite und habe jetzt für die Größe xl nicht 264 Maschen angeschlagen, sondern 200.
25.01.2017 - 11:58DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Rieks, die Maschenanzahl stimmt mit der Maßnahmenskizze, dh mit 236 M haben Sie ca 138 cm = 69 cm in der Breite (oversized). Lesen Sie mehr über die Größe hier. Viel Spaß beim stricken!
25.01.2017 - 17:18
Kirsten V. Mikkelsen skrifaði:
Sommerblusen som er et "musthave". Den dybe V udskæring er fantastisk flot.
08.01.2017 - 13:42
Christin skrifaði:
Sehr schöne Form des Pullovers. Die Wollwahl ist noch unbedingt meins, dafür kann ich ihn mir sehr gut in Drops Air vorstellen.
04.01.2017 - 10:42
Elisabetta skrifaði:
Ich habe mich soeben in den Pulli total verliebt, bitte unbedingt im Sortiment aufnehmen.
02.01.2017 - 13:12
Jeannette Blisby skrifaði:
Endelig en bluse med DYB v- hals :)
30.12.2016 - 05:15
Marina skrifaði:
Gezellige comfortabele trui. Zou ik direct willlen breien.
25.12.2016 - 09:41
Elin skrifaði:
I like the simple shape with a tiny bit of 80s feel. Looks comfertable and casual.
22.12.2016 - 10:24
Feel Free#feelfreesweater |
|
|
|
Prjónuð peysa með v-hálsmáli, sjalkraga og ¾ ermum úr DROPS Alpaca Bouclé. Stærð S - XXXL.
DROPS 177-16 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-1: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 252 lykkjur) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 24) = 9. Í þessu dæmi þá er prjónuð 8. og 9. hver lykkja saman. ÚRTAKA-2 (á við um v-hálsmál): Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli innan við 10 lykkjur með garðaprjóni fyrir sjalkraga við miðju að framan + síðan útauknar lykkjur fyrir sjalkraga. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 10 lykkjum í garðaprjóni þannig + útauknar lykkjur fyrir sjalkraga: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 l sl, steypið síðan óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkju á undan 10 lykkjum í garðaprjóni þannig + útauknar lykkjur fyrir sjalkraga: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING-1 (á við um sjalkraga): Aukið út um 1 lykkju innan við ystu lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um miðju undir ermi): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að v-hálsmáli, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjóna til loka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 216-232-248-264-288-312 lykkjur á hringprjóna nr 5 með Alpaca Bouclé. Skiptið yfir á hringprjóna 4,5 og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff í hring (= 3 l sl, 5 l br). Þegar stykkið mælist 5 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 24-28-32-28-32-36 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-1= 192-204-216-236-256-276 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki á eftir 96-102-108-118-128-138 lykkjum (= á hliðum). Skiptið yfir á hringprjóna 5 og prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 25-27-27-29-29-29 cm prjónið næstu umferð þannig: 43-46-49-54-59-64 l slétt, prjónið brugðið yfir 10 næstu lykkjur (= miðja að framan), prjónið slétt út umferðina. Prjónið 1 umferð slétt, en í stað þess að enda umferðina í hlið, haldið áfram með slétt fram að 10 lykkjum við miðju að framan. Prjónið nú upp 1 lykkju á bakhlið á hverri og einni af 10 lykkjunum (prjónið upp 1 lykkju í hverja lykkju) = 202-214-226-246-266-286 lykkjur á prjóni. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka frá miðju að framan með 10 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið fyrir sjalkraga. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! V-HÁLSMÁL: Þegar prjónaðar hafa verið 5 umferðir fram og til baka byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu – LESIÐ ÚRTAKA-2. Fellið af fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið við miðju að framan í 6. hverri umferð alls 3-3-4-4-5-5 sinnum, síðan í 10. hverri umferð alls 2 sinnum í öllum stærðum. SJALKRAGI: JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 20 umferðir í garðaprjóni í hvorri hlið er aukið út fyrir sjalkraga í 8. hverri umferð alls 5 sinnum í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-1. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm skiptist stykkið við prjónamerki í hvorri hlið og fram- og bakstykki er prjónað síðan hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 96-102-108-118-128-138 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og fitjið upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið (= kantlykkja fyrir saum) = 98-104-110-120-130-140 lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm fellið af miðju 18-18-20-20-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjón og fækkið um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 39-42-44-49-53-58 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm og fellið af – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. VINSTRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og garðaprjóni JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli og aukið út fyrir sjalkraga eins og áður. Að auki er fitjuð upp 1 ný lykkja í hlið (= kantlykkja fyrir saum). Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm fellið af ystu 39-42-44-49-53-58 lykkjur á öxl – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur = 15 lykkjur eftir á prjóni í öllum stærðum fyrir sjalkraga. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar lykkjur í 8-8-8-8-9-9 cm frá þar sem axlalykkjurnar voru felldar af og setjið lykkjurnar á þráð. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið síðan alveg eins og vinstra framstykki, nema með útaukningu og úrtöku í gagnstæðri hlið. ERMI: Fitjið upp 40-40-40-40-48-48 lykkjur á sokkaprjóna 5 með Alpaca Bouclé. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 3 l sl, 5 l br). Þegar stykkið mælist 5 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-2-0-0-6-4 lykkjur jafnt yfir = 36-38-40-40-42-44 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 7-8-8-8-7-6 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Aukið svona út alls 11-12-12-14-15-15 sinnum í stærð S: Í 4. hverri umferð, í stærð M + L: Í 3. hverri umferð og í stærð XL + XXL + XXXL: Í annarri hverri umferð = 58-62-64-68-72-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-27-26-24-22-20 cm fellið af allar lykkjur – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið aðra ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Saumið kragann saman við miðju að aftan með lykkjuspori og saumið kragann við hálsmál aftan við hnakka – saumurinn á að snúast inn að röngu. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #feelfreesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.