DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6688.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 177-17
DROPS Design: Mynstur as-071
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-200-250-250-300 g litur 15, ljós sægrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 24 umferðir sléttprjón verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 4 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 19 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6688.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING:
Aukið svona út mitt undir ermi – byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur garðaprjón (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 204-216-234-252-270-282 lykkjur á hringprjóna 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan þannig: * 3 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið þetta eins og stroff í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjóna 5, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 20-20-22-24-22-26 lykkjur jafnt yfir = 184-196-212-228-248-256 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm prjónið einungis yfir fyrstu 92-98-106-114-124-128 lykkjur í umf, síðustu 92-98-106-114-124-128 lykkjur eru settar á eitt þráð.

FRAMSTYKKI:
= 92-98-106-114-124-128 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka. Þegar stykkið mælist 77-80-83-86-88-90 setjið miðju 22-22-24-24-26-26 lykkjunar á þráð fyrir hálsmáli. Hvor öxl er nú prjónuð til loka hvor fyrir sig. Fellið af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 31-34-37-41-45-47 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 82-85-88-91-94-97 cm, prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fellið síðan af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

BAKSTYKKI:
= 92-98-106-114-124-128 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka. Þegar stykkið mælist 81-84-87-90-93-96 cm fellið af miðju 28-28-30-30-32-32 lykkjur fyrir háls og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 31-34-37-41-45-47 lykkjur fyrir öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 82-85-88-91-94-97 cm, prjónið 2 umferðir garðaprjón, fellið síðan af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring sokkaprjóna. Skiptið yfir í stutta hringprjóna þegar komnar eru nægilega margar lykkjur. Fitjið upp 42-42-42-48-48-48 lykkjur á sokkaprjóna 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan þannig: * 3 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umferð hringinn. Prjónið þetta eins og stroff í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 6-4-4-8-6-4 lykkjur jafnt yfir = 36-38-38-40-42-44 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón og aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið út með 2½-2-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 11-12-13-14-15-15 sinnum = 58-62-64-68-72-74 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 34-33-32-31-29-29 cm. ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 85-100 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) í kringum háls á stutta hringprjóna 4 og tengið stykkið saman til að prjóna í hring. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, fellið síðan af í sléttprjóni.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.05.2017
Leiðrétting: BAKSTYKKI:= 92-98-106-114-124-128 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjóni fram og til baka. Þegar stykkið mælist 81-84-87-90-93-96 cm fellið af miðju 28-28-30-30-32-32 lykkjurnar fyrir háls og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 31-34-37-41-45-47 lykkjur fyrir öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 82-85-88-91-94-97 cm, prjónið 2 umferðir garðaprjón, fellið síðan af. Prjónið hina öxlina alveg eins.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Renaud wrote:

Bonjour Madame Pourriez vous s'il vous plaît me donner les explications en utilisant des aiguilles droites Cordialement

30.10.2020 - 15:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Renaud, vous trouverez ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!

30.10.2020 - 15:26

country flag Francesca wrote:

Buongiorno, vorrei iniziare questo modello ma sono indecisa sulla taglia dal momento che non ho mai utilizzato il filato Brushed Alpaka Silk. Con l'utilizzo del capo finito, ed in seguito ai lavaggi, il capo tenderà ad allargarsi leggermente o piuttosto a stringersi? Grazie

29.09.2020 - 17:02

DROPS Design answered:

Buonasera Francesca, per la taglia può seguire lo schema in fondo alla pagina del modello. Per vedere il comportamento del filato dopo il lavaggio, può provare a lavorare un campione e a lavarlo secondo le indicazioni riportate sulla fascetta. Buon lavoro!

29.09.2020 - 19:17

country flag Marika wrote:

Intrecciare per lo scollo ad ogni ferro che inizia dallo scollo, come segue: Intrecciare 2 maglie 1 volta e 1 maglia 2 volte... Che significa? Non mi rendo conto

17.08.2020 - 01:15

DROPS Design answered:

Buongiorno Marika. Dopo aver messo le maglie centrali del davanti in attesa, continua le due parti del davanti separatamente. Per dare la forma allo scollo, deve chiudere 2 m 1 volta e 1 m due volte. Queste maglie le chiude quando il ferro inizia dal lato dello scollo. Buon lavoro !

17.08.2020 - 16:16

country flag Marika wrote:

Intrecciare per lo scollo ad ogni ferro che inizia dallo scollo, come segue: Intrecciare 2 maglie 1 volta e 1 maglia 2 volte... Che significa? Non mi rendo conto

16.08.2020 - 00:42

Louise wrote:

Hej igen. Så jag kan behålla stickor nr 4 sålänge stickfastheten är densamma? Just denna tröja är ju en "oversized" modell och ska vara lite stor. Hur mycket större skulle den bli om jag stickar för löst?

09.10.2018 - 12:12

Louise wrote:

Hej. Jag har precis startat på detta mönster. Måste jag byta till nr5 när jag är klar med resåren? Jag skulle gärna ha det lite tätare i själva tröjan då jag redan i resåren får intryck av att det kommer bli ganska "luftigt". Om jag håller mig till nr4, kommer det påverka resten av mönstret mycket? Tack för en bra sida!

09.10.2018 - 08:06

DROPS Design answered:

Hej Louise, stikca ett litet prov på 10 x 10 cm. Om du håller stickfastheten på 17m och 24 varv på 10 x 10 cm så får du måtten som är i måttskissen nederst i mönstret. Stickar du lösare får du inte så många maskor på 10 cm och då blir tröjan större än på måttskissen. Lycka till :)

09.10.2018 - 10:49

Caroline Giddings wrote:

I'm worried that 4 x 50gm balls will not be enough to finish this pattern. I'm knitting the medium size.

21.08.2017 - 06:25

DROPS Design answered:

Hi Caroline, As long as your knitting tension is correct, the amounts of yarn given in the pattern will be enough to finish the jumper. Happy knitting!

21.08.2017 - 09:45

country flag Josette Boudreau wrote:

Merci beaucoup pour toute l'aide fournie.

22.05.2017 - 14:02

country flag Josette Boudreau wrote:

Merci beaucoup de l'info. Une dernière question: dans la section dos, on dit de rabattre l'encolure à 85 cm de hauteur et on dit aussi de continuer par la suite les épaules jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 85 cm. Pouvez-vous m'indiquer lequel est ok. Merci pour tout et bon lundi

22.05.2017 - 12:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Boudreau, cette information a été envoyée à nos stylistes pour qu'elle puisse être vérifiée. Je ferais l'encolure dos à 84 cm pour avoir 1 cm d'écart avec la hauteur totale comme en taille S. Bon tricot!

22.05.2017 - 13:21

country flag Josette Boudreau wrote:

Bonjour, pouvez-vous m'expliquer comment rabattre à l'encolure ? Je ne comprends pas le 2 fois une maille et 1 fois 2 mailles et ce à tous les rangs alors qu'on doit passer de 38 mailles à 34 mailles ce qui voudrait dire en 3 rangs seulement si je comprends bien. Pouvez-vous m'éclaircir ? De plus, est-ce ok que le devant et le dos ne soit pas de la même longueur (80 cm lors pour l'arrêt de mailles à l'avant et 85 cm pour le rabat du côté dos. Merci de m'aider, je suis pas mal embêtée.

21.05.2017 - 21:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Boudreau, le dos et le devant ont la même longueur (= 85 cm en taille M), mais l'encolure devant se fait à 80 cm (plus échancrée) et celle du dos se fait plus haut. Pour l'encolure devant: tricotez 1 rang sur l'endroit et mettez les 22 m centrales en attente. Continuez l'épaule droite en rabattant côté encolure tous les 2 rangs: 1 x 2 m et 2 x 1 m et continuez jusqu'à 85 cm. Reprenez les m de l'épaule gauche et rabattez côté encolure tous les 2 rangs comme pour l'épaule droite. Bon tricot!

22.05.2017 - 09:27