Jellie skrifaði:
Bij het begin van de pijp, na het haken van de 64 lossen, staat er haak 3 lossen. Moet je niet eerst na de 64 lossen de ring sluiten met een halve vaste? Het kost anders wel wat moeite om 3 lossen te halen en een stokje in de 1e l van de l-ring. Het heeft me heel wat hoofdbrekens gekost om te zien wat er miste in het patroon, omdat ik er eerst niet uitkwam.
18.04.2021 - 19:46DROPS Design svaraði:
Dag Jellie,
Ja volgens mij heb je gelijk; ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling ter correctie.
19.04.2021 - 20:31
Michaela Schmidt skrifaði:
Hallo liebes Team, folgendes Problem: An dem Punkt: "Fertigstellen" möchte ich wissen, wie genau ich vernähen soll. Wo fange ich an? Wo höre ich auf? Habe ich das richtig verstanden, dass ich mit dem 25cm langen Faden die komplette untere Naht schließe? Dann habe ich ja auch die Ferse zugenäht???? Dann der Fuss: Wo genau bringe ich den Markierer an? an der offenen Seite die dann spitz zuläuft? Vielen Dank für Ihre Mühe
06.01.2017 - 13:44DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Schmidt, Sie müssen die letzte Reihe der Ferse doppeld falten, und die letzte Reihe von der Mitte an der Ferse bis untem am Fuß zusammennähen. Dann wird der Fuss um herum von dem Ferse-Teil gehäkelt. Der Markierer am Fuss soll vor der 1. Runde eingesetzt. Viel Spaß beim häkeln!
06.01.2017 - 14:49
Elizabeth Maddox skrifaði:
I love the socks! They are so cute, but I've run out of votes!
18.06.2016 - 16:08
Elizabeth Walker skrifaði:
I love these socks, too! The pattern is beautiful but I've run out of votes!
18.06.2016 - 16:06
Lauren McRoberts skrifaði:
Very cute! I would like to try these!
12.06.2016 - 01:35
Rock Them Socks#rockthemsocks |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Heklaðar tátiljur með marglitu mynstri úr DROPS Nepal. Stærð 35–43.
DROPS 172-19 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar heklað er í hring: Í byrjun á hverri umf með st, skiptið út fyrsta st með 3 ll. Umf endar með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Í byrjun á hverri umf með fl, skiptið út fyrstu fl með 1 ll. Umf endar með 1 kl í 1. ll frá byrjun umf. Þegar heklað er fram og til baka: Í byrjun á hverri umf með st, skiptið út fyrsta st með 3 ll. LITAMYNSTUR (heklað í hring): Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta st með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin, heklið síðan næsta st. Þegar heklað er með tveimur litum er þráðurinn í þeim lit sem ekki á að hekla með lagður yfir l frá fyrri umf, heklað er utan um litinn þannig að hann sjáist ekki og fylgi með hringinn. Passið uppá að þræðirnir dragi ekki stykkið saman! Fyrsti st kemur í stað 3 ll, um síðasta st frá fyrri umf og fyrsta st í næstu umf er í mismunandi litum er síðasti st heklaður þannig: Heklið síðasta st með fyrri litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin, 1 kl í 3. ll í byrjun umf, heklið síðan 3 ll (= byrjun umf). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við jafnt yfir): Til að reikna út hversu oft eigi að fækka l í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 56 fl) og deilið þessum l með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 5l) = 11,2. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá hekluð ca 10. og 11. hver lykkja saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir liti í tátiljunni. 1 rúða í mynstri = 1 st. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður, frá miðju að aftan. STROFF / LEGGUR: Heklið 64 ll með heklunál nr 4,5 með litnum sæblár. Heklið 3 ll (= 1 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 st í fyrstu ll frá ll-hring, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* = 56 st. Heklið A.1 (= 8 l) alls 7 sinnum hringinn – LESIÐ LITAMYNSTUR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 16 cm. HÆLL: Heklið nú áfram fram og til baka. Byrjið 5 st frá prjónamerki. Heklið síðan með litnum hindber þannig: Heklið 1 st í hvern af 38 st (= 10 st eftir fyrir miðju að framan, nú er ekki lengur heklað yfir þessa st). Haldið áfram með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 7-8-9 cm frá prjónamerki (= 23-24-25 cm alls). Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 15 st, heklið næstu 2 st saman – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, * 1 st í næsta st, heklið næstu 2 st saman *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, heklið 1 st í hvern af síðustu 15 st = 35 st. Heklið 1 umf með 1 st í hvern st. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 15 st, * heklið næstu 2 st saman *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endið með 1 st í hvern af síðustu 14 st = 32 st. Stykkið mælist ca 26-27-28 cm alls. Klippið frá þannig að það verði ca 25 cm eftir fyrir frágang. FRÁGANGUR: Saumið saman við miðju undir fæti. Festið enda. FÓTUR: Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið með litnum hindber. Byrjið mitt undir il (þ.e.a.s. þar sem saumað var saman). Heklið 14-16-18 st jafnt yfir um st-umf (þ.e.a.s. á undan st á stroffi) þar til 1 umf er eftir, heklið 1 st um síðustu st-umf, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í fyrsta st, frá stroffi, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni (= 1 st færri), heklið 1 st í hvern af næstu 8 st yfir stroffi, heklið 1 st í síðasta st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st um fyrstu st-umf, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni (= 1 st færri), heklið 14-16-18 st jafnt yfir síðustu st-umf = 38-42-46 st. Heklið 2 umf með 1 st í hvern st og fækkið um 1-3-3 st jafnt yfir í hverri umf – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (= 2-6-6 st færri alls) = 36-36-40 st. Heklið 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 6-8-10 cm frá prjónamerki. Heklið nú A.2 (= 4 st) alls 9-9-10 sinnum hringinn. Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er heklað til loka með litnum sæblár þannig: STÆRÐ 41/43: Heklið 1 umf með 1 st í hvern st og fækkið um 4 st jafnt yfir = 36 st. ALLAR STÆRÐIR: UMFERÐ 1: Heklið * 1 st í hvorn af fyrstu/næstu 2 st, heklið næstu 2 st saman *, endurtakið frá *-* alls 9 sinnum = 27 st. UMFERÐ 2: Heklið * 1 st í fyrsta/næsta, heklið næstu 2 st saman *, endurtakið frá *-* alls 9 sinnum = 18 st. UMFERÐ 3: Heklið alla 2 st saman 2 og 2 = 9 st. ALLAR STÆRÐIR: Klippið frá og þræðið þráðinn upp og niður í gegnum l efst á tátiljunni, herðið að og festið vel. KANTUR: Heklið kant í kringum stroffið á ll-umf í fyrstu umf sem hekluð var með litnum sæblár þannig: Heklið 1 fl í hverja ll þar sem heklaðir voru st í fyrstu umf, þ.e.a.s. ekki er heklað í ll þar sem hoppað var yfir (= 56 fl). Heklið aðra tátilju á sama hátt. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 2 þræði með litnum sæblár ca 2 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda þá tvinnar hún sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í stroffið og festið litla dúska úr öllum litum á hvorn enda. Gerið eins á hinni tátiljunni. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rockthemsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.