Elena skrifaði:
Bonjour, pour ce modele pour crocheter les rangs avec couleur unique, doit on egalement crocheter autour d'un fil de meme couleur pour garder la meme epaisseur que pour les rangs a deux couleurs? Par avance merci
30.12.2021 - 14:52DROPS Design svaraði:
Bonsoir Elena, les rangs avec couleur unique sont crochetes avec une seule couleur (sans crocheter autour d'un fil). Quand on crochète avec 2 couleurs placer la couleur non utilisée au-dessus des m du tour précédent, crocheter autour du fil pour qu'il soit caché et suive le tour. Bon crochet!
30.12.2021 - 19:19
Dolors skrifaði:
Como se empieza las pasadas de colores de arriba abajo? O abajo arriba?
24.01.2019 - 12:00DROPS Design svaraði:
Hola Dolores. La falda se trabaja de arriba abajo.
24.01.2019 - 15:11
Barbara Stowers skrifaði:
That video showed you how to change colors row by row, not how this pattern is. Like when I change from dark grey to the pink in A.1, I tried carrying the colors and does not look good. I tried bobbins, but that would mean I need to make 40+ bobbins of pink and carry the grey as the main colors. Do you see the frustration with that? HELP!!!!!
31.01.2017 - 20:19DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Stowers, the video below shows how to change colour on a row. See also this video on how to crochet 2 colours on a row (another pattern). Happy crocheting!
01.02.2017 - 09:03
Barbara Stowers skrifaði:
How did you change or carry the colors?
31.01.2017 - 18:41DROPS Design svaraði:
Hi Barbara! Please see our tutorial video 'How to crochet and change color' HERE. Happy knitting!
31.01.2017 - 18:53
Jennifer skrifaði:
Jeg skal begynne å hekle rundt og følge skjema A2. hvordan skal jeg lese dette? skal jeg begynne nederst til høyre slik som A1? Og; rad to, skal den leses fra venstre slik at jeg leser sikksakk (slik som A1 da jeg heklet frem og tilbake)? Eller skal diagrammet leses fra høyre mot venstre på alle rekkene?
22.09.2016 - 12:53DROPS Design svaraði:
Hej Jenny. Naar du hekler rundt starter hver omg fra höjre mod venstre. Det er kun naar du hekler frem og tilbage du leser "sikksakk"
27.09.2016 - 16:18
Marianne Lute skrifaði:
I want to order yarn and make the "Color of Winter" skirt but I am having a hard time understanding the pattern (there is nothing wrong with it- I have never read the picture type before). Is the other version available where each row's stitches are written out? Thanks so much.
04.08.2016 - 18:55DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Lutte, there is only diagram to this pattern, read each diagram beg from the bottom corner on the right side towards the left every row from RS (when working back and forth) and every round when working in the round - read diagrams from the left towards the right from WS. Feel free to ask you question here, for any further assistance you are welcome to contact your DROPS store. Happy crocheting!
05.08.2016 - 09:30
Carola Eriksson skrifaði:
Precis i tiden, kommer älskas av många! namesuggestion: inka
29.06.2016 - 20:50
Lauren McRoberts skrifaði:
Great use of color! Pretty skirt!
12.06.2016 - 01:33
Color of Winter#colorofwinterskirt |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Heklað pils úr DROPS Karisma með marglitu mynstri, heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 171-30 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. 1 rúða = 1 st. HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar heklað er fram og til baka: Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Í byrjun á hverri umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Þegar heklað er í hring: Hver umf með st byrjar með 3 ll (kemur í stað fyrsta st), umf endar með 1 kl í 3. ll. LITAMYNSTUR: Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta st með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin, heklið síðan næsta st. Þegar heklað er með tveimur litum, leggið þráðinn á þeim lit sem ekki er heklað með yfir l frá fyrri umf, heklið utan um þráðinn þannig að hann er hulinn og fylgi með hringinn. Passið uppá að þræðirnir sem fylgja með dragi ekki stykkið saman! Fyrsta st er skipt út fyrir 3 ll, ef síðasta st frá fyrri umf og fyrsti st í umf er með ólíkum litum er síðasti st heklaður þannig: Heklið síðasta st með fyrsta litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin. Þegar heklað er í hring endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf, heklið síðan 3 ll (= byrjun umf). ÚTAUKNING: Aukið út með því að hekla 2 st í sömu l. Til að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 130 l) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 13. Þ.e.a.s. í þessu dæmi er aukið út um 1 st í 13. hvern st. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka til að mynda op / klauf, síðan er heklað í hring. PILS: Heklið 139-153-165-186-207-232 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4 með litnum dökk grár Karisma. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 st í hvern af næstu 2-2-0-0-0-4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* = 118-130-140-158-176-198 st. Heklið síðan A.1 (= 4 l) – LESIÐ LITAMYNSTUR, fram og til baka JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 10-10-8-10-8-10 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 128-140-148-168-184-208 st (A.1 er endurtekið alls 32-35-37-42-46-52 sinnum á breiddina). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM, AUKIÐ ER JAFNFRAMT ÚT ÞEGAR HEKLAÐ ER Í HRING: AUKIÐ ÚT ÞANNIG: Heklið síðan áfram með litnum milligrár. Heklið 1 st í hvern st og aukið út um 14-10-9-8-7-6 st jafnt yfir í annarri hverri umf alls 3-4-4-6-6-6 sinnum, síðan 0-0-10-0-8-8 st jafnt yfir 1 sinni = 170-180-194-216-234-252 st. Þegar heklaðar hafa verið alls 6-8-10-12-14-15 umf með litnum milligrár mælist stykkið ca 13-16-18-20-22-23 cm. HEKLAÐ Í HRING: Þegar stykkið mælist 12 cm endar op / klauf í hlið og stykkið er síðan heklað í hring með byrjun umf í hlið. Heklið síðan A.2 (= 4 st) hringinn JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 2-4-2-4-2-4 st jafnt yfir = 172-184-196-220-236-256 st (A.2 er endurtekið alls 43-46-49-55-59-64 sinnum á breiddina). Í 2. og 6. umf er aukið út um 8-8-8-8-8-16 st jafnt yfir í hverri umf (í hvert skipti sem aukið er út er A.2 endurtekið alls 2-2-2-2-2-4 sinnum fleira á breiddina), í 10. og 12. umf er aukið út um 4-4-4-4-8-8 st jafnt yfir í hverri umf (í hvert skipti sem aukið er út er A.2 endurtekið alls 1-1-1-1-2-2 sinnum fleira á breiddina), í síðustu umf er aukið út um 8 st jafnt yfir = 204-216-228-252-276-312 st. Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 29-32-34-36-38-39 cm. Heklið síðan A.3 (= 6 st) alls 34-36-38-42-46-52 sinnum á breiddina. Þegar A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 42-45-47-49-51-52 cm. Heklið síðan A.4 (= 4 l) hringinn alls 51-54-57-63-69-78 sinnum á breiddina. Þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 46-49-51-53-55-56 cm. Klippið frá og festið enda. KANTUR AÐ OFAN: Heklið kant með st frá fyrstu umf á pilsi með litnum dökk grár. Heklið 1 umf með 1 fl í hvern st = 118-130-140-158-176-198 fl. HNESLA / LYKKJA: Meðfram annarri hlið á opi / klauf sem staðsett er á framstykki eru heklaðar hneslur / lykkjur með litnum dökk grár þannig (byrjið neðst niðri): Heklið 2 fl (um fyrstu umf), 3 ll, hoppið yfir 1 cm, * heklið 2 fl um næstu st-umf, 3 ll, hoppið yfir 1 cm *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar og endið með 2 fl um síðustu st-umf efst uppi, snúið við og heklið til baka þannig: 1 fl í hverja fl og 3 fl í hvern ll-boga. Klippið frá og festið enda. KANTUR FYRIR TÖLUR: Meðfram hinni hliðinni á opi/ klauf eru heklaðar 5 umf með fl fram og til baka með litnum dökk grár (í 1. umf eru heklaðar 2 fl um hverja st-umf), klippið frá. Saumið tölur í kantinn. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #colorofwinterskirt eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.