Sandra Wever skrifaði:
Ik ben er al uit hoor😉
28.01.2016 - 20:36DROPS Design svaraði:
Hoi Sandra. Mooi zo!
29.01.2016 - 09:25
Sandra Wever skrifaði:
Vraagje, ik ben net begonnen en nu staat er: haak 4 patroonherhalingen van A.1 in de breedte, wat wordt bedoeld met" in de breedte"?
28.01.2016 - 16:35Rajiajith skrifaði:
Wow!!!! awesome pattern!!!! thank you very much for sharing!!!!
26.01.2016 - 13:48
Anna skrifaði:
Läcker cirkelkofta!
24.01.2016 - 02:03
Angelika K. skrifaði:
Tolle Jacke. Ich liebe diese Art zu häkeln. Es geht schnell, macht Spaß und sieht außerdem noch super toll aus. Ist ein richtiger Hingucker!
13.12.2015 - 11:15
Anja skrifaði:
Wunderschöne leichte Sommerjacke. Ich mag das Kreis- und Wellenmuster.
13.12.2015 - 10:51
Carol skrifaði:
Crocheting in the round can be so beautiful. I love the 3/4 sleeves.
12.12.2015 - 18:19
Evening Tide#eveningtidejacket |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð hringpeysa úr DROPS Big Delight. Stærð S - XXXL.
DROPS 168-27 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er heklað með þessari aðferð. Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni, dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna á heklunálinni = 1 fl, heklið 3 ll, heklið síðan 15 st um lykkjuna, endið á 1 kl í 3.ll = 16 st. Heklið síðan eins og útskýrt er í uppskrift – JAFNFRAMT er dregið í endann á þræðinum þannig að lykkjan dragist saman og gatið hverfur. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta st í byrjun er skipt út fyrir 3 ll. Endið umf á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Fyrsta tbst í byrjun er skipt út fyrir 4 ll. Endið umf á 1 kl í 4. ll í byrjun umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. HRINGPEYSA: Heklið GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál nr 5,5 með Big Delight. Haldið síðan áfram eftir A.1- ATH! Fyrsta umf í A.1 er útskýrð í galdralykkjunni, heklaðar eru 4 mynstureiningar af A.1 á breiddina. Kl í byrjun á A.1 og A.2 er einungis hekluð í byrjun umf. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka er heklað áfram eftir A.2, heklið 7 mynstureiningar af A.2 á breiddina, í síðustu umf í A.2 er fækkað um 1 st = 160 st. Haldið áfram að hekla eftir A.1, nú er byrjað á 5. umf – sjá ör í mynstri. Heklið 1-2-3 umf eins og í 5. umf í mynstri (= 80 st + 2 ll), síðan er heklaður handvegur þannig: Heklið * 1 st + 2 ll í fyrsta st *, endurtakið frá *-* yfir fyrstu 20 st, heklið 22-24-26 ll, hoppið yfir 10-11-12 st (= fyrri handvegur), heklið * 1 st + 2 ll í næsta st *, endurtakið frá *-* yfir næstu 40-38-36 st, heklið 22-24-26 ll, hoppið yfir 10-11-12 st (= seinni handvegur), endið á 1 kl í byrjun umf. Heklið síðan eins og 6. umf í mynstri þannig: Heklið 1 st + 2 ll í hvern st fram að fyrri handveg, * heklið 1 st + 2 ll um ll-boga *, endurtakið frá *-* 10-11-12 sinnum til viðbótar, haldið áfram með 1 st + 2 ll seinni handvegs, * heklið 1 st + 2 ll um ll-boga *, endurtakið frá *-* 10-11-12 sinnum til viðbótar = 82 st með 2 ll á milli hverra. Endurtakið umf 7 8-7-6 sinnum. Heklið umf 7 1-3-5 sinnum til viðbótar, JAFNFRAMT er aukið út um 2 st jafnt yfir í hverri umf, þ.e.a.s. tvisvar sinnum í hverri umf er heklað þannig: 1 st + 3 ll + 1 st + 3 ll í 1 st = 84-88-92 st með 3 ll á milli hverra. Stykkið mælist ca 80-88-96 cm að þvermáli (= 40-44-48 cm frá miðju). Heklið síðustu umf í A.1, heklið síðan eftir A.2 (= 21-22-23 mynstureiningar á breiddina). Klippið frá og festið enda. ERMI: Ermin er hekluð í hring frá handveg og niður. Heklið 1 st + 2 ll í hvern st sem hoppað var yfir og 1 st + 2 ll í neðri kant á hverjum st frá annarri hlið á handveg = 21-23-25 st með 2 ll á milli hverra. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi. Haldið áfram með 1 st + 2 ll í hvern st. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 st + 2 ll mitt undir ermi þannig: Heklið síðasta st á undan prjónamerki, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta st (án þess að hekla 2 ll á milli), þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni (= 1 st + 2 ll færri). Fækkið l með 5 cm millibili 7 sinnum til viðbótar, fækkið l til skiptis á undan og á eftir prjónamerki = 13-15-17 st með 2 ll á milli hverra. Haldið áfram þar til stykkið mælist 48 cm í öllum stærðum, klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #eveningtidejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.