DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Sweet Gretel

Heklaður bolero úr DROPS Delight með ferningum á baki og með breiðum hekluðum kanti hringinn. Stærð S - XXXL.

DROPS Extra 0-1258
DROPS Design: Mynstur nr de-151
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
150-200-250 g nr 07, beige/blár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf tila ð 22 st verði 10 cm á breiddina. 1 heklaður ferningur mælist: ca 10 x 10 cm (S/M - L/XL) og ca 12 x 12 cm (XXL/XXXL).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning A.4 sýnir hvernig umf byrjar og endar.

SKIPT UM ENDA:
Til að litaskipting á Delight verði fallegar þegar skipt er um dokku er mikilvægt að finna dokku sem byrjar með þeim lit sem endað er með.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsti st í hverri umf með st er skipt út fyrir 3 ll. Hver umf með st endar með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sömu l.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Heklið 6 ferninga og saumið þá saman í lokin. Heklið síðan mjóan kant í hring á bakstykki áður en breiður kantur er heklaður.

HEKLAÐUR FERNINGUR (Stærð S/M - L/XL):
Heklið 6 ll með heklunál nr 3,5 með Delight og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. Haldið síðan áfram með mynstur A.1 – SJÁ HEKLLEIÐBEININGAR, ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka er klippt frá og endar festir. Heklið 5 ferninga til viðbótar.

HEKLAÐUR FERNINGUR (Stærð XXL/XXXL):
Heklið 6 ll með heklunál nr 3,5 með Delight og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. Haldið síðan áfram með mynstur A.1 – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið heklað til loka er næsta umf hekluð þannig: Heklið 3 ll (jafngildir 1 st), 1 st í hvern af næstu 4 st, * 2 st + 2 ll + 2 st um ll-bogann í horni, 1 st í hvern af næstu 19 st *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, 2 st + 2 ll + 2 st um hornið, 1 st í hvern af næstu 14 st, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. Heklið 5 ferninga til viðbótar.

Leggið ferningana niður með 3 ferninga á breiddina og 2 raðir á hæðina. Heklið ferningana saman með Delight – ferningarnir eru fyrst heklaðir á lengdina og síðan á breiddina þannig:
Leggið 2 ferninga með röngu á móti röngu og heklið þá saman frá réttu þannig: 1 fl um hornið á fyrri ferningi, 1 ll, 1 fl um hornið á næsta ferningi, 1 ll, 1 fl í næstu l á fyrri ferningi, 1 ll, 1 fl í næstu l á seinni ferningi, 1 ll, 1 fl í næstu l á fyrri ferningi, 1 ll, 1 fl í næstu l á seinni ferningi o.s.frv., endið þegar heklað hefur verið 1 fl í síðasta hornið á báðum ferningunum, klippið frá og festið enda. ATH: Passið uppá að það verða fallegar skiptingar á milli ferninga þegar ferningarnir eru heklaðir saman á lengdina.

Heklið síðan 2 umf með st í kringum allt bakstykkið (byrjið efst á hægra horni) þannig: 1 fl um ll-bogann í horni, 3 ll (jafngildir 1 st), 1 st + 2 ll + 2 st um sama boga, síðan er heklaður 1 st í hvern af 19-19-23 st á hverjum ferningi + st á milli hverra ferninga efst á bakstykki JAFNFRAMT er aukið út um 6 st jafnt yfir meðfram annarri hliðinni (þ.e.a.s. aukið út um 2 st yfir hvern ferning – LESIÐ ÚTAUKNING) = 65-65-77 st, heklið 2 st + 2 ll + 2 st um næsta horn, heklið 1 st í hvern af 19-19-23 st á hverjum ferningi + 1 st á milli 2 ferninga niður meðfram skammhlið = 39-39-47 st, heklið 2 st + 2 ll + 2 st um næsta horn, heklið 1 st í hvern af 19-19-23 st á hverjum ferningi + 1 st á milli hverra ferninga neðst á bakstykki JAFNFRAMT er aukið út um 3 st jafnt yfir meðfram annarri hliðinni (þ.e.a.s. aukið út um 1 st yfir hvern ferning) = 62-62-74 st, heklið 2 st + 2 ll + 2 st um næsta horn, heklið 1 st í hvern af 19-19-23-st á hverjum ferning + 1 st á milli 2 ferninga upp meðfram annarri skammhliðinni = 39-39-47 st og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.

Heklið 1-2-3 umf til viðbótar alveg eins, þ.e.a.s. 1 st í hvern st, 2 st + 2 ll + 2 st um ll-bogann í hverju horni, aukið út um 6 st meðfram kanti efst og 3 st meðfram kanti neðst – ATH: Í stærð XXL/XXXL er ekki aukið út meðfram kanti efst í síðustu umf. Eftir síðustu umf eru 79-89-105 st efst, 47-51-63 st á hvorri hlið, 73-80-99 st meðfram kanti neðst og 4 horn bogar. Klippið frá og festið enda.

BREIÐUR HEKLAÐUR KANTUR:
Byrjið efst á bakstykki með 1 kl í miðju-l, heklið 3 ll (jafngildir 1 st), heklið síðan 1 st í hvern af 39-44-52 st efst meðfram bakstykki, heklið 53-57-71 ll (= handvegur), 1 st í hvern af 73-80-99 st neðst meðfram bakstykki, 53-57-71 ll (= handvegur), 1 st í hvern af þeim 39-44-52 st sem eftir eru efst meðfram bakstykki og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
Í næstu umf er heklaður 1 st í hvern st efst og neðst á bakstykki og um hvern ll-boga meðfram handveg eru heklaðir 47-51-63 st = 246-271-330 st í umf.

Heklið síðan mynstur eftir teikningu A.2 (A.4 sýnir hvernig umf byrjar og endar. ATH: Heklleiðbeiningar eiga einungis við í 1. umf, en ekki meir) umf hringinn JAFNFRAMT er aukið út þannig:
UMFERÐ 2-10: Aukið út um 31-36-31 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 277-307-361 st.
UMFERÐ 10: Aukið út um 30 st jafnt yfir = 307-337-391 st.

STÆRÐ S/M - L/XL:
Endurtakið umf 3-10 1 sinni til viðbótar JAFNFRAMT er aukið út þannig:
UMFERÐ 10: Aukið út um 30 st jafnt yfir = 337-367 st.

STÆRÐ XXL/XXXL:
Endurtakið umf 3-10 1 sinni til viðbótar JAFNFRAMT er aukið út þannig:
UMFERÐ 10: Aukið út um 30 st jafnt yfir = 421 st.
Endurtakið umf 3-5 1 sinni til viðbótar = 421 st.

Heklið síðan mynstur eftir teikningu A.3 (A.4 sýnir hvernig umf byrjar og endar). Þegar mynstri er lokið er klippt frá og endar festir.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.09.2016
HEKLAÐUR FERNINGUR (Stærð XXL/XXXL): .. Heklið 3 ll (jafngildir 1 st), 1 st í hvern og einn af næstu 4 st, * 2 st + 2 ll + 2 st um ll-bogann í horni, 1 st í hvern og einn af næstu 19 st *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, 2 st + 2 ll + 2 st um hornið, 1 st í hvern og einn af næstu 14 st, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. Heklið 5 ferninga til viðbótar.

Mynstur

symbols = 6 ll, 1 kl í fyrstu ll (sjá punkt í hring) umf byrjar og endar hér
symbols = ll
symbols = kl
symbols = fl um ll/ll-bogi
symbols = fl í l
symbols = fl um ll
symbols = st um ll/ll-bogi
symbols = st í l
symbols = picot (3 ll, 1 fl í fyrstu ll)
symbols = síðast umf frá fyrri umf, þessi umf hefur nú þegar verið hekluð
symbols = umf byrjar með 1 ll, umf endar með 1 kl í fyrstu ll
symbols = umf byrjar með 3 ll, umf endar með 1 kl í 3. ll
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1258

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Rena wrote:

Hallo, ich kann die Maßskizze nicht finden. Im Text steht ganz oben: "Größe: S/M - L/XL - XXL/XXXL (siehe Maße in der Maßskizze!)" Vielen Dank vorab für die Info

17.01.2021 - 21:04

DROPS Design answered:

Liebe Rena, es ist keine Maßskizze für dieses Modell (das wird in die deutsche Anleitung gelöscht) - das Rückenteil wird ca 36-41-48 cm oben und ca 33-36-45 cm unten messen - die Armlöcher werde ca 21-23-29 cm hoch sein. Hoffentlich kann es Ihnen helfen. Viel Spaß beim häkeln!

18.01.2021 - 10:39

country flag Irene wrote:

Do not understand A2 on your extra 0-1258 am I following that pattern all the way around and what is A4 for just doesn’t make sense

23.03.2020 - 01:48

DROPS Design answered:

Dear Irene, A.4 is just showing how to begin and ends each round, this means you either start with last symbol (= 3 chains) or with next-to last symbol (= 1 chain) and every round will finish with 1 sl st in the 3rd/1chain from beg of round (= A.4). Read more about diagrams here. Hope this will help, Happy crocheting!

23.03.2020 - 11:26

country flag Mbrake wrote:

Wow wat gaaf

06.04.2019 - 18:36

country flag Conny Holm wrote:

Tak for jeres svar.

13.07.2018 - 15:34

country flag Conny Holm wrote:

De-151 Når de 6 ruder der ligger 3x2 skal hækles sammen, hvad er så på langs og tværs? VH CH

13.07.2018 - 12:04

DROPS Design answered:

Hei Conny. Når rutene ligger 3 i bredden og 2 i høyden ligger de som de vil være på plagget. Da er sømmen mellom gruppene av 3 og 3 ruter på tvers, mens sømmene mellom hver rute i høyden da blir på langs. God fornøyelse.

13.07.2018 - 15:06

country flag Conny Holm wrote:

Er det ikke muligt, at I kan inddele jeres kommentar/spørgsmål i lande eller endnu bedre, fjerne de kommentarer/spørgsmål, der ikke er danske i den danske udgave af drops? Eller evt. oversætte, så kunne det jo være, at man fandt svaret på sit spørgsmål selv og ikke behøver at vente i flere dage på jeres svar. I øvrigt svært at gøre sig forståelig, når man bliver "hægtet af", hvis mans skriver mere end en kommentar = spam? Mvh Conny Holm

13.07.2018 - 11:58

country flag Conny Holm wrote:

Ups! Har været inde på Bolero de-151 og set, at garnet er flerfarvet, sorry. VH CH

12.07.2018 - 14:38

country flag Conny Holm wrote:

Skal ruderne sys eller hækles sammen eller begge dele. Og er den lille og den store kant, de kanter der skal hækles efter ruderne er hæklet? sammen?

11.07.2018 - 12:48

DROPS Design answered:

Hei Conny. Ja det skal hekles en liten og en bred kant etter at rutene er heklet sammen, som forklart i oppskriften. God fornøyelse

13.07.2018 - 15:09

country flag Conny Holm wrote:

Hvor meget garn skal jeg bruge til denne opskrift? I angiver kun en enkelt farve? VH Conny

11.07.2018 - 12:07

country flag Laura wrote:

Buona sera. Vorrei avere conferma per quanto riguarda gli aumenti sui quadrati una volta cuciti. Se ho capito bene al termine del II giro della taglia S ci dovrebbero essere 79m.a. sul lato schiena.47 sui lati corti e 73 sotto.ma compreso le 2 più 2 maglia alte agli angoli ?o esclusi i gruppi agli angoli ? Grazie.

23.04.2018 - 22:10

DROPS Design answered:

Buongiorno Laura. Sono comprese le maglie alte lavorate intorno agli archi di catenelle negli angoli. Buon lavoro!

24.04.2018 - 10:08