Agnes skrifaði:
Finns ingen anledning att virka 2 lm och räkna som 1 hst, blir fula hål. Virka istället 1 lm i början och fäst i slutet av v med sm i första hst, sedan virkar du första hst i samma m så blir det jättefint. Jag fick inte till stickfastheten alls, hade 14 på bredden men endast 10 v på 10x10cm och då virkar jag inte alls löst. Tog ändå 5mm nål då mössan blir för skålformad annars. Vi får se hur det går :)
13.01.2024 - 14:31
Linda Martinsson skrifaði:
Hej! Jag förstår inte varför man ska ersätta första halvstolpen på varje varv med två lm. Nu blir det en rad med stora hål i mössan, ett i varje varvbyte. Jag lyckas inte krympa bort dem. Hade jag gjort två lm men inte hoppat över första hst hade åtminstone hålen blivit mindre.
16.01.2021 - 21:33DROPS Design svaraði:
Hei Linda. Du kan ikke starte en rad med en halvstav, derfor starter du med 2 luftmasker som blir det samme som en halvstav. Om du hadde heklet 2 luftmasker som ikke hadde erstattet 1. halvstav hadde du økt med 1 maske på hver rad. mvh DROPS design
27.01.2021 - 08:16
Наталья Якушина skrifaði:
Отличное описание, хорошая шапочка получилась! Спасибо автору.
12.12.2019 - 15:48
Tonje Winther skrifaði:
Jeg forstår ikke økingen i luemønsteret. det blir jo for mange staver i forhold til oppskriften om jeg øker slik som det står... eller er det bare jeg som surrer?
08.12.2016 - 13:30DROPS Design svaraði:
Hej Tonje. Nej, jeg er enig med dig i at det staar ikke korrekt. Jeg faar ordnet en rettelse saa du hurtig kan komme videre.
14.12.2016 - 14:35Isa Skeppar skrifaði:
Mönstret i lucka 5 är felaktigt på svenska, finska och norska, Det står att man ska öka i 2 halvstolpar efter varandra, då man de facto ska öka bara i en. Annars är det ett fint mönster. Med vänlig hälsning från Finland Isa Skeppar
06.12.2015 - 14:04
Bernadette skrifaði:
Adorable!
06.12.2015 - 08:54
Joane skrifaði:
Merci pour les beaux patrons .
05.12.2015 - 16:27
Pellet skrifaði:
Merci pour tous ces magnifiques modèles et pour le calendrier de l'avent, comme chaque année il est très beau
05.12.2015 - 09:17
Carrot Nose |
|
|
|
Hekluð snjókarlahúfa / jólasveinahúfa með eyrnaleppum úr Nepal. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1196 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR-1: Fyrsti hst í umf er skipt út fyrir 2 ll, hver umf með hst endar á 1 kl í annarri ll frá byrjun umf. HEKLLEIÐBEININGAR-2: Umf byrjar á 1 ll (ll kemur ekki í stað fyrstu fl) og endar á 1 kl í fyrstu fl. HEKLIÐ 2 HST SAMAN: * Bregðið þræði um heklunálina, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræði um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. Eyrnalepparnir eru heklaðir fram og til baka. HÚFA: Heklið 4 ll með heklunál nr 5 með litnum djúprauður, tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. Byrjun umf = miðja að aftan. UMFERÐ 1: Heklið 8 hst um hringinn, LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1. UMFERÐ 2: Heklið 2 hst í hvern hst umf hringinn = 16 hst. UMFERÐ 3: Heklið * 1 hst í fyrstu hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 hst. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 4: Heklið * 1 hst í hvorn af næstu 2 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 hst. UMFERÐ 5: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 3 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 hst. UMFERÐ 6: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 4 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 hst. UMFERÐ 7: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 5 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 56 hst. Héðan er nú heklað mismunandi eftir stærðum. STÆRÐ 6/9 MÁN: UMFERÐ 8: Heklið 1 hst í hvern hst umf hringinn. STÆRÐ 12/18 MÁN: UMFERÐ 8: Heklið 1 hst í hvern hst, EN aukið samtímis út um 2 hst jafnt yfir = 58 hst. STÆRÐ 2 ÁRA: UMFERÐ 8: Heklið 1 hst í hvern hst, EN aukið samtímis út um 6 hst jafnt yfir = 62 hst. STÆRÐ 3/4 ÁRA: UMFERÐ 8: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 6 hst, 2 hst í næstu 2 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 64 hst. STÆRÐ 5/6 ÁRA: UMFERÐ 8: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 6 hst, 2 hst í næstu 2 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 64 hst. UMFERÐ 9: Heklið 1 hst í hvern hst, EN aukið samtímis út um 2 hst jafnt yfir = 66 hst. STÆRÐ 7/8 ÁRA: UMFERÐ 8: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 6 hst, 2 hst í næstu 2 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 64 hst. UMFERÐ 9: Heklið 1 hst í hvern hst, EN aukið samtímis út um 4 hst jafnt yfir = 68 hst. STÆRÐ 9/10 ÁRA: UMFERÐ 8: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 6 hst, 2 hst í næsta *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 64 hst. UMFERÐ 9: Heklið 1 hst í hvern hst, EN aukið samtímis út um 6 hst jafnt yfir = 70 hst. Nú eru 56-58-62-64-66-68-70 hst í umf. Heklið síðan 1 hst í hvern hst í 2 umf til viðbótar, skiptið yfir í litinn ljós grár og heklið 1 umf til viðbótar. Skiptið síðan yfir í litinn hvítur og heklið síðan áfram alveg eins þar til stykkið mælist 16-16-17-18-19-20-20 cm. Setjið 2 prjónamerki í stykkið frá réttu. Fyrsta prjónamerkið er sett í 6.-7.-7.-8.-8.-7.-8. Hst frá byrjun á umf, annað prjónamerkið er sett í 37.-38.-42.-43.-45.-46.-47. Hst frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda. EYRNALEPPUR: Byrjið að hekla frá réttu við eitt af prjónamerkjunum. Notið heklunál nr 5 og litinn hvítur. UMFERÐ 1: Heklið 13-14-15-15-15-17-17 hst. Snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 2 ll, HEKLIÐ 2 HST SAMAN – sjá útskýringu að ofan, heklið hst fram þar til 2 hst eru eftir og heklið þá saman 11-12-13-13-13-15-15 hst. Snúið við. Endurtakið síðan umf 2, það verða 2 hst færri í hverri umf. Endurtakið þar til einungis 2 ll og 2 hst eru eftir. Heklið síðan 2 hst saman, klippið frá og festið enda. Heklið annan eyrnalepp alveg eins með byrjun frá hinu prjónamerkinu. KANTUR: Heklið kant í kringum húfuna með litnum hvítur. Notið heklunál nr 5 og byrjið fyrir miðju að aftan (byrjun á umf á húfu). Heklið 1 fl í hvern hst fram að eyrnalepp, heklið * 1 fl, 1 ll og hoppið fram ca 1 cm *, endurtakið frá *-* í kringum allan eyrnaleppinn. Heklið 1 fl í hvern hst fram að hinum eyrnaleppnum og heklið hinn eyrnaleppinn eins og sá fyrri. Endið á að hekla 1 fl í hvern hst í kant að aftan að byrjun umf og endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. DÚSKUR: Gerið einn dúsk með litnum ljós grár ca 4 cm að þvermáli. Saumið niður á topp á húfu. AUGU: Notið afgang af litnum svartur og heklunál nr 5. Heklið 3 ll, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið 2 ll, 8 hst um hringinn og endið á 1 kl í aðra ll í byrjun umf. Klippið frá, en skiljið eftir ca 10 cm langan enda sem nota á við frágang. Heklið annað auga á sama hátt. NEF: Notið afgang af litnum appelsínugulur og heklunál nr 5. Heklið 3 ll og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið 4 fl um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl umf hringinn = 8 fl. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl í næstu fl, 1 fl í hvora af næstu 2 fl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, 2 fl í næstu fl = 11 fl. UMFERÐ 5-6: Heklið 1 fl í hverja fl umf hringinn. Klippið frá, en skiljið eftir ca 20 cm langan enda sem nota á við frágang. FRÁGANGUR: Notið enda frá augum og nefi til að sauma niður með smáu spori fyrir miðju framan á húfu. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1196
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.