Carole Mayrand skrifaði:
Merci pour votre précision précédente. Dans le jersey en gris, il y a un motif en triangle blanc, où sont les explication ? Ensuite il y a un autre motif avant de faire A1. Où sont les explications?
03.08.2020 - 16:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Mayrand, le triangle blanc dans le gris correspond aux rangs 5 et 6 de A.1 - les diagrammes se lisent de bas en haut et de droite à gauche (voir aussi ici). Il n'y a aucun motif avant A.1, on tricote 3 cm de jersey en rouge, puis on tricote A.1, la bordure sera ensuite pliée le long du 2ème rant de A.1 et le rang de montage sera ensuite cousu à l'intérieur de la chaussette. Bon tricot!
04.08.2020 - 09:22
Carole Mayrand skrifaði:
DROPS design: Modèle n° ne-202 Le début des explications du patron ne correspondent pas avec ce que je vois sur l'image du bas de Noël. On dirait qu'il manque la partie rouge du début, puis le gris et blanc et enfin la section en rouge et blanc avant d'arriver à A1. Dans le patron on ne parle que de faire 3 cm en jersey! Puis-je avoir les corrections au patrons svp? Merci
02.08.2020 - 23:07
Carole Mayrand skrifaði:
DROPS design: Modèle n° ne-202 On dirait que les explications du début du patron ne correspondent pas à l'image affichée. On ne parle pas de la ligne rouge du haut. La section grise a un motif blanc mais aucune explication, et suit une section section blanc et rouge avant A!. Puis-je avoir les corrections du patron svp?
02.08.2020 - 23:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Mayrand, les mailles sont montées en rouge (mention ajoutée car elle manquait), vous tricotez ensuite 3 cm jersey puis le diagramme A.1 = vous retrouverez alors toutes les couleurs indiquées dans le diagramme= 1er rang en rouge, rang suivant en gris, etc... . Bon tricot!
03.08.2020 - 08:31
Louise skrifaði:
Hvorfor er monsteret opp ned ?
22.11.2019 - 14:14DROPS Design svaraði:
Hej Louise, fordi du starter øverst på skaftet og strikker nedad. Husk at diagrammerne strikkes fra nederste højre hjørne og opad. God fornøjelse!
04.12.2019 - 11:56
Linda Panighetti skrifaði:
Hi, on the first round of A.4, it shows the 1 yarn over symbol after last stitch. I still have 1 stitch left from the previous round. What do I do with it? Thank you for your help. Linda
12.09.2019 - 02:11DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Panighetti, you should have 60 sts on needle, and repeat A.4 a total of 4 times in the round, ie *work 15 sts, make 1 yarn over*, repeat from *-* a total of 4 times = there are now 64 sts on needle. Continue A.4 over 16 sts in each repeat until 15th row where you will K2 tog at the end of each repeat = 4 dec = 15 sts in each repeat and 60 sts on needle. Happy knitting!
12.09.2019 - 08:59
Nancy Livingstone skrifaði:
Why does it need 100 G red yarn, when its only for one sock. Thank you
28.06.2019 - 09:19DROPS Design svaraði:
Dear Nancy, probably because it is a christmas stocking and it is bigger than the average. It is possible, that you will only need a small amount from the plus one ball, but since different dyelots might be slightly different in color, it is always best to buy more yarn. If you have yarns left over most store would take back unopened, unused balls. Happy Knitting!
28.06.2019 - 10:27
Shelley Allen skrifaði:
New to knitting socks, I have mastered all 3 graphs and am now ready to start the heel. I don't understand what I am to do with last stitch remaining on row 1 of instructions for heel. Where is this stitch to be? Can you please explain? Thanks!
01.12.2018 - 17:39DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Allen, This video shows how to knit a diagonal heel, ie how to leave 1 st unworked at the end of each row then how to knit them back for 2nd part of heel. Happy knitting!
03.12.2018 - 08:40
Strikkeguri skrifaði:
Hei, denne ble større enn forventet😅 går det ann å tove Nepal?
14.11.2018 - 15:10DROPS Design svaraði:
Hei Strikkeguri. Ja, Nepal kan toves. Du kan lese mer om garnet (vaskeanvisning med mer) her. God fornøyelse.
15.11.2018 - 09:37
Melissa Emery skrifaði:
I can't seem to find directions for the grey cuff with eyelets. Is this in the pattern?
15.01.2018 - 03:15DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Emery, the grey cuff is worked when knitting diagram A.1. Happy knitting!
15.01.2018 - 10:19
Sweet Treasures |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónaður jólasokkur úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað með norrænu mynstri og dúskum. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1192 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HÆLL: Prjónið fram og til baka í sléttprjóni með litnum rauður UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 1 l er eftir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Takið fyrstu l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 1 l er eftir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Takið fyrstu l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Takið fyrstu l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 2 l eru eftir, snúið við. Haldið svona áfram þar til 15 l eru eftir mitt á prjóni. Haldið áfram fram og til baka, en nú er prjónuð 1 l fleiri í hverri umf yfir hæl. Til þess að sleppa við göt í skiptingunum er þræðinum lyft upp á undan l sem prjóna á og er sett snúin á prjóninn. Prjónið þráðinn með l. Prjónið svona þar til allar l hafa verið prjónaðar á hæl. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 1 l sl. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- JÓLASOKKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. JÓLASOKKUR: Fitjið upp 60 l á sokkaprjóna nr 5 með litnum rauður – skiptið l yfir á 4 sokkaprjóna (15 l á prjóni). Prjónið sléttprjón í 3 cm. Prjónið A.1 (= 10 l) alls 6 sinnum hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.2 (= 20 l) alls 3 sinnum hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.3 (= 15 l) alls 4 sinnum hringinn. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (stykkið mælist nú ca 30 cm) klippið frá. Prjónið nú hæl yfir l frá 1. og 4. st (= 30 l), hinar 30 l (= ofan á fæti) eru settar á þráð. Með byrjun frá réttu er prjónaður HÆLL – sjá útskýringu að ofan. Klippið frá, umf héðan byrjar mitt undir fæti, þ.e.a.s. í 15. l mitt undir fæti. Setjið síðan 30 l af þræði til baka á prjóninn og prjónið síðan hringinn yfir allar 60 l þannig: Prjónið A.4 (= 15 l) alls 4 sinnum hringinn. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.5 (= 4 l) alls 15 sinnum hringinn. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru eftir ca 4,5 cm að loka máli. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 30 l ofan á fæti og 30 l undir fæti. Prjónið nú sléttprjón með litnum rauður JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við hvort prjónamerki þannig: Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 2 sinnum og síðan í hverri umf alls 6 sinnum – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 28 l eftir á prjóni. Klippið frá og festið þráðinn. Leggið sokkinn saman tvöfaldan og saumið saman l á efri hluta á tá með l að neðan með lykkjuspori. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Uppfitjunarkanturinn er brotinn inn við fyrstu gataumferð, saumið niður með smáu spori að innanverðu án þess að stykkið herpist saman. SNÚRA MEÐ DÚSKUM: Klippið 2 þræði með litnum natur ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinnast aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Gerið 2 dúska ca 6 cm að þvermáli. Þræðið snúruna í gegnum gataumferð neðan við kant með uppábroti og saumið niður einn dúsk í hvorn enda á snúrunni. SNÚRA (LYKKJA): Klippið 2 þræði natur ca 70 cm. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinnast aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna í gegnum 2 göt fyrir miðju að aftan á sokknum og hnýtið saman að innanverðu, hengið jólasokkinn upp. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1192
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.