DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Brushed Alpaca Silk yarn
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 631.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2524.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS Extra 0-1177
DROPS Design: Mynstur nr as-043
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Mál: ca 60 cm mælt meðfram miðjulykkju og ca 120 cm mælt meðfram kanti efst.

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
100 gr litur nr 04, ljós beige

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l x 20 umf sléttprjón verði 10 x 10 cm.
HEKLUNÁL NR 4 – fyrir kögur.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 631.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2524.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar lykkjur.

SJAL:
Prjónað er frá miðju að aftan og niður í GARÐAPRJÓN og MYNSTUR - sjá útskýringu að ofan.
Fitjið upp 4 l á hringprjóna nr 5,5 með Brushed Alpaca Silk.
Prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 l í hverja l = 8 l.
UMFERÐ (= ranga): Prjónið slétt, JAFNFRAMT eru prjónaðar 2 l í fyrstu og síðustu l = 10 l.
UMFERÐ 3: 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 12 l.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt.
UMFERÐ 5: 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (= miðjulykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 16 l.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt. Setjið eitt prjónamerki á milli 2 miðjulykkja.
UMFERÐ 7: 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 þar til 2 miðjulykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (= miðjulykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.2 þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl = 20 l.
UMFERÐ 8: 1 l sl, prjónið A.2 fram að miðjulykkjum, 2 l sl (= miðjulykkjur), prjónið A.1 þar til 1 l er eftir, prjónið 1 l sl.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Endurtakið 7. og 8. umf 57 sinnum til viðbótar. (Útauknar lykkjur eru prjónaðar í A.1 og A.2 ) = 248 l alls og stykkið mælist ca 55 cm mælt meðfram miðjulykkjum.
Prjónið 8 umf garðaprjón yfir allar l (haldið áfram með 4 útaukningar í hverri umf frá réttu). Fellið af með 2 þráðum.

KÖGUR:
Klippið 8 þræði Brushed Alpaca Silk ca 25 cm, leggið þá saman tvöfalda. Notið heklunál og dragið miðju af þráðunum í gegnum eina l neðst á sjalinu. Dragið endana á kögrinu í gegn og herðið að. Festið kögur meðfram öllum neðri kanti á sjali, festið eitt kögur í 3. hverja l.

Mynstur

sl frá réttu, br frá röngu = sl frá réttu, br frá röngu
br frá réttu, sl frá röngu = br frá réttu, sl frá röngu
2 l slétt saman, sláið tvisvar uppá prjóninn, í næstu umf er annar uppslátturinn prjónaður, hinn er látinn falla niður (til að mynda stórt gat) = 2 l slétt saman, sláið tvisvar uppá prjóninn, í næstu umf er annar uppslátturinn prjónaður, hinn er látinn falla niður (til að mynda stórt gat)
sláið tvisvar uppá prjóninn, í næstu umf er annar uppslátturinn prjónaður, hinn er látinn falla niður (til að mynda stórt gat), takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = sláið tvisvar uppá prjóninn, í næstu umf er annar uppslátturinn prjónaður, hinn er látinn falla niður (til að mynda stórt gat), takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
Diagram for DROPS Extra 0-1177
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1177

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Carmen Gómez skrifaði:

Buenos días, quisiera saber si en la hilera 9 al final cuando se hace el último punto del A2 es un error porque me falta el último punto del derecho. Un saludo!

09.03.2019 - 11:33

DROPS Design svaraði:

Hola Carmen. El patrón es correcto. Se repiten las filas 7-8. Comprueba todas las lazadas de las filas anteriores

10.03.2019 - 20:32

country flag Siv skrifaði:

Hei. Jeg forstår ikke hvorfor hullene skal strikkes ulikt i a1 og a2. Det blir aldri like hull. Kan man ikke like gjerne strikke likt på begge sider av mm?

07.03.2019 - 20:04

DROPS Design svaraði:

Hei Siv. Det strikkes speilvendt på de 2 siden av midten, altså kast og felling skjer på motsatt side av hverandre på hver sin side av midten. Dette gjøres for at sjalet skal bli mest mulig symmetrisk. God fornøyelse

08.03.2019 - 14:53

country flag Nia skrifaði:

Er jeres model strikket i 2 tråde? Den ser meget mere tæt og fast ud end den jeg er igang med. Jeg strikker den oven i købet på p 5 og strikkefastheden passer?!

17.02.2019 - 15:23

DROPS Design svaraði:

Hei Nia. Denne er strikket med kun 1 tråd, hadde det vært strikket med 2 tråder hadde dette vært godt forklart. Strikkefastheten hadde også da blitt en helt annen. Så lenge din strikkefasthet stemmer overens med oppskiften vil sjalet ditt få de riktige målene. Brushed Alpaca Silk er et lett og hårete garn så det vil virke løsere enn garn som ikke er børstet. God fornøyelse

21.02.2019 - 08:35

country flag Crocus skrifaði:

Bjr si le rg7 correspond au début des diagrammes, il est entièrement à l'endroit et le 8 , à l'envers...si je les répète que devient le motif? je n'y comprends rien du tout !

10.01.2018 - 18:51

DROPS Design svaraði:

Bonjour Crocus, vous répétez les rangs 7 et 8 tout en suivant les diagrammes, au rang 7 vous tricotez le 1er rang de A.1/A.2 sur l'endroit (= à l'endroit), au rang 8, vous tricotez le 2ème rang de A.1/A.2 sur l'envers, puis en répétant le rang 7 encore une fois, vous tricotez le rang 3 des diagrammes (= point ajouré) et ainsi de suite. Autrement dit, vous augmentez comme au rang 7 tous les rangs sur l'endroit et tous les rangs sur l'envers se tricotent comme le rang 8, en même temps, vous suivez les 2 diagrammes. Bon tricot!

11.01.2018 - 08:49

country flag Janice Kern skrifaði:

I'm considering using Air yarn in black wanting to take advantage of sale. I love Air over alpaca silk but am having problems ordering yarn on your website. You're out of Air...pardon the pun...how long will it take to reorder? And can I order by phone?? Thanks!

08.11.2017 - 21:40

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Kern, due to an exceptionnally request, Air is currently out of stock in several DROPS Stores but will be back in stock week 49 - you can find here some DROPS stores shipping to USA that have still some Air in stock. Happy knitting!

09.11.2017 - 08:57

country flag Miriam skrifaði:

Hola, dónde puedo ver el significado de las abreviaturas del patrón? Gracias

15.10.2017 - 20:50

DROPS Design svaraði:

Hola Miriam. Dejo el link donde puedes consultar tus dudas: https://www.garnstudio.com/glossary.php?langf=es&langt=en

30.10.2017 - 08:36

country flag Haliziaza skrifaði:

Hola, En la traducción dice ; 4 surcos ...¿qué quiere decir eso" Aquí no usamos esa expresión , en España... no se a que se refiere. Gracias

05.04.2017 - 20:52

DROPS Design svaraði:

Hola Haliziaza. 4 surcos = 4 pliegues (1 pliegue = ida y vuelta trabajando de derecho).

09.04.2017 - 19:23

country flag Lola Gouffé skrifaði:

Bonjour, Je tente de suivre votre patron mais je bloque au rang 9. J'ai 20 mailles (car à la fin du rang 7 j'ai 20 mailles et je n'en ajoute pas pendant le rang 8). Or, si je suis le diagramme, je fais une maille end, un jeté, puis il me reste 8 mailles (et non 9) avant les mailles centrales - or le diagramme fonctionne sur des ensemble de 3 mailles... Où se cache mon erreur ? Cordialement, et merci encore pour le site

28.02.2017 - 23:34

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Gouffé, tricotez le diagramme en largeur en répétant le motif ajouré, et tricotez les mailles restantes du rang ajouré à l'endroit quand vous n'en avez pas suffisamment pour tricoter 1 motif ajouré. Bon tricot!

01.03.2017 - 08:51

Ana skrifaði:

En la hilera 8, cuando se inicia con los esquelas A2 y A!, ¿ se inicia desde la hilera 8 del esquema o desde la primera? Mil gracias por su atención!

06.02.2017 - 20:12

DROPS Design svaraði:

Hola Ana, el diagrama se empieza a trabajar en la fila 7 de la labor y empezamos desde la 1ª fila del diagrama

16.02.2017 - 11:19

country flag Mona skrifaði:

Tusen takk for en detaljert forklaring. Jeg tror jeg skal få til d nå. Hvis ikke så kommer jeg sikkert til å spørre igjen

17.10.2016 - 19:37

DROPS Design svaraði:

Hej Mona. Selv tak og det er i orden :)

18.10.2016 - 09:36