DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Lima yarn
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 539.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1078.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Extra 0-1133
DROPS Design: Mynstur nr li-058
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M
Höfuðmál: 57/59 cm.

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
100 gr litur nr 7810, mosagrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 539.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1078.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l br saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna/sokkaprjóna.

HÚFA:
Fitjið upp 131 l á hringprjóna nr 3,5 með Lima.
Prjónið stroff þannig: 2 l sl, * 3 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* 16 sinnum til viðbótar, A.1 (= 44 l). Haldið svona áfram þar til 10 umf hafa verið prjónaðar. Í næstu umf er lykkjum fækkað yfir fyrstu 87 lykkjur 1 lykkja brugðið í annarri hverri mynstureiningu með brugðið – LESIÐ ÚRTAKA, (= 9 l færri), haldið síðan áfram með umf 11 í A.1 = 118 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið nú 2 síðustu l í A.2, A.2 yfir næstu 76 l, haldið áfram með A.1. Haldið svona áfram og endurtakið A.X 3 sinnum á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Stykkið mælist ca 21 cm. Haldið nú áfram út umf í A.1 til loka, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað yfir 78 lykkjur í A.2 þannig:
ATH: Næsta umf er 2. umferð í mynstri A.2!
1. UMFERÐ: Nú er 2 l br fækkað til 1 l br (= 20 l færri) = alls 94 l (58 l + A.1).
2. UMFERÐ : Prjónið br yfir sl og sl yfir br.
3. UMFERÐ: Prjónið br yfir br og sl yfir sl.
4. UMFERÐ: Prjónið br yfir sl og sl yfir br.
5. UMFERÐ: Prjónið br yfir br og sl yfir sl.
6. UMFERÐ: Prjónið br yfir sl og sl yfir br.
7. UMFERÐ: Fækkið nú öllum 2 l br til 1 l br (= 19 l færri) = alls 71 l (39 l + meðtalið A.1).
8. – 13. UMFERÐ: Haldið áfram í sléttprjóni yfir 39 l (A.1 er prjónað eins og áður).
14. UMFERÐ: Prjónið sléttprjón og fækkið um 15 l jafnt yfir með því að prjóna 2 l slétt saman = alls 48 l (= 24 l + A.1).
15. – 17. UMFERÐ : Haldið áfram að prjóna sléttprjón yfir 24 l (A.1 er prjónað eins og áður).
18. UMFERÐ: Prjónið 2 og 2 l slétt saman = alls 22 l (12 l + A.1).
19. UMFERÐ: Prjónið sléttprjón, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.02.2016
Leiðrétting: Uppskrift hefur verið breytt eftir A.X í mynstri, á við um úrtöku

Mynstur

slétt = slétt
brugðið = brugðið
setjið 4 lykkjur á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af hjálparprjóni = setjið 4 lykkjur á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af hjálparprjóni
setjið 4 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af hjálparprjóni = setjið 4 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af hjálparprjóni
2 lykkjur brugðnar saman = 2 lykkjur brugðnar saman
takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir = takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
setjið 3 lykkjur á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
setjið 3 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
Diagram for DROPS Extra 0-1133
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1133

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (114)

country flag Valérie Dubuc skrifaði:

Bonjour, Je me demandais où sont les différentes explications pour faire une tuque small ou medium... Il semble n'y avoir qu'une grandeur dans les explications. Merci

21.01.2016 - 19:51

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Dubuc, effectivement, ce modèle n'est disponible qu'en une seule taille: S/M pour un tour de tête de 57/59 cm. Bon tricot!

22.01.2016 - 10:32

country flag Noelia skrifaði:

¿Qué se quiere decir con la siguiente indicación? "Continuar de esta manera y repetir A.X 3 veces verticalmente" Gracias de antemano.

15.01.2016 - 00:41

DROPS Design svaraði:

Hola Noelia, en el lado derecho del diagrama A.1 hay un grupo de filas que vamos a repetir y que hemos marcado como A.x, una vez que llegas a la última de estas filas debes volver a la primera y repetir este grupo 3 vcs "en vertical" o hacia arriba.

20.01.2016 - 12:37

Masome skrifaði:

Again thank you so much.I didn't pay attention to word round.after finishing I will send its picture to you.Thanks a lot.💗💗💗💗💗💗

14.01.2016 - 22:33

Masome skrifaði:

Sorry,as you know I'm beginner and have some questions that are joke for you!my question is about the back round.I should knit back round like what I see?thank you for answering my question.

13.01.2016 - 21:51

DROPS Design svaraði:

Dear Masome, hat is worked in the roud, so there is no back round (= no round worked from WS), work rib K over K and P over P and read diagram every round from the right towards the left (1 square in diagram = 1 st x 1 row) - read more here. Happy knitting!

14.01.2016 - 08:43

Masome skrifaði:

At first i wrote wrong:i 'm a foreign speaker not native.then thank you so much.😘😘😘💗💗💗💗💗

13.01.2016 - 17:57

Masome skrifaði:

Hello.i am native speaker of English. i do not know the first part of explanation.when we finish rib, what happens to st? they are 131, but you say about only 44 st.what about other st?what is the pattern? sorry for my poor English. thanks a lot!

13.01.2016 - 14:20

DROPS Design svaraði:

Dear Masome, you cast on 131 sts and work rib over the first 87 sts as follow: K2, *P3, K2* repeat a total of 17 times, (until 44 sts remain on round), and finish with the 44 sts in A.1. A.1 = diagram at the bottom of the page - read more about diagrams here. Happy knitting!

13.01.2016 - 17:08

country flag Tomas skrifaði:

2+(17x5)+44=131!

24.12.2015 - 20:16

country flag Paqui Carmona Martinez skrifaði:

Si el resorte es de 2d3r, como puede ser que sea 131 puntos? No es múltiplo de 5

24.12.2015 - 13:09

DROPS Design svaraði:

Hola Paqui. Después de montar 131 pt se trabaja como sigue: 2 d. + (*3 r., 2 d.*, repetir de * a * un total de 17 vcs [ en el patrón pone "repetir 16 vcs más"] =85 pts.) + 44 pts. (= A.1) = 2 d. + 85 pts. + 44 pts. = 131 pts.

25.12.2015 - 12:47

country flag Kerstin Vigård skrifaði:

131 maskor är det inte en maska för mycket eller för litet? Skall diagrammet A1 stickas en eller två gånger per varv och skall A2 vara emellan. Resåren hur många varv? Varv 1 är det första varvet på A1 ? Varv 7 var på diagrammet och det gäller också varv 13 och varv 17

09.12.2015 - 09:39

DROPS Design svaraði:

Du stickar som det står i mönstret, se här: 2rm, *3 am, 2 rm*, upprepa *-* 16 ggr till (= 5mx17=85m), A.1 (= 44m) = 2+85+44=131m i 10 varv! Nu minskar du 9 m i am och 4 m i A.1 enligt diagrammet. fortsätt enligt beskrivningen. Lycka till!

09.12.2015 - 13:56

Yael De-Mayo skrifaði:

Hello! I have the same issue as Elnaz, and also don't understand how you get to 95 stitches after you purl 2 together in every other purl section, I counted 10 decrease stitches and not 19, so it turns out to be 104 stitches. How should I continue? Thanks a head!

08.12.2015 - 17:26

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs De-Mayo, pattern has been edited after A.X so that dec are now correct. Thank you. Happy knitting!

18.02.2016 - 16:30