DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

The Rower

Prjónuð peysa fyrir herra með köðlum, laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.

DROPS 174-15
DROPS Design: Mynstur nr u-809
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
700-750-850-950-1000-1100 g litur nr 72, ljós perlugrár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.

ÚTAUKNING:
Prjónið þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn. Nýjar l eru prjónaðar jafnóðum inni í mynstur.

ÚRTAKA (á við um stroff):
Þegar l er fækkað í stroffi, fækkið l jafnt yfir með því að prjóna 2 l br saman yfir br mynstureiningu í stroffi.

ÚRTAKA 2 (á við um upphækkun):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið næstu 3 l slétt saman (= 2 l færri), prjónið næstu 2 l slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), prjónið næstu 3 l snúnar slétt saman (= 2 l færri). Endurtakið við hin prjónamerkin.

LASKALÍNA:
Fækkið l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, prjónið sl (prjónamerki er staðsett hér).
Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 l sl, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
ATH: Þegar l í sléttprjóni í mynstri A.2, A.3, A.4, A.5 og A.6 er fækkað (þ.e.a.s. það eru ekki nægilegar margar l fyrir kaðal), haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til fækkað hefur um allar l í mynstri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 268-280-292-316-340-376 l með Karisma á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff þannig: * A.2a (= 12 l), A.3a (= 15 l), A.4a (= 9 l), 1 l br, (3 l sl, 3 l br), endurtakið frá (-) alls 6-6-7-7-8-8 sinnum, 3 l sl, 1 l br, A.5a (= 9 l), A.3a, A.6a (= 12 l), (3 l sl, 3 l br), endurtakið frá (-) alls 3-4-4-6-7-10 sinnum, 3 l sl *, endurtakið *-* 1 sinni til viðbótar í umf. Endurtakið 2 fyrstu umf í mynstri og prjónið sl yfir sl og br yfir br yfir þær l sem eftir eru af stroffi þar til prjónaðar hafa verið alls 12 umf.
Prjónið nú þannig: * Prjónið umf 3 í mynstri yfir fyrstu 36 l, prjónið síðan stroff eins og áður yfir næstu 41-41-47-47-53-53 l JAFNFRAMT er fækkað um 11-7-9-9-11-11 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA 1, prjónið umf 3 yfir næstu 36 l, prjónið síðan stroff eins og áður yfir næstu 21-27-27-39-45-63 l JAFNFRAMT er fækkað um 7-9-5-5-7-9 l jafnt yfir *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umf = 220-236-252-276-292-324 l. Prjónið síðustu umf í mynstri A.2a til A.6a og prjónið sl yfir sl og br yfir br yfir þær l sem eftir eru í stroffi. Stroffið mælist ca 5 cm.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið nú mynstur þannig: * Prjónið A.2b (= 11 l), A.3b (= 13 l), A.4b (= 9 l), prjónið A.1 yfir næstu 28-32-36-36-40-40 l, prjónið 2 fyrstu l í A.1, A.5b (= 9 l), A.3b (= 13 l), A.6b (= 11 l), prjónið A.1 yfir næstu 12-16-20-32-36-52 l, prjónið 2 fyrstu l í A.1 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið áfram með mynstur hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 15-15-16-16-17-17 cm setjið 2 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir 103-109-115-121-127-135 l og 2. Prjónamerki 7-9-11-17-19-27 l á undan lok umf (= 110-118-126-138-146-162 l á milli á hvoru prjónamerki). Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 26-27-27-28-28-29 cm = 228-244-260-284-300-332 l. Þegar stykkið mælist 44-44-45-45-45-45 cm prjónið þannig: Prjónið þar til 5 l eru eftir á undan 1. prjónamerki, fellið af næstu 10 l fyrir handveg (= 5 l hvoru megin við prjónamerki), prjónið fram þar til 5 l eru eftir á undan 2. prjónamerki, fellið af næstu 10 l fyrir handveg (= 5 l hvoru megin við prjónamerki), prjónið þær l sem eftir eru í umf. Nú eru 104-112-120-132-140-156 l bæði á framstykki og á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMAR:
Ermarnar eru prjónaðar á sokkaprjóna/hringprjóna.
Fitjið upp 60-60-66-66-66-72 l með Karisma á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið stroff þannig: 3 l sl, (3 l br, 3 l sl) endurtakið frá (-) alls 3-3-4-4-4-5 sinnum, A.4a (= 9 l), 3 l sl, (3 l br, 3 l sl), endurtakið frá (-) alls 3 sinnum í öllum stærðum, A.5a (= 9 l). Haldið svona áfram og endurtakið 2 fyrstu umf í mynstri þar til prjónaðar hafa verið 12 umf. Prjónið nú næstu umf frá umf 3 í mynstri þannig: Prjónið stroff eins og áður yfir fyrstu 21-21-27-27-27-33 l JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-5-5-5-7 l jafnt yfir, haldið áfram yfir A.4a eins og áður, prjónið stroff eins og áður yfir næstu 21 l JAFNFRAMT er fækkað um 3 l jafnt yfir í öllum stærðum = 54-54-58-58-58-62 l. Prjónið síðustu umf í mynstri A.4a og A.5a og prjónið sl yfir sl og br yfir br yfir þær l sem eftir eru. Skiptið yfir á hringprjóna 4. Haldið nú áfram þannig: Prjónið sl yfir fyrstu 9-9-11-11-11-13 l, setjið eitt prjónamerki hér (= mitt undir ermi).
ATH: Gerið þetta til þess að færa byrjum á umferð. Umferðin byrjar nú hér! Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið síðustu 3-3-1-1-1-3 l í mynstri A.1, síðan er allt A.1 prjónað 1-1-2-2-2-2 sinnum á breiddina, prjónið fyrstu 2 l í A.1, A.4b, prjónið A.1 yfir næstu 18 l, A.5b, prjónið A.1, 2-2-2-2-2-3 sinnum á breidd og endið með fyrstu 1-1-3-3-3-1 l í A.1.
Haldið svona áfram með mynstur hringinn. Þegar stykkið mælist 7 cm í öllum stærðum byrjar útaukning undir ermum. Aukið svona út í 12.-9.-9.-7.-6.-6. hverri umf 11-5-5-17-15-15 sinnum og í 0-8.-8.-0-5.-5. hverri umf 0-10-10-0-4-4 sinnum (= alls 11-15-15-17-19-19 sinnum) = 76-84-88-92-96-100 l. Þegar stykkið mælist 54-53-52-51-49-48 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) fellið af 10 l mitt undir ermi (= 5 l hvoru megin við prjónamerki) = 66-74-78-82-86-90 l. Prjónið aðra ermi alveg á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón nr 4 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 340-372-396-428-452-492 l. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram með mynstur eins og áður, nema nú eru prjónaðar 4 l sl í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 2 l sl hvoru megin við prjónamerki). ATH: Byrjun umf er við prjónamerki í skiptingu á milli hægri ermi og bakstykkis! JAFNFRAMT í fyrstu umf byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
ATH: Fækkið l mismunandi á fram- og bakstykki og ermum!
LASKALÍNA FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fækkið l í annarri hverri umf 17-20-20-22-25-26 sinnum og í hverri umf 13-13-15-17-17-22 sinnum (= alls 30-33-35-39-42-48 sinnum).
LASKALÍNA ERMAR:
Fækkið l í 4. hverri umf 4-3-2-3-4-5 sinnum og í annarri hverri umf 16-21-24-25-26-27 sinnum (= alls 20-24-26-28-30-32 sinnum).

Þegar öll úrtaka fyrir laskalínu hefur verið gerð eru 140-144-152-160-164-172 l eftir.

Prjónið 1 umf með mynstri eins og áður, en endið þegar eftir eru 24 l í umf í öllum stærðum (= eftir 2 l á eftir prjónamerki á milli framstykkis og hægri ermi). Setjið eitt prjónamerki hér! Þetta er nú byrjun umf! Prjónið nú upphækkun fram og til baka í hnakka hér: ATH: Haldið nú áfram með mynstur eins og áður og fækkið nú um 2 l í hvorri hlið á prjónamerki í skiptingu á milli erma og bakstykkis (= 8 l minni í umf frá réttu) – LESIÐ ÚRTAKA 2! JAFNFRAMT er prjónað fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 92-94-98-102-104-108 l (meðtaldar 8 l sem fækkuðu).
UMFERÐ 2 (= ranga): snúið við og prjónið 81-83-87-91-93-97 l,
UMFERÐ 3: Snúið við og prjónið 78-80-84-88-90-94 l (meðtaldar 8 l sem fækkuðu).
UMFERÐ 4: Snúið við og prjónið 67-69-73-77-79-83 l.
UMFERÐ 5: Snúið við og prjónið 64-66-70-74-76-80 l (meðtaldar 8 l sem fækkuðu).
UMFERÐ 6: Snúið við og prjónið 53-55-59-63-65-69 l.
UMFERÐ 7: Snúið við og prjónið 50-52-56-60-62-66 l (meðtaldar 8 l sem fækkuðu).
UMFERÐ 8: Snúið við og prjónið til baka að prjónamerki (= byrjun umf).
Nú hefur fækkað um alls 32 l í upphækkun og nú eru 108-112-120-128-132-140 l í umf.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið nú 1 umf slétt þannig:
Prjónið yfir fyrstu 14 l og aukið út um 1 l (= ermi), prjónið næstu 4 l, prjónið síðan yfir næstu 24-26-30-34-36-40 l (= bakstykki) þar sem aukið er út um 3-1-3-5-3-5 l jafnt yfir, prjónið næstu 4 l, prjónið næstu 14 l og aukið út um 1 l (= ermi), prjónið næstu 4 l, prjónið næstu 40-42-46-50-52-56 l (= framstykki) þar sem fækkað er um 1-3-1-5-1-5 l jafnt yfir, prjónið næstu 4 l = 112-112-124-130-136-142 l.
Prjónið nú stroff þannig: 3 l br, 3 l sl, 3 l br, 3 l sl, 3 l br, 4 l sl (3 l sl, 3 l sl), endurtakið frá (-) alls 4-4-5-6-6-7 sinnum, 3 l br, 4 l sl, 3 l br, 3 l sl, 3 l br, 3 l sl, 3 l br, 4 l sl (3 l br, 3 l sl), endurtakið frá (-) 6-6-7-7-8-8 sinnum, 3 l br, 4 l sl. Haldið áfram hringinn með sl yfir sl og br yfir br þar til stroffið mælist 7 cm. Fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.
Brjótið stroffið efst í hálsmáli niður að innanverðu á stykkinu. Saumið stroffið niður þannig að það verði tvöfalt, en passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.01.2017
ERMI:..= 54-54-58-58-58-62 l. Prjónið síðustu umf í mynstri A.4a og A.5a og prjónið sl yfir sl og br yfir br yfir þær l sem eftir eru. Skiptið yfir á hringprjóna 4. Haldið nú áfram þannig: Prjónið sl yfir fyrstu 9-9-11-11-11-13 l, setjið eitt prjónamerki hér (= mitt undir ermi). ATH: Þetta er núna byrjun á umf!
Yfirfarið á vefsvæði: 16.10.2017
ERMI:..Haldið nú áfram þannig: Prjónið sl yfir fyrstu 9-9-11-11-11-13 l, setjið eitt prjónamerki hér (= mitt undir ermi). ATH: Gerið þetta til þess að færa byrjum á umferð. Umferðin byrjar nú hér! Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið síðustu 3-3-1-1-1-3 l í mynstri A.1, síðan er allt A.1 prjónað 1-1-2-2-2-2 sinnum á breiddina, prjónið fyrstu 2 l í A.1, A.4b, prjónið A.1 yfir næstu 18 l, A.5b, prjónið A.1, 2-2-2-2-2-3 sinnum á breiddina og endið með fyrstu 1-1-3-3-3-1 l í A.1.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, svo að ekki myndist gat.
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = 3 lykkjur brugðið saman
symbols = engin lykkja
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

The Rower

Joej5, France

174-15 The Rower

Sanna, Sweden

Kabeltrui

Marjan, Netherlands

Chris's 1st sweater

Ashley, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 174-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (180)

country flag Connie Bach wrote:

Ærmer : rib 3ret, 3 vrang, 3 ret 4 gange A4a (9m) 3ret, 3 vrang, 3 ret ????? I diagrammet er det : 3 vrang, 4 ret, 2 vrang Osv. mht. diagram A5a og A 6a Sådan startede jeg da også på trøjen Er der fejl i opskriften ?

22.02.2024 - 11:47

DROPS Design answered:

Hej Connie, stemmer det med antal masker? Hvilken størrelse strikker du og hvor mange masker har du?

23.02.2024 - 13:23

country flag Silvia wrote:

Hello there, Unfortunately I have not received an answer to my query of over 2 weeks ago - The 2 stitches on both sides of the sweater taken from pattern A1 don't appear to be symmetrical to each other: they are at the end of the 1st half, after the 16 stitches of A1 (size M), then again at the end of these 16 stitches. Am I doing something wrong? Should they not be mirror-like if you look at the sweater as a finished garment? on the sides? thank you for your help, Silvia

17.02.2024 - 09:17

DROPS Design answered:

Dear Silvia, in size S you have to work first 28 sts in A.1 + the first 2 sts in A.1, so that the pattern will be symmetrical, then you work 12 sts (in S, 16 in M) in A.1 and work the first 2 sts in A.1 so that pattern will be symmetrical, in other words, when you work A.1 you start and end the pattern the same way so that the double moss stitch will be symmetrical. Happy knitting!

19.02.2024 - 08:47

country flag Fausto wrote:

Salve, ho montato 292 maglie con i ferri 3,5 per fare la taglia L, che ho sempre usato e che di solito va benissimo. Ma così il bordo di sotto esce enorme (dovrebbe uscire 53 cm secondo lo schema). Ho visto che altri modelli con lo stesso filato e numero di ferri montano un numero di maglie molto inferiore per lo stesso risultato. (Esempio "Aure" monta 254 maglie, cioè 38 di meno, su ferri sempre 3,5 per un risultato di 52 cm al bordo inferiore) Come è possibile?

14.02.2024 - 15:29

DROPS Design answered:

Buongiorno Fausto, non sono riportati errori nel numero di maglie da montare. Buon lavoro!

25.02.2024 - 16:29

country flag Connie Bach wrote:

Ryg & forstk.. : gentag de 2 første omg i diag og strik ret over ret etc HVILKE 2 omg er der tale om og hvilke diagrammer ?

08.02.2024 - 12:37

DROPS Design answered:

Hei Connie. Det gjelder de diagrammene du strikket på forrige omgang (altså A.2a, A.3b, A.4a, A.5a, A.3.a og A.6a) og du skal kun strikke 1.rekke og 2.rekke i disse diagrammene til det er strikket totalt 12 omg (= 1.rekke + 2.rekke + 1.rekke + 2.rekke + 1.rekke + 2.rekke + 1.rekke + 2.rekke + 1.rekke + 2.rekke + 1.rekke + 2.rekke = 12. omganger). mvh DROPS Design

16.02.2024 - 11:13

country flag Eljen wrote:

Ik heb vanaf dat de mouw bij het lijf gevoegd wordt het breiwerk al 2 x helemaal uitgehaald . De minderingen zijn mij onduidelijk: Ik heb maat s , op de mouw 4x elke 4 nld, en 16x om de naald 3 steken geminderd maar nu houd ik te weinig steken over. .. Op de foto zie ik dat de er bij de mouw nog steken over moeten blijven na het minderen. Wat gaat er dan toch fout?

11.01.2024 - 11:19

DROPS Design answered:

Dag Eljen,

Je mindert 20 keer in totaal voor de mouw, dus 40 steken in totaal (omdat je aan beide kanten mindert. Je zou dan 66-40 = 26 steken over moeten hebben op de mouw.

11.01.2024 - 18:51

country flag Liesbeth wrote:

Ben er inmiddels uit.......

17.12.2023 - 12:40

DROPS Design answered:

Dag Liesbeth,

Dankjewel voor de terugkoppeling en veel breiplezier!

17.12.2023 - 17:18

country flag Liesbeth wrote:

Ik loop vast bij het begin van de mouw: (Maat medium). Na t boord heb ik de eerste naald gebreid met naald 4. Nu eindig ik met deze naald met de marker (die is verplaatst )tussen twee averechte steken. Bij de volgende naald brei je in patroon....Maar waar begin je dan met naald 3 van A1?. Als ik 2 naalden heb gebreid dan eindig je dus weer tussen 2 averechte steken. Waar begint dan de derde naald van A1?. Klopt het dat je aan 1 kant van 4B en 5B dan om de 2 naalden 5 averechte steken krijgt?

17.12.2023 - 12:03

country flag Liesbeth wrote:

Heb het niet goed uitgelegd wat ik bedoel. je meerdert van 54 naar 84 steken dus in totaal 15 keer ( = 30 steken) Zoals in de beschrijving staat zou je 16 keer moeten meerderen.........

15.12.2023 - 15:03

DROPS Design answered:

Dag Liesbeth,

Je hebt gelijk, het woordje 'nog' hoort er niet tussen te staan, ik zal het weg halen.

15.12.2023 - 19:37

country flag Liesbeth wrote:

Bij de meerderingen in de mouw voor maat medium staat dat er in totaal 20 steken worden gemeerderd. ( 54-74) . Er staat dat de 1ste meerdering na 7 cm is en dan NOG eerst 5 en dan 10 dus in totaal nog 16 ! keer.. Dan kom je niet uit op 20 steken gemeerderd maar op 21! Moet er niet staan : na 7 cm Meerder zo elke 9 de naald IN TOTAAL 5 maal enz ? niet NOG ?

15.12.2023 - 13:36

country flag Liesberth wrote:

Ben begonnen met naald 4 dus net na het boord in maat medium. Na de 32 en 16 steken in A1 staat : brei de eerste 2 steken in A1. Betekent dit dat dus telkens 2 averechte steken worden gebreid of om de 2 naalden averecht/recht .

07.12.2023 - 21:32

DROPS Design answered:

Dag Liesberth,

Nee je breit dan steeds de eerste 2 steken van A.1. Dat is dus afwisselend 2 naalden 2 averechte steken en 2 naalden 2 rechte steken.

10.12.2023 - 16:34