Bham skrifaði:
Love this and no it is not racist. It celebratory. It is not making fun of anyone. Ever watched Pochahantus from Disney? Quit looking for victimhood. Celebrate.
08.09.2019 - 07:13
Line skrifaði:
Jeg har brugt opskriften til inspiration til en voksen, og ville da gerne vise et billede. Jeg mener ikke det er racisme eller hvad vi nu skal sættes i af bokse. Det er en nysgerrighed og betagelse af andre kulturer. Det er muligt vi kun trækker meget lidt frem, men det er på ingen måde for at gøre grin med disse spændende gamle folkeslag.
15.02.2019 - 13:17Jadeitea skrifaði:
I agree with Jenny's comment, this is the very definition of cultural appropriation. I understand that we in Europe might not have the sensitivity to racism directed at Native Americans, but it's hardly an excuse.
24.10.2018 - 14:40
Jenny skrifaði:
This is cultural appropriation. A kind of racism.
24.01.2016 - 11:25
Alexandra skrifaði:
Hey, that looks so cool! Could you upload this pattern for grown ups aswell?
30.01.2015 - 14:38DROPS Design svaraði:
Dear Alexandra. Sorry, we don't have that for adults. But maybe you could adapt to a bigger size?
02.02.2015 - 16:58
Little Alawa |
|
![]() |
![]() |
Hekluð Pocahontas húfa fyrir börn úr DROPS Snow. Stykkið er heklað með fléttum og fjöðrum. Stærð 1 - 10 ára.
DROPS Extra 0-1074 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsti hst í umf er skipt út fyrir 2 ll. Hver umf endar á 1 kl í 2. ll í byrjun umf. LITASKIPTI: Til þess að fá falleg litaskipti er síðasta kl í umf hekluð með lit frá næstu umf. HEKLIÐ 3 HST SAMAN: Bregðið þræðinum um heklunálina, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, * bregðið þræðinum um heklunálina, stingið heklunálinni í sömu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni. LEIÐBEININGAR: Ef óskað er eftir að hafa fjaðrirnar aðeins stífari t.d, með vír þá er ekki mælt með að nota húfuna í leik. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. HÚFA: Heklið 4 ll með heklunál nr 6 með litnum svartur og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 1: Heklið 8 hst um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 hst í hvern hst umf hringinn = 16 hst. UMFERÐ 3: Heklið 1 hst í fyrsta hst, * 2 hst í næsta hst, 1 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 2 hst í síðasta hst = 24 hst. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 4: Heklið 1 hst í hvorn af fyrstu 2 hst, * 2 hst í næsta hst, 1 hst í hvorn af næstu 2 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 2 hst í síðasta hst = 32 hst. UMFERÐ 5: Heklið 1 hst í hvern af fyrstu 3 hst, * 2 hst í næsta hst, 1 hst í hvern af næstu 3 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 2 hst í síðasta hst = 40 hst. UMFERÐ 6: Heklið 1 hst í hvern af fyrstu 4 hst, * 2 hst í næsta hst, 1 hst í hvern af næstu 4 hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 2 hst í síðasta hst = 48 hst. UMFERÐ 7: Heklið 1 hst í hvern hst – JAFNFRAMT er aukið út um 0-2-4-4-6 hst jafnt yfir = 48-50-52-52-54 hst. UMFERÐ 8: Heklið 1 hst í hvern hst umf hringinn. Endurtakið 8. umf 2-3-4-4-6 sinnum til viðbótar = 10-11-12-12-13 umf. Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 hst í hvern hst – JAFNFRAMT er aukið út um 4 hst jafnt yfir og skiptið yfir í litinn bleikur fyrir næstu umf – LESIÐ LITASKIPTI = 52-54-56-56-58 hst. Heklið nú mynstur þannig: UMFERÐ 1: MUNIÐ EFTIR HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 hst aftan í lykkjubogann í hvern hst umf hringinn með litnum bleikur, skiptið yfir í litinn lime. UMFERÐ 2: Heklið 1 hst aftan í lykkjubogann í fyrsta hst, 1 ll, 3 HST SAMAN – sjá útskýringu að ofan – í aftari lykkjubogann á næsta hst, 2 ll, hoppið yfir 1 hst, * 3 hst saman í aftari lykkjubogann á næsta hst, 2 ll, hoppið yfir 1 hst *, endurtakið frá *-* þar til 1 hst er eftir í fyrri umf, heklið 3 hst saman í aftari lykkjubogann á síðasta hst, skiptið yfir í litinn millifjólublár = 26-27-28-28-29 hst-hópar. UMFERÐ 3: Heklið 1 hst í fyrsta hst, 1 hst í næsta hst, * 1 hst um næsta ll-boga, 1 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn, skiptið yfir í bleikt = 52-54-56-56-58 hst. UMFERÐ 4: Heklið 1 hst aftan í lykkjubogann í hvern hst umf hringinn með litnum bleikur, skiptið yfir í litinn svartur. UMFERÐ 5: Heklið 1 hst aftan í lykkjubogann í hvern hst umf hringinn. UMFERÐ 6: Heklið 1 hst í hvern hst umf hringinn. Klippið frá og festið enda. Húfan mælist ca 18-19-20-20-22 cm frá toppi. FJAÐRIR: Heklið fram og til baka með heklunál nr 6 með litnum bleikur. UMFERÐ 1: Heklið 5 ll (= 1 ll + 1 hst + 2 ll), 1 hst í fyrstu ll sem hekluð var. Snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 2 ll (= 1 hst), um ll-boga er heklað 1 hst + 2 ll + 1 hst, heklið 1 hst í síðasta hst (þ.e.a.s. í 3. ll frá byrjun fyrri umf). Snúið við. Endurtakið 2. umf 5 sinnum til viðbótar. UMFERÐ 8: Heklið 2 ll (= 1 hst), um ll-boga er heklaður 1 st + 1 tbst + 1 ll + 1 tbst + 1 st, 1 hst í síðasta hst (þ.e.a.s. í 2. ll frá byrjun fyrri umf). Klippið frá og festið enda. Heklið fjöður með litnum millifjólublár á sama hátt, nema 2. umf er hekluð alls 8 sinnum. BAND: Heklið fram og til baka með heklunál nr 6 með litnum lime. UMFERÐ 1: Heklið 6 ll (= 1 hst + 4 ll), heklið 1 hst í 3. ll frá heklunálinni, 2 ll, hoppið yfir 1 ll, 1 hst í hvora af síðustu 2 ll. Snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 2 ll (= 1 hst), um ll-boga er heklað 1 hst + 2 ll + 1 hst, 1 hst í síðasta hst (þ.e.a.s. í 2. ll frá byrjun fyrri umf). Snúið við. Endurtakið 2. umf 3 sinnum til viðbótar. UMFERÐ 6: Heklið 2 ll (= 1 hst), um ll-boga er heklað 1 hst + 1 ll + 1 hst, 1 hst í síðasta hst (þ.e.a.s. í 2. ll frá byrjun fyrri umf). Klippið frá og festið enda. Heklið annað band á sama hátt. BLÓM: Heklið 4 ll með heklunál nr 6 með litnum lime og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 2 ll (= 1 hst), 9 hst um hringinn, skiptið yfir í litinn millifjólublár. UMFERÐ 2: Heklið 3 ll, 2 st í fyrsta hst, 3 ll, 1 kl í næsta hst, * 3 ll, 2 st í næsta st, 3 ll, 1 kl í næsta hst *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 3 ll, 2 st í næsta st, 3 ll, 1 kl í 1. ll frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda. FLÉTTA: Klippið 21 þráð með litnum svartur ca 100 cm langa. Leggið þá saman tvöfalda og hnýtið hnút við brotið. Deilið þráðunum í 3 jafna hluta og gerið fléttu. Hnýtið bandið utan um endann á fléttunni ca 10 cm frá enda. Gerið aðra fléttu á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið flétturnar að innanverðu á húfuna í hvorri hlið, við enni með ca 16-17-17-18-18 cm millibili. Saumið saman bandið í hring utan um hvora fléttu þar sem bandið er hnýtt utan um fléttuna. Leggið millifjólubláu fjöðrina fyrir aftan bleiku fjöðrina við kantinn á efstu bleiku umf á húfunni og hnýtið fast – ATH: Saumið niður ca 3/4 á hvorri fjöður við húfuna þannig að einungis efsti hluti á hvorri fjöður sem er laus. Fjaðrirnar eru saumaðar í hægri hlið á húfunni – sjá mynd. Saumið blómið í gegnum öll stykkin. Þræðið 2 teygjur á röngu í húfuna til þess að halda henni á réttum stað þannig: Notið stoppunál og þræðið inn í stykkið. Þræðið 2 teygjur teygjur með stoppunál á röngunni til þess að halda henni á réttum stað þannig: Þræðið 1 teygju yfir efstu bleiku umf og 1 stroff í affellingarkanti. Hnýtið hnút til að halda teygjunni í réttri lengd. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1074
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.