Dinie Bouman skrifaði:
Bij het patroon staat dat zowel de linker als de rechtermouw van onder naar boven wordt gebreid, echter er zit verschil in de steek verhouding, bij de een begin je met 66 steken en bij de ander begin je met 46 steken, in het engels staat wel dat de een van onder naar boven en de ander van boven naar beneden wordt gebreid.
28.11.2016 - 15:56DROPS Design svaraði:
Hoi Dinie. Ik heb vergeleken met het originele Noorse patroon en je hebt gelijk. Het was een foutje in de vertaling en ik heb het aangepast. Bedankt voor het melden.
28.11.2016 - 16:46
Kamilla skrifaði:
Kan denne strikkes i Air, og hvordan regner jeg garnforbruget ud, hvis den kan? Tak for hjælpen - Kamilla
30.11.2015 - 22:14DROPS Design svaraði:
Hej Kamilla, Ja du kan strikke den i Air (samme strikkefasthed) se her hvordan du gør: Se nederste eksempel!
01.12.2015 - 10:25
Nita Sands skrifaði:
This is lovely. the yarn makes it super lovely. can I ask about 156-17 yesterday cardigan. I got the pattern but its no longer up. wanted to get yarn and start but is my pattern correct? thanx nita
25.07.2014 - 19:24DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Sands,you will find "Yesterday Cardigan" here in UK-English - and here UK/US terminology. Happy crocheting!
26.07.2014 - 09:46Hélène Morin skrifaði:
J'adore ce modèle tel qu'il est. L'ouverture au dos lui donne tout son charme.
07.07.2014 - 18:48
Nancy Hurley skrifaði:
I really like the design and pattern of this sweater. However, I don't like the keyhole neckline in the back.
19.06.2014 - 03:16
Berit Lauritzen skrifaði:
Rigtig sød model. Forslag: lukket ryg og raglanærmer, så fortsætter de skrå linier der...
11.06.2014 - 12:46
Kitty67 skrifaði:
Idee gefällt. Aber warum steht der untere Saum/Rand so ab? Liegt das am Material?
08.06.2014 - 17:11C Darmanin skrifaði:
I like it with the slit at the back-it's what makes it extra special. You could just wear a turtleneck or something underneath if it's cold!
06.06.2014 - 19:49C Darmanin skrifaði:
Simple yet effective design. Hope to have the pattern so can knit it.
06.06.2014 - 19:47
Sonata#sonatasweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk í garðaprjóni og mynsturáferð. Stærð S - XXXL.
DROPS 156-20 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mysnturteikningu A.1-A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning A.1 færist til um 1 l að vinstri hlið á stykki (séð frá réttu) í hverri umf alveg út að 1 kantlykkju í vinstri hlið á stykki. Mynsturteikning A.2 færist til um 1 l að hægri hlið á stykki (séð frá réttu) í hverri umf alveg út að 1 kantlykkju í hægri hlið á stykki. MYNSTUR-1: UMFERÐ 1: Br frá röngu UMFERÐ 2: Sl frá réttu UMFERÐ 3: Br frá röngu UMFERÐ 4: Sl frá réttu UMFERÐ 5: Sl frá röngu UMFERÐ 6: Sl frá réttu Endurtakið umf 1-6. ÚRTAKA (á við um hægri ermi): Fækkið lykkjum frá réttu um 1 l innan við 1 kantlykkju. Á eftir 1 kantlykkju: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Á undan 1 kantlykkju: 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 88-94-100-110-120-130 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 7 l) 12-13-14-15-16-18 sinnum á breiddina, 2-1-0-3-6-2 l sléttprjón, endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni til loka. Haldið áfram tilfærslunni og endurtakið A.1 á hæðina þar til stykkið mælist 6 cm, passið uppá að næsta umf er sé röngu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram með tilfærsluna, en nú er MYNSTUR-1 prjónað – sjá útskýringu að ofan – yfir l í hægri hlið við br lykkjuna. Það verður 1 l fleiri í mynstur-1 í hverri umf í hægri hlið. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar síðasta A.1 hefur verið fært út að 1 kantlykkju í vinstri hlið á stykki er prjónað mynstur-1 yfir allar l til loka. Þegar stykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki í byrjun á 2 næstu umf = 86-92-98-108-118-128 l. Þegar stykkið mælist 50-52-54-57-59-62 cm eru 16 miðju l settar á þráð fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (35-38-41-46-51-56 l eftir á hvorri öxl). Fellið nú af í byrjun á hverri umf frá hálsmáli: 2 l 2 sinnum, 1 l 2-2-2-3-3-3 sinnum = 29-32-35-39-44-49 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 58-60-63-66-69-72 cm. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki nema spegilmynd, þ.e.a.s. prjónið A.2 í stað A.1. Þegar stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm eru prjónaðar 4 umf garðaprjón yfir miðju 12 l (37-40-43-48-53-58 l í hvorri hlið). Fellið nú af miðju 6 l garðaprjón fyrir op / klauf á miðju baki (= 3 l garðaprjón í hvorri hlið) og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 40-43-46-51-56-61 l eftir á hvorri öxl. Haldið áfram með 3 l garðaprjón og mynstur-1 yfir þær l sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 54-56-59-62-65-68 cm eru felldar af 10-10-10-11-11-11 l í næstu umf frá hálsi. Síðan er felld af 1 l í byrjun á umf frá hálsmáli = 29-32-35-39-44-49 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælst 58-60-63-66-69-72 cm. HÆGRI ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka ofan frá og niður á hringprjóna. Fitjið upp 62-62-66-70-74-78 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 8-8-9-9-10-10 sinnum á breiddina, 4-4-1-5-2-6 l sléttprjón, endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Kantlykkja er prjónuð í garðaprjóni til loka. Haldið áfram með tilfærslu og endurtakið A.1 þar til stykkið mælist 6 cm, stillið af að næsta umf er frá röngu. Haldið nú áfram með tilfærslu á mynstureiningu A.1 eins og þegar hefur verið byrjað á, en mynstur-1 er prjónað yfir l í hægri hlið við br lykkjuna. Það verður 1 l fleiri í mynstur-1 í hverri umf í hægri hlið JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin á stykki innan við 1 kantlykkju – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 4½-4½-4-3-2½-2 cm millibili 8-8-9-11-12-14 sinnum til viðbótar (alls 9-9-10-12-13-15 sinnum) = 44-44-46-46-48-48 l. Þegar síðasta A.1 hefur verið fært út að 1 kantlykkju í vinstri hlið á stykki er prjónað mynstur-1 yfir allar l. Þegar stykkið mælist ca 47-46-45-44-42-40 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), stillið af að síðasta umf sé 4. umf í mynstur-1, skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið 6 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. VINSTRI ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna neðan frá og upp. Fitjið upp 44-44-46-46-48-48 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 6 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 6 sinnum á breiddina, 0-0-2-2-4-4 l sléttprjón, endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Kantlykkja er prjónuð til loka í garðaprjóni. Haldið áfram tilfærslu og endurtakið A.1 á hæðina þar til stykkið mælist 8 cm, passið uppá að næsta umf sé frá röngu. Haldið nú áfram með tilfærslu við br lykkju við mynstureiningu A.1 sem þegar hefur verið byrjað á, en nú er mynstur-1 prjónað yfir l hægra megin við br lykkju. Það verður 1 l fleiri í mynstur-1 í hverri umf í hægri hlið. Þegar síðasta A.1 hefur verið fært til að 1 kantlykkju í vinstri hlið á stykki er prjónað mynstur-1 yfir allar l til loka JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-5-8-5-5-4 cm er aukið út um 1 l hvoru megin á stykki innan við 1 kantlykkju. Endurtakið útaukningu í hvorri hlið á stykki með 4½-4½-4-3-2½-2 cm millibili 8-8-9-11-12-14 sinnum til viðbótar (alls 9-9-10-12-13-15 sinnum) = 62-62-66-70-74-78 l. Fellið af þegar stykkið mælist 49-48-47-46-44-42 cm, passið að síðasta umf sé 5. umf í mynstur-1. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Deilið silkiborðanum í tvent, brjótið uppá kantinn og saumið niður efst við opið, hnýtið slaufu. KANTUR VIÐ HÁLSMÁL: Stykkið er prjónað fram og til baka. Prjónið upp ca 66-76 l (meðtaldar lykkjur af þræði) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 6 umf garðaprjón. Fellið af. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sonatasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.