DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Snow Princess

Prjónuð peysa úr DROPS Nepal með laskalínu, hettu og bambusmynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL

DROPS 156-1
DROPS Design: Mynstur nr ne-158
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
1100-1200-1350-1450-1600-1750 gr litur nr 0100, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm, eða 20 l með bambusmynstri verði 10 cm á breiddina.
DROPS TRÉTALA DUFFEL, NR 520: 4 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

BAMBUSMYNSTUR (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1 (= rétta): * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, takið uppsláttinn og lyftið yfir 2 l sl *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br.
Endurtakið umf 1-2.

BAMBUSMYNSTUR (prjónað í hring á sokkaprjóna):
UMFERÐ 1: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, takið uppsláttinn og lyftið yfir 2 l sl *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt.
Endurtakið umf 1-2.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á unda prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

LASKALÍNA:
Aukið út við hvert prjónamerki þannig:
Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 l fleiri. Endurtakið eins við hin prjónamerkin í stykkinu = 8 l fleiri í umf.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka ofan frá og niður á hringprjóna/sokkaprjóna.

HETTA:
Fitjið upp 116 í allar stærðir ( meðtaldar 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 2 umf garðaprjón. Prjónið síðan BAMBUSMYNSTUR fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, með 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið (2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið halda áfram til loka). ATHUGIÐ PRJÓNFESTU! Þegar stykkið mælist 38 cm er prjónað frá réttu þannig: Mynstur eins og áður yfir fyrstu 30-32-36-40-44-48 l, garðaprjón yfir næstu 56-52-44-36-28-20 l JAFNFRAMT er fækkað um 12-11-10-6-4-0 l jafnt yfir, mynstur yfir l sem eftir eru 30-32-36-40-44-48 l = 104-105-106-110-112-116 l. Haldið síðan áfram fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 6 umf garðaprjón yfir miðju l, JAFNFRAMT í 2. umf frá réttu er aukið út um 4-8-14-19-25-32 l jafnt yfir l í garðaprjóni og 3. umf frá réttu aukið út 4-7-13-18-25-31 l jafnt yfir l í garðaprjóni = 112-120-133-147-162-179 l. Prjónið nú upphækkun í garðaprjóni í hnakka frá réttu: Prjónið þar til eftir eru 30-32-36-40-44-48 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 30-32-36-40-44-48 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 40-42-46-50-55-58 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 40-42-46-50-55-58 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 50-52-56-60-65-68 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 50-52-56-60-65-68 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 55-57-61-65-70-73 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 55-57-61-65-70-73 l, snúið við og prjónið út umf (mynstur yfir síðustu 30-32-36-40-44-48 l).

BERUSTYKKI:
Prjónið nú mynstur eins og áður yfir fyrstu 30-32-36-40-44-48 l, 1 l sléttprjón, setjið 1. prjónamerki hér, sléttprjón yfir næstu 15 l, setjið 2. prjónamerki hér, sléttprjón yfir næstu 20-24-29-35-42-51 l, setjið 3. prjónamerki hér, sléttprjón yfir næstu 15 l, setjið 4. prjónamerki hér, 1 l sléttprjón, mynstur eins og áður yfir næstu 30-32-36-40-44-48 l. Nú byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Endurtaki útaukningu í hverri umf 1-1-4-6-8-10 sinnum (þ.e.a.s. frá réttu og röngu) og í hverri umf frá réttu 21-22-20-19-18-17 sinnum = 288-304-325-347-370-395 l. ATH: Nýjar útauknar lykkjur á bakstykki og ermum eru prjónaðar í sléttprjóni og fyrstu 8 nýju útauknar lykkjur á framstykki eru prjónaðar með bambusmynstri (þ.e.a.s. það verður að auka út um 2 l áður en nægilega margar l eru til að prjóna bambusmynstur), prjónið síðan þær útauknar lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni. Stykkið mælist nú 20-21-22-23-24-25 cm (mælt frá 1. umf á eftir kanti að aftan í garðaprjóni). Nú er næsta umf prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 52-55-60-65-70-75 l, setjið næstu 61-63-65-67-69-71 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10 nýjar l undir ermi (setjið prjónamerki mitt á milli nýju l), prjónið næstu 62-68-75-83-92-103 l, setjið næstu 61-63-65-67-69-71 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10 nýjar l undir ermi (setjið prjónamerki mitt á milli nýju l), prjónið næstu 52-55-60-65-70-75 l. Nú eru 186-198-215-233-252-273 l fyrir fram- og bakstykki. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Haldið síðan áfram fram og til baka með mynstur eins og áður. Nýju l undir ermum eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki undir ermum er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið fram að 1 l á undan fyrra prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón, sláið uppá, endurtakið við seinna prjónamerki = 190-202-219-237-256-277 l. Endurtakið útaukningu með 3½-3½-3½-4-4½-6 cm millibili 11-12-12-12-11-8 sinnum til viðbótar = 234-250-267-285-300-309 l. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-55 cm frá prjónamerki undir ermum eru prjónaðar 6 umf garðaprjón. Fellið laust af.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 5. Prjónið 1 umf frá réttu og fitjið upp 10 nýjar l undir ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýju l) = 71-73-75-77-79-81 l. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Þegar stykkið mælist 4 cm byrjar úrtaka hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 3½-3½-3½-4-4½-6 cm millibili þar til = 45-45-47-47-49-49 l eru á prjóni. Þegar stykkið mælist 32-32-32-32-31-31 cm aukið út um 3 l jafnt yfir í öllum stærðum = 48-48-50-50-52-52 l. Prjónið nú BAMBUSMYNSTUR í hring á sokkaprjóna – sjá útskýring að ofan. Þegar stykkið mælist 47-47-47-47-48-48 cm fækkið um 4 l í öllum stærðum = 44-44-46-46-48-48 l. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN í hring á hringprjóna – sjá útskýringu að ofan. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið hettuna saman með því að sauma lykkjur 1 og 1 í uppfitjunarkanti saman. Saumið tölur í mynstureiningu með bambusmynstri á vinstra framstykki þannig: Saumið 1 tölu ca 2 cm inn frá kanti og 43-45-47-49-51-53 cm frá affellingarkanti og 1 tölu 47-49-51-53-55-57 cm frá affellingarkanti. Endurtakið alveg eins hinum megin á mynstureiningu með bambusmynstri. Tölum er hneppt í gegnum gat í bambusmynstri.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Rhinebeck 2016 Snow Princess

Janey, United States

Snow Princess

Deb, United States

Cappottino delle nevi

Angela, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (183)

country flag Mireille wrote:

Bonjour, Au niveau de la capuche, à 38cm, est indiqué de faire des diminutions. Je ne comprends pas où les faire. Est ce sur la partie point mousse (52m en M) ou sur les points fantaisie au-dessus des 32m (en M) restantes ? Merci pour votre aide ! Belle journée.

16.04.2024 - 14:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mireille, en taille M tricotez sur l'endroit ainsi: 32 m point mousse, 52 m jersey en dim. 11 mailes (= il reste ainsi 41 m jersey) et 32 m point mousse. Au rang suivant sur l'envers, tricotez 32 m end, 41 m jersey et 32 m end. Au rang suivant sur l'endroit, tricotez 32 m end en augmentant 4 m (= 36 m), 41 m end, 32 m end en augm. 4 m ( = 36 m) (8 augm au total). Tricotez sur l'envers 36 m end, 41 m env, 36 m end. Tricotez ensuite 36 m end en augm 3 m (= 39 m), 41 m end et 36 m end en augm. 4 m (40m) (7 augm. au total)= 120 m. Bon tricot!

16.04.2024 - 15:52

country flag Mireille wrote:

Bonjour, Je n'arrive pas à comprendre l'explication pour la côte mousse en allers/retours. Puisque tous les rangs se font à l'endroit pour le point mousse, je ne comprends pas la différence pour la côte mousse puisque est indiqué 2 rangs endroit... Pouvez-vous détailler la manière de faire ? Avez-vous une vidéo expliquant ce point côte mousse ? Je vous remercie de votre aide. Belle journée.

15.04.2024 - 20:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mireille, effectivement, il faut 2 rangs endroit pour tricoter 1 côte mousse: 1 rang endroit sur l'endroit et 1 rang endroit sur l'envers - cf vidéo. Bon tricot!

16.04.2024 - 08:10

country flag Izabela wrote:

Witam. Chciałam zapytać,ile oczek dodawać w co drugim rzędzie?Czy 18? Jeśli tak,to ile na rękaw,a ile na plecy?"Powt. dodawanie o. 1-1-4-6-8-10 razy w każdym rzędzie (tj. na prawej i na lewej stronie robótki) i 21-22-20-19-18-17 razy w każdym rzędzie na prawej stronie robótki"

10.10.2023 - 09:09

DROPS Design answered:

Witaj Izo, w tym wzorze na reglany dodajemy zawsze 8 oczek w rzędzie (czyli 1 oczko na przód, 2 oczka na rękaw, 2 oczka na tył, 2 oczka na drugi rękaw i 1 oczko na drugi przód). Pozdrawiamy!

10.10.2023 - 10:36

country flag Ulrike wrote:

Hallo, ich habe ein Problem bei den Raglanzunahmen in Gr.M. In der Anleitung heißt es, 24 M glatt rechts und wären nach den Zunahmen laut Anleitung bei 168. ich komme aber auf 170. Meine Rechnung: 23x2=46+24=170. Wo liegt mein Fehler? Oder liegt der Fehler in der Anleitung? Danke schon mal. Freundliche Grüße Ulrike

08.03.2023 - 10:45

Ulrike answered:

Hallo nochmal. Ich habe meinen Fehler gefunden. 2 Maschen gehen ja weg wegen den Raglanärmeln. Liebe Grüße Ulrike

08.03.2023 - 10:58

country flag Karen Coates wrote:

Worst pattern ever !!!! Restarted 4 times !!! My sister is an expert knitter and found this was the worst pattern ever !!!

29.01.2023 - 07:48

country flag Jennifer Winkler wrote:

I am working on the increases in the hood and was wondering if you can substitute make one right (or left) for the yarn overs? I am working on the XXXL for my mom and in the 20 garter stitches it says in the 2nd row to increase evenly 32 stitches, this would require two yarn over increases in a row, creating a hole no matter how you twist it. Thanks

22.09.2022 - 02:35

DROPS Design answered:

Dear Mrs Winkler, you can for sure use your favorite technique to increase - this lesson explains how to increase evenly, this might help you too. Happy knitting!

22.09.2022 - 09:49

country flag Jan wrote:

Hello, Why do you not show the photo of the back of the garment? I think that the look of the back of a design is as important as the front. In this particular design I would love to know what the hood looks like from the back - perhaps you would include a photo in your reply. Best wishes, Jan

28.04.2022 - 21:29

DROPS Design answered:

Dear Jan, we have sadly no pictures of the back piece and we don't have the jacket anymore. But you could maybe see the back piece on one of the several projects made by knitters and shown in Ravelry. Happy knitting!

29.04.2022 - 08:49

country flag Sandra Lowes wrote:

Is there a email address where I could send in a picture to see if anyone there knows how to do this stitch

24.12.2021 - 02:04

DROPS Design answered:

Dear Sandra, you could try our Facebook group, where you can add pictures and share them with other members to get help from them.

24.12.2021 - 18:37

country flag Embla wrote:

Hei. Jeg lurer på hvilken størrelse modellen på bildet har på seg? Og finnes det noen nærmere forklaring på hva de forskjellige størrelsene vil si? Jeg er ca lik på modellen på bildet, men jeg ønsker at jakken skal være litt mer romslig, så lurer veldig på hvilken størrelse jeg bør velge. På forhånd tusen takk for svar.

26.09.2021 - 09:56

DROPS Design answered:

Hej Embla. Modellen på bilden har storlek S eller M på sig (vet dessvärre inte vilken av de). Längst ner på oppskriften har du en måleskiss med alla mål i cm på plagget. Jämför dessa med ett plagg du har för att se vilken storlek som passar. Mvh DROPS Design

27.09.2021 - 09:37

country flag Jasmin wrote:

Ich noch mal und zwar steht ja da das man 2M zunehmen soll, damit ein Bambusmusterrapport aufgeht. Wie nehme ich am besten diese 2M zu.?

04.02.2021 - 16:40

DROPS Design answered:

Liebe Jasmin, die Raglanzunahmen werden gestrickt, wie unter RAGLANZUNAHMEN erklärt - die Zunahmben im Bambusmuster stricken Sie glatt rechts bis 2 Maschen zugenommen werden um das Bambusmuster zu stricken. Viel Spaß beim stricken!

05.02.2021 - 07:54