Russelldem skrifaði:
B52 club
02.12.2023 - 19:39
Uli skrifaði:
Hallo, kann ich dieses Jäckchen auch ohne Glitter stricken? Muss ich dann irgendetwas bei der Anleitung verändern? Vielen Dank für eine Antwort. LG Uli
23.08.2022 - 18:33DROPS Design svaraði:
Liebe Ulli, ganz gerne, DROPS Glitter bringt einen glänzenden Effekt, der Garn ist so dünn, daß er die Maschenprobe nicht ändert, und daß Sie nur mit Baby Alapca Silk und Kid-Silk zusammenstricken können. Viel Spaß beim stricken!
24.08.2022 - 08:36
Nicole skrifaði:
Ich stricke Gr. S, habe die Passe fast fertig und verstehe aber leider den letzten Abschnitt überhaupt nicht. Ich soll mitten im Strickabschnitt die Maschen (alle?) stilllegen und inklusive der stillgelegten Maschen neue Maschen aufnehmen. Ich habe nach dem letzten Wenden 10 M gestrickt und rätsele, wie ich weitermachen soll.
03.04.2022 - 21:04DROPS Design svaraði:
Liebe Nicole, wenn alle Raglanabnahmen fertig sind, stricken Sie verkürzten Reihen, damit den Halsauschnnit Höher am Rückenteil ist, stricken Sie wie erklärt und nach dem Sie die 10 Maschen gestrickt haben, schneiden Sie den Faden ab; dann sollen Sie ca 60-90 Maschen (damit sind die stillgelegten Maschen gezählt) zwsichen den Markierungen auffassen und die Halsblende stricken. Viel Spaß beim stricken!
04.04.2022 - 10:11
Priligy skrifaði:
Dapoxetine 1mg dapoxetine hydrochloride
06.03.2021 - 02:48
Avana skrifaði:
Buy avanafil uk avana
05.03.2021 - 21:38
Avanafil skrifaði:
Buy avana usa avanafil cost
05.03.2021 - 17:56
Cyclosporine skrifaði:
Cyclosporine medication cyclomune
05.03.2021 - 13:41
Combigan skrifaði:
Combigan side effects brimonidine dosage
04.03.2021 - 17:52
Priligy skrifaði:
Buy priligy canada dapoxetine pills for sale
04.03.2021 - 09:08
Alina Westerbring skrifaði:
Hej! Hittar inte början av arbetet, vad börjar med? Förstår inte heller att varför koftan ser så tjock ut, garnet BABYALPACA SILK är ju tunfin? Mvh, Alina
19.01.2021 - 19:42DROPS Design svaraði:
Hej Alina. Du börjar där det står "FRAM- OCH BAKST: Arb stickas fram och tillbaka på rundst för att få plats med alla m. Lägg upp 105-117-129-149-169-189 m på rundst 5 med 1 tråd av varje kvalitet (= 3 trådar)." Du stickar alltså med 1 tråd av varje garn (=totalt 3 trådar), det är därför koftan ser lite tjockare ut. Mvh DROPS Design
20.01.2021 - 09:09
Diamonds And Pearls#diamondsandpearlscardigan |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður bolero úr DROPS BabyAlpaca Silk, DROPS Kid-Silk og DROPS Glitter með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 157-12 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í ölum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Þegar lykkjum er fækkað fyrir laskalínu er l fækkað í mynstri A.1. ATH: Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt. ÚRAUKNING-1 (á við miðju að framan): Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu á hliðum + ermum): Öll útaukning er ger frá réttu. Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan prjónamerki, prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri hvoru megin við prjónamerki). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið / slétt til að koma í veg fyrir göt. ÚRTAKA-1 (á við um laskalínu): Fækkið um 1 l á undan A.2 þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan A.2, 3 l slétt saman (þ.e.a.s. nú hefur fækkað um 1 l í laskalínu og 1 l á undan uppslætti í A.2). Fækkið um 2 l á undan A.2 þannig: Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan A.2, prjónið 4 l slétt saman (þ.e.a.s. nú hefur fækkað um 2 l í laskalínu og 1 l á undan uppslætti í A.2). Fækkið um 2 l á eftir A.2 þannig: Prjónið 4 l snúnar slétt saman (þ.e.a.s. nú hefur fækkað um 2 l í laskalínu og 1 l á undan uppslætti í A.2). ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál): Fækkið lykkjum innan við 2 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 2 kantlykkjum að framan þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum á undan 2 kantlykkjum að framan þannig: 2 l slétt saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá uppfitjunarkanti): STÆRÐ S: 7, 13 og 19 cm. STÆRÐ M: 8, 14 og 20 cm. STÆRÐ L: 7, 14 og 21 cm. STÆRÐ XL: 8, 15 og 22 cm. STÆRÐ XXL: 7, 15 og 23 cm. STÆRÐ XXXL: 8, 16 og 24 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 105-117-129-149-169-189 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hverri tegund (= 3 þræðir). Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf br frá röngu með 2 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Prjónið nú frá réttu þannig: 2 l garðaprjón (= kantlykkja að framan), 21-24-27-32-37-42 l sléttprjón (= hægra framstykki), setjið 1 prjónamerki, 1-4-7-12-17-22 l sléttprjón, A.1 (= 57 l), 1-4-7-12-17-22 l sléttprjón (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki, 21-24-27-32-37-42 l sléttprjón, endið á 2 l garðaprjón (= kantlykkja að framan). Kantlykkja að framan er prjónuð í garðaprjóni til loka. Prjónið 2 umf í garðaprjóni, sléttprjóni og A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! AUKIÐ ER ÚT VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN OG Í HLIÐUM SAMTÍMIS ÞANNIG: AUKIÐ ÚT VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN: Aukið út 1 l í hvorri hlið á stykki innan við 2 kantlykkjur að framan – LESIÐ ÚTAUKNING-1. Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 7 sinnum til viðbótar. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. AUKIÐ ÚT Í HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 3-3-4-4-5-5 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu með 3 cm millibili 4 sinnum til viðbótar. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar útaukningu er lokið eru 141-153-165-185-205-225 l. Haldið áfram í garðaprjóni, sléttprjóni og A.1 þar til stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm. Fellið síðan af 3 l hvoru megin við hvort prjónamerki fyrir ermi = 129-141-153-173-193-213 l (= 33-36-39-44-49-54 l á hvoru framstykki og 63-69-75-85-95-105 l á bakstykki). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki í kantlykkjur við miðju að framan. Síðar á að prjóna kant í garðaprjóni á milli prjónamerkja. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 32-34-36-38-40-42 l á sokkaprjóna nr 5 með 1 þræði af hverri tegund (= 3 þræðir). Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið síðan áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 11 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – Munið eftir ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu með 4-4-3½-3-2½-2½ cm millibili 6-6-7-8-9-9 sinnum til viðbótar. Skiptið yfir á hringprjóna þegar nægilega margar l eru á prjóni. Aukið síðan út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hverri umf alls 13 sinnum = 72-74-78-82-86-88 l. Prjónið þar til stykkið mælist 45-45-44½-44½-44-44 cm. Fellið síðan af með 6 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 3 l hvoru megin við prjónamerki) fyrir handveg = 66-68-72-76-80-82 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 261-277-297-325-353-377 l. Prjónið frá röngu þannig: Prjónið 2 l garðaprjón (= kantlykkjur að framan), 31-34-37-42-47-52 l sléttprjón (= vinstra framstykki), A.2 (= 2 l), 62-64-68-72-76-78 l sléttprjón, A.2 (= vinstri ermi), sléttprjón og A.1 eins og áður yfir bakstykki (= 63-69-75-85-95-105 l), A.2, 62-64-68-72-76-78 l sléttprjón, A.2 (= hægri ermi), 31-34-37-42-47-52 l sléttprjón, endið á 2 l garðaprjón (= kantlykkjur að framan). Haldið áfram eins og áður í garðaprjóni, sléttprjóni, A.1 og A.2 JAFNFRAMT byrjar úrtaka fyrir laskalínu – LESIÐ ÚRTAKA-1. Lykkjum er fækkað mismunandi á ermum/bakstykki og framstykki. ERMI / BAKSTYKKI: Fækkið um 1 l í hverri umf frá réttu 21-22-23-24-26-27 sinnum = 24-24-26-28-28-28 l á hvorri ermi og 21-25-29-37-43-51 l á bakstykki. FRAMSTYKKI: Fækkið um 1 l í hverri umf frá réttu 19-19-19-16-16-13 sinnum, síðan 2 l í hverri umf frá réttu 2-3-4-8-10-14 sinnum, þ.e.a.s. í síðustu úrtöku er felld af 1 kantlykkja að framan. JAFNFRAMT í 6. umf í úrtöku fyrir laskalínu er fækkað um 1 l fyrir hálsmáli innan við 2 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚRTAKA-2, endurtakið eftir 6. umf 1 sinni til viðbótar, fækkið síðan lykkjum í 4. hverri umf 7-7-7-8-9-10 sinnum, síðan í annarri hverri umf 0-1-2-1-1-0 sinnum. Eftir alla úrtöku á framstykki er 1 kantlykkja eftir framan á framstykki. Í næstu 2 umf eru kantlykkjurnar felldar af og A.2 (= 2 l) í hvorri hlið á stykki. Eftir alla úrtöku / affellingu eru 65-69-77-89-95-103 l á prjóni. Prjónið nú upphækkun í hnakka þannig: Stærð S-M-L: Stykkið er prjónað áfram í sléttprjóni. Prjónið 1 umf yfir allar l JAFNFRAMT er fækkað um 12-14-18 l jafnt yfir = 53-55-59 l. Prjónið 26-27-29 l (= miðja að aftan), snúið við. Prjónið 15-16-20 l, snúið við og prjónið 30-32-40 l, snúið við. Prjónið 24-26-32 l, snúið við og prjónið 18-20-24 l, snúið við. Prjónið 14-15-17 l, snúið við og prjónið 10 l. Klippið frá og setjið l á þráð. Stærð XL-XXL-XXXL: Haldið áfram með úrtöku fyrir laskalínu þar til l eru settar á þráð (fækkið um 1 l hvoru megin við A.2 ef það er mögulegt). JAFNFRAMT er prjónuð upphækkun þannig: * Prjónið yfir fyrstu 6 l, setjið þær síðan á þráð, prjónið út umf. Gerið alveg það saman í gagnstæðri hlið á stykki *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar. Klippið frá og setjið þær l sem eftir eru á þráð. Prjónið síðan upp ca 60-90 l (meðtaldar l af þræði) á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki. Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT í 1. umf er lykkjufjöldinn jafnaður út til 60-62-70-74-82-82 l. Fellið af. KANTUR: Kanturinn er heklaður í kringum framstykki, hálsmál og neðri kant á bakstykki og á ermum með heklunál nr 5 með 1 þræði af Kid-Silk. Heklið 1 fl, * 3 ll, hoppið yfir 1 l/umf, 1 fl yst í lykkjubogann á næst síðustu l/umf *, endurtakið frá *-* í kringum allt opið. Endið á 1 kl í fyrstu fl. Gerið alveg það sama á neðri kanti á ermi. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið saman undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #diamondsandpearlscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.