DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7018.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 157-13
DROPS Design: Mynstur nr fa-280
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL -XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
350-400-400-450-500-550 gr litur nr 913, vetur
200-200-200-250-250-250 gr litur nr 400, svartur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni og 24 l og 44 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 3 – fyrir kant.
DROPS SKELJATALA NR 526 – 2 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7018.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
* Skiptið yfir í litinn svartur. Prjónið síðan stuttar umferðir með byrjun frá réttu þannig (fyrstu 3 l eru alltaf prjónaðar í garðaprjóni): Prjónið 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 55 l, snúið við og prjónið umf til baka. Prjónið 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 79 l, snúið við og prjónið umf til baka. Prjónið 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 25 l, snúið við og prjónið umf til baka. Skiptið um lit yfir í chiaroscuro. Prjónið 8 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar l *, endurtakið frá *-* 1 mynstureiningu = 8 umf efst, 14 umf neðst. ATH: Þær 8 umf í garðaprjóni eru prjónaðar með vetur og stuttar umferðir eru prjónaðar með litnum svartur til loka.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan.
Byrjið frá réttu og prjónið þannig: 86-86-88-88-90-90 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman, 12 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l l slétt saman og prjónið sl út umf. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá hlið að hlið á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar lykkjur.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 144-148-154-158-164-168 l á hringprjóna nr 3 með 2 þráðum í litnum vetur. Stykkið er síðan prjónað með 1 þræði í litnum vetur. Prjónið 12 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu er sett 1 prjónamerki í stykkið þegar 46-48-50-52-54-56 l eru eftir á prjóni. Þetta prjónamerki merkir hvar ermi er saumuð við stykkið. Prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 15-17-18-21-22-26 cm mælt þar sem stykkið er minnst, stillið af að endað sé nákvæmlega á undan 8 umf garðaprjón. Í næstu umf frá röngu eru felldar af 5 fyrstu l fyrir hálsmál, prjónið út umf = 139-143-149-153-159-163 l. Prjónið síðan mynstur þar til stykkið mælist 25-27-30-33-36-40 cm (10-10-12-12-14-14 cm frá þeim stað sem fellt var af fyrir hálsmáli), stillið af að endað sé nákvæmlega á undan 8 umf í garðaprjóni. Fitjið upp 5 nýjar l í lok næstu umf frá réttu = 144-148-154-158-164-168 l. Haldið áfram eins og áður. Þegar stykkið mælist 40-44-48-54-58-66 cm – stillið af að endað sé á heilli mynstureiningu á mynstri, prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l með litnum vetur JAFNFRAMT er sett eitt prjónamerki í síðustu umf frá réttu þegar 46-48-50-52-54-56 l eru eftir á prjóni. Þetta prjónamerki merkir hvar ermin er saumuð við stykkið. Fellið af með 2 þráðum í litnum vetur.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað frá hlið og að miðju að framan.
Fitjið upp 144-148-154-158-164-168 á hringprjóna nr 3 með 2 þráðum í litnum vetur. Stykkið er síðan prjónað með 1 þræði í litnum vetur. Prjónið 12 umf garðaprjón – JAFNFRAMT Í 1. umf frá réttu er sett 1 prjónamerki í stykkið þegar 46-48-50-52-54-56 l eru eftir á prjóni. Þetta prjónamerki merkir hvar ermin er saumjuð í stykkið. Prjónið mynstur þar til stykkið mælist 15-17-18-21-22-26 cm mælt þar sem stykkið er minnst, stillið af að endað sé nákvæmlega á undan 8 umf í garðaprjóni. Í lok næstu umf frá réttu eru fitjaðar upp 20-20-22-22-24-24 nýjar l fyrir kraga = 164-168-176-180-188-192 l. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Stykkið er prjónað áfram í litnum vetur.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið nú stuttar umferðir með byrjun frá röngu þannig: Prjónið yfir fyrstu 68-68-90-90-108-108 l, setjið 1 prjónamerki, snúið við og prjónið til baka. Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki, snúið við og prjónið til baka. Haldið áfram, prjónið nú yfir 4 l færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónaðar hafa verið alls 26-26-36-36-44-44 umf með garðaprjóni. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka er prjónað garðaprjón yfir allar l þar til stykkið mælist 10-10-12-12-14-14 cm.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm þar sem það er breiðast, aukið út um 1 l í lok næstu umf frá réttu, endurtakið útaukningu í 4. hverri umf 3-3-3-3-6-6 sinnum til viðbótar, síðan í hverri umf frá réttu 14-14-18-18-17-17 sinnum = 182-186-198-202-212-216 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9-9-11-11-13-13 cm fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan, í næstu umf frá réttu. Prjónið 2 umf garðaprjón með svartur. Fellið af með 2 þráðum í litnum svartur.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað frá miðju að framan að hlið. Fitjið upp 182-186-198-202-212-216 l á hringprjóna nr 3 með 2 þráðum í litnum svartur. Stykkið er síðan prjónað með 1 þræði í litnum svartur. Prjónið 2 umf JAFNFRAMT í umf frá röngu er sett 1 prjónamerki eftir 38-38-44-44-48-48 l. Skiptið yfir í litinn vetur.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐURN EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið garðaprjón yfir allar l JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu er fækkað um 1 l í lok umf með því að prjóna 2 síðustu l slétt saman, endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 13-13-17-17-16-16 sinnum til viðbótar, síðan í 4. hverri umf 4-4-4-4-7-7 sinnum = 164-168-176-180-188-192 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm prjónið þá stuttar umferðir með byrjun frá röngu þannig: Prjónið að prjónamerki, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 4 l á eftir prjónamerki, snúið við og prjónið til baka. Haldið svona áfram, prjónið yfir 4 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónað hefur verið yfir alls 13-13-18-18-22-22 um með garðaprjóni. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka mælist stykkið ca 10-10-12-12-14-14 cm. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, héðan er nú stykkið mælt.

Í næstu umf frá röngu eru felldar af fyrstu 20-20-22-22-24-24 l = 144-148-154-158-164-168 l á prjóni. Prjónið nú mynstur þar til stykkið mælist 15-17-18-21-22-26 cm mælt þar sem það er minnst, stillið af að endað sé nákvæmlega á undan 8 umf garðaprjón. Prjónið 12 umf garðaprjón yfir allar l í litnum vetur JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er sett 1 prjónamerki í stykkið þegar 46-48-50-52-54-56 l eru eftir í umf (séð frá réttu). Þetta prjónamerki merkir hvar ermin er saumuð í stykkið. Fellið af með 2 þráðum í litnum vetur.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-58-60-62-64-66 l á sokkaprjóna nr 3 með 2 þráðum í litnum svartur. Stykkið er síðan prjónað með 1 þræði í litnum svartur. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið um lit yfir í litinn vetur og prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 4 cm. Prjónið síðan sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu með 2½-2-2-2-1½-1½ cm millibili 17-18-19-20-21-22 sinnum til viðbótar = 92-96-100-104-108-112 l. Þegar stykkið mælist 54-53-52-50-49-46 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma frá prjónamerki og niður. Saumið ermar í með rönguna út. Saumið saman sjalkraga við miðju að aftan og saumið við hálsmál. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant í kringum peysuna að neðan, byrjið neðst niðri á vinstra framstykki. Heklið með litnum svartur með heklunál nr 3 þannig: 1 fl, * 3 ll, 1 st í 1. ll, hoppið fram ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* í kringum alla peysuna. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (73)

country flag Judy Kruse wrote:

The yarn requirements are listed only by weight, but they do not list yardage. How do we determine the yardage requirements when none are listed.

01.08.2023 - 05:02

DROPS Design answered:

Hi Judy, You click on the box 'Yarns and Needles' at the top of the page and choose Fabel. There you will find all the details about this particular yarn. Happy crafting!

01.08.2023 - 06:40

country flag Ulrika Nielsen wrote:

Hej! Stickar man kilar över hela framstyckena? Jag tycker att det blir en väldigt lång bit som bara stickas fram o tillbaka utan kilar.

08.03.2022 - 21:49

DROPS Design answered:

Hei Ulrika. Når du starter på høyre forstykket, strikkes det 6 riller(12 pinner/ca 2,5-3 cm) før man starter med MØNSTER. Så strikkes det mønster til arbeidet måler 15-17-18-21-22-26 cm målt på det korteste. Det blir endel "kilar" på de målene. Bare husk at det skal måles på det korteste og avpass at det avsluttes rett før de 4 rillene. mvh DROPS Design

14.03.2022 - 10:47

country flag Ulrika Nielsen wrote:

På vänster framstycke står att man ska sticka 13 förkortade varv i den svenska beskrivningen. I det norska originalet står det ”riller”. En ”rille” är väl 2 varv? Alltså borde det stå att man ska sticka 26 varv!

07.03.2022 - 21:35

country flag Lynn Travers Despins wrote:

Hello...still having difficulty with short rows on R side & L front sides. R side short rows I turn before the 22 sts and work the 22 stitches only when short rows are done. The left side it seems that I have no choice but to knit the 22 stitches on every turn then work WSide back down to marker and add 4 stitches., etc...The L front collar will be larger than the R front in this case...

31.05.2021 - 15:12

DROPS Design answered:

Dear Mrs Travers Despins, the left front piece is worked the same way but just reversed, ie you start from the mid front towards the shoulder, work the short rows the same way over the stitches on collar, maybe looking at the right front piece from WS could be help you to get the same number of short rows worked on both front pieces?

01.06.2021 - 08:02

country flag Lynn wrote:

Fa-280. hello..I really need your help. I am having so much trouble with this pattern, I have ripped out so many times I had to buy new yarn. The problem lies with the short rows at the top of the garment for the left and right sides...each time I think I am doing it right I get different results for both sides and have to restart. When we cast on the 22 stitches I am assuming we do not work the 22 stitches when doing the short rows, am I understanding and same thing for the other side.

08.05.2021 - 19:19

DROPS Design answered:

Dear Lynn, you are right, when you cast on the stitches for the collar, and then do the short rows, the shortrow turns do not reach the collar-stitches, they are only knitted in the full rows (rows knitted on every stitches). Happy Knitting!

09.05.2021 - 22:21

country flag Lynn wrote:

Fa-280 Hello, I am a visual person and am not understanding how to do the short rows for the left side of the sweater. I placed my marker at the 44th stitch and with all the decreases, my marker is not in line with the 22 stitch from the first stitch WSide. I am stuck there to do the short rows...compared to the right side where I placed my first marker at the 90th stitch. I wish there was a video for mirror short rows. Thank you for your time. \r\nRegards Lynn

01.05.2021 - 19:37

country flag Carmen-Gabriela wrote:

Hallo:) Hier sind die verk. Reihen nicht synchron (nicht wie bei 145-23 od. 178-26) Kann es sein, dass sich somit das untere Teil auf eine Seite zieht, in Strickrichtung? (sich um einen wickelt?) Ich habe es ab der rückwärtigen Mitte gegengleich versucht, da wippen aber die "Fächer" nicht so schön. - Was meinen Sie? - Wieder ein sehr schönes Modell:)!

04.06.2020 - 17:58

DROPS Design answered:

Liebe Carmen-Gabriela, am besten zeigen Sie Ihr Strickstück Ihrem DROPS Laden - auch ein Foto per mail senden, damit kan man dort Ihnen am besten weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!

05.06.2020 - 07:22

country flag Birgit Bang-Jensen wrote:

Fejl i opskrift? Højre forstykke, str S. Forkortede p over totalt 13 p retstrik. Derefter ret til 10 cm = ca 6 cm efter forkortede p. Venstreforstykke (spejlvendt) Retstrik til 4 cm. Forkortede p over totalt 26 p ret. Mens der 13 ell 26 p ??? NB. Højre forstykke er strikket !!!

08.04.2018 - 08:26

DROPS Design answered:

Hei Birgit. Du har helt ret, der strikkes forkortede pinde over 26 pinde ret (ikke 13) det er nu rettet i opskriften. Tak for info!

12.04.2018 - 15:43

country flag Magali wrote:

Bonjour, il est écrit "les manches se tricotent en rond sur aiguilles doubles pointes", pouvez-vous m'expliquer ? Les aiguilles doubles pointes sont droites, n'est-ce pas ? Donc comment tricoter en rond ? Merci beaucoup de votre aide. Magali

16.03.2018 - 10:45

DROPS Design answered:

Bonjour Magali, cette vidéo montre comment monter les mailles sur les aiguilles doubles pointes pour tricoter en rond (et en jersey dans la vidéo) et celle-ci montre comment tricoter du point mousse, en rond, sur aiguilles doubles pointes. Bon tricot!

16.03.2018 - 11:27

country flag Marianne wrote:

Ifølge opskriften er højre og venstre forstykke meget forskellige. På højre forstykke laves de forkorte pinde lige efter, at der er slået m op til hals og dermed omkring 10 cm fra forkanten, og der strikkes kun 13 forkortede p. På venstre forstykke strikkes de tættere på forkanten (efter 4 cm), og der strikkes 26 p. Jeg synes, at det virker meget mærkeligt, og at det ikke ser pænt ud.

09.10.2017 - 21:56

DROPS Design answered:

Hej Marianne, har du set at højre forstykke strikkes fra siden til midt foran og venstre forstykke strikkes fra midt foran til siden? De skal naturligvis se ligedan ud. God fornøjelse!

12.10.2017 - 12:28