Maria skrifaði:
Ziet er mooi uit, ga ik zeker maken.
13.01.2014 - 17:36
Mette skrifaði:
Sød strik, men hæftningerne kunne godt være bedre!!
11.01.2014 - 19:32Sylvia skrifaði:
Es un modelo muy relajado y femenino. Felicitaciones.
10.01.2014 - 17:29
Christine skrifaði:
Jolie encolure bien mise en valeur par ce blanc.
06.01.2014 - 17:43
Andrea skrifaði:
Freue mich auf diesen schönen Pulli!
05.01.2014 - 22:35
Ervena skrifaði:
Niezawodny sweterek w komfortowej bieli
02.01.2014 - 14:22
Anne-marie Ooms skrifaði:
Den er lækker...lige mig :)
21.12.2013 - 06:23
Helga skrifaði:
Gefällt mir sehr gut
17.12.2013 - 20:05
Petra skrifaði:
Sehr schön
17.12.2013 - 13:53
Conny skrifaði:
Schoen luftig fuer unseren Texas Fruehling! Great for our Texas Spring weather!
16.12.2013 - 21:04
Ibiza#ibizasweater |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 153-12 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: ---------------------------------------------------------- PEYSA: Peysan er prjónuð fram og til baka í stykkjum sem síðan eru saumuð saman í lokin. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 76-83-88-94-103-113 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5,5 og prjónið 6 umf garðaprjón. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist ca 2 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf til þess að koma í veg fyrir göt. Endurtakið útaukningu með ca 3-3½-3½-3-3½-3½ cm millibili 11-10-10-12-10-10 sinnum til viðbótar (= alls 12-11-11-13-11-11 sinnum) = 100-105-110-120-125-135 l á prjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, setjið eitt prjónamerki í hvora hlið sem merkir þar sem ermar eru saumaðar inn. Prjónið síðan frá réttu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 er endurtekið þar til 4 l eru eftir á prjóni, prjónið 1 l br, 1 l snúin slétt, 1 l br og 1 kantlykkju með garðaprjóni. Snúna lykkjan er prjónuð snúin br frá röngu. Prjónið svona þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm stillið af eftir heila mynstureiningu á A.1 á hæðina. Prjónið yfir fyrstu 35-37-39-44-46-51 l eins og áður, fellið af næstu 30-31-32-32-33-33 l og prjónið út umf eins og áður. Prjónið hvora öxl fyrir sig – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í byrjun á hverri umf frá hálsmáli alls 3 sinnum = 32-34-36-41-43-48 l eftir á hvorri öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm og fellið af. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki, EN prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm áður en fellt er af fyrir hálsmáli – stillið af eftir heila mynstureiningu af A.1 á hæðina. Prjónið eins og áður yfir fyrstu 33-35-37-42-44-49 l, fellið af næstu 34-35-36-36-37-37 l og prjónið eins og áður. Prjónið hvora öxl fyrir sig – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í byrjun næstu umf frá hálsmáli = 32-34-36-41-43-48 l eftir á hvorri öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm og fellið af. ERMI: Fitjið upp 45-45-50-50-53-53 l á prjóna nr 5,5 (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) og prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka. Prjónið nú þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 0-0-0-0-2-2 l br, A.1 þar til 4-4-4-4-5-5 l eru eftir, prjónið 1 l br, 1 l snúinn slétt, 1-1-1-1-2-2 l br og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Snúna l er prjónuð br snúin frá röngu. Prjónið þar til stykkið mælist 12 cm, stillið af eftir heilli mynstureiningu af A.1 á hæðina. Prjónið nú sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með ca 6½-4½-4½-3½-4-2½ cm millibili 3-4-4-5-4-5 sinnum til viðbótar (= alls 4-5-5-6-5-6 sinnum) = 53-55-60-62-63-65 l á prjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 34-33-33-31-30-28 cm og fellið af (styttra mál í stærri stærðum vegna meiri víddar á fram- og bakstykki). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR OG HÁLSMÁL: Saumið annan axlasauminn, látið hinn vera opinn. Takið upp frá réttu ca 80-100 l hringinn við hálsmálið. Prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka, fellið af. Saumið hinn axlasauminn og hlið í kanti við hálsmál. Saumið ermar í innan við bæði prjónamerkin sem voru sett í á fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt, innan við 1 kantlykkju. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ibizasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.