DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 153-7
DROPS Design: Mynstur nr fa-264
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
150-200-200-200-250-250 gr litur nr 340, bláa lónið
Og einnig:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
200-200-200-250-250-300 gr litur nr 04, ljós blár

DROPS HRINGPRJÓNN NR 4 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 40 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm
DROPS PERLUTALA NR 522 (20 mm): 6-6-6-7-7-7 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RENDUR:
*2 umf garðaprjón Fabel, 2 umf garðaprjón Delight *, endurtakið frá *-* í gegnum allt stykkið.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (með prjónamerki á milli), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp 184-200-220-240-264-288 l á hringprjóna nr 4 með Delight. Prjónið GARÐAPRJÓN og RENDUR – sjá útskýringu að ofan! Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 46-50-55-60-66-72 l inn frá hvorri hlið (bakstykki = 92-100-110-120-132-144 l). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA AÐ OFAN. Endurtakið annan hvern cm alls 8 sinnum = 152-168-188-208-232-256 l.
Þegar stykkið mælist 24 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING AÐ OFAN. Endurtakið annan hvern cm alls 8 sinnum = 152-168-188-208-232-256 l.
Þegar stykkið mælist 24 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING AÐ OFAN. Endurtakið með 2-2-2½-2½-3-3 cm millibili alls 6 sinnum = 176-192-212-232-256-280 l. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm fellið af 6 l fyrir handveg í hvorri hlið (felldar eru af 3 l hvoru megin við hvort prjónamerki) og hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 82-90-100-110-122-134 l. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á hverri umf þannig: 2 l 1-2-4-6-8-10 sinnum og 1 l 0-1-1-1-2-3 sinnum = 78-80-82-84-86-88 l. Þegar stykkið mælist 54-56-58-59-61-63 cm fellið af miðju 30-30-30-32-32-34 l fyrir hálsmáli og hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig. Fellið nú af 2 l í næstu umf við hálsmál = 22-23-24-24-25-25 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 41-45-50-55-61-67 l. Fellið af fyrir handveg í hlið á sama hátt og á bakstykki = 39-40-41-42-43-44 l. Þegar stykkið mælist 47-49-50-52-53-55 cm fellið af fyrir hálsmáli. Fellið af 8-8-8-9-9-10 l, fellið síðan af 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum og 1 l 2 sinnum = 22-23-24-24-25-25 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 41-45-50-55-61-67 l. Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki , nema spegilmynd.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 46-48-50-52-54-56 l á hringprjóna nr 4 með Delight. Prjónið garðaprjón og rendur eins og áður. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 l innan við kantlykkju í hvorri hlið. Endurtakið með 3-2½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 12-14-15-17-19-20 sinnum = 70-76-80-86-92-96 l. Þegar stykkið mælist 48-48-47-46-44-43 cm (ATH! Styttri mál í stærri stærðum vegna lengri axlakúpu og breiðari axla) fellið af í byrjun á hverri umf fyrir axlakúpu þannig: 4-4-4-3-3-3 l 1 sinni, 2 l 3-4-4-4-4-4 sinnum, 1 l 0-1-1-3-8-11 sinnum, síðan er fellt af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-55-55-56-56-57 cm. Fellið af 3 l í hvorri hlið, fellið síðan af þær l sem eftir eru. Stykkið mæilst ca 55-56-56-57-57-58 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í og saumið ermasauma.

HÁLSMÁL:
Takið upp 94-108 l frá réttu með Fabel á hringprjóna nr 4 meðfram kanti í hálsmáli. Prjónið 2 umf garðaprjón og fellið af með sl frá röngu.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið fram og til baka í garðaprjóni og röndum. Prjónið upp 98-102-106-110-112-114 l innan við 1 kantlykkju við miðju á framstykki með Delight. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Í næstu umf frá réttu eru felldar af 6-6-6-7-7-7 l fyrir hnappagötum þannig: Prjónið 7-6-5-8-4-6 l sl, * prjónið næstu 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 15-16-17-14-15-15 l sl *, endurtakið frá *-* alls 4-4-4-5-5-5 sinnum til viðbótar (= alls 5-5-5-6-6-6 sinnum) og endið á 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 4 l sl. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt. Haldið áfram í garðaprjóni og rendur þar til kantur að framan mælist ca 2-2-2-3-3-3 cm, fellið laust af allar lykkjur.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið á sama hátt og hægri kantur að framan, án hnappagata. Saumið tölur í.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

153-7 Seascapes

Anu, Finland

Azulíssimo

Izabel, Portugal

Labour of Love

Ana, Portugal

Paula’s Seascapes

Paula, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (58)

country flag Anna Watson wrote:

Hello I am knitting this lovely cardigan and have reached the point where the jacket measures 42 cm and I have to cast off 6 stitches for the arm holes which is fine. However I do not understand the next bit which starts Back Piece =. Have I to separate out so many stitches for the back piece? I have I'm afraid found this pattern very hard to follow: ( Hope you can help. Many thanks. Anna

25.11.2020 - 17:57

DROPS Design answered:

Dear Mrs Watson, when piece measures 42 cm you should now cast off 6 sts for both armholes, ie cast off 3 sts on each side of both markers to divide piece into the both front pieces and the back piece, in 4th size work: 55 sts, cast off 6 sts, work 110 sts, cast off 6 sts, work 55 sts - you keep sts of back piece on the needle and slip the sts of both front pieces on a thread/stitch holder and work now first back piece and when back piece is finished, work left front piece then right front piece. Happy knitting!

26.11.2020 - 09:38

country flag Anne Cole wrote:

I’m new to knitting what size needle do I use to get large?

03.10.2020 - 09:43

DROPS Design answered:

See answer below :)

05.10.2020 - 09:07

country flag Anne Cole wrote:

What size needle do I use to get a large size? I’m new to knitting.

03.10.2020 - 09:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs Cole, you will find all these informations under header, ie you are working here with needle size 4 mm or the size require to get the correct tension of 21 sts x 40 rows in garter st = 10 x 10 cm. Read more about tension here. Happy knitting!

05.10.2020 - 09:07

country flag Marianne wrote:

Hallo, omdat eerdere patronen die ik heb gebreid wat kort uitvielen, wil ik deze graag een centimeter of 5 langer maken. Moet ik dan op 5cm + 4 beginnen met minderen of kan ik beter meer steken opzetten en vaker minderen (ik brei de L). Alvast bedankt

12.03.2020 - 21:36

DROPS Design answered:

Dag Marianne,

Als je het vest alleen langer wilt maken zou ik 5 cm later beginnen met meerderen. Als je hem ook breder wilt maken aan de onderkant zou ik inderdaad meer steken opzetten en eerder beginnen met minderen zodat je daarmee de extra opgezette steken mindert.

22.03.2020 - 11:32

country flag Sheila wrote:

Hi I'm picking up stitches on right band. Do I pick up from bottom or top edge, it says pick up inside 1edge st mid front so I'm a bit confused. Thanks,

20.11.2019 - 18:23

DROPS Design answered:

Dear Sheila, you will knit up the stitches from RS, ie from bottom to top on right front piece and from top to bottom on left front piece. The stitches are picked up inside the first stitch on edge - see for example this video showing how to pick stitches inside 1 edge stitch. Happy knitting!

21.11.2019 - 08:48

country flag Wietske Baars wrote:

Hallo, is het ook mogelijk dit vest op gewone pennen te breien ipv op een rondbreipen? Als dat inderdaad ook zou kunnen, kan u mij dan ook uitleggen hoe? Alvast hartelijk dank.

05.10.2019 - 22:20

DROPS Design answered:

Dag Wietske,

Ja, dat zou wel kunnen bij dit patroon. We hebben een instructie gemaat waarin staat hoe je een patroon aanpast om met rechte naalden te kunnen breien. Deze vindt je hier.

06.10.2019 - 16:30

country flag Anita Monsieur wrote:

Ikben bezig met de mouwen bij de minderingen moet ik dan aan de beide kanten minderen? Hoeveel steken blijven er over op het einde? Ik brei maat M Alvast bedankt

11.09.2019 - 10:46

DROPS Design answered:

Dag Anita,

Voor maat M minder je 1 keer 4 st + 4 keer 2 st. + 1 keer 1 st aan beide zijden. Dit zijn in totaal 26 steken waardoor je 50 steken over houd. Dan minder je steeds 2 steken aan beide kanten tot het werk 55 cm meet, waarna je nog een keer 3 steken afkant, voordat je de overgebleven steken afkant. Hoeveel steken je over houdt, hangt dus een beetje af van wanneer je op die 55 cm zit (dus je stekenverhouding in de hoogte)

13.09.2019 - 10:16

country flag Anna wrote:

Sleeve cap, pattern says “then cast off 2 sts in EACH SIDE until piece measures 54-55-55-56-56-57 cm.” Does this mean cast off at both ends of every row? My sleeve cap is very short if I do this.

24.04.2019 - 02:19

DROPS Design answered:

Hi Anna, You continue to cast off at the beginning of each row until you have finished the sleeve cap. Happy knitting!

24.04.2019 - 07:48

country flag Kathryn Bellamy wrote:

I am so sorry to be dense (I am a novice knitter) but my next row starts at the armhole end , so if I cast off at the start of the row here that looks odd. I have just started off in Fabel, knitted 25, cast off 30 and knitted 25. I now have two lots of 25 stitches separated by the neck. My next row is in Fabel, starting at the armhole. I am completely stuck!

22.02.2019 - 13:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bellamy, after you have worked the row casting off the middle sts for neck, turn and work next row from armhole towards neck over 1st shoulder, then, at the beg of next row (= from neck towards armhole), cast off the first 2 sts, work row to the end = 25 sts remain. Then continue back and forth over these sts until finished measurements and cast off sts for 1st shoulder. Work now second shoulder over the remaining 25 sts the same way ie at the beg from first row from neck towards armhole, you will cast off 2 sts = 25 sts remain, continue until you have worked same length (= same number of rows) as for 1st shoulder and cast off. Happy knitting!

22.02.2019 - 15:04

country flag Kathryn Bellamy wrote:

Hello, I am just casting off the middle 30 stitches in the middle of the back piece. I have 25 stitches on my needle, then the neck section and another 25 stitches on the needle in my hand. Please could you explain the next instruction? “ Continue to cast off 2 sts on next row towards the neck ”. Thank you.

21.02.2019 - 23:18

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bellamy, work now each shoulder separately, at the beginning of next row from neck towards armhole cast off 2 sts, then continue until piece measures 66-68 cm and cast off. Take the sts from other needle back on needle and work the same way, ie at the beg of row from neck towards armhole, cast off 2 sts and continue until piece measures 66-68 cm. Happy knitting!

22.02.2019 - 09:17