Nina Christensen skrifaði:
Er garnforbruget kun til en grydelap?
20.12.2018 - 06:23DROPS Design svaraði:
Hei Nina. Jeg har dessverre ikke oversikt over nøyaktig garnforbruk til 1 grytekult, men den angitte garnmengden holder til fler grytekluter. God fornøyesle
20.12.2018 - 07:37
Ho Ho Ho! |
|
|
|
Þæfðir jólasveina pottaleppar úr DROPS Snow. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-991 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA: Í byrjun umferðar: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. Í lok umferðar: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- STÓR POTTALEPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. STÓR POTTALEPPUR: Fitjið upp 3 l með 1 þræði í litnum natur Snow á sokkaprjóna nr 8. Prjónið sléttprjón jafnframt í 1. umf (rétta) er aukið út um 1 l í byrjun og í lok umf með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 l. Í 2. umf (= ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið. Endurtakið þessar 2 umf þar til prjónaðar hafa verið 20 umf = 23 l á prjóni. Prjónið 4 umf sléttprjón án útaukninga. Skiptið yfir í litinn kamel og prjónið 4 umf sléttprjón. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið 2 umf sléttprjón. Prjónið nú jólasveinahúfuna með litnum rauður þannig: Prjónið 2 umf sléttprjón. Í næstu umf (= rétta) er fækkað um 1 l í byrjun og lok umf – LESIÐ ÚRTAKA. Prjónið 1 umf br. Endurtakið þessar 2 umf þar til 3 l eru eftir á prjóni. Prjónið þessar 3 l saman en klippið ekki frá. Prjónið nú lykkjuna með því að prjóna eina l, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af *, endurtakið frá *-* þar til 12 l eru í lykkjunni. Klippið frá og festið endann í kantinn þannig að það myndist lykkja. Prjónið nú nefið með litnum rauður þannig: Fitjið upp 1 l. Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl í sömu l (= 3 l), snúið við og prjónið 1 umf br (uppslátturinn er prjónaður snúinn br). Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= 5 l). Snúið við og prjónið br (uppslátturinn er prjónaður snúinn br). Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= 7 l). Prjónið 3 umf sléttprjón. Fækkið nú l með því að prjóna 2 fyrstu og 2 síðustu l á prjóni saman (= rétta), prjónið 1 umf br. Endurtakið þessar 2 umf þar til 3 l eru eftir á prjóni. Prjónið þessar 3 l slétt saman. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkju. FRÁGANGUR: Hár: Klippið 24 þræði í litnum natur Snow ca 12 cm. Setjið saman 2 þræði, notið nál og þræðið þráðunum upp og niður í gegnum litlu röndina með litnum natur fyrir miðju á jólasveininum. Gerið hnút. Endurtakið þetta 11 sinnum meðfram röndinni (= alls 12 hnútar). Saumið nefið (mitt í röndina með litnum kamel). ÞÆFING: Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. ------------------------------------------------------- LÍTILL POTTALEPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. LÍTILL POTTALEPPUR: Fitjið upp 3 l með 1 þræði af litnum natur og Snow á sokkaprjóna nr 8. Prjónið sléttprjón jafnframt í 1. umf (rétta) er aukið út um 1 l í byrjun og í lok umf með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 l. Í 2. umf (= ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn br. Endurtakið þessar 2 umf þar til prjónaðar hafa verið 8 umf = 11 l á prjóni. Prjónið 4 umf sléttprjón án útaukninga. Skiptið yfir í litinn kamel og prjónið 4 umf sléttprjón. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið 2 umf sléttprjón. Prjónið nú jólasveinahúfuna með litnum rauðurþannig: Prjónið 2 umf sléttprjón. Í næstu umf (= rétta) er fækkað um 1 l í byrjun og lok umf – LESIÐ ÚRTAKA. Prjónið 1 umf br. Endurtakið þessar 2 umf þar til 3 l eru eftir á prjóni. Prjónið þessar 3 l saman en klippið ekki frá. Prjónið nú lykkjuna með því að prjóna eina l, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af *, endurtakið frá *-* þar til 12 l eru í lykkjunni. Klippið frá og festið endann í kantinn þannig að það myndist lykkja. Prjónið nú nefið með litnum rauður þannig: Fitjið upp 1 l. Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl í sömu l (= 3 l), snúið við og prjónið 1 umf br (uppslátturinn er prjónaður snúinn br). Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= 5 l). Prjónið 3 umf sléttprjón. Fækkið nú l með því að prjóna 2 fyrstu og 2 síðustu l á prjóni saman (= rétta), prjónið 1 umf br. Prjónið þessar 3 l slétt saman. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l. FRÁGANGUR: Hár: Klippið 12 þræði í litnum natur Snow ca 10 cm. Setjið saman 2 þræði, notið nál og þræðið þráðunum upp og niður í gegnum litlu röndina með litnum natur fyrir miðju á jólasveininum. Gerið hnút. Endurtakið þetta 5 sinnum meðfram röndinni (= alls 6 hnútar). Saumið nefið (mitt í röndina með litnum kamel). ÞÆFING: Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-991
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.