Debby skrifaði:
Als ik uitga van het L,XL patroon en tot 40 steken heb geminderd ,en vervolgens 5x ga meerderen voor de duimspie dan kom ik op 50 steken uit en niet zoals er staat op 52 steken. Of zie ik het verkeerd.?
23.10.2022 - 01:00
Gudrun Thorsteinsdottir skrifaði:
Der mangler tommelfinger i den islandske udgave af denne opskrift.
22.02.2022 - 20:49DROPS Design svaraði:
Blessuð Guðrún. Takk fyrir ábendinguna. Það er búið að laga þetta.
23.02.2022 - 13:22
Nury Zapata skrifaði:
Este es el segundo par de guantes que tejo, pero en este modelo me han quedados huecos entre los dedos, que he cerrado con aguja. Como puedo evitar esto, para el próximo par que voy a tejer
13.05.2020 - 19:05DROPS Design svaraði:
Hola Nury. Es normal que queden unos pequeños agujeros entre los dedos, que después se cosen. Puedes intentar tensar el hilo entre los puntos, pero no siempre es la solución.
15.05.2020 - 10:48
Ann skrifaði:
Pattern calls for 3mm/2.5 US for rib, however, the wording in the pattern states to cast on with 3.5mm/US 4 for rib and it does not indicate when to switch needle size.
29.10.2015 - 16:01DROPS Design svaraði:
Dear Ann, that's correct, rib should be worked with needle size 3 mm, then change to size 3,5 mm when working in stocking st. Pattern will be edited as soon as possible. Thank you. Happy knitting!
29.10.2015 - 16:27
Ann skrifaði:
PATTERN CALLS FOR 3MM/2.5 US FOR RIB, HOWEVER, THE WORDING IN THE PATTERN STATES TO CAST ON WITH 3.5MM/US 4 FOR RIB AND IT DOES NOT INDICATE WHEN TO SWITCH NEEDLE SIZE.
25.10.2015 - 18:09
Elly skrifaði:
Hele mooie handschoenen.Daar zijn weinig patronen van om handschoenen te breien
06.06.2013 - 15:14I Parsons skrifaði:
Nice to see a pattern for real gloves!I like the textures. Would knit them in a stronger colour
30.05.2013 - 18:04
Rose Mint Gloves#rosemintgloves |
|
|
|
Prjónaðir fingravettlingar úr DROPS Karisma. Stærð S - XL.
DROPS 151-22 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Mynstur er prjónað þannig: UMFERÐ 1 og 2: Prjóni sléttar lykkjur yfir allar lykkjur. UMFERÐ 3: * Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 5 og 6: Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur. UMFERÐ 7: * Prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið síðan umferð 1-8. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- FINGRAVETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI FINGRAVETTLINGUR: Fitjið upp 45-50 lykkjur með Karisma á sokkaprjóna nr 3 og prjónið 4 umferðir stroffprjón = 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið. Í næstu umferð er haldið áfram í stroffprjóni JAFNFRAMT í fyrstu umferð í hverri brugðinni mynstureiningu er lykkjum fækkað með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman = 36-40 lykkjur á prjóni. Haldið áfram þar til stroffprjónið mælist 5 cm. Í næstu umferð er skipt yfir á prjóna nr 3,5 og prjónað sléttprjón JAFNFRAMT er lykkjum fækkað um 4-0 lykkjur jafnt yfir = 32-40 lykkjur á prjóni. Prjónið nú MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan yfir allar 32-40 lykkjurnar. Í UMFERÐ 3 í mynstri er sett 1 prjónamerki í byrjun umferð (á milli einnar brugðinnar lykkju og einnar sléttrar lykkju). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm byrjar útaukning fyrir opi fyrir þumalfingur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju á eftir prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt (allar lykkjur fyrir opi fyrir þumalfingur eru prjónaðar í sléttprjóni). Endurtakið útaukningu fyrir opi fyrir þumalfingur í annarri hverri umferð 4-5 sinnum til viðbótar (aukið er út hvoru megin við allar útauknar lykkjur fyrir þumallykkjur, þ.e.a.s. að það verða 2 lykkjur fleiri á milli uppsláttar fyrir hverja útaukningu) = 11-13 lykkjur fyrir opi fyrir þumalfingur og 42-52 lykkjur alls. Þegar stykkið mælist 14 cm eru settar 11-13 lykkjur fyrir opi fyrir þumalfingur á þráð og fitjuð er upp 1 ný lykkja yfir lykkjur á þræði = 32-40 lykkjur á prjóni. Haldið áfram með mynstur hringinn þar til stykkið mælist 17-18 cm. Prjónið nú þannig: Prjónið fyrstu 12-15 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= innan í hönd), haldið eftir næstu 8-10 lykkjum á prjóni og setjið síðustu 12-15 lykkjur á þráð (= ofan á hönd). LITLIFINGUR: = 8-10 lykkjur, fitjið að auki upp 2 nýjar lykkjur í vikinu á milli fingra = 10-12 l. Prjónið slétt hringinn þar til fingurinn mælist ca 5½-6½ cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið. HÖND: Setjið til baka lykkjur af þræði á prjón, prjónið að auki upp 3 lykkjur í vikinu við litlafingur = 27-33 lykkjur. Prjónið 2 umferð slétt. Geymið 3 lykkjur sem prjónaðar voru upp í vikinu við litlafingur + 4-5 lykkjur frá ofan á hönd og 4-5 lykkjur frá innan í hönd á prjóni. Setjið til baka þær 16-20 lykkjur af þræði (= 8-10 lykkjur á hvorum þræði). Prjónið baugfingur. BAUGFINGUR: = 11-13 lykkjur, fitjið upp 1 nýja lykkju í vikinu við lykkjur á þræði = 12-14 l. Prjónið slétt hringinn þar til fingurinn mælist ca 7-8 cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið. LANGATÖNG: Setjið til baka 4-5 lykkjur af þræði frá ofan á hönd og 4-5 lykkjur frá þræði frá innan í hönd á prjóna, prjónið að auki upp 3 lykkjur í vikinu við baugfingur og fitjið upp 1 nýja lykkju í vikinu við lykkjur frá þræði = 12-14 lykkjur. Prjónið slétt hringinn þar til fingurinn mælist ca 7½-8½ cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið. VÍSIFINGUR: Setjið til baka þær 8-10 lykkjur sem eftir eru af þræði á prjóninn, prjónið að auki upp 3 lykkjur í vikinu við löngutöng = 11-13 lykkjur. Prjónið slétt hringinn þar til fingurinn mælist ca 6½-7½ cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið. ÞUMALFINGUR: Setjið til baka lykkjur frá þræði frá opi fyrir þumalfingur á prjóninn og prjónið að auki upp 3 lykkjur í kanti á bakhlið við þessar lykkjur = 14-16 lykkjur. Prjónið slétt hringinn þar til þumalfingur mælist ca 5½-6 cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Klippið þráðinn og þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið. VINSTRI FINGRAVETTLINGUR: Prjónið á sama hátt og hægri fingravettlingur, nema spegilmynd. Þegar stykkið mælist 10 cm byrjar útaukning fyrir opi fyrir þumalfingur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju á undan prjónamerki. Þegar stykkið mælist 17-18 cm er litlifingur prjónaður þannig: Prjónið fyrstu 12-15 lykkjur (= ofan á hönd) áður en þær eru settar á þráð, haldið eftir næstu 8-10 lykkjum á prjóni og setjið síðustu 12-15 lykkjur á þráð (= innan í hönd). |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rosemintgloves eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.