DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 5 frábærum garntegundum!
Product image DROPS Merino Extra Fine yarn
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 149-37

#waterfalljacket

DROPS Design: Mynstur nr me-064
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
800-900-1000-1050 gr litur nr 13, gallabuxnablár

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 3 mynstureiningar af A.1 verði 10 cm á breidd eða 13 st verði 10 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ST-HÓPUR:
1 st-hópur = 2 tbst + 2 ll + 2 tbst.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Heklið 108-120-133-145 ll með heklunál nr 5 með Merino Extra Fine.
Fyrsta umf er hekluð (= ranga) þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni og síðan 1 fl í hverja og eina af næstu 3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* þar til 3-5-3-5 ll eru eftir, hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af 2-4-2-4 næstu ll = 86-96-106-116 fl.
Heklið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.1b 1 sinni, heklið nú A.1a þar til 10 fl eru eftir (= 14-16-18-20 sinnum á breiddina) og endið á A.1c 1 sinni. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 2 (= ranga): Snúið við og heklið A.1c 1 sinni, A.1a (= 14-16-18-20 sinnum á breiddina), A.1b 1 sinni.
UMFERÐ 3 (= rétta): Snúið við og heklið A.1b 1 sinni, A.1a (= 14-16-18-20 sinnum á breiddina), A.1c 1 sinni.
Endurtakið umf 2 og 3 þar til stykki mælist ca 46-50-54-58 cm – passið uppá að enda á umf 3 (= rétta). Klippið frá.

Heklið 30-25-25-20 lausar ll, byrjið frá röngu og haldið áfram með A.1 yfir bakstykki eins og áður og endið á 34-29-29-24 lausar ll, snúið við. Heklið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Í 10. ll frá heklunálinni er heklað 2 tbst + 2 ll + 2 tbst (= A.1b), heklið A.1a alls 4-3-3-2 sinnum, hoppið yfir síðustu 4 ll, í tbst í byrjun á bakstykki er heklað 2 tbst + 2 ll + 2 tbst (= 1 st-hópur), heklið síðan A.1a yfir bakstykki eins og áður, en í síðasta tbst í lok bakstykkis er heklað 2 tbst + 2 ll + 2 tbst síðan er heklað yfir síðustu 30-25-25-20 ll þannig. Hoppið yfir 4 næstu ll, A.1a alls 4-3-3-2 sinnum og síðan A.1c 1 sinni, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Snúið við og heklið A.1c 1 sinni, A.1a 24-24-26-26 sinum og endið á A.1b 1 sinni.
UMFERÐ 3 (= rétta): Snúið við og heklið A.1b 1 sinni, A.1 a 24-24-26-26 sinnum og endið á A.1c 1 sinni.
Endurtakið umf 2 og 3 þar til stykkið mælist ca 70-76-81-86 cm – passið uppá að enda á umf 3 (= rétta).
Heklið 11-11-12-12 st-hópa, endið á 1 ll og 1 tbst í ll-boga í næsta st-hóp. Klippið frá og festið enda. Hoppið yfir 2 st-hópa (= hálsmál). Heklið 1 kl í ll-boga á næsta st-hóp, heklið nú 5 ll. Heklið 11-11-12-12 st-hópa. Klippið frá og festið enda.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 98-104-110-117 ll með heklunál nr 5 með Merino Extra Fine. Heklið nú 1 fl í 2. ll frá heklunálinni og síðan 1 fl í hverja af næstu 3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* þar til 3-4-5-2 ll eru eftir, hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af 2-3-4-1 næstu ll = 78-83-88-93 fl.

UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 4 ll (jafngilda 1 tbst), 1 tbst í hverja af næstu 32 fl (= 33 tbst fyrir kant að framan) ATH: Kantur að framan er heklaður aðra hverja umf með tbst og þst! Heklið nú 1 ll, hoppið yfir 4 fl, 2 tbst + 2 ll + 2 tbst í næstu fl, heklið nú A.1a alls 6-7-8-9 sinnum, endið á A.1c 1 sinni.
UMFERÐ 2 (= ranga): Snúið við og heklið A.1c 1 sinni, A.1a 6-7-8-9 sinnum, 2 tbst + 2 ll + 2 tbst í næsta st-hóp, 1 ll, heklið 1 þst í hvern af næstu 33 tbst.
UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið 4 ll (jafngilda 1 tbst), 1 tbst í hvern af næstu 32 3-tbst (= 33 tbst), 1 ll, 2 tbst + 2 ll + 2 tbst í fyrsta st-hópinn, heklið nú A.1a alls 6-7-8-9 sinnum, endið á A.1c 1 sinni. Endurtakið umf 2 og 3 þar til stykkið mælist 46-50-54-58 cm. Passið uppá að enda á umf 3 (= rétta). Klippið frá.

Heklið 30-25-25-20 lausar ll, byrjið frá röngu og heklið síðan A.1 og þbst yfir kant að framan eins og áður, snúið við.

Heklið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 4 ll (jafngilda 1 tbst), 1 tbst í hvern af næstu 32 tbst (= 3 tbst), 1 ll, 2 tbst + 2 ll + 2 tbst um ll-bogann í næsta st-hóp, heklið A.1a, þar til 1 tbst er eftir á framstykki, heklið 2 tbst + 2 ll + 2 tbst í tbst, heklið síðan yfir síðustu 30-25-25-20 ll þannig: Heklið A.1a alls 4-3-3-2 sinnum og síðan A.1c 1 sinni.
UMFERÐ 2 (= ranga): Snúið við og heklið A.1c 1 sinni, A.1a 11-11-12-12 sinnu, 2 tbst + 2 ll + 2 tbst í næsta st-hóp, 1 ll, heklið nú 1 þst í hvern af síðustu 33 tbst.
UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið 4 ll (jafngilda 1 tbst), 1 tbst í hvern af næstu 32 tbst (= 33 tbst), 1 ll, 2 tbst + 2 ll + 2 tbst í fyrsta st-hópinn, heklið síðan A.1a alls 11-11-12-12 sinnum, endið á A.1c 1 sinni. Endurtakið umf 2 og 3 þar til stykkið mælist 72-78-83-88 cm. Endið á umf 2.

SJALKRAGI:
Þegar stykkið mælist 72-78-83-88 cm er einungis heklað yfir kant að framan (= 32 tbst/þst).
Heklið síðan stuttar umf yfir kantlykkjur að framan þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Heklið 32 tbst, snúið við.
UMFERÐ 2 (ranga): Heklið 11 fl, 5 hst, 5 st, 11 tbst, snúið við.
Endurtakið þessar 2 umf þar til stykkið mælist 10-10-11-11 cm lengst inn þar sem er minnst – passið uppá að enda með umf 1 (rétta).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið eins og það hægra, nema spegilmynd.
ATH: Þegar stykkið mælist 46-50-54-58 cm, passið uppá að síðasta umf er frá réttu, heklið næstu umf frá röngu þannig: Heklið 33 þst, heklið st-hópa eins og áður yfir framstykki og endið á 34-29-29-24 ll, snúið við og byrjið umf eins og á bakstykki.
Kantlykkjur að framan eru heklaðar eins og á hægra framstykki, sjalkragi endar á umf 1 (frá röngu, í stað frá réttu).

FRÁGANGUR:
Heklið saman kraga við miðju að aftan þannig: Heklið 1 fl, * 1 ll, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*. Leggið framstykkið ofan á bakstykkið og heklið saman axlir og kantlykkjur að framan við hálsmál að aftan þannig: * Heklið 1 fl í gengum bæði stykkin, 3 ll, hoppið yfir 2 st *, endurtakið frá *-*. Heklið hliðar saman þannig: Heklið 1 fl, *3 ll, 1 fl um ll í næstu umf *, endurtakið frá *-*. Heklið saman undir ermum þannig: * 1 fl í næstu ll með st-hópum, 3 ll *, endurtakið frá *-* og endið á 1 fl.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.08.2013
SJALKRAGI: UMFERÐ 2 (ranga): Heklið 11 fl, 5 hst, 5 st, 11 tbst, snúið við...
FRÁGANGUR: Heklið saman kragann við miðju að aftan þannig: Heklið 1 fl, * 1 ll, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*. Leggið framstykkið ofan á bakstykkið og heklið saman axlir og kantlykkjur að framan við hálsmál að aftan þannig: * Heklið 1 fl í gengum bæði stykkin, 3 ll, hoppið yfir 2 st *, endurtakið frá *-*. Heklið saman hliðarnar þannig: Heklið 1 fl, *3 ll, 1 fl um ll í næstu umf *, endurtakið frá *-*. Heklið saman undir ermum þannig: * 1 fl í næstu ll með st-hópum, 3 ll *, endurtakið frá *-* og endið á 1 fl.

Mynstur

1 kl = 1 kl
1 ll = 1 ll
1 fl = 1 fl
1 tbst = 1 tbst
Diagram for DROPS 149-37
Diagram for DROPS 149-37
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #waterfalljacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (86)

country flag Gail King skrifaði:

I love this look and want to make it but I don't understand about the yarn and prices. Please help me understand.

27.03.2019 - 01:54

DROPS Design svaraði:

Hi Gail! Depending on your size (S/M – L/XL - XXL - XXXL) you will need respecively 800-900-1000-1050 g of yarn (DROPS Merino Extra Fine), it means 16-18-20-21 skeins. The yarn cost mentionned in the pattern is calculated from the materials needed to make the pattern in its smallest size. Happy knitting!

27.03.2019 - 07:39

country flag Trisha A skrifaði:

I am currently doing the shawl collar but the pattern doesn't explain about decreasing, it only has a two row explanation of stitches. The picture clearly shows that the shawl collar should go to a point but the explanation states 'until the piece measures 10-10-11-11' It really doesn't make any sense to me - please help.

26.03.2019 - 22:11

DROPS Design svaraði:

Dear Trisha, you will get the same shape as on the chart when working the shawl collar - eg from RS on right shawl collar work 32 tr, turn and on next row from WS work: 11 sc, 5 hdc, 5 dc, 11 tr, turn. Repeat these 2 rows, the collar will be higher on the tr-side and shorter on the sc side. You should then measure along the sc-side = the most narrow part on collar. Happy crocheting!

27.03.2019 - 08:07

country flag Pam skrifaði:

Can you please give written pattern for each A1a A1b and A1c. Thank you

03.02.2019 - 18:32

DROPS Design svaraði:

Dear Pam, in UK-English work A.1B: 4 ch (= 1st dtr), 1 ch, slip 5 dc, 3 dtr, 2 ch, 2 dtr in next ch. A.1A: skip 4 dc, 2 dtr, 2 ch, 2 dtr in next dc, A.1c = skip 4 dc, 1 dtr, 2 ch, 1 dtr in next dc, 1 ch, skip 4 dc, 1 dtr in last dc. Happy crocheting!

04.02.2019 - 13:06

country flag Trisha A skrifaði:

Help. I can follow the pattern OK but the numbers just don't add up, I have even done an excel spreadsheet and still its not working. I have chained 120, having done all the 96 dc you then turn and follow the diagram, easy as the pattern reads ROW 1 (= RS): Work A.1b 1 time, then work A.1a until 10 dc remain (= 14-16-18-20 times in width) and finish with A.1c 1 time. Instead of getting 16 shell patterns I get 18! What am I doing wrong?

29.01.2019 - 17:40

DROPS Design svaraði:

Dear Trisha, You are working A.1b, repeating A.1c and finishing A.1c = you will get 18 shells at the end of pattern in size M together with A.1b and A.1c, that's right. Happy crocheting!

30.01.2019 - 07:20

country flag Clare skrifaði:

This is the first time I have attempted to crochet anything. I thought I had understood the pattern until I found the video for fan pattern! I was trying to take the dtr into the 2ch of previous row rather than just go under the chain. I wonder if I should start again ;-( Also for largest size why are there only 20 ch for the sleeves? I don't understand, I would have thought there should be more than smaller sizes. Seems like the sleeves will be much shorter than depicted in the photo?

14.01.2019 - 10:37

DROPS Design svaraði:

Dear Clare, you may start again as the pattern is explained/shown in the video. You cast on less sts on sleeve for larger size since shoulder will be larger. Happy crocheting!

14.01.2019 - 13:00

country flag Clare skrifaði:

This is the first time I have attempted to crochet anything. I thought I had understood the pattern until I found the video for fan pattern! I was trying to take the dtr into the 2ch of previous row rather than just go under the chain. I wonder if I should start again ;-( Also for largest size why are there only 20 ch for the sleeves? I don't understand, I would have thought there should be more than smaller sizes. Seems like the sleeves will be much shorter than depicted in the photo?

13.01.2019 - 23:41

country flag Mialina skrifaði:

Merci beaucoup !!!! Super réactif et compréhensible !!!! Bonne journée !!!

29.10.2018 - 11:03

country flag Mialina skrifaði:

Bonjour après avoir arrêté le travail du dos et monter les 30 ml que faut il faire ? Est ce qu’il faut laisser les mailles en l’air pendre et reprendre le dos avec les 3rgs de A1 et finir A1avzc des mailles en l’air ? Au secours je suis perdu

26.10.2018 - 17:51

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mialina, vous crochetez les 30 ml, puis vous continuez A.1 sur les mailles du dos comme avant et terminez par 34 ml (= vous avez une chaînette de chaque côté du dos pour les manches). Au rang suivant, crochetez A.1b, répétez A.a et terminez par A.1c comme expliqué = votre premier rang sur les manches et le dos est fait, vous continuez maintenant sur toutes les mailles avec A.1b, A.1a et A.1c (vu sur l'endroit). Bon crochet!

29.10.2018 - 07:43

country flag Marie-claude Marceille skrifaði:

Je ne comprend pas la suite après avoir monté les 58 cm de dos! on ne coupe pas la laine et on monte 20 ml en prolongement de chaque extrémités du travail effectué pour les manches ?

18.10.2018 - 06:43

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Marceille, après les 58 cm du dos, vous coupez le fil, puis continuez en montant une chaînette de 20 ml, puis crochetez A.1 comme avant sur le dos (= sur l'envers), et montez 24 ml pour l'autre manche. Continuez ensuite en point fantaisie comme indiqué. Bon crochet!

18.10.2018 - 09:43

country flag Marion Deira skrifaði:

Hallo, het haken van het vest ging prima, duidelijk allemaal. de schouders heb ik aan elkaar. nu ben ik erg aan het puzzelen met de kraag. ik kom er maar niet uit hoe dit nou aan elkaar zit en hoe het er uit moet zien aan de achterkant. kunt u mij daar bij helpen?

18.09.2018 - 15:47

DROPS Design svaraði:

Dag Marion, Als het goed is heb je tijdens het haken van de voorpanden een stukje extra gehaakt over alleen het deel van de voorbiezen, zodat er a.h.w. een lapje bovenop vast zit aan beide kanten. Deze beide stukken naai je aan de bovenkant vast en daarna aan de hals op het achterpand

19.09.2018 - 16:26