Stine skrifaði:
Begge disse modellene er bare helt nydelig! Ja takk begge deler :)
11.06.2013 - 00:45
Bree Marie France skrifaði:
Beau modéle de base pour l'hiver avec son pull assorti
09.06.2013 - 17:17
Nicole skrifaði:
Ich habe mich in diese Jacke verliebt. Bitte gaaaanz schnell die Anleitung online stellen!!! Die Nadeln warten schon!!!
09.06.2013 - 12:43
Samia skrifaði:
Sublime!! a conserver dans le catalogue s'il vous plait...
08.06.2013 - 19:54
DURAND skrifaði:
Beau modèle à réaliser
08.06.2013 - 10:47Linda Crowley skrifaði:
Absolutely beautiful - can't wait to make this one
05.06.2013 - 05:21
Loes skrifaði:
Deze wil ik vandaag nog aan beginnen!
03.06.2013 - 10:23
Eugenia skrifaði:
Semplice e femminile.Lo vorrei!
03.06.2013 - 00:00
Cathy skrifaði:
Le point est très joli, la forme aussi, et la laine semble douce.
02.06.2013 - 19:50
Sarah skrifaði:
Wie der Pulli dazu, auch sehr schön
01.06.2013 - 00:30
Fox Jacket#foxjacketcardigan |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk, DROPS Kid- Silk og DROPS Glitter með víðu hálsmáli og gatamynstri. Stærð S - XXXL
DROPS 150-8 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan, 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellt er af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S/M: 12, 21, 30, 39, 48 og 56 cm STÆRÐ L/XL: 12, 20, 28, 36, 44, 52 og 60 cm STÆRÐ XXL: 12, 20, 28, 36, 44, 53 og 62 cm STÆRÐ XXXL: 12, 20, 28, 37, 44, 55 og 66 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 167-189-211-233 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af Baby Alpaca Silk + 1 þræði af Kid-Silk + 2 þráðum af Glitter. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 6 l garðaprjón (= kantur að framan) A.1 yfir næstu 154-176-198-220 l (= 11 mynstureiningar á breidd), 1 l sléttprjón með rönguna fram (þ.e.a.s. með sl frá röngu), 6 kantlykkjur í garðaprjóni (= kantur að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru sett 2 prjónamerki í stykkið, fyrsta eftir 41-46-51-56 l og það seinna eftir 125-142-159-176 l (bakstykki = 84-96-108-120 l). Hægra framstykki = 41-46-51-56 l, vinstra framstykki = 42-47-52-57 l (þetta er til að mynstur á berustykki gangi jafnt upp síðar). Prjónið nú sléttprjón með 6 l garðaprjón í hvorri hlið (= kantur að framan). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPATAT í hægri kanit að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 7 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3 ½-4-4½-5 cm millibili 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 úrtökur) = 151-173-195-217 l. Þegar stykkið mælist 24-26-27-29 cm aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 3-3-2½-2 cm millibili, 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 útaukningar) = 167-189-211-233 l. Þegar stykkið mælist 38-38-37-37 cm fellið af 14-16-18-20 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 7-8-9-10 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 70-80-90-100 l eftir á bakstykki og 34/35-38/39-42/43-46/47 l á framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 42-48-54-60 l á sokkaprjóna nr 5 með 1 þræði af Baby Alpaca Silk + 1 þræði af Kid-Silk + 2 þráðum af Glitter. Prjónið 2 umf garðaprjón. Prjónið A.1 yfir allar l (= 3 mynstureiningar á breidd). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf(= mitt undir ermi). Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin. Endurtakið útaukningu með 5-4-3-2 cm millibili, 6-7-8-9 sinnum til viðbótar (= alls 7-8-9-10 útaukningar) = 56-64-72-80 l. Þegar stykkið mælist 41-38-34-31 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), prjónið A.1 yfir allar l (= 4 mynstureiningar). ATH! Byrjið fyrstu mynstureininguna af A.1 7-8-9-10 l frá prjónamerki! Í síðustu umf í A.1 eru felldar af fyrstu 14-16-18-20 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 7-8-9-10 l hvoru megin við prjónamerki)= 42-48-54-60 l eftir á prjóni (= 3 heilar mynstureiningar af A.1). Ermin mælist nú 46-44-41-39 cm. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki = 223-253-283-313 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur A.1 þar til 7 l eru eftir á prjóni, endið á 1 l sléttprjón með rönguna út og 6 kantlykkjur að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónað áfram með A.2 yfir A.1. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 103-133-163-193 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 19-45-61-87 l jafnt yfir = 84-88-102-106 l. Prjónið 1 umf br. Prjónið nú upphækkun að aftan í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í miðju l (= miðja að aftan og byrjið þannig: Prjónið 7 l sl framhjá prjónamerki við miðju að aftan, snúið við, herðið á þræði og prjónið 14 l br til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 21 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 28 l br til baka. Haldið svona áfram – prjónið yfir 7 l fleiri í hvert skiptið sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 56-56-70-70 l, snúið við og prjónið 1 umf slétt fram að miðju að framan. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af með sl frá réttu. Berustykkið mælist ca 20-24-27-31 cm (fyrir miðju að framan) og öll peysan mælist ca 58-62-64-68 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #foxjacketcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.