DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Wishing Well Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 231-10
DROPS Design: Mynstur z-960
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-250-300-300-350 g litur 3112, daufbleikur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-125-125-150 g litur 03, ljós bleikur

DROPS TALA NR 608, 6-6-6-7-7-7 st

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = prjónið frá réttu eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist 3 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum eins og útskýrt er að ofan með ca 8½-9-9-8-8-9 cm millibili.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 95-95-101-101-107-107 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Kid-Silk og 1 þræði DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju í lok hverrar brugðinnar einingar, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (= frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt = 137-137-146-146-155-155 lykkjur. Haldið svona áfram – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 5 cm frá uppfitjunarkanti, endið með 1 umferð frá röngu.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 14-14-33-33-52-52 lykkjur jafnt yfir = 151-151-179-179-207-207 lykkjur (ekki er aukið út yfir kanta að framan). Skiptið yfir á hringprjóna 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 140-140-168-168-196-196 lykkjur, endið með fyrstu lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins við miðju að framan) og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið og aukið út eftir A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 263-263-291-291-319-319 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 26-26-29-29-33-33 cm frá uppfitjunarkanti.

Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 41-41-45-45-49-49 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 54-54-60-60-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 72-72-80-80-88-88 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 54-54-60-60-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 42-42-46-46-50-50 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 167-171-187-191-207-215 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt í fyrstu umferð er aukið út um 0-2-0-8-10-24 lykkjur jafnt yfir = 167-173-187-199-217-239 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni þar til stykkið mælist 16-18-17-19-17-19 cm frá skiptingu. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 54-54-60-60-66-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 6-8-8-10-10-14 lykkjum undir ermi = 60-62-68-70-76-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-8-8-10-10-14 nýjar lykkjur undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið 3-4-4-5-5-7 lykkjur sléttprjón A.2 yfir næstu 54-54-60-66-66 lykkjur, endið með 3-4-4-5-5-7 lykkjur sléttprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3½-3½-2½-2½-1½-1½ cm millibili alls 8-8-10-10-12-13 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 30-31-28-29-25-26 cm frá skiptingu. Prjónið næstu umferð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 36-37-34-35-31-32 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Wishing Well Cardigan

Magdalena, Poland

Wishing Well Cardigan

LoHie, Finland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag FRANÇOISE LELARGE wrote:

Bonjour, puis-je utilisé un fil c et combien de pelote me faut- il ? pour ce modèle. Merci de votre réponse qui me sera la plus précieuse.

07.10.2023 - 14:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lelarge, tout à fait, vous pouvez utiliser un seul fil du groupe C pour remplacer les 2 fils du groupe A (Alpaca et Kid-Silk); utilisez notre convertisseur pour voir les alternatives et les nouvelles quantités correspondantes. Bon tricot!

09.10.2023 - 08:35

country flag Fatma KISRANE wrote:

Bonsoir comment tricoter le motif a l enver . est ce que ont tricote toutes les mailles comme elles se presente merci

28.09.2023 - 20:18

DROPS Design answered:

Bonjour, En effet, les mailles se tricotent comme elles se presentent sur l'envers (les mailles endroit et les jetés à l'envers, les mailles envers, à l'endroit). Bon tricot!

29.09.2023 - 09:52

country flag Fatma KISRANE wrote:

Bonjour je n est pas compris l augmentation d 1 maille a l envers apres chaque secion apres avoir tricoter les 3 cm de col comment les augmenter merci

27.09.2023 - 20:25

DROPS Design answered:

Bonjour, Après avoir tricoté les sections de 3 mailles enverts, vous faites 1 jeté. Au rang, suivant, vous tricotez le jeté torse. (=1 maille augmentée). Voici le tutotiel en vídeo pour vous aider à faire 1 augmentation avec 1 jeté: https://www.garnstudio.com/video.php?id=12&lang=fr Bon tricot!

28.09.2023 - 11:21

country flag Katrin wrote:

Hallo! Wird das Diagramm mit dem Muster von oben oder von unten gelesen? Vielen Dank!

23.04.2023 - 20:45

DROPS Design answered:

Liebe Katrin, Diagramme lesen Sie von unten nach oben, die Hinreihen lesen Sie rechts nach links und die Rückreihe links nach rechts. Viel Spaß beim stricken!

24.04.2023 - 10:16

country flag DOMI wrote:

Bonjour, je commence juste ce pull en taille L et je me demande s’il n’y aurait pas une erreur au niveau du diagramme. En effet la 1ere maille est elle vraiment à l’envers car en regardant de plus près le modèle photo, je ne vois aucune maille envers dans le motif. Avant de commencer le dessin, je voudrais être sûre et ne pas me tromper. Merci pour votre réponse

26.03.2023 - 10:53

DROPS Design answered:

Bonjour Domi, la 1ère maille de chaque diagramme est bien une maille envers, tricotez les diagrammes comme indiqué pour obtenir le même motif que sur les photos. (on voit très peu les mailles envers entre les diagrammes, mais en regardant bien la dernière photo, vous arriverez à les voir). Bon tricot!

27.03.2023 - 09:21

country flag Veronique wrote:

Bonjour, Peut-on tricoter ce modèle avec 1 seul fils KID-SILK en gardant les mêmes explications ?

24.01.2023 - 12:02

DROPS Design answered:

Bonjour Véronique, pas vraiment, car avec 1 seul fil Kid-Silk vous n'aurez pas le bon échantillon ( 17 m x 22 rangs jersey = 10 x 10 cm), et il vous faudrait alors tout recalculer (le rendu serait aussi différent). Bon tricot!

24.01.2023 - 12:16

country flag Renata wrote:

Czy podana próbka (17 oczek na szerokość i 22 rzędy) dotyczy drutów 4mm czy 5mm?

24.01.2023 - 10:24

DROPS Design answered:

Witaj Renato, próbka jest wykonywana na grubszych drutach (tutaj nr 5), czyli tymi którymi jest wykonywana główna część swetra. Pozdrawiamy!

24.01.2023 - 20:12

country flag Ococ wrote:

Bonjour , Quand faut il commencer le schéma A2 il n’y a pas d’explication Merci d’avance

29.11.2022 - 15:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ococ, on tricote A.2 uniquement sur les manches, pas avant. Bon tricot!

29.11.2022 - 16:47

country flag Alexandra Landau wrote:

Aber der Rapport ist doch bei L-Xl 14 Maschen breit nicht 12....da gehen nur 12 Rapport raus auf die Maschenzahl nicht 14

19.08.2022 - 09:41

DROPS Design answered:

Liebe Frau Landau, bei L/XL beginnt A.1 mit 12 Maschen - (A.1 in S/M beginnt mit 10 Maschen und A.1 in XXL/XXXL beginnt mit 14 Maschen) so stricken Sie die 12 Maschen insgesamt 14 Mal = 168 M + Blende-Maschen + die 1. Masche A.1 = 179 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

19.08.2022 - 11:32

country flag Alexandra Landau wrote:

Hallo, wenn ich xl stricke und mit 168 M plus 10M Blende stricke, habe ich den Rapport 12 Mal. Dann bin ich am Ende von A1 aber bei 251 M statt 291 M?? Die Aufteilung stimmt dann nicht.

18.08.2022 - 21:37

DROPS Design answered:

Liebe Frau Landau, in XL stricken Sie: 5 Blende + 14 x 12 Maschen A.1 + die 1. Masche A.1 + 5 Blende (=5+168+1+5=179 M). Am Ende A.1 sind es je 20 Maschen = 5 Blende + 14 x 20 M A.1 + die 1. Masche A.1 + 5 Blende = 5+280+1+5=291 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

19.08.2022 - 08:47