Shirley skrifaði:
Eso esta genial.
02.06.2013 - 17:49Bettina skrifaði:
Original technic, i imagine other knitters asking: "how did yoy do it?
01.06.2013 - 09:49
Mm skrifaði:
Please publish, this is a very striking technique.
01.06.2013 - 06:28
Sarah skrifaði:
Sehr spannendes Muster besonders in dieser Farbcombi - unauffällig grau, auffällig orange, super
31.05.2013 - 23:58
Silvia skrifaði:
Ausgesprochen "patent" dieser loop, schon lange her, daß ich patent gestrickt habe, zweifarbig noch nie. Toll!
31.05.2013 - 19:23
Edenhauser, Edelg. skrifaði:
Interessante Mütze im Muster und Farbe.
31.05.2013 - 15:27
Louise P skrifaði:
I have to try this technique. Love it!
30.05.2013 - 22:54Josenice Meneguelli skrifaði:
A técnica de trico deste modelo e fantástica!
30.05.2013 - 17:29
Heidi skrifaði:
Gelungene Kombination - auch in der Farbe
30.05.2013 - 16:30
Katrin skrifaði:
Wow!!!
30.05.2013 - 14:35
Nina#ninaset |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð húfa og hálsskjól í tveggja lita klukkuprjóni úr DROPS Nepal
DROPS 149-43 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið með litnum grár. Prjónið 1 l garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l garðaprjón. Snúið við. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið með litnum grár. Prjónið 1 l garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, 1 l garðaprjón. Færið l til baka á hringprjóninum þannig að prjónað er frá sömu hlið einu sinni til viðbótar og skiptið um lit (SJÁ LEIÐBEININGAR 1 og 2). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið með litnum skærgulur. Prjónið 1 l garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l garðaprjón. Snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið með litnum grár. Prjónið 1 l garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman, 1 l garðaprjóni. Færið til baka l á hringprjóninum þannig að prjónað sé frá sömu hlið einu sinni til viðbótar og skiptið um lit. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið með litnum skærgulur. Prjónið 1 l garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið á að slá 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið og 1 l garðaprjón. Snúið við. Endurtakið umf 2- 5. LEIÐBEININGAR 1: Til að klukkuprjónið komi röndótt er prjónað fram og til baka á hringprjóna þannig: Prjónið umf 1 og 2 eins og útskýrt er frá að ofan. Færið til allar l á annan endann á hringprjóninum þannig að næsta umf er prjónuð með nýjum lit en frá sömu hlið og umf 2. Snúið síðan við og næstu 2 umf eru prjónaðar frá hinni hliðinni alveg eins og umf 2 og 3. Það þýðir að prjónuð er 1 umf í hvorum lit frá sömu hlið áður en snúið er við. LEIÐBEININGAR 2: Ef þú er ekki alveg viss um hvaða lit þú átt að prjóna með, getur þú alltaf séð hvaða litur var prjónaður með í fyrri umf á litnum í kantinum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og saumuð saman í lokin. HÚFA: Fitjið upp 72-81 l á hringprjón nr 5 með litnum grár. Prjónið 1 umf slétt. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓNI – sjá útskýringu að ofan, * 1 l br, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir og endið á 1 l br og 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN = 49-55 l. Prjónið nú TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 23-24 cm – passið uppá að enda eftir umf 5 og prjónið næstu umf með litnum grár þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman og 1 l garðaprjón. Snúið við og haldið áfram með stroff 1 l sl og 1 l br með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið með litnum grár þar til stroffið mælist ca 3 cm. Prjónið 4 umf slétt, JAFNFRAMT í 2. umf frá réttu eru prjónaðar 2 og 2 l saman, endurtakið 4 sinnum = 13-14 l. Stykkið mælist nú ca 27-28 cm. Þræðið þráðinn í gegnum síðustu l efst uppi og saumið húfuna saman við miðju að aftan, garðaprjón við garðaprjón. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. HÁLSSKJÓL: Fitjið laust upp 161-173 l á hringprjóna nr 6 með litnum grár og prjónið fram og til baka á hringprjón. Prjónið TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist ca 27-32 cm – stillið af þannig að endað sé eftir umf 5. Snúið við og prjónið næstu umf með litnum grár frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í næstu umf er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. Klippið frá og saumið hálsskjólið saman með smáu spori, saumið yst í lykkjubogann og festið enda. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ninaset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-43
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.