Little Red Riding Hood |
||||||||||
|
||||||||||
Hekluð kápa með hettu úr DROPS Paris. Stærð börn 3-12 ára
DROPS Children 24-37 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta st í umf er skipt út fyrir 3 ll. MYNSTUR (sjá einnig mynsturteikningu A.1): UMFERÐ 1 (= umf merkt með ör í mynstri): Heklið 1 ll upp frá 1. fl frá fyrri umf, [3 ll, heklið síðan 4 st saman þannig (= 1 st-hópur): * Heklið 1 st í næstu fl, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjur á heklunálinni, 1 ll, 1 fl í næstu fl], endurtakið frá [-] umf hringinn. Snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 5 ll upp frá fyrstu fl, 1 fl efst á fyrsta st-hópnum, * 3 ll, 1 st-hópur um 3-ll-boga frá fyrri umf, 1 ll, 1 fl efst á næsta st-hóp *, endurtakið frá *-*, endið á 3 ll og 4 st saman um síðasta ll-bogann. Snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, 1 fl efst á fyrsta st-hóp, * 3 ll, 1 st-hópur um 3 ll-boga frá fyrri umf, 1 ll, 1 fl efst á næsta st-hóp *, endurtakið frá *-*, síðasta fl í umf er hekluð eins og 5-ll-boga frá byrjun á fyrri umf. Snúið við. Endurtakið umf 2 og 3. ÚRTAKA: Fækkið um 1 st með því að hekla saman 2 st þannig: Heklið 1 st í fyrsta st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar. Fækkið um 2 st með því að hekla 3 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrsta st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næsta st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næsta st, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KÁPA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki og framstykkin eru hekluð hvert fyrir sig, fram og til baka sem og ermar. Stykkin eru svo saumuð saman í lokin. BAKSTYKKI: Heklið 61-63-68-73-78 ll með Paris með heklunál nr 6. Snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, haldið áfram með 1 st í hverja af næstu 2-4-4-4-4 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af 4 næstu ll *, endurtakið frá *-* út umf = 48-50-54-58-62 st – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið áfram með st í öllum umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15 cm, er fækkað um 1 st í hvorri hlið með því að hekla 2 næst síðustu st saman – SJÁ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 5-5-6-6-7 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 40-42-46-50-54 st. Þegar stykkið mælist 33-36-39-42-45 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig. Heklið kl yfir fyrstu 2-2-3-4-5 st, heklið nú st saman þar til 2-2-3-4-5 st eru eftir, snúið við. Haldið áfram með st, nú eru 36-38-40-42-44 st í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist ca 47-51-55-59-63 cm. Heklið nú 1 umf með st einungis yfir síðustu 12-13-13-14-14 st í hvorri hlið fyrir öxl (miðju 12-12-14-14-16 st = hálsmál). Klippið frá. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið 34-36-38-41-43 ll með Paris og heklunál nr 6. Snúið við og heklið 1 stí 4. ll frá heklunálinni, haldið áfram með 1 st í hverja af næstu 5-2-4-2-4 næstu ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 27-28-30-32-34 st. Haldið áfram með st í öllum umf (þeir 3 síðustu st við miðju að framan = kantur að framan). Þegar stykkið mælist 15 cm, byrjar úrtaka í hlið eins og á bakstykki. Þegar úrtöku er lokið eru 23-24-26-28-30 st eftir í umf. Þegar stykkið mælist 33-36-39-42-45 cm er ekki lengur heklað yfir síðustu 2-2-3-4-5 st í hlið. Haldið áfram með st yfir þær 21-22-23-24-25 st sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 43-47-50-54-57 cm, er ekki lengur heklað yfir síðustu 7-7-8-8-9 st við miðju að framan. Fækkið nú um 1 st við miðju að framan í næstu 2 umf með því að hekla 2 næst síðustu st við miðju að framan saman = 12-13-13-14-14 st eftir á öxl. Klippið frá þegar stykkið mælist 48-52-56-60-64 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. ERMI: Heklið 32-32-32-39-39 ll með Paris með heklunál nr 6 snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja af næstu 5-5-5-2-2 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 26-26-26-31-31 fl (ll sem snúið var við með eru ekki taldar sem 1 fl). Haldið áfram með MYNSTUR þannig – sjá útskýringu að ofan og mynstur A.1: Mynstur a yfir 6 fyrstu fl, mynstur b 3-3-3-4-4 sinnum og mynstur c yfir síðustu 5 fl – byrjið með umf merktri með ör. Þegar heklaðar hafa verið 5 umf af mynstri, mælist stykkið ca 8 cm. Haldið áfram með st þannig: Heklið 3 ll (= 1 st), * 1 st efst á fyrsta st-hópinn, 3 st um 3-ll-bogann, 1 st í fl *, endurtakið frá *-* út umf, en endið á 3 st um síðasta 3-ll-bogann (ekki hekla 1 st í síðustu fl) = 25-25-25-30-30 st. Haldið áfram með 1 st í hvern st. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 st í hvorri hlið með því að hekla 2 st í næst síðasta st. Endurtakið útaukningu í 2.-2.- 2.- 3.- 3. hverri umf 3-4-5-4-5 sinnum til viðbótar = 33-35-37-40-42 st. Þegar stykkið mælist 26-30-34-37-41 cm, byrjar úrtaka fyrir ermakúpu. Heklið kl yfir fyrstu 3 st, síðan eru heklaðir st fram þar til 3 st eru eftir, snúið við. Heklið 3 ll, heklið nú 3 næstu st saman – SJÁ ÚRTAKA! Heklið nú st þar til 4 st eru eftir, heklið 3 næstu st saman, heklið 1 st í síðasta st. Haldið svona áfram með því að hekla 3 næst síðustu st saman í hverri umf þar til stykkið mælist 33-37-41-45-49 cm, klippið frá. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma, hliðarsauma og ermasauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið síðan ermar í fram- og bakstykki. HETTA: Heklið (frá réttu) ca 30 til 40 fl í kringum hálsmálið með Paris og heklunál nr 6. Snúið við og heklið fl til baka jafnframt sem aukið er út jafnt yfir (með því að hekla 2 fl í 1 fl) að 51-51-51-61-61 fl. Haldið áfram með MYNSTUR þannig (sjá einnig útskýringu að ofan og mynstur A.1): a yfir 6 fyrstu fl, b þar til 5 fl eru eftir og c yfir síðustu fl – byrjið á umf merktri með ör. Haldið áfram með mynstur þar til hettan mælist ca 28-29-30-31-32 cm. Klippið frá og saumið saman hettuna að ofan. KANTUR: Heklið kant í kringum op á kápunni, byrjið neðst niðri á hægra framstykki, heklið upp í kringum hettuna og niður meðfram vinstra framstykki. Heklið með Paris og heklunál nr 6 þannig: Heklið ca 181-191-201-211-221 fl, lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 5 + 11. Snúið við og haldið áfram með MYNSTUR eftir mynstri A.1: A.1a yfir 6 fyrstu fl, A.1b þar til 5 fl eru eftir og A.1c yfir síðustu fl – byrjið á umf merktri með ör. Klippið frá og festið enda þegar A.1 hefur verið heklað til loka 1 sinni á hæðina. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan, þá efstu ca 2 cm frá hálsmáli, þá neðstu ca 8 cm frá neðri brún. Staðsetjið tölur sem eftir eru á milli þessa talna. Tölum er hneppt í gegnum kant að framan í hægra framstykki. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (31)
Sonja wrote:
Hallo! Ich bin etwas verzweifelt, da ich denn Beginn der Anleitung für das Rückenteil leider nicht verstehe. Ist das * falsch gesetzt oder soll anstatt fM vielleicht Stb stehen? Wenn die Anleitung von *zu* wiederholt würde,werden keine Stb gehäkelt,es sollen aber in der kleinsten Größe 48 Stb enstehen. Ich würde mich sehr über einen Tipp freuen! Viele Grüße,Sonja
06.07.2013 - 14:06DROPS Design answered:
Liebe Sonja, Sie haben völlig Recht. Wir haben das im Team angeschaut und gesehen, dass wir unsere Designabteilung dazu befragen müssen. Sobald die Designerinnen aus den Ferien zurück sind, wird das bearbeitet. Bis dahin danken wir für Ihre Geduld!
09.07.2013 - 22:17