Peggy Rognan skrifaði:
Hvor ligger mønsteret. Ser bare en hvit genser som er tegnet opp. Ikke noe diagram å gå etter-
13.07.2017 - 10:18DROPS Design svaraði:
Hej Peggy, du finder mønster A.1 til højre for måleskitsen nederst i opskriften. God fornøjelse!
13.07.2017 - 10:36
Britta Wild skrifaði:
Hallo, ist die Anleitung für den Ärmel komplett? Auf dem Foto sieht man die 2 Krausrippen bei 14 und bei 22 cm. Diese sind auch in der Anleitung beschrieben. Zusätzlich sieht man auf dem Foto aber auch noch Krausrippen oben an der Schulter, wo der Ärmel an den Pulli angenäht wird. Außerdem wird nicht beschrieben, wie die Schulter zu stricken ist? Kann es sein, dass man im Muster weiterstrickt, ohne Abnahmen zu stricken? Ich freue mich auf eine Antwort.
06.07.2017 - 19:12DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Wild, es gibt nur die 2 Krausrippen bei 14 und 22 cm, ganz am Ende der Ärmel werden die Maschen abgekettet + zusammengenäht. Es gibt keine Abnahme für Armkugel, wie im Maßskizze gezeigt. Viel Spaß beim stricken!
07.07.2017 - 09:17
Unni Kvil Nordal skrifaði:
Hei! Vil gjerne ha denne genseren 6 cm lenger (bolen). Hvor mye garn må jeg da ha i tillegg i størrelse XL?
15.06.2016 - 18:33DROPS Design svaraði:
Hei Unni. Det kan jeg desvaerre ikke hjaelpe dig med. Jeg vil tro butikken kan hjaelpe dig med dette. God fornöjelse.
16.06.2016 - 14:28
Nancy skrifaði:
Esce possible de voir le diagramme de ce modele....je ne le voie pas dans les explications......merci beaucoup...
09.04.2016 - 17:38DROPS Design svaraði:
Bonjour Nancy, vous trouverez le diagramme A.1 à droite du schéma des mesures, sous la manche, c'est un petit diagramme qui se tricote sur 2 m et 4 rangs - voir aussi A.4 dans la vidéo ci-dessous. Bon tricot!
10.04.2016 - 18:50
Carmen Gil skrifaði:
Hola,quisiera saber si este patrón se puede hacer sin agujas circulares.Y el cuello,también se podria rematar sin agujas circulares?,no las domino muy bien.GRacias
04.11.2015 - 00:21DROPS Design svaraði:
Hola Carmen, se puede trabajar con agujas rectas. La complejidad está en la cantidad de pts que debes tener en la aguja (muchos pts). Para la cenefa del cuello puedes usar agujas rectas pero en este caso debes dejar abierto el hombro izquierdo para trabajar el cuello de ida y vta y luego cerrarlos juntos (hombro y cenefa del escote)
08.11.2015 - 10:20
Birte Andreasen skrifaði:
Der går 2 nøgler garn mere til, end der står i opskriften.
14.09.2015 - 14:50
Karin skrifaði:
Under diagrammets ärm till höger som vanligt!
28.05.2015 - 21:46
Inger Svensson skrifaði:
VAR är diagrammet?
28.05.2015 - 17:57
Carla skrifaði:
Scusa ripeto la frase che è venuta male: il segnapunto che metto dove dicono le spiegazioni(maniche) non corrisponde mai con le calature per lo scalfo, ma di tanto.
16.05.2015 - 08:07
Carla skrifaði:
Si molto probabilmente è un problema a monte, cioè al numero di aumenti delle maniche. Ora sto lavorando una XL e appena inizio le maniche provo ad aumentare il numero degli aumenti richiesto nelle spiegazioni e vi faccio sapere. Grazie mille per l'interesse e complimenti per il vostro lavoro Carla Camilloni
21.04.2015 - 09:26
Everyday#everydaysweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Bomull Lin eða DROPS Paris með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 145-12 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ATH: Allar kantlykkjur í hliðum eru prjónaðar í garðaprjóni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, mynsturteikningin sýnir allar umf í 1 mynstureiningu séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni upp á prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafn óðum inn í mynstur A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 58-62-66-70-78-86 l á hringprjóna nr 5,5 með Bomull Lin. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN –sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). Prjónið nú A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm eru prjónaðar 4 umf garðaprjón yfir allar l. Prjónið nú A.1 þar til stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, heklið nú 4 umf garðaprjón yfir allar l (= 2 rendur í garðaprjóni á milli mynstra í A.1). Prjónið nú A.1 þar til stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, prjónið nú 2 umf slétt yfir allar l – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á þessum 2 umf þannig: Fellið af 4-4-4-4-6-8 l = 50-54-58-62-66-70 l. Prjónið 2 umf slétt til viðbótar yfir allar l (= 4 umf garðaprjón alls), prjónið nú A.1 og 1 garðaprjón l í hvorri hlið til loka. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm fellið af miðju 12-12-14-14-16-16 l við háls og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 2 l í næstu umf frá hálsmáli = 17-19-20-22-23-25 l eftir á öxl. Fellið nú laust af allar l þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm = 50-54-58-62-66-70 l á prjóni. Í næstu umf frá réttu eru felldar af miðju 6-6-8-8-10-10 l við hálsmál, prjónið nú hvora öxl til loka fyrir sig. Fellið af í hverri umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 l 2 sinnum, 1 l 1 sinni = 17-19-20-22-23-25 l eftir á öxl. Fellið nú laust af allar l þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 28-30-30-32-34-36 l á hringprjóna nr 5,5. Prjónið 4 umf garðaprjón (1. umf = rétta). Prjónið nú A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-8-8-7-7-7 cm aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING, nýju l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Endurtakið útaukningu með 10-8-6½-6½-6-6 cm millibili 4-5-6-6-6-6 sinnum til viðbótar (alls 5-6-7-7-7-7 sinnum) = 38-42-44-46-48-50 l – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 14 cm eru prjónaðar 4 umf garðaprjón yfir allar l, haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 22 cm, prjónið nú 4 umf garðaprjón (= 2 rendur í garðaprjóni á milli mynstra í A.1). Prjónið nú A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni þar til stykkið mælist 50-49-49-48-45-43 cm, nú er sett 1 prjónamerki í hvorri hlið á ermi (fyrir frágang). Haldið áfram þar til stykkið mælist 53-52-52-51-50-50 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla. Fellið laust af. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma yst í lykkjubogann. Saumið ermar í og saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju. ATH: Mynstureiningin sem prjónuð var á eftir prjónamerki efst á ermi á að passa inni í úrtöku fyrir handveg. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður, en skiljið eftir ca 8 cm fyrir op/klauf. HÁLSMÁL: Stykkið er prjónað í hring. Prjónið upp frá réttu ca 70-80 l í kringum hálsmál með hringprjónum nr 5,5 (40 cm). Í næstu umf er prjónað br yfir allar l – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út að 62-62-68-68-74-74 l. Prjónið 1 umf slétt og 1 umf brugðið (= 4 umf garðaprjón alls), fellið laust af allar l í næstu umf. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #everydaysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.