DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4114.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 145-19
DROPS Design: Mynstur nr cl-015
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
550-650-700-750-800-900 gr litur nr 27, mynta
DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 17 st og 10 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4114.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Heklað er eftir mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚRTAKA:
Snúið við þegar 1 st er eftir = 1 st færri.

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að hekla 1 st + 1 ll aukalega í síðasta st í hvorri hlið. Útauknar lykkjujr eru heklaðar jafnóðum inn í mynstur A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Bakstykkið er heklað fram og til baka.
Bakstykkið er heklað 6 cm lengra en framstykki.
Heklið eina umf með 88-94-102-110-120-130 LAUSUM ll (mikilvægt er að ll séu lausar svo að kanturinn verði ekki of stífur) með heklunál nr 4 með Cotton Light. Snúið við og heklið 1 st í 6. ll frá heklunálinni (A.1A hefur nú verið heklað – sjá mynsturteikningu í mynstri). Heklið A.1B yfir næstu 80-86-94-102-112-122 ll og endið á A.1C í 2 síðustu ll. Haldið nú áfram að hekla eftir A.2B þar til 2 st/ll eru eftir, heklið A.2C = 85-91-99-107-117-127 st. Haldið áfram með A.2 til loka. Þegar stykkið mælist 53-54-55-56-57-58 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (merkir byrjun á handveg). Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm heklið ekki yfir miðju 27-29-31-33-35-37 st = 29-31-34-37-41-45 st eftir á hvorri öxl. Hvor öxl er nú hekluð til loka fyrir sig. Haldið áfram með A.2, klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og heklið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm – ATH! Bakstykkið á að vera 6 cm lengra en framstykki – þess vegna verður lengdarmælingin misjöfn. Heklið nú þannig: Heklið A.2A, endurtakið A.2B þar til 2 st/ll eru eftir, heklið A.2C = 85-91-99-107-117-127 st. Haldið áfram með A.2 til loka. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (merkir byrjun á handveg). Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm heklið ekki yfir miðju 23-25-27-29-31-33 st. Heklið nú hvora öxl til loka fyrir sig, jafnframt er fækkað um 1 st í hverri umf við hálsmál alls 2 sinnum – lesið ÚRTAKA = 29-31-34-37-41-45 st eftir á hvorri öxl. Haldið áfram með A.2, klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm.

ERMI:
Ermin er hekluð fram og til baka.
Heklið eina umf með 48-48-50-52-54-56 LAUSAR ll (mikilvægt er að ll séu lausar svo að kanturinn verði ekki of stífur) með heklunál nr 4 með Cotton Light. Snúið við og heklið 1 st í 6. ll frá heklunálinni (A.1A hefur nú verið heklað). Heklið A.1B yfir næstu 40-40-42-44-46-48 ll og endið á A.1 C í 2 síðustu ll = 45-45-47-49-51-53 st/ll. Haldið nú áfram með A.1. Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 7-5-4½-3½-3½-3 cm millibili 5-7-8-9-9-10 sinnum til viðbótar (alls 6-8-9-10-10-11 útaukningar) = 57-61-65-69-71-75 st/ll. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 49-48-47-46-44-41 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma. Saumið ermar í – frá öxl og niður að prjónamerki á fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt, endið þegar 26 cm eru eftir á bakstykki og 20 cm á framstykki = klauf.

Mynstur

symbols = loftlykkja
symbols = stuðull
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (117)

country flag Bonnie Stockton wrote:

I purchased this pattern and love it; however I can’t start it as it is the most difficult pattern to read , follow and understand that I have ever purchased.

29.10.2023 - 02:40

DROPS Design answered:

Dear Bonnie, all of our patterns are available for free on this webpage. You can also ask any questions related to the patterns here. You can also ask the DROPS store where you bought the yarn for more help understanding the patterns. Happy knitting!

29.10.2023 - 18:41

country flag Alita Porter wrote:

A seller called VintagePatternFaves is selling this pattern on the E T S Y site.

29.05.2023 - 20:41

country flag Ann wrote:

This pattern is being sold on Etsy as if it is a vintage pattern, is that according to your policy?

26.04.2022 - 20:22

country flag Christel wrote:

Hallo 🤗, Ich bin kein Häkelprofi, finde diesen Pulli absolut supi 😍 und möchte ihn mir häkeln 😅 Ich weiß jedoch nicht, welche Größe und wieviel Wolle ich dazu benötige 🤷‍♀️ Ich würde mich sehr freuen, wenn Sie mir weiterhelfen könnten

18.03.2022 - 13:30

DROPS Design answered:

Liebe Christel, am besten messen Sie zuerst einen ähnlichen Pullover, die Sie gerne tragen; und vergleichen Sie diese Maßen mit den in der Maßskizze - hier lesen Sie mehr. Die Garnmenge finden Sie ganz am Anfang oben, z.B. in S brauchen Sie 550 g DROPS Cotton Light / 50 g das Knäuel = 11 Knäuel. Viel Spaß beim häkeln!

18.03.2022 - 15:40

country flag Zjiraffe wrote:

To me, by using this yarn, this work is labour. Each stitch takes ages and the yarn easily splits. Although i am using a larger crochet hook, it is very difficult to penetrate the right stitch. This is no fun 🙁

15.01.2022 - 16:40

country flag Jose wrote:

Beste drops team, Na de losse ketting , haak je 1 stokje , en 1 losse en herhaal je dit tot je moet keren . In de teruggaande toer doe je het zelfde . Mijn vraag is , moet je voor deze trui, OM de losse haken van de vorige toer haken, of IN de losse van de vorig toer ?

07.06.2021 - 20:59

country flag Lissy Sprenger wrote:

Graag wil ik weten welke maat ik moet kiezen. Ik heb maat 36, maar als ik kijk bij maat S, dan wordt een pand maar 50 cm breed. Dat is niet echt ovetsized, zoals op de foto. Gewoon 1 maat groter nemen if zie ik iets over het hoofd? Bij voorbaat dank voor uw antwoord

17.02.2021 - 20:50

DROPS Design answered:

Dag Lissy,

Bij een aansluitend model is het voorpand in maat S ongeveer 39 cm breed, bij dit model 50 cm, dus er is wel sprake van oversizing. Je kan er ook een bestaande trui bij waarvan je de maten goed vindt en dan met de maten in de tekening vergelijken.

18.02.2021 - 09:28

country flag Esther wrote:

Ik heb drie maal achter elkaar een proeflapje gehaakt op dezelfde avond en daarna ben ik de lossenketting gaan haken. Het lijkt mij sterk dat ik in een uur ineens zeer strak ben gaan haken. Ik weet wat mij te doen staat. Het is voor jullie blijkbaar ook niet te verklaren, Ik ga de garens terugsturen naar de leverancier en een ander leuk patroon zoeken. Dit is voor mij als patroon te onbetrouwbaar om mee door te gaan.

06.02.2021 - 16:04

country flag Esther wrote:

Vooraf heb ik de stekenverhouding getest en die is met haaknaald 4 precies 10 x 10 cm. Ik heb het aantal lossen opgezet voor de maat XL. 110 lossen zowel bij het voor- als achterpand een lengte van 63 cm moeten opleveren. Ik kom na 4 rijen haken uit op een breedte van 58 cm. De rij met lossen heb ik heel los gehaakt en is dus niet strakker dan de rest van het haakwerk. Waarom zit er een verschil van 5 cm in de breedte, terwijl de stekenverhouding perfect is qua afmetingen? Bedankt alvast!

02.02.2021 - 23:49

DROPS Design answered:

Dag Esther,

Met een stekenverhouding van 17 stokjes in de breedte = 10 cm, zou je op ongeveer 64 cm in de breedte uit moeten komen wanneer je 110 stokjes op hebt gezet. Heb je de stekenverhouding nog eens nagkekeen? Kan het zijn dat je toch in de loop van de tijd strakker bent gaan haken?

06.02.2021 - 11:32

country flag Kathy wrote:

Hi, my first crochet garment. What does ...1 C in the last two chains mean? ( this is at the end of the first row on the back piece. Thank you

01.09.2020 - 02:07

DROPS Design answered:

Dear Kathy, you are here working following the diagrams A.1 and A.2. These diagrams are divided into 3 parts: A.1A/A.2A = beg of row from RS/end of row from WS, A.1B/A.2B = middle of the row and A.1C/A.2C = end of the row from RS/beg of row from WS. Read more about diagrams here. Happy crocheting!

01.09.2020 - 09:44