Lien Tu Tran skrifaði:
Nydelig, jeg skal strikke
03.01.2013 - 18:33
Angela skrifaði:
Molto elegante, punto semplice
03.01.2013 - 12:29
Christina skrifaði:
Väldigt fin
30.12.2012 - 15:31
Breezeway skrifaði:
A longer version of this would make a great beach coverup. The pattern is simple but elegant.
29.12.2012 - 18:11
Anitta skrifaði:
Pitsitunika
28.12.2012 - 10:52
Barb skrifaði:
Very nice and light and flattering
23.12.2012 - 11:10
Bente skrifaði:
Flot.
20.12.2012 - 13:28
Inna skrifaði:
I like it
17.12.2012 - 18:36
Silja Cardel skrifaði:
Jeg elsker denne model! Helt enkel, luftig og sildebens strikken ned foran på maven gør den virkelig sød. Den MÅ jeg bare strikke!!
17.12.2012 - 01:43
Helle Reinhold skrifaði:
Den er bare en jeg helt sikkert skal strikke hvis opskriften kommer.
11.12.2012 - 11:35
Shell#shellsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Light með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 145-14 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): * Prjónið 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 192-212-224-244-272-300 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið stroff 2 l sl, 2 l br. Þegar stykkið mælist 5 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt, JAFNFRAMT er fækkað um 48-52-56-60-64-76 l jafnt yfir = 144-160-168-184-208-224 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 72-80-84-92-104-112 l = hliðar. Prjónið nú þannig: * Prjónið 1 l sl, A.1 A (= 2 l), prjónið A.1 B yfir næstu 20-24-26-30-36-40 l, A.1 C (= 2 l), A.3 (= 22 l), A.2 A (= 2 l), endurtakið A.2 B yfir næstu 20-24-26-30-36-40 l, A.2 C (= 2 l), 1 l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm (í næstu umf án gata) fækkið um 4 l hvoru megin við hvort prjónamerki = 64-72-76-84-96-104 l á framstykki og 64-72-76-84-96-104 l á bakstykki. Hvort stykki er nú prjónaður til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 64-72-76-84-96-104 l. Prjónið nú með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 1 l sl, A.1A, endurtakið A.1B yfir næstu 16-20-22-26-32-36 l, A.1C, A.3, A.2 A, endurtakið A.2 B yfir næstu 16-20-22-26-32-36 l, A.2 C, 1 l sl. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af miðju 32-32-34-34-36-36 l af fyrir hálsmáli = 16-20-21-25-30-34 l eftir á hvorri öxl. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með A.1 / A.2 með 1 l sl við handveg. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm fellið af. FRAMSTYKKI: = 64-72-76-84-96-104 L. Prjónið nú með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 1 l sl, A.1 A, endurtakið A.1 B yfir næstu 16-20-22-26-32-36 l, A,1C, A.3, A.2 A, endurtakið A.2 B yfir næstu 16-20-22-26-32-36 l, A.2 C, 1 l sl. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 50-52-54-55-57-59 cm. Setjið miðju 20-20-22-22-24-24 l á þráð fyrir hálsmáli. Nú er hvor öxl prjónuð til loka fyrir sig (haldið áfram með mynstur eins og áður), JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 l 2 sinnum og 1 l 2 sinnum = 16-20-21-25-30-34 l eftir á prjóni. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið af þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka. ATH! Öll mæling er gerð þegar stykkinu er haldið uppi svo að ermin verði ekki of löng. Fitjið upp 50-50-54-54-58-58 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið stroff 2 l sl, 2 l br með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 5 cm er skipt yfir á prjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt frá réttu, JAFNFRAMT er fækkað um 12-10-12-10-12-10 l jafnt yfir = 38-40-42-44-46-48 l. Prjónið 1 umf br. Prjónið eftir A.4 með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Haldið áfram með þetta mynstur, þegar stykkið mælist 8-8-8-8-7-7 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 4 cm millibili 9-9-10-10-11-12 sinnum til viðbótar (alls 10-10-11-11-12-13 útaukningar) = 58-60-64-66-70-74 l – útauknar l eru prjónaðar inn jafnóðum inn í A.4. Þegar stykkið mælist 53-52-51-50-47-46 cm (ATH! Styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf þannig: Fellið af 5 l 3 sinnum í hvorri hlið = 28-30-34-36-40-44 l. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 56-55-54-53-50-49 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Saumið ermar í. Saumið saman undir ermum. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 80 - 94 l í kringum hálsmál (meðtaldar l á þræði) á stutta hringprjóna nr 4 með Cotton Light. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #shellsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.