Anita Tholen skrifaði:
Mooi vest, maar dan zonder dat koordje als sluiting.
19.12.2012 - 07:47
Tineke Lanting skrifaði:
Super mooi hoop dat model zo blijft.
16.12.2012 - 10:28
Nicole skrifaði:
La couleur, le motif.. idéal pour les petites soirées d'été
13.12.2012 - 18:10
Elena skrifaði:
Camelia
13.12.2012 - 16:01
Tetsje skrifaði:
Heel mooi, ik zou het maken met een knoopsgat en grote knoop, ik hou niet zo van koordjes
13.12.2012 - 10:25
De Rijck skrifaði:
Tof voor iets frissere zomeravonden, komt altijd van pas
11.12.2012 - 18:59
Margit skrifaði:
Meget smuk trøje og flot mønster
11.12.2012 - 16:40
Claudia skrifaði:
Sehr schönes Gilet, das Bindebändchen ist überflüssig.
10.12.2012 - 20:10
Calista#calistacardigan |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð ermalaus peysa úr DROPS Cotton Light eða DROPS Belle með gatamynstri. Stærð S - XXXL
DROPS 148-14 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Fækkið lykkjum innan við 11 síðustu l í hvorri hlið (= framkantur + 1 l). Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 11 l þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum á undan 11 l þannig: Prjónið 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 316-316-368-368-436-436 l (meðtaldar eru 10 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með Cotton Light eða Belle. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: STÆRÐ S + M: Prjónið 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br (= kantur að framan), prjónið A.1 (= 14 l), prjónið A.2 (= 30 l) alls 2 sinnum, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið A.3 (= 30 l) alls 2 sinnum, prjónið A.1 alls 2 sinnum, A.2 alls 2 sinnum, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið A.3 alls 2 sinnum, A.1 einu sinni og endið með 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl og 2 l GARÐAPRJÓN (= kantur að framan). STÆRÐ L + XL: Prjónið 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br (= kantur að framan), prjónið A.1 (= 14 l) alls 2 sinnum, prjónið A.2 (= 30 l) alls 2 sinnum, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið A.3 (= 30 l) alls 2 sinnum, prjónið A.4 (= 52 l), A.2 alls 2 sinnum, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið A.3 alls 2 sinnum, A.1 alls 2 sinnum og endið með 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl og 2 l GARÐAPRJÓN (= kantur að framan). STÆRÐ XXL + XXXL: Prjónið 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br (= kantur að framan), prjónið A.1 (= 14 l), prjónið A.2 (= 30 l) alls 3 sinnum, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið A.3 (= 30 l) alls 3 sinnum, prjónið A.1 alls 2 sinnum, A.2 alls 3 sinnum, setjið 1 prjónamerki (= hlið), prjónið A.3 alls 3 sinnum, A.1 (= 14 l) og endið með 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl og 2 l GARÐAPRJÓN (= kantur að framan). ALLAR STÆRÐIR: Haldið svona áfram með stroff þar til mynstrið hefur verið prjónað á hæðina (látið prjónamerki fylgja með í stykkinu), stykkið mælist ca 4 cm og nú eru 228-228-267-267-312-312 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umf frá röngu með sl yfir sl og br yfir br. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: STÆRÐ S + M: Prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður, A.5 (= 10 l), prjónið A.6 (= 21 l) alls 2 sinnum, (prjónamerki), prjónið A.7 (= 21 l) alls 2 sinnum, prjónið A.5 alls 2 sinnum, prjónið A.6 alls 2 sinnum, (prjónamerki), prjónið A.7 alls 2 sinnum, prjónið A.5 (= 10 l) og endið með 10 kantlykkjum að framan eins og áður. STÆRÐ L + XL: Prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður, A.5 (= 10 l) alls 2 sinnum, prjónið A.6 (= 21 l) alls 2 sinnum, (prjónamerki), prjónið A.7 (= 21 l) alls 2 sinnum, prjónið A.8 (= 39 l), prjónið A.6 alls 2 sinnum, (prjónamerki), prjónið A.7 alls 2 sinnum, prjónið A.5 alls 2 sinnum og endið með 10 kantlykkjum að framan eins og áður. STÆRÐ XXL + XXXL: Prjónið 10 kantlykkjur að framan eins og áður, A.5 (= 10 l), prjónið A.6 (= 21 l) alls 3 sinnum, (prjónamerki), prjónið A.7 (= 21 l) alls 3 sinnum, prjónið A.5 alls 2 sinnum, prjónið A.6 alls 3 sinnum, (prjónamerki), prjónið A.7 alls 3 sinnum, prjónið A.5 (= 10 l) og endið með 10 kantlykkjum að framan eins og áður. ALLAR STÆRÐIR: Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm eru prjónaðar 2 umf fram og til baka einungis yfir síðustu 10 l í annarri hliðinni á stykkinu (þ.e.a.s. einungis yfir kantlykkjur að framan, aðrar l eru ekki prjónaðar), snúið við, prjónið 1 umf mynstur eins og áður yfir allar l og endurtakið þetta síðan yfir síðustu 10 l í hinni hliðinni (þetta er gert til þess að hálsmálið leggist betur að). Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l í hvorri hlið við miðju að framan fyrir hálsmáli – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku fyrir hálsmáli í hvorri hlið í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu), 4-4-14-13-12-12 sinnum til viðbótar og síðan í 6. hverri umf alls 6-6-1-2-3-3 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm skiptist stykkið við prjónamerki og fram- og bakstykki er nú prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 104-104-123-123-146-146 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður á fram- og bakstykki. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l fyrir ermar í lok hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 5 l alls 3 sinnum og síðan 8-10-8-10-8-10 l 1 sinni = 150-154-169-173-192-196 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.6/A.7. Þegar búið er að auka út allar l er haldið áfram með mynstur eins og áður en síðustu 4 l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (í stærðum S + L + XXL endar mynstrið á 2 l br innan við 4 l í garðaprjóni í hvorri hlið og í stærðum M + XL + XXXL endar mynstrið með 2 l sl innan við 4 l í garðaprjóni í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm eru felldar af miðju 20-20-29-29-30-30 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 64-66-69-71-80-82 l eftir á prjóni. Haldið áfram með mynstur með 1 l garðaprjón við hálsmál og 4 l garðaprjón við ermi (þær l sem ekki ganga upp í mynstur við hálsmál eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm er fellt laust af. Endurtakið á sama hátt á hinni öxlinni. HÆGRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram með mynstur og úrtöku fyrir hálsmáli eins og áður. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l fyrir ermi í lok hverrar umf í hlið eins og á bakstykki. Eftir að úrtöku er lokið fyrir hálsmáli eru 74-76-79-81-90-92 l eftir á prjóni (þær l sem ekki ganga upp í mynstur við hálsmál eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm eru felldar af síðustu 64-66-69-71-80-82 l á öxl = 10 l eftir á prjóni fyrir hálsmáli. Haldið áfram með stroff eins og áður en síðustu l við hálsmál eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar hálsmálið mælist ca 7-7-9-9-10-10 cm frá öxl eru l settar á þráð. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Saumið saman kant við hálsmál við miðju að aftan – saumið l fyrir l með lykkjuspori og saumið kantinn við hálsmál að aftan við hnakka. BELTI: Fitjið upp 4 l á sokkaprjóna nr 3 með Cotton Light eða Belle. Prjónið 1 umf slétt, * færið l til hægri á prjóninum án þess að snúa við, herðið á þræðinum á bakhlið og prjónið 1 umf slétt frá sömu hlið eins og fyrri umf *, endurtakið frá *-* (með þessu er hægt að prjóna hringlaga snúru í sléttprjóni án þess að prjóna br lykkjur). ATH: Til þess að snúran verði jöfn er nauðsynlegt að herða vel á þræðinum á bakhlið í hverri umf sem er prjónuð. Þegar snúran mælist ca 150-200 cm klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær 4 l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Þræðið beltið upp og niður í gegnum götin í mynstrinu – mátið peysuna til þess að ná fram réttri staðsetningu. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #calistacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.