Chen Sophie skrifaði:
Wat is de betekenis van de 3 pijlen aan de linkerzijde van het kabelpatroon M1?
04.02.2016 - 04:42DROPS Design svaraði:
Hoi Sophie. Dat staat in het patroon: Bij een hoogte van ca 46-48-50-52-54 cm (eindig bij 1 van de pijlen op het diagram) minderen de middelste 9 st voor de hals.
04.02.2016 - 13:56
Nina skrifaði:
Bij de beschrijving van de mouw zit een fout. Hier de tekst zoals deze er staat. " Mouwen: Zet op 28-28-30-30-32 st (incl. 1 kantsteek aan beide zijden) op nld 9 met Eskimo + Glitter. Brei 1 ribbel (1e nld = verkeerde kant), brei daarna 5 gerstekorrel. Bij een hoogte van 13 cm 1 ribbel breien(1e nld goede kant werk) brei daarna verder in tricotsteek. brei daarna 5 gerstekorrel, moet zijn, brei daarna tot een hoogte van 13 cm gerstekorrel. Bij een hoogte van 13 cm 1 ribbel......
06.10.2015 - 19:47DROPS Design svaraði:
Hoi Nina. Ja, het moest geen 5 gerstekorrel zijn. Ik heb het patroon voor de mouw aangepast. Bedankt voor het melden.
07.10.2015 - 13:17
Hanna skrifaði:
Anleitung Vorderteil: 1.r. = linke Seite die 3 li.,3 re, 3 li. (werden auf der rechten Seite zu 3 re., 3 li, 3 re) Ich muss entweder 4 Reihen oder 6 Reihen in dieser Einteilung weiterstricken, sonst beginnt die Verkreuzung der Maschen auf der linken Seite - oder hab ich da einen Gedankenfehler ?
17.11.2013 - 10:25DROPS Design svaraði:
Liebe Hanna, Sie haben völlig Recht, diese Stelle ist nun in der Anleitung angepasst. Dies ist eine ältere Anleitung und noch ziemlich holprig übersetzt. Wir haben auch den Fehler bei "(werden auf der rechten Seite zu 3 re., 3 li, 3 re)" korrigiert - Sie hatten es richtig geschrieben.
18.11.2013 - 14:45MaFrançoise skrifaði:
Ce modèle me plait beaucoup je vais le faire en Eskimo tweed 76 avec le col montant ouvert sur le côté et 3 boutons... qu'en pensez-vous ?
26.08.2012 - 12:21
Chris Sullivan skrifaði:
There is no english diagram
09.11.2007 - 21:17
Rossella |
|||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow og DROPS Glitter með mynstri á framstykki. Stærð S-XXL.
DROPS 75-11 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. PERLUPRJÓN (prjónað í hring): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið umferð 2. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp og saumað saman í lokin. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 45-49-53-57-63 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 9 með DROPS Snow + DROPS Glitter. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan (umferð 1 = ranga). Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja, 17-19-21-23-26 l PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan - 3 l br, 3 l sl, 3 l br (frá réttu verður 3 l sl, 3 l br, 3 l sl), 17-19-21-23-26 l perluprjón og 1 kantlykkja. Prjónið svona í alls 5 umf. Prjónið síðan þannig: 1 kantlykkja, 11-13-15-17-20 l sléttprjón, M.1 (= 21 l), 11-13-15-17-20 l sléttprjón, 1 kantlykkja. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 25 cm = 49-53-57-61-67 l. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf: 3 l 1 sinni, 2 l 0-1-1-2-3 sinnum og 1 l 3-2-4-3-4 sinnum = 37-39-39-41-41 l. Þegar stykkið mælist ca 46-48-50-52-54 cm (stillið af eftir ör í mynsturteikningu) fellið af miðju 9 l fyrir hálsmáli. Fellið síðan af í hvorri hlið við hálsmál í annarri hverri umf: 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinnum = 10-11-11-12-12 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62 cm. BAKSTYKKI: Fitjið upp á sama hátt og á framstykki. Prjónið 2 umf garðaprjón (umferð 1 = ranga), prjónið síðan 5 umf perluprjón yfir allar l. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar l til loka. Fellið af fyrir handveg á sama hátt og á framstykki og prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60 cm. Fellið nú af miðju 15 l fyrir hálsmáli. Í næstu umf er felld af 1 lykkja við hálsmál = 10-11-11-12-12 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62 cm. ERMI: Fitjið upp 28-28-30-30-32 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 9 með DROPS Snow + DROPS Glitter. Prjónið 2 umf garðaprjón (umferð 1 = ranga), haldið síðan áfram í perluprjóni. Þegar stykkið mælist 13 cm eru prjónaðar 2 umf garðaprjón (umferð 1 = frá réttu) haldið síðan áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið í hverjum 8-6-6-4,5-4,5 cm alls 5-6-6-7-7 sinnum = 38-40-42-44-46 l. Þegar ermin mælist 48-47-46-45-44 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf: 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum, 1 l 1-1-3-4-5 sinnum, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 57-57-58-58-59 cm. Fellið af þær l sem eftir eru. Prjónið aðra ermi. FRÁGANGUR: Saumið hægri axlasaum. KRAGI: Takið upp ca 42 til 48 l (deilanlegt með 6) í kringum hálsmál á prjóna nr 9 með DROPS Snow + DROPS Glitter. ATH: Ef teknar eru upp fleiri en 48 l verður að fækka l jafnt yfir í umferð 1, en ekki er fellt af yfir l við miðju að framan. Prjónið frá réttu þannig: * 3 l sl, 3 l perluprjón *, endurtakið frá *-*. ATH: Passið uppá að 3 l garðaprjón hvoru megin við kaðalinn við miðju að framan haldi áfram upp sem garðaprjón. Þegar kraginn mælist 12 cm er fellt af. Saumið vinstri axlasaum og upp meðfram kanti á kraga – saumið í ysta lykkjubogann meðfram kantinum svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsaum í eitt innan við 1 kantlykkju. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 75-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.