Melissa Bogaert skrifaði:
Just curious, I really like this pattern, and was wondering how I could continue the pattern stitch from the top down the arms. Thank you
02.07.2013 - 03:26
Nath skrifaði:
Jolie veste, réalisée sans problème, j'en suis très contente !
28.05.2013 - 21:07
Ada Goldsmid skrifaði:
Geachte lezer, De maataanduidingen zijn aangegeven met s, m, l enz. Welke maat moet ik hebben voor een bovenwijdte van 102? Deze vraag geldt ook voor een aantal andere modellen. Kunt u hier een algemeen antwoord op geven? Of kan ik het zelf ergens terug vinden? Bij voorbaat dank, Met vriendelijke groet, Ada Goldsmid
02.05.2013 - 21:57DROPS Design svaraði:
Beste Ada. Kijk onderaan het patroon. Hier vind je de maattekening met de afmetingen in cm per maat. Vergelijk deze met je eigen afmetingen en kies je maat. Veel haakplezier!
03.05.2013 - 10:01
Antoinette skrifaði:
Cette petite veste au crochet est trés jolie.
19.09.2012 - 15:49
Marjo skrifaði:
KBegrijp niet dat je met 41 patroonherhalingen (lijf patroon A1) op 201 steken uitkomt, moet dit niet 40 patroonherhalingen zijn? En bij lijf patroon A2 blijft na toer 2 het stekenaantal gelijk maar dit geldt blijkbaar alleen voor de kleinste drie maten en niet voor de grotere drie, hoe zit dat? Ben overigens enthousiast bezig, leuk patroon!!
18.08.2012 - 21:28DROPS Design svaraði:
Hoi Marjo. Het heeft eveng geduurd, maar we moesten het patroon doornemen en aanpassen. Er waren inderdaad fouten en deze zijn nu aangepast. Bedankt en veel haakplezier verder.
10.09.2012 - 12:56Melissa skrifaði:
Just wondering what the pattern A.1, A.2 and A.3 are? What's the difference?
10.08.2012 - 04:18DROPS Design svaraði:
The charts A.1 and A.2 posted below pattern text are different, they have different numbers of sts etc, Pattern A.3 are 2 rows in pattern explained in written text in pattern.
28.08.2012 - 02:46
Cindy Garlotte skrifaði:
Yes,Just what is a Bobble stitch in this pattern?
31.07.2012 - 04:06
Ulrica skrifaði:
Wow! Fler så här snygga virkmönster, tack! ;)
20.07.2012 - 18:25
Eve skrifaði:
Trés jolie attend les explquations
16.07.2012 - 07:25Kathy skrifaði:
I look forward to being able to make this top. MORE crochet patterns please
14.07.2012 - 17:11
Christel#christelcardigan |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Heklað vesti úr DROPS Lima með berustykki. Stærð S - XXXL
DROPS 140-7 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UMFERÐ MEÐ FL (FRAM OG TIL BAKA): Allar umf með fl byrja á 1 ll (ekki talin með sem 1. fl), heklið 1 fl í hverja l umf hringinn, snúið. MYNSTUR A.1 (deilanlegt með 5 + 1): UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 4 ll (= 1 tbst) í 1. fl, haldið áfram – sjá einnig umf 1 í mynstri A.1 þannig: * Heklið 2 ll, 1 kúla með 4 tbst, 2 ll, 1 tbst í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 ll, 3 fl um 1. ll-boga, hoppið yfir 1. kúlu, 2 fl um næsta ll-boga, haldið áfram – sjá einnig umf 2 í mynstri A.1 þannig: * Heklið 1 fl í næsta tbst, 2 fl um næsta ll-boga, hoppið yfir næstu kúlu, 2 fl um næsta ll-boga*, endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 fl að síðasta ll-boga í umf (= sami fjöldi fl eins og áður). MYNSTUR A.2 (deilanlegt með 4+1): UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 4 ll (= 1 tbst) í 1. fl, haldið áfram – sjá einnig umf 1 í mynstri A.2 þannig: * Heklið 1 ll, heklið 1 kúlu með 3 tbst, 1 ll, 1 tbst í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf, snúið. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 ll, 2 fl um 1. ll-boga, 1 fl í næstu kúlu, 1 fl um næsta ll-boga, haldið áfram – sjá einnig umf 2 í A.2 þannig: * Heklið 1 fl í næsta tbst, 1 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu kúlu, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf endið umf með 1 fl að síðasta ll-boga í umf (= sami fjöldi fl eins og áður). ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að hekla 2 l í sömu l. UMFERÐ MEÐ ST (FRAM OG TIL BAKA): Allar umf með st eru heklaðar frá réttu. Allar umf með st byrja á 3 ll (= 1. st), hoppið yfir 1. fl frá fyrri umf, heklið 1 st í hverja fl út umf, snúið. MYNSTUR A.3: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 1 umf með st. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 umf með fl. UMF MEÐ FL (HRINGINN): Allar umf með fl byrja með 1 ll (ekki talin með sem 1. fl), heklið 1 fl í hverja l umf hringinn, endið með 1 kl í 1. fl. ÚRTAKA – FL: Heklið 1 fl, geymið að draga þráðinn í gegn alla leið (= 2 l á heklunálinni), heklið nú næstu fl – þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni, nú hefur fækkað um 1 fl yfir 2 l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 157-172-187-202-222-242 LAUSAR ll með Lima með heklunál nr 4,5, snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja ll út umf = 156-171-186-201-221-241 fl, snúið (umf 1 = rétta). Heklið nú MYNSTUR A.1 – sjá útskýringu að ofan = 31-34-37-40-44-48 mynstureiningar + 1 tbst. Þegar UMFERÐ 2 hefur verið hekluð eru 156-171-186-201-221-241 fl í umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið A.1 alls 5-5-5-6-6-6 sinnum á hæðina – en í síðustu umf með fl frá röngu er heklað þannig: Heklið 1 ll, 2 fl um 1. ll-boga, 1 fl í næstu kúlu, 1 fl um næsta ll-boga, * 1 fl í næsta tbst, 1 fl um næsta ll-boga, 1 fl í næstu kúlu, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 2 fl um síðasta ll-boga = 125-137-149-161-177-193 fl, snúið. Heklið nú MYNSTUR A.2 – sjá útskýringu að ofan! Þegar UMFERÐ 2 hefur verið hekluð eru 125-137-149-161-177-193 fl í umf. Heklið A.2 alls 5 sinnum á hæðina – en í síðustu umf með fl frá röngu er aukið út um 10-10-12-14-16-18 fl jafnt yfir - LESIÐ ÚTAUKNING = 135-147-161-175-193-211 fl. Nú mælist stykkið ca 27-27-27-30-30-30 cm. Heklið nú MYNSTUR A.3 – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT í 1. umf með fl frá röngu er aukið út um 9-9-11-13-15-17 l jafnt yfir = 144-156-172-188-208-228 fl. Heklið A.3 alls 6 sinnum (síðasta umf = 1 umf með fl frá röngu), nú mælist stykkið ca 37-37-37-40-40-40 cm, klippið frá og festið enda. Setjið 1 prjónamerki 36-39-43-47-52-57 fl inn frá hvorri hlið í síðustu umf með fl (= 72-78-86-94-104-114 fl á milli prjónamerkja á bakstykki). KANTUR Á ERMI: Stykkið er heklað í hring. Heklið 50-52-56-60-64-66 LAUSAR ll með heklunál nr 4,5 með Lima og tengið í hring með 1 kl í 1. ll í fyrstu ll. Umferð 1 er hekluð þannig: Heklið 1 ll, heklið nú 1 fl í hverja ll, endið með 1 kl í 1. fl í byrjun umf (= miðja undir ermi) = 50-52-56-60-64-66 fl. Haldið áfram hringinn með UMFERÐ MEÐ FL – sjá útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist 2 cm. Setjið nú 1 prjónamerki í hvora hlið við miðju 12-12-12-14-16-16 l undir ermi = 38-40-44-46-48-50 fl á milli prjónamerkja á ermi. Geymið stykkið og heklið annan kant til viðbótar á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið 1 nýtt prjónamerki við miðju á fram – og bakstykki, héðan er nú mælt! Umferð 1 er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 st í hverja og eina af fyrstu 30-33-37-40-44-49 l á hægra framstykki, heklið 1 st í hverja af þeim 38-40-44-46-48-50 l frá fyrri kant á ermi (þ.e.a.s. ekki er heklað yfir þær 12-12-12-14-16-16 l á milli prjónamerkja við miðju undir ermi), hoppið yfir 12-12-12-14-16-16 l við miðju á hlið á fram- og bakstykki (þ.e.a.s. 6-6-6-7-8-8 l hvoru megin við prjónamerki), heklið 1 st í hverja af næstu 60-66-74-80-88-98 l (= bakstykki), heklið 1 st í hverja af 38-40-44-46-48-50 l frá seinni kant á ermi, hoppið yfir 12-12-12-14-16-16 l á hlið á fram- og bakstykki (þ.e.a.s. 6-6-6-7-8-8 l hvoru megin við prjónamerki), heklið 1 st í hverja af síðustu 30-33-37-40-44-49 l á vinstra framstykki = 196-212-236-252-272-296 st. Haldið áfram fram og til baka með A.3 eins og áður – JAFNFRAMT Í 3.-4.-4.-4.-5.-5. hverri umf með fl frá röngu, fellið af 32-36-40-44-48-54 fl jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA - FL. Endurtakið úrtöku í 6.-7.-7.-7.-8.-8. hverri umf með fl síðan í 8.-9.-9.-9.-10.-11. hverri umf með fl, að lokum í 9.-10.-11.-11.-12.-13. hverri umf með fl = 68-68-76-76-80-80 fl eftir (síðasta umf = ranga), berustykkið mælist nú ca 15-17-18-18-20-22 cm frá prjónamerki. Klippið ekki frá. HÁLSMÁL: Heklið nú hækkun aftan við hnakka þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið efst á hægra framstykki, heklið 1 ll, 1 fl í 1. fl, * 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* kringum hálsmál, snúið. UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 fl um hverja ll og 1 ll yfir hverja fl kringum hálsmál þar til eftir eru 12 l (= 6 fl + 6 ll) á hægra framstykki, snúið. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl þar til eftir eru 12 l á vinstra framstykki, snúið. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll í hverja fl kringum hálsmál þar til eftir eru 18 l að kanti á hægra framstykki (= 9 fl og 9 ll), snúið. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl kringum hálsmál þar til eftir eru 18 l að kanti á vinstra framstykki, snúið. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl kringum hálsmál þar til eftir eru 24 l fram að kanti á hægra framstykki (= 12 fl og 12 ll), snúið. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja ll og 1 ll yfir hverja fl þar til eftir eru 24 l fram að kanti á vinstra framstykki. Klippið ekki frá. Heklið nú 1 hring með fl í hverja fl og í hverja ll, heklið nú umf með fl þar til listinn með fl mælist 2 cm við miðju að framan, klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. KANTUR AÐ FRAMAN: Heklið frá réttu ca 90-110 fl meðfram kanti við miðju að framan á hægra framstykki (meðtalin er kantur við hálsmál). Heklið nú 1 umf fl frá röngu – JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 92-94-98-102-104-108 fl. Setjið 1 prjónamerki í skiptingar á milli A.2 og A.3. Í næstu umf frá réttu er hekluð fl – JAFNFRAMT eru 4 hnappagöt hekluð jafnt yfir á milli prjónamerkis og efstu brún á hálsmáli (1 hnappagat = heklið 2 ll, hoppið yfir næstu fl) – síðasta hnappagatið á að vera ca 1 cm frá efstu brún. Í næstu umf eru heklaðar 2 fl í hvern ll-boga fyrir hnappagati. Heklið umf með fl þar til kanturinn mælist ca 2 cm, klippið frá og festið enda. Heklið kant meðfram vinstra framstykki alveg eins, nema án hnappagata. Saumið 4 tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #christelcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.