DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Nepal yarn
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11550.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 141-43

#weekendgetawayset

DROPS Design: Mynstur nr ne-102
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

SJAL:
Stærð:
Breidd efst: ca 160 cm
Lengd fyrir miðju: ca 80 cm

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
600 gr litur nr 6314, gallabuxnablár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 30 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4,5 – fyrir stroff

HATTUR:
Stærð: S - M/L
Höfuðmál: 54/55 - 56/58 cm.

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
150-150 gr litur nr 6314, gallabuxnablár

DROPS PRJÓNAR NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 l og 23 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 l og 36 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11550.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A-1. Mynsturteikningin sýnir 1 mynstureiningu af mynstri bæði á breiddina og á hæðina, allar umf í mynstri eru sýndar frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar.

SJAL:
Fitjið upp 7 l á hringprjóna nr 5,5 með Nepal.
Setjið 1 prjónamerki í 4. l (miðjulykkja – merkir miðju að aftan á sjalinu). Prjónið 1 umf (= rétta) þannig: Prjónið 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl = 9 l. Prjónið nú garðaprjón í hverri umf JAFNFRAMT er aukið út um 4 l í hverri umf frá réttu þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn innan við 3 l í garðaprjóni í hvorri hlið og sláið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við l með prjónamerki. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Þegar stykkið mælist ca 60 cm frá miðju (passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu og mælið þegar stykkið er haldið uppi), prjónið þá þannig: Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út jafnt yfir til 331 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, prjónið nú þannig: 3 l í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir á undan miðjulykkju, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið miðjulykkju sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 5 l eru eftir, prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 3 l í garðaprjóni. Haldið svona áfram, með stroff og útaukningar – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafn óðum inn í stroff. Þegar stykkið mælist 67 cm er aukið út um 1 l í hverri br einingu (séð frá réttu), haldið áfram með 2 l sl, 3 l br. Þegar stykkið mælist 74 cm er aukið út um 1 l í hverri sléttri einingu (séð frá réttu), haldið áfram með 3 l sl, 3 l br. Þegar stykkið mælist ca 80 cm við miðju er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.

-------------------------------------------------------

HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er kaðallinn prjónaður fram og til baka þversum.
Síðan eru l prjónaðar upp öðru megin við langhliðar á kaðli og kollurinn prjónaður. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp frá hinni langhliðinni á kaðli og barðið prjónað. Að lokum er hatturinn saumaður saman við miðju að aftan.

KAÐALL:
Prjónað er fram og til baka á prjóna nr 4,5.
Fitjið upp 22 l með Nepal. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l br, prjónið 2 l sl í hvora af næstu 2 lykkjum (= 4 l sl), 2 l br *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, endið með 2 l garðaprjón = 28 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu með sl yfir sl og br yfir br og 2 l garðaprjón í hvorri hlið. Haldið áfram með A-1 þar til prjónaðar hafa verið 7-8 mynstureiningar (stykkið mælist ca 49-55 cm). Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, * 2 l br, 2 l sl saman, 2 l sl saman, 2 l br *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, endið með 2 l garðaprjón = 22 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu yfir allar l, fellið nú af. Kantur með kaðli er ca 12 cm breiður.

KOLLUR:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna nr 4.
Prjónið upp 1 l í hverja umf í garðaprjóni yst í lykkjubogann meðfram annarri langhliðinni í kanti með kaðli. Prjónið 1 umf slétt til baka frá röngu jafnframt sem aukið er út jafnt yfir til 90-100 l (aukið út með því að prjóna 2 l í 1 l). Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (frá réttu) og síðan 1 prjónamerki í 10. hverja l (= alls 9-10 prjónamerki). Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan! JAFNFRAMT í 4. umf frá kanti þar sem l voru prjónaðar upp (= frá réttu), er fækkað um 1 l á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 l sl saman. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 3 sinnum til viðbótar og síðan í annarri hverri umf 5 sinnum = 9-10 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að.

BARÐ:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna nr 4.
Prjónið upp 1 l yst í hverja umf í garðaprjóni meðfram hinni langhliðinni á kanti með kaðli. Prjónið 1 umf slétt til baka frá röngu jafnframt sem aukið er út jafnt yfir til 90-100 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (frá réttu) og síðan 1 prjónamerki í 10. hverja l (= alls 9-10 prjónamerki). Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan! JAFNFRAMT í 2. umf frá kanti þar sem l voru prjónaðar upp (= frá réttu), er aukið út um 1 l á eftir hverju prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 2 sinnum til viðbótar og síðan í 4. hverri umf 2 sinnum = 135-150 l. Prjónið nú garðaprjón án útaukninga þar til barðið mælist 7½-8 cm, fellið af frá réttu (ATH: Fellið ekki of laust af).

FRÁGANGUR:
Saumið hattinn saman við miðju að aftan yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.08.2012
SJAL: Prjónið 1 umf slétt frá röngu, prjónið nú þannig: 3 l með garðaprjóni, sláið uppá prjóninn, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir á undan miðjulykkju, 2 l sl, sláið uppá prjóninn, prjónið miðjulykkju sl, sláið uppá prjóninn, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 5 l eru eftir, prjónið 2 l sl, sláið uppá prjóninn og 3 l með garðaprjóni.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
setjið 1 lykkju á hjálparprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af hjálparprjóni = setjið 1 lykkju á hjálparprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af hjálparprjóni
setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
setjið 2 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
setjið 2 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið af hjálparprjóni = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið af hjálparprjóni
setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
Diagram for DROPS 141-43
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #weekendgetawayset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Jane Van Der Ster skrifaði:

Muts kabel NEPAL 141-42: moet 22 steken opzetten, maar het patroon is voor 28 steken(kabel)

30.01.2013 - 13:57

DROPS Design svaraði:

Je begint met 22 st en meerdert in de tweede nld naar 28 st.

30.01.2013 - 14:18

country flag Jacqueline skrifaði:

Net als Merina snap ik maar niet dat je bij de punt begint en vanaf 7 steken meerdered en na 60 cm pas aan de boordsteek begint, op het breedste punt op dat moment. Ik zou verwachten dat de boordsteek ook in de punt begint...Ik zie het maar niet voor me....

15.01.2013 - 20:57

DROPS Design svaraði:

Je breit van boven naar beneden en meerdert zoals beschreven. Op deze manier vormt er een punt in het midden. Het zal eerst meer lijken op een halve cirkel, maar bij het afkanten zult u het duidelijk zien dat het midden een punt zal vormen.

16.01.2013 - 11:28

country flag Laura skrifaði:

Hoeveel steken zou je bij het volgen van dit patroon moeten hebben, als je de 60 cm bereikt hebt? Bij mij gaat de rekensom niet goed, en ik heb een andere stekenverhouding. Hoeveel moet je ongeveer meerderen na 60 cm?

28.12.2012 - 21:51

DROPS Design svaraði:

Dat is moeilijk om te zeggen, maar met de juiste stekenverhouding voor het patroon, en meet je als je het werk ophoudt in het midden denk ik dat je rond 320-325 st hebt (Dit is gewoon een inschatting). Heb je een ander stekenverhouding, dan is het natuurlijk goed mogelijk dat het dan niet klopt. Je moet het patroon dan waarschijnlijk aanpassen naar je eigen stekenverhouding.

06.01.2013 - 15:50

country flag De-Clercq skrifaði:

Faut-il faire des points fantaisies pour ce châle (weekend get away)? est-ce que il se tricote bien qu'en point mousse ?

01.12.2012 - 11:39

DROPS Design svaraði:

Bonjour Madame De Clerq, le châle se tricote bien d'abord au point mousse, puis en côtes, avec des augmentations tous les 2 rangs. Bon tricot !

01.12.2012 - 12:08

country flag Martina skrifaði:

Hallo,nach 60 cm sollen so viele M. aufgenommen werden, dass 331 Maschen auf der Nadel sind. Wieviele Maschen sind denn nach 60 cm auf der Nadel (ich habe jetzt schon mehr als 331)?

01.11.2012 - 09:39

DROPS Design svaraði:

Hallo Martina, haben Sie die exakte Maschenprobe eingehalten? Dann sollten nach 60 cm noch keine 331 M auf der Nadel sein.

04.11.2012 - 10:02

country flag Merina skrifaði:

Ben bezig deze poncho te breien, maar je begint met de onderste punt en gaat door tot 60 cm bovenrand. Daarna zegt men te meerderen tot 331 steken en boordsteek te breien! Maar volgens de foto zit de rand met boordsteek aan de beide zijkanten.... Dit rijmt niet! Heeft iemand een oplossing?

26.09.2012 - 12:05

DROPS Design svaraði:

Het patroon is correct. Deze sjaal wordt van boven naar beneden gebreid. Je meerdert zoals beschreven om de driehoek te vormen. Je meerdert naar de 331 st breit de boordsteek en kant af en u zult zien dat de boordsteek aan beide zijkanten dan komt. Veel plezier.

26.09.2012 - 17:16

country flag Jutta skrifaði:

Hallo, ist die 4.M bei dem Tuch die hintere obere Mitte oder unten die Spitze von dem Dreieck?Weil ja nach 3M kraus ein Loch entsteht und ich das auf dem Bild nicht sehen kann.

19.09.2012 - 08:27

DROPS Design svaraði:

Hallo Jutta, das ist die hintere obere Mitte. Viel Spass beim Stricken!

19.09.2012 - 08:40

country flag Anita Dahl skrifaði:

Endelig noget enkelt,men lækkert aligevel.

15.09.2012 - 10:59

country flag SUSANNE skrifaði:

Når jeg skal over i rib står der jeg skal strikke til der er 5 m tilbage og strik 2 r og 3 m ret, der skal vel slås om imellem.Fortsætter man med at tage 4m ud på retsiden til man er færdig ?

21.08.2012 - 07:40

DROPS Design svaraði:

Helt riktigt, vi har rettet i oppskriften, tack!

28.08.2012 - 02:41

Sebastiana Lucumi skrifaði:

Necesito una explicación sobre los aumentos de este modelo, tengo la lana nepal y las agujas del mismo numero pero no entiendo el aumnto de los puntos.

19.08.2012 - 22:50