Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Chantal |
|
|
|
Hekluð peysa úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL
DROPS 142-6 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta st í öllum umf er skipt út fyrir 3 ll. UMFERÐ HRINGUR: Allar umf enda með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ FRAM OG TIL BAKA: Allar umf enda með 1 st í fyrsta st í byrjun fyrri umf. ÚTAUKNING: Aukið er út með því að hekla 2 st í 1 st, fyrst öðru megin við öll prjónamerki í umf, í næsta sinn hinum megin við öll prjónamerki í umf, haldið svona áfram með útaukningu. ÚRTAKA: Heklið 1 st, bíðið með að draga þráðinn í gegn í síðasta sinn (= 2 l á heklunálinni), heklið nú næsta st, þegar þráðurinn er dreginn í gegn í síðasta sinn er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að framan. PEYSA: Heklið 111-116-121-131-136-146 ll (meðtaldar eru 3 ll til að snúa við) með heklunál nr 4 með Karisma. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll (= 2 st), 1 st í hvora af næstu 2 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll*, endurtakið frá *-* = 88-92-96-104-108-116 st – lesið HEKLLEIÐBEININGAR. Setjið 19-20-21-23-24-26 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir 8. st, setjið nú 18-19-20-22-23-25 prjónamerki með 4 st millibili, eftir síðasta prjónamerki eru 8 st. Heklið fram og til baka með st, JAFNFRAMT er aukið út um 1 st við öll prjónamerki þannig: Í annarri hverri umf 5-6-6-5-5-6 sinnum og í 4. hverri umf 2-2-2-3-3-3 sinnum – LESIÐ ÚTAUKNING = 221-252-264-288-300-350 st. Heklið eina umf þar sem aukið er út um 14-7-7-7-19-5 st jafnt yfir (aukið ekki út yfir fyrstu og síðustu 6 st = kantur að framan) = 235-259-271-295-319-355 st. Í næstu umf er heklað þannig: Heklið 36-40-43-47-51-58 st (framstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 52-56-56-60-64-68 st frá fyrri umf (notist seinna fyrir ermi), 59-67-73-81-89-103 st (bakstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 52-56-56-60-64-68 st frá fyrri umf (notist seinna fyrir seinni ermi) og 36-40-43-47-51-58 st (framstykki). Setjið prjónamerki, stykkið er nú mælt héðan. Heklið 1 st í hvern st/ll = 147-163-175-191-207-235 st. Heklið nú þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 6 st (= kantur að framan), * 1 ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st í næsta st *, endurtakið frá *-* og endið með 1 ll, hoppið yfir 3 st og heklið 1 st í hvern og einn af þeim síðustu 6 st (= 33-37-40-44-48-55 stuðlahópar með 6 st í hvorri hlið). Heklið nú þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 6 st, 3 st um fyrstu ll, 1 ll, * hoppið yfir 3 st, 3 st um næstu ll, 1 ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir er 1 ll og 6 st, endið með 3 st um næstu ll og 1 st í hvern og einn af 6 síðustu st. UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 6 st, * 1 ll, hoppið yfir 3 st, 3 st um næstu ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 6 st, endið með 1 ll og 1 st í hvern af síðustu 6 st. Endurtakið umf 1 og 2. Þegar stykkið mælist 10 cm frá prjónamerki er aukið út um 1 stuðlahóp í hægri hlið þannig: Heklið 3 st + 1 ll um fyrstu 8-9-10-11-12-13 ll, í næstu ll er heklað þannig: Heklið 3 st, 1 ll, 3 st, 1 ll. Þegar stykkið mælist 17 cm er aukið út á sama hátt í vinstri hlið – aukið svona út þegar eftir eru 9-10-11-12-13-14 ll. Þegar stykkið mælist 24 cm er aukið út um 1 stuðlahóp í hægri hlið, aukið út í 10.- 11.- 12.- 13.- 14.- 15. ll. á sama hátt og áður. Þegar stykkið mælist 31 cm er aukið út í vinstri hlið, aukið út þegar eftir eru 10-11-12-13-14-15 ll. Eftir útaukningu eru 37-41-44-48-52-59 stuðlahópar í umf. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 37-37-39-39-41-42 cm frá prjónamerki, stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm. ERMI: Ermin er hekluð í hring ofan frá og niður. Byrjið að hekla við miðju undir ermi þannig: Heklið 1 fl í 5. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru við handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st). Heklið nú 1 st í hverja næstu 3 ll. Heklið nú 1 st í hvern st yfir ermi, áður en heklaður er 1 st í hverja af þeim 4 ll sem eru eftir undir ermi = 60-64-64-68-72-76 st. Setjið 1 prjónamerki við miðju undir ermi. Heklið nú þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 10-10-10-12-12-14 st, * 1 ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st í næsta st *, endurtakið frá *-* og heklið 1 st í hvern af síðustu 10-10-10-12-12-14 st. Haldið áfram með 1 st í hvern af 20-20-20-24-24-28 st við miðju undir ermi, í hverja ll eru heklaðir 3 st + 1 ll. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 st hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 3½-3½-3½-3-3-2½ cm millibili 9-9-9-11-11-13 sinnum til viðbótar = 40-44-44-44-48-48 st. Eftir úrtöku eru heklaðir 3 st + 1 ll um hverja ll. Klippið frá og festið enda þegar ermin mælist 47-46-46-44-44-43 cm frá prjónamerki – ATH – styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og breiðari axla. FRÁGANGUR: Saumið tölurnar í vinstra framstykki – efsta talan er 1 cm frá kanti við hálsmál, sá neðsti í skiptingunni milli st og stuðlahópa. Tölum er hneppt á milli 2 st í hægra framstykki. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 309 vörulista og 11518 mynstur - 7032 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (130)
Robine skrifaði:
Ik begrijp niet wat er wordt bedoeld met: om de toer 5-6-6-5-5-6 keer en elke 4e toer 2-2-2-3-3-3 keer. Kunt u dat uitleggen?
22.08.2020 - 16:11DROPS Design svaraði:
Dag Robine,
Stel je haakt maat S, dan geldt het eerste getal van de reeks getallen. Je meerdert in dat geval 5 keer om de toer (dus de ene toer wel en de andere toer niet) en daarna meerder je op elke 4e toer en dit doe je in totaal 2 keer.
26.08.2020 - 14:41Sri skrifaði:
Hi Could you please tell me how many rows of dcs and how long would it measure? When I reached end of the part. "Work 1 row while at the same time inc 14-7-7-7-19-5 dc evenly (do not inc over the first and last 6 dc = band) = 235-259-271-295-319-355 dc." I am getting confused with increasing part. Thank you Sri
03.04.2020 - 03:01DROPS Design svaraði:
Dear Sri, these increases are worked on one row only, crochet this row in pattern as before (with the 6 front band sts on each side) and increase evenly 14-7-7-7-19-5 dc working 2 sts in the same sts a total of 14-7-7-7-19-5 times on this row - read more here about how to increase evenly. Happy crocheting!
03.04.2020 - 08:02Katrin skrifaði:
Hallo, ich bin mittlerweile über den Rumpfteil hinweg und beim Muster angelangt. Ich häkle den Cardigan in Größe XL. Ich verstehe, dass die ersten und letzten sechs Maschen in Stäbchen gehäkelt werden müssen, aber dazwischen komme ich bei dieser Größe auf 45 Luftmaschen "Löcher" und nicht 44. Die Maschen in der vorherigen Reihe haben gestimmt. Habe ich hier etwas falsch verstanden?
12.12.2019 - 18:01DROPS Design svaraði:
Liebe Katrin, Sie haben ja 45 "Löcher" aber nur 44 Stb-Gruppen: 6 Stb, 44x (1Lm, 3 Stb), 1 Lm, 6 stb. Viel Spaß beim häkeln!
13.12.2019 - 07:54RonitTal skrifaði:
Hi Do you have a drawing pattern, it’s hard for me to understand a few things. Tnx
07.10.2019 - 20:49DROPS Design svaraði:
Dear RonitTal, we only have written pattern for this jacket; you will find some help there - shouldn't you find the answer, please feel free to ask your question here or contact the store where you bought the yarn for an invidividual assistance. Happy crocheting!
08.10.2019 - 10:59Marjolein Hofman-Santegoets skrifaði:
Ik ben niet zeker van de vertaalslag bij de informatie voor het haken bij patroon DROPS 142-6. Er staan 2 aanwijzingen voor het einde van elke toer: 1 hv in de 3de l van het begin van de toer; ik neem aan in de 3de l van de vorige toer, omdat we heen en weer haken. Klopt dit?? En eindigen met 1 stk in het eerste stk van het begin van de vorige toer???? Kan het zijn dat deze twee zinnen in de verkeerde volgorde staan? Ik ben een ervaren haakster, maar deze aanwijzingen verwarren mij.
24.02.2019 - 18:43DROPS Design svaraði:
Dag Marjolein,
Ja, je sluit de toer af door 1 halve vaste te haken in de 3e losse van de vorig toer. Deze 3e losse is van de 3 lossen die het eerste stokje vervangt.
26.02.2019 - 08:57Janny skrifaði:
Heerlijk patroon om te haken. Hartelijk dank!
18.02.2019 - 09:37Griselda skrifaði:
Hola!me podrias ayudar en cuanto al patron a seguir en la manga, no se si hacer una disminucion o en realidad serian 2 disminuciones en la secuencia de los 20 puntos seguidos. y si esas disminuciones se hacen solo cada 3.5 cm... gracias
04.11.2018 - 23:56DROPS Design svaraði:
Hola Griselda. Las disminuciones se trabajan a cada lado del marcapuntos en el centro bajo la manga ( 2 puntos disminuidos en la vuelta) y se repiten cada 3,5 mm.
30.12.2018 - 16:21Lotta Andersson skrifaði:
Förstår ej varför inte ingår lm före (12) st, som det gör efter (12) st under ärm?
22.10.2018 - 20:17DROPS Design svaraði:
Hej Lotte, du virkar 1 st i var och en av de förste och sista 12 st under ärmen, i alla de andra virkar du * 1 lm, hoppa över 3 st, virka 3 st i nästa st *, upprepa *-*. Lycka till !
30.10.2018 - 09:50Agnes skrifaði:
Hej! Jag har läst Virkinfo och mönstret flera gånger och sett videon om var ökningarna görs men förstår inte detta, i början av mönstret: "Virka fram och tillbaka med st, SAMTIDIGT ökas det 1 st vid alla markörerna så här: på vartannat v 5-6-6-5-5-6 ggr och på vart 4:e v 2-2-2-3-3-3 ggr ". Hur många varv ska göras? Vad menas med att öka 5 ggr på vartannat varv och 2 ggr på var fjärde? Tacksam för svar!
30.08.2018 - 15:50DROPS Design svaraði:
Hei Agnes. Du skal øke 1 stav ved hvert merke, og du skal øke på annenhver omgang totalt 5-6-6-5-5-6 ganger. Det vil si at du hekler en omgang med øking, og så hekler du en omgang uten økning, dette gjentar du totalt 5-6-6-5-5-6 ganger = 10-12-12-10-10-12 omganger heklet (du har økt 1 maske ved hvert merke på annenhver omgang). Så skal du fortsette økingen, men nå skal det økes hver 4 omgang: du hekler 1 omgang med økning, 3 omganger uten økning, dette gjentas totalt 2-2-2-3-3-3 ganger = 8-8-8-12-12-12 omganger heklet. God fornøyelse.
03.09.2018 - 09:28Doreen skrifaði:
Muss ich bei den Zunahmereihen am Rumpfteil die Markierer dann immer neu setzen?
12.05.2018 - 21:11DROPS Design svaraði:
Liebe Doreen, die Markierer sollen Sie "hochlaufen" lassen, es wird so einfacher zu sehen, wo die Zunahmen gehäkelt werden. Viel Spaß beim häkeln!
14.05.2018 - 10:14