Gloria Patterson skrifaði:
Love the way the sleeve and the bodice are one, and then goes into an open weave! YES!
14.06.2012 - 20:08
Maggie skrifaði:
This is my favorite pattern!!
12.06.2012 - 18:11
Do skrifaði:
Un bien joli modèle qui me donne envie de réapprivoiser le crochet.
09.06.2012 - 20:17
Corinne skrifaði:
Un joli exercice de style au crochet
09.06.2012 - 14:18
Agnes skrifaði:
Snygg virkad kofta. Kan jag tänka mig att göra
09.06.2012 - 09:26
Heidi skrifaði:
Elegant heklet jakke som heller ikke er for vanskelig.
08.06.2012 - 19:31
THERESE skrifaði:
Superbe et cette longueur allonge, ce qui est peu fréquent au crochet
06.06.2012 - 17:43
Anke skrifaði:
Ein hübsches Häkelmodell für die Karisma. Das kommt auf meine Wunschliste.
06.06.2012 - 16:00
Corry skrifaði:
Prachtige kleur, maar design is ouderwets, dus niets voor mij. Gelukkig zijn er anderen die er dol p zijn.
06.06.2012 - 05:07
Mia skrifaði:
Mooi gehaakt model
04.06.2012 - 20:15
Chantal#chantalcardigan |
|
![]() |
![]() |
Hekluð peysa úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL
DROPS 142-6 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta st í öllum umf er skipt út fyrir 3 ll. UMFERÐ HRINGUR: Allar umf enda með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ FRAM OG TIL BAKA: Allar umf enda með 1 st í fyrsta st í byrjun fyrri umf. ÚTAUKNING: Aukið er út með því að hekla 2 st í 1 st, fyrst öðru megin við öll prjónamerki í umf, í næsta sinn hinum megin við öll prjónamerki í umf, haldið svona áfram með útaukningu. ÚRTAKA: Heklið 1 st, bíðið með að draga þráðinn í gegn í síðasta sinn (= 2 l á heklunálinni), heklið nú næsta st, þegar þráðurinn er dreginn í gegn í síðasta sinn er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að framan. PEYSA: Heklið 111-116-121-131-136-146 ll (meðtaldar eru 3 ll til að snúa við) með heklunál nr 4 með Karisma. Heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll (= 2 st), 1 st í hvora af næstu 2 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll*, endurtakið frá *-* = 88-92-96-104-108-116 st – lesið HEKLLEIÐBEININGAR. Setjið 19-20-21-23-24-26 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir 8. st, setjið nú 18-19-20-22-23-25 prjónamerki með 4 st millibili, eftir síðasta prjónamerki eru 8 st. Heklið fram og til baka með st, JAFNFRAMT er aukið út um 1 st við öll prjónamerki þannig: Í annarri hverri umf 5-6-6-5-5-6 sinnum og í 4. hverri umf 2-2-2-3-3-3 sinnum – LESIÐ ÚTAUKNING = 221-252-264-288-300-350 st. Heklið eina umf þar sem aukið er út um 14-7-7-7-19-5 st jafnt yfir (aukið ekki út yfir fyrstu og síðustu 6 st = kantur að framan) = 235-259-271-295-319-355 st. Í næstu umf er heklað þannig: Heklið 36-40-43-47-51-58 st (framstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 52-56-56-60-64-68 st frá fyrri umf (notist seinna fyrir ermi), 59-67-73-81-89-103 st (bakstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 52-56-56-60-64-68 st frá fyrri umf (notist seinna fyrir seinni ermi) og 36-40-43-47-51-58 st (framstykki). Setjið prjónamerki, stykkið er nú mælt héðan. Heklið 1 st í hvern st/ll = 147-163-175-191-207-235 st. Heklið nú þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 6 st (= kantur að framan), * 1 ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st í næsta st *, endurtakið frá *-* og endið með 1 ll, hoppið yfir 3 st og heklið 1 st í hvern og einn af þeim síðustu 6 st (= 33-37-40-44-48-55 stuðlahópar með 6 st í hvorri hlið). Heklið nú þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 6 st, 3 st um fyrstu ll, 1 ll, * hoppið yfir 3 st, 3 st um næstu ll, 1 ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir er 1 ll og 6 st, endið með 3 st um næstu ll og 1 st í hvern og einn af 6 síðustu st. UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 6 st, * 1 ll, hoppið yfir 3 st, 3 st um næstu ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 6 st, endið með 1 ll og 1 st í hvern af síðustu 6 st. Endurtakið umf 1 og 2. Þegar stykkið mælist 10 cm frá prjónamerki er aukið út um 1 stuðlahóp í hægri hlið þannig: Heklið 3 st + 1 ll um fyrstu 8-9-10-11-12-13 ll, í næstu ll er heklað þannig: Heklið 3 st, 1 ll, 3 st, 1 ll. Þegar stykkið mælist 17 cm er aukið út á sama hátt í vinstri hlið – aukið svona út þegar eftir eru 9-10-11-12-13-14 ll. Þegar stykkið mælist 24 cm er aukið út um 1 stuðlahóp í hægri hlið, aukið út í 10.-11.-12.-13.-14.-15. ll. á sama hátt og áður. Þegar stykkið mælist 31 cm er aukið út í vinstri hlið, aukið út þegar eftir eru 10-11-12-13-14-15 ll. Eftir útaukningu eru 37-41-44-48-52-59 stuðlahópar í umf. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 37-37-39-39-41-42 cm frá prjónamerki, stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm. ERMI: Ermin er hekluð í hring ofan frá og niður. Byrjið að hekla við miðju undir ermi þannig: Heklið 1 fl í 5. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru við handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st). Heklið nú 1 st í hverja næstu 3 ll. Heklið nú 1 st í hvern st yfir ermi, áður en heklaður er 1 st í hverja af þeim 4 ll sem eru eftir undir ermi = 60-64-64-68-72-76 st. Setjið 1 prjónamerki við miðju undir ermi. Heklið nú þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 10-10-10-12-12-14 st, * 1 ll, hoppið yfir 3 st, heklið 3 st í næsta st *, endurtakið frá *-* og heklið 1 st í hvern af síðustu 10-10-10-12-12-14 st. Haldið áfram með 1 st í hvern af 20-20-20-24-24-28 st við miðju undir ermi, í hverja ll eru heklaðir 3 st + 1 ll. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 st hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 3½-3½-3½-3-3-2½ cm millibili 9-9-9-11-11-13 sinnum til viðbótar = 40-44-44-44-48-48 st. Eftir úrtöku eru heklaðir 3 st + 1 ll um hverja ll. Klippið frá og festið enda þegar ermin mælist 47-46-46-44-44-43 cm frá prjónamerki – ATH – styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og breiðari axla. FRÁGANGUR: Saumið tölurnar í vinstra framstykki – efsta talan er 1 cm frá kanti við hálsmál, sá neðsti í skiptingunni milli st og stuðlahópa. Tölum er hneppt á milli 2 st í hægra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #chantalcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.