DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Muskat yarn
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 136-30

#buttercupcardigan

DROPS Design: Mynstur nr R-613
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: XS/S - M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
400-450-550-650-750 gr litur nr 07, ljós gulur

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 5 stórir ll-bogar af MYNSTUR-1 = 10 cm á breiddina og 2,5 mynstureiningar af MYNSTUR-2 = 10 cm á breiddina.
DROPS PERLUTALA nr 521: 1 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR-1 (sjá einnig mynsturteikningu M.1):
UMFERÐ 1: Sjá útskýringu í uppskrift.
UMFERÐ 2: Heklið 5 ll, 1 fl í miðju ll í fyrsta ll-boga, 2 ll, 1 kl í sama ll, * 5 ll, 1 fl í miðju ll í næsta ll-boga, 2 ll, 1 kl í sömu ll *, endurtakið frá *-* þar til 1 ll-bogi er eftir, 5 ll, 1 fl í miðju ll í síðasta ll-boga, snúið við.
Endurtakið umf 2.

MYNSTUR-2 (sjá einnig mynsturteikningu M.2):
UMFERÐ 1: Sjá útskýringu í uppskrift.
UMFERÐ 2: Heklið 4 ll, * 5 st um ll-boga, 1 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 2 st *, endurtakið frá *-* þar til 1 ll-bogi er eftir, heklið 5 st um þennan, 1 ll og 1 st í 3. ll í byrjun á umf, snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið 5 ll, 1 st í fyrsta st, * hoppið yfir 1 st, 1 st í hvern af næstu 3 st, hoppið yfir 1 st, í næsta st er heklaður 1 st + 3 ll + 1 st *, endurtakið frá *-*, þar til eftir eru 5 st, hoppið yfir 1 st, 1 st í hvern af næstu 3 st, hoppið yfir 1 st, 1 st + 2 ll + 1 st í 3. ll í byrjun fyrri umf, snúið við.
UMFERÐ 4: Heklið 3 ll, 2 st um fyrsta ll-boga, * 1 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 2 st, um næsta ll-boga eru heklaðir 5 st *, endurtakið frá *-* þar til 5 st eru eftir, 1 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 2 st, um síðasta ll-boga eru heklaðir 3 st, snúið við.
UMFERÐ 5: Heklið 3 ll, * hoppið yfir 2 st, í næsta st er heklað 1 st + 3 ll + 1 st, hoppið yfir 1 st, 1 st í hvern af næstu 3 st *, endurtakið frá *-* þar til 4 st eru eftir, í næsta st er heklað 1 st + 3 ll + 1 st, hoppið yfir 2 st, 1 st í 3. ll frá byrjun fyrri umf.
Endurtakið umf 2 til 5.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan. Fyrst er heklað MYNSTUR-1 upp að öxl, síðan er heklað MYNSTUR-2 frá uppfitjunarkanti og niður. Ermar eru heklaðar frá handveg og niður.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 187-224-262-298-335 ll með heklunál nr 4,5 með Muskat.
Snúið, heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, síðan er hekluð 1 fl í hverja af næstu 3-5-1-2-4 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 160-192-224-255-287 fl. Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 5 ll, hoppið yfir þær 2 fyrstu fl, 1 fl í næstu fl, * 5 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 fl í næstu fl, 5 ll, hoppið yfir 4 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 4-0-5-0-5 fl. Stærð M og XXL lokið. Stærð XS/S: Heklið 5 ll, hoppið yfir 3 fl, 1 fl í síðustu fl. Stærð L/XL og XXXL: 5 ll, hoppið yfir 4 fl, 1 fl í síðustu fl. Snúið við (35-42-49-56-63 stórir ll-bogar + sá bogi sem snúið var við í byrjun umf). Haldið áfram með MYNSTUR-1 (byrjið á umf 2) – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 12-13-14-15-16 cm, er því skipt við handveg og hvert stykki er nú heklað til loka fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið M.1 fram og til baka yfir fyrstu 9-11-12-14-16 stóru ll-boga – JAFNFRAMT í næsta sinn þegar í umf 3 í mynstri er hekluð, fækkið lykkjum fyrir hálsmáli eftir M.3. Endurtakið úrtöku þar til 6-7-9-10-11 stórir ll-bogar eru eftir á öxl. Haldið áfram að hekla M.1 þar til stykkið mælist ca 29-31-33-35-37 cm – síðasta umferðin er hekluð þannig: Heklið 5 ll, 1 fl í miðju ll í fyrsta ll-boga frá fyrri umf, * 5 ll, 1 fl í miðju ll í næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf, klippið frá.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd.

BAKSTYKKI:
Heklið fram og til baka yfir miðju 17-20-25-28-31 stóru ll-boga. Þegar stykkið mælist ca 29-31-33-35-37 cm (passið uppá að það verði jafn margir ll-bogar á hæðina á framstykki eins og á bakstykki), heklið síðustu umf yfir 6-7-9-10-11 ll-bogar í hvorri hlið á sama hátt og á framstykki (þeir 5-6-7-8-9 miðju ll-bogar = hálsmál).

KANTUR NEÐST:
Heklið niður frá uppfitjunarkanti (byrjið frá röngu) þannig: Heklið 1 kl í fyrstu fl, síðan 3 ll, hoppið yfir 2 fl, í næstu fl er heklaður 1 st + 3 ll + 1 st, * hoppið yfir 2 fl, heklið 1 st í hverja af næstu 3 fl, hoppið yfir 2 fl, í næstu fl er heklaður 1 st + 3 ll + 1 st *, endurtakið frá *-*, þar til eftir eru 4-4-4-3-3 fl, hoppið yfir 3-3-3-2-2 flog heklið 1 st í síðustu fl, snúið við. Haldið áfram með MYNSTUR-2 (byrjið á umf 2) – sjá útskýringu að ofan! Það verða alls 20-24-28-32-36 mynstureiningar í umf.
Heklið M.2 í ca 22 cm, endið eftir umf 2 eða 4 í mynstri. Síðasta umf er hekluð þannig: * Heklið 3 ll, hoppið yfir 1 l (annað hvort 1 st eða 1 ll), 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* út umf, klippið frá. Allt fram- og bakstykkið mælist ca 52-54-56-58-60 cm á hæðina.

FRÁGANGUR:
Heklið saman axlir þannig: * 1 fl í fyrsta stóra ll-boga á framstykki, 2 ll, 1 fl í fyrsta stóra ll-boga á bakstykki, 2 ll *, endurtakið frá *-* á báðum öxlum.

ERMI:
Stykkið er heklað fram og til baka frá handveg og niður.
Heklið 1 fl um fyrsta ll-boga neðst niðri við handveg, * 5 ll, hoppið yfir ca 2 cm, festið með 1 fl *, endurtakið frá *-* að neðri brún hinu megin á handveg, það eiga að vera 18-19-20-21-22 ll-bogar alls.
Snúið við og haldið áfram með UMFERÐ 2 í MYNSTUR-1 (= 17-18-19-20-21 stórir ll-bogar í umf + sá ll-bogi sem snúið er við með). Þegar stykkið mælist 2 cm, fellið af 1 stór ll-bogi í lok næstu umf, þetta er gert með því að hekla þar til eftir eru 2 stórir ll-bogar, heklið 5 ll, hoppið yfir fyrsta ll-boga og heklið 1 fl í miðju ll í síðasta ll-boga. Endurtakið úrtöku með 4-3-3-2-2 cm millibili (það fækkar til skiptis í hægri og vinstri hlið) þar til eftir eru 11-11-13-13-15 stórir ll-bogar + sá bogi sem snúið er við með.
Þegar ermin mælist 24-21-18-15-13 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), heklið næstu umf þannig: Heklið 5 ll, 1 fl í miðju ll í fyrsta ll-boga, * 5 ll, 1 fl í miðju ll í næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf. Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 4 fl í hvern ll-boga og 3 fl í síðasta ll-boga í umf = 47-47-55-55-63 fl.
Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 3 ll, hoppið yfir þær 2 fyrstu fl, í næstu fl er heklaður 1 st + 3 ll + 1 st, * hoppið yfir 2 fl, heklið 1 st í hvern og einn af 3 næstu fl, hoppið yfir 2 fl, í næstu fl er heklaður 1 st + 3 ll + 1 st *, endurtakið frá *-*, þar til 4 fl eru eftir, hoppið yfir 3 fl og heklið 1 st í síðustu fl, snúið við. Haldið áfram með MYNSTUR-2 (byrjun á umf 2) – sjá útskýringu að ofan! Það verða alls 6-6-7-7-8 mynstureiningar í umf. Þegar M.2 hefur verið heklað í ca 12 cm (endið eftir umf 2 eða 4 í mynstri) er næsta umf hekluð þannig: * Heklið 3 ll, hoppið yfir 1 l (annað hvort 1 st eða 1 ll), 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* út umf, klippið frá.

FRÁGANGUR:
Heklið ermasauma saman á sama hátt og axlir voru heklaðar saman.

KANTUR AÐ FRAMAN OG Í HÁLSMÁLI:
Heklið 1 umf með fl upp meðfram hægri kanti að framan, kringum hálsmál og niður meðfram vinstri kanti að framan – passið uppá að fl í kanti dragi ekki stykkið inn né víkki. Það eiga að vera ca 16 fl á 10 cm. Snúið og heklið 1 umf til baka með 1 fl í hverja fl – þegar heklað hefur verið í kringum hálsmálið og byrjað er niðri á hægra framstykki er heklað þannig: Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl, hoppið yfir 2 fl (= hnappagat), haldið áfram með fl meðfram framstykki. Snúið og heklið 1 umf með fl aftur til baka – það eru heklaðar 2 fl yfir ll-bogann. Klippið frá og festið enda. Saumið tölu í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.11.2016
MYNSTUR-2: UMFERÐ 5: Heklið 3 ll, * hoppið yfir 2 st, í næsta st er heklað 1 st + 3 ll + 1 st, hoppið yfir 1 st, 1 st í hvern og einn af 3 næstu st *, endurtakið frá *-* þar til 4 st eru eftir, í næsta st er heklað 1 st + 3 ll + 1 st, hoppið yfir 2 st, 1 st í 3. ll frá byrjun fyrri umf.
Endurtakið umf 2 til 5.

Mynstur

1 fastalykkja = 1 fastalykkja
1 loftlykkja = 1 loftlykkja
1 fastalykkja í miðju loftlykkju í loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í sömu loftlykkju eins og fastalykkju = 1 fastalykkja í miðju loftlykkju í loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í sömu loftlykkju eins og fastalykkju
1 stuðull = 1 stuðull
heklstefna = heklstefna
Diagram for DROPS 136-30
Diagram for DROPS 136-30
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #buttercupcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 136-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (142)

country flag Smets Marijke skrifaði:

Hallo ik heb een probleem met de stekenverhouding voor patroon met de 5 lossenlussen kom ik groter uit maar voor patroon 2 kom ik wel aan 10cm. Kan het zijn dat voor patroon maar 4 lossen lussen gemaakt moeten worden om aan 10 cm te komen?

25.11.2018 - 00:39

DROPS Design svaraði:

Dag Marijke,

Het patroon klopt wel met 5 lossen, maar je kan het natuurlijk ook met 4 lossen doen. Maak evt. nog even een proeflapje om te kijken of het er goed uitziet. Dan lijkt het me een prima oplossing!

28.11.2018 - 13:22

country flag DOUCERAIN skrifaði:

Bonjour. J'ai beaucoup de plaisir à crocheter ce modèle. Merci. Cependant j'ai une question. J'ai fait le devant droit puis le gauche au point fantaisie 1. J'en suis au dos avec ce même point en aller retour sur les arceau du milieu. Ma question est de savoir comment relier le dos aux devant ? Est-ce avec une couture à la fin ou simultanément avec les aller retoursdu dos ? Merci de votre réponse.

17.11.2018 - 15:05

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Doucerain, vous crochetez d'abord la partie du haut du gilet en une seule partie jusqu'aux emmanchures. Vous crochetez ensuite les devants sur les 9-16 (cf taille) grands arceaux de chaque côté puis vous crochetez le dos sur les 17-31 arceaux au milieu. Cette ouverture va former les emmanchures. Bon crochet!

19.11.2018 - 08:16

country flag Conni skrifaði:

Bei mir weichen die Maße deutlich von den beschriebenen ab. 5 große LM-Bögen im M1 sind deutlich mehr als 10 cm (fast doppelt so lang). Ich habe es nun mit Nadelstärke 4 versucht und es ist immer noch viel zu groß. Woran könnte es liegen?

14.10.2018 - 21:03

DROPS Design svaraði:

Liebe Conni, Die Angabe der Nadelstärke ist nur eine Orientierungshilfe. Wenn für 10 cm weniger Maschen als in der Maschenprobe angegeben benötigt werden, zu einer dünneren Nadelstärke wechseln. Viel Spaß beim häkeln!

15.10.2018 - 10:41

country flag Joy Lovell skrifaði:

I am really wanting to crochet this pattern but I am having difficulty following the pattern instructions in the diagram, can you tell me does this pattern have written instructions instead of diagram instructions, or is there a much better and simpler way of reading the pattern diagrams.

16.09.2018 - 16:13

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Lovell, there are only diagrams to this pattern. Each symbol in diagram is explained under diagram key. Start reading the diagrams from the bottom corner on the right side towards the left from RS and from the left towards the right from WS. You are welcome to request assistance with diagrams from your DROPS store even per mail or telephone. Happy crocheting!

17.09.2018 - 10:06

country flag Johanne Elise Reianes skrifaði:

Jeg har heklet prøvelapp med nål Nr 3 og får fremdeles ikke 5 store lm-buer innenfor 10 cm. Jeg får ikke 4 lm-buer innenfor engang. Det må vel være feil i oppskriften? Jeg hekler ikke løst.

25.06.2018 - 14:42

DROPS Design svaraði:

Hei Johanne. Vi har nå for orden skyld heklet M.1 som anvist (5 lm, hopp over 3 lm, 1 fm osv), og får da 5 luftmaskebuer på 10 cm, så det er ingen feil i oppskriften. Heklefastheten er veldig individuell og det er helt normalt å måtte endre på nåltykkelsen for å få det til å stemme. Det viktige er at du finner en nål som gir den riktige heklefastheten, men så lenge det er i orden blir i plagget riktige mål. God fornøyelse

27.06.2018 - 11:13

country flag Ines skrifaði:

Bin jetzt beim Beenden der Vorderteilen. Aber habe jetzt was bemerkt: die beiden Teile, vorne, also wo der Knopf hinkommt, sind nicht gleich/symmetrisch. Also die Löcher am Rand von linken und rechten Seite stimmen nicht überein (sind nicht gleich). Hab ich da was falsch gemacht? Und noch eine Frage, was macht man mit den Garnspitzen die da herumhängen? Wie versteckt man die?

20.06.2018 - 23:40

DROPS Design svaraði:

Liebe Ines, es kann sein, daß die beiden Seiten von M.1 nicht genau symetrisch sein (siehe Diagram), aber solange Ihre Arbeit wie M.1 aussieht, stimmt es schon - gerne können Sie aber Ihre Arbeit Ihren Laden zeigen (auch im Foto und per Mail). Am Ende häkeln Sie noch die Blende. Dieses Video zeigt, wie man Baumwolle vernäht. Viel Spaß beim häkeln!

21.06.2018 - 08:20

country flag Ines skrifaði:

PONTO FANTASIA 1 CARREIRA 2 : 5 pc, 1 pb no pc a meio do 1.º aro, 2 pc, 1 mc no mesmo pc, *5 pc, 1 pb no pc a meio do aro seguinte, 2 pc, 1 pbx no mesmo pc... 1 mc ou será 1 pc no mesmo pc ? Ou é como na repetição 1 pbx?

13.06.2018 - 23:10

DROPS Design svaraði:

Bom dia, O "mc" era uma gralha que já foi corrigida. Muito obrigada pela chamada de atenção! Efectivamente, é 1 pbx!

14.06.2018 - 11:51

country flag Hilary Butler skrifaði:

What size cotton do you use for the 4.5mm crochet hook. As the 'Wendy Suptrme cotton DK here in England says use a 4mm hook. Can I still use this cotton but case on less chain. I just Love your patterns.

26.04.2018 - 18:26

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Butler, We are able to provide free patterns thanks to our yarns sold throughout the world. You will therefore understand that we can only recomand you to contact our DROPS Store for any further help & assistance. Thank you for your comprehension.

27.04.2018 - 08:45

country flag Nicoletta Ragusi skrifaði:

Buonasera, non riesco a capire come fare le diminuzioni per il davanti destro/sinistro. Io ho capito cosi: dopo aver lavorato i primi 9 occhielli, alla terza riga del diagramma M1 procedo con le diminuzioni fin quando ne rimangono 6 e poi proseguo fino alla spalla. Ma cosi facendo risulta uno scollo squadrato...dove sbaglio? Grazie

15.02.2018 - 18:29

country flag Lea skrifaði:

Bonjour ! Je ne comprend pas bien à quelle moment je dois faire les diminution. Dois je diminuer comme sur le diagramme tout le long des rang ?

18.11.2017 - 16:06

DROPS Design svaraði:

Bonjour Léa, pouvez-vous indiquer à quel niveau vous en êtes et quelle taille vous réalisez? Merci!

20.11.2017 - 09:01