Zanap skrifaði:
I like it - plain and simple but beautiful. It gets my vote
06.01.2012 - 16:08Slimani skrifaði:
Je vote
03.01.2012 - 15:16
Antonella skrifaði:
Edel und zart zugleich!
03.01.2012 - 12:41
Martine skrifaði:
Je trouve que ça fait trop babacool.
01.01.2012 - 06:56
Gabriela skrifaði:
Edel und schlicht - darf im Schrank nicht fehlen!
31.12.2011 - 18:21
Ann-Marie skrifaði:
Fin, romantisk modell, kan varieras. Den vill jag göra
29.12.2011 - 13:31
Herta-Marie skrifaði:
Den här vill jag göra! Naturvit med färgad kant eller kanske svart!
28.12.2011 - 12:53
Giusy53 skrifaði:
Modello semplice e raffinato, da fare subito
26.12.2011 - 10:11
Giusy skrifaði:
Questo modello mi piace molto,e super chic
26.12.2011 - 10:03T Winchester skrifaði:
This is the poorest showing in the last 4 seasons. Everything seems to come short of the design's potential almost as though the designers are waiting to see which way the current styles are headed. What are you waiting for? Your designers have so much more inside them than this spring line represents.
24.12.2011 - 05:03
Whispers#whisperscardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Alpaca. Stærð S – XXXL.
DROPS 136-13 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Hver st í byrjun umf er skipt út fyrir 3 ll. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Endurtakið umf 1 og umf 2. M.1 sýnir 3 mynstureiningar á breiddina og 1 mynstureiningu á hæðina. LEIÐBEININGAR UM MÆLINGU: Vegna mynsturs teygist á stykkinu. Öll mæling er gerð þegar stykkinu er haldið uppi. ÚRTAKA: Fækkað er um 1 mynstureining í X.1, eða ½ mynstureining í X.2. Fækkið lykkjum í byrjun umferðar þannig: Skipt er út 1 mynstureiningu fyrir 6 kl og ½ mynstureining er skipt út fyrir 3 kl. Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Snúið stykkinu þegar eftirstendur annað hvort 1 eða ½ mynstureining. ÚTAUKNING (á við um ermi): Aukið er út um ½ mynstureiningu. Aukið út með því að snúa við í 6/7 ll í stað 3, sjá mynsturteikningu X.3. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. BAKSTYKKI: Heklið 120-132-144-156-168-180 ll (meðtaldar eru 8 ll til að snúa við) með heklunál nr 3,5 með litnum blár DROPS Alpaca. Heklið 1 st í 9. ll frá heklunálinni, * 2 ll, hoppið yfir 2 ll, 1 st í næstu ll *, endurtakið frá *-* = 39-43-47-51-55-59 st. Heklið eftir mynsturteikningu M.1 (1. umf er nú lokið, byrjun á umf 2) = 19-21-23-25-27-29 mynstureiningar. Þegar stykkið mælist 10 og 20 cm – Lesið LEIÐBEININGAR UM MÆLINGU, fellið af ½ mynstureiningu hvoru megin – lesið ÚRTAKA og mynsturteikningu X.2 = 17-19-21-23-25-27 mynstureiningar. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm er lykkjum fækkað af fyrir handveg hvoru megin í hverri umf þannig: Heklið 1 mynstureininu 1-1-2-2-2-2 sinnum, síðan ½ mynstureiningu 0-2-2-2-4-4 sinnum = 15-15-15-17-17-19 mynstureiningar. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm er hekluð 1 umf aðeins yfir síðustu 6-6-6-6-6-7 mynstureiningar hvoru megin (ekki er heklað yfir 3-3-3-5-5-5 mið mynstureiningarnar = hálsmál). Heklið 1 umf til baka og klippið frá, þegar stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HALDIÐ ER ÁFRAM! Heklið 66-72-78-84-90-96 ll (meðtaldar eru 8 ll til að snúa við) með heklunál nr 3,5 með litnum blár DROPS Alpaca. Byrjað er frá miðju að framan og heklað að hliðum. Heklið 1 st í 9. ll frá heklunálinni, * 2 ll, hoppið yfir 2 ll, 1 st í næstu ll * endurtakið frá *-* = 21-23-25-27-29-31 st. Heklið nú eftir mynsturteikningu M.1 (1. umf er lokið, byrjið á umf 2) = 10-11-12-13-14-15 mynstureiningar. Þegar stykkið mælist 15 og 25 cm er lykkjum fækkað í hliðum eins og á bakstykki, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli í annarri hverri umf að miðju að framan þannig: Fækkið um ½ mynstureiningu 4-4-4-6-6-6 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm er lykkjum fækkað fyrir handveg í hliðum á sama hátt og á bakstykki. Eftir úrtöku eru 6-6-6-6-6-7 mynstureiningar eftir á öxl. Heklið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, klippið frá og festið enda. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og hægra framstykki. ERMI: Heklið 60-60-66-66-72-72 ll (meðtaldar eru 8 ll til að snúa við) með heklunál nr 3,5 með litnum blár DROPS Alpaca. Heklið 1 st í 9. ll frá heklunálinni, * 2 ll, hoppið yfir 2 ll, 1 st í næstu ll *, endurtakið frá *-* = 19-19-21-21-23-23 st. Heklið nú eftir mynsturteikningu M.1 (1. umf er lokið, byrjið á umf 2) = 9-9-10-10-11-11 mynstureiningar. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um ½ mynstureiningu hvoru megin, endurtakið útaukningu með 12-7-7-7-7-7 cm millibili 3-5-5-5-5-5 sinnum – lesið ÚTAUKNING = 13-15-16-16-17-17 mynstureiningar. Þegar stykkið mælist 48-47-47-46-46-45 cm (styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) fellið af 1 mynstureiningu hvoru megin fyrir handveg. Fellið af ½ mynstureiningu hvoru megin í annarri hvorri umf alls 0-0-0-0-2-2 sinnum, síðan í hverri umf 6-7-8-8-6-6 sinnum = 5-6-6-6-7-7 mynstureiningar. Heklið þar til stykkið mælist 57-57-58-58-59-59 cm, klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Saumið ermar í. Saumið erma og hliðarsauma í eitt – saumið kant í kant með smáum, fíngerðum sporum. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant með heklunál nr 3,5 með litnum ljós grár DROPS Alpaca efst á hægra framstykki, kringum hálsmálið, niður með vinstra framstykki, hring um neðri kant og fremst á ermum þannig: Heklið 1 fl, * hoppið yfir 2 cm, 4 tbst um næstu ll, 2 ll, 4 tbst um sömu l, hoppið yfir 2 cm, 1 fl um næstu l *, endurtakið frá *-* og endið með einni kl í fyrstu ll. YFIRDEKKT TALA: Hekluð er yfirdekking á 1 tölu með heklunál nr 3,5 með litnum ljós grár DROPS Alpaca þannig: Heklið 2 ll, heklið nú 16 st í fyrstu 2 ll sem heklaðar voru, endið með 1 kl efst í fyrsta st (= UMFERÐ 1). UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hvern st og endið með 1 kl í fyrstu fl í umf. UMFERÐ 3: Heklið 1 st í aðra hverja fl og endið með 1 kl í fyrsta st í umf = 18 st. Setjið töluna innan í yfirdekkinguna, þræðið í kringum kantinn og herðið að. Saumið töluna í vinstra framstykki, nákvæmlega þar sem úrtaka fyrir hálsmáli byrjar. Tölu er hneppt í gegnum gat í mynstri. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whisperscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 136-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.